Tíminn - 22.07.1959, Blaðsíða 10

Tíminn - 22.07.1959, Blaðsíða 10
10 TÍMINN, miðvikudaginn 22. júli 1951A Pressulið leikur við B-lands- liðið í knattspyrnu á morgun — Leikurinn verSur há(5ur á Laugardatsvelli B-Ii'Öi‘S íer til Færeyja á laugardaginn Lá við að hætta yrði við leik Fram og Keflavíktir í Njarðvík vegna þoku Annað kvöld, fimmtudag, fá knattspyrnuunnendur tæki færi til að sjá B-landsliðið í knattspyrnu, sem leika á landsleik við Færeyinga hinn Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að þeir trúu og tryggu áhugamenn Fram, sem gerðu sér leið til Njarð- víkur til að horfa á liðið leika við ÍBK, fóru nú jafnvel í fyrsta sinn í sumar ánægðir jheim. Hefur það vafalaust komið þeim vel að klukku- tíma akstur er frá Njarðvík til Reykjavíkur, og því gefizt tími til að ræða málin og gleðjast yfir unnum sigri. Og Framarar mega vera vel ánægðir, því að liðið sýndi loksins það, sem menn — þar á ég sér- URSLIT í leikjum í 1. deild að undanförnu hafa orðið þessi: Keflavík — Valur 3—2 Fram — Þróttur 5—1 Akranes — KR 0—2 Þróttur — Valur 2—3 Keflavík — Fram 0—3 / 1 Staðan í deildinni er nú þannig: K.R. 6 6 0 0 27— 3 12 Frain 6 3 2 1 13—12 8 Valur 7 3 13 12—16 7 Akranes 5 3 0 2' 10— 9 6 Keflavík 7 115 9—17 3 Þróttur 7 0 2 5 7—21 2 ■staklega við Framara — hafa vilj- að halda fram, að það er knatt- spyrna til í liðinu. — Jafnvel Arn- eríkani, sem var þarna að horfa á ieikinn, en Ameríkanar hafa sem kunnugt er, lítið vit á knattspyrnu, sá þetta. Er ég spurði hann hvern-; ig honum líkaði leikurinn, sagði hann: „Þessir bláu hafa meiri sam- : vinnu og betra samspil.“ Og þetta; er mergurinn málsins, — Fram- arar unnu leikinn með samhug og samspili. Og einnig eins og Hauk- ur Óskarsson sagði: „Fram sýndi virkara spil, en þeir eiga ekki mikla skotmenn.“ Og það er einnig satt. Ef Framarar hefðu sýnt meiri skotfimi, hefði sigur þeirra orðið mun meiri, því tækiíærin skorti ekki. — Keflvíkingarnir mættu til leiks án Páls Jónssonar, sem meiddist í leiknum við Val, en í stað hans lék á kantinum Skúli Skúlason, og sannaði, svo ekki verður um villzt; að hann á tilverurétt í lið- inu. Skúli var áberandi bezti mað- ur IBK liðsins, og maður, sem lagði sig fram við að reyna að byggja upp spil. Áberandi galli er það á leikmönnum IBK liðsins, hve þeir tala mikið meðan á leik stendur, og fara þessi köll og fyrir- skipanir vaxandi með hverjum leik. Gefur það að skilja að ítuk þess að þetta er mjög óáheyrilegt fyrir áhorfendur, fer ekki svo lít- ill tími í þetta hjá leikmönnum, enda ekki tilgangurinn að vera að kenna mönnum knattspyrnu, er þeir eru komnir út á völlinn til keppni. Gott keppnisveður. Veður var frekar gott til keppni, en nokkur gola á annOð markið. Bjart var yfir meðan fyrri hálfleikur var leikinn, en í síðari hálfleik gerði dumbungs þoku, svo Til þess kom þó ekki og Fram lék sinn bezta leik í sumar og sigraíi Keflvíkinga meÖ 3—0 mikla að á köflum bjuggust menn við cið dómarinn yrði að stöðva leikinn. Nokkur kaldi kom og með þokunni og hafði sín áhrif á Ieik- inn og leikmenn. Var þetta gott dæmi um snögga veðrabreytingu á Suðurnesjum. Og við, sem á knattspymuleikinn horfðum, kom umst ekki hjá að hugsa, að þ?ið væri ekki að furða þótt Keflvík- ingar sýndu nokkurt kaldlyndi og þunga í leik sínum. Fyrri hálfleikurinn var betri hélmingur leiksinis. Bæði l'iðBn léku þá góða knaittspyrnu og áreið anlega það bezta, sem hefur sézt ■til þeirra. Leikurinn var nokkuð jafn. Upphlaup og sókn á báða bögú. Framarar voru þó meira í marktækifærum og vörn IBK oft mjög opin, .sem mikið til stafaði af því að hugur Hafsteins, fyrir- liða liðsins, var allur við að kdlla á leikmenn sína og gefa þeim fyrir skipanir í tíma og ótíma. Fyrsta m;lrk leiksins og það eina, sem skorað var í þessum hálfleik, kom á 23. mínútu. Voru tildrög þess hin skemmtilegustu og byrjuðu hjá markmanninum, sem kastaði knettinum fram til Ragnars, sem lék með knöttinn fram völlinn, sendi síðatn vel til Gretars, sem var vel staðsettur og braust eins og pilubrandur í gegn og skor- aði með öruggu skoti. Grétar var mjög virkur í þessum leik og hraði og góð knattmeðferð hans var Haf steini Guðmundssyni um megn. Skúli og Högni voru virkustu menn í framlínu IBK, en Rúnar ‘Guðmannsson sýndi yfirburði við að gæta Högna og stafaiði því ekki mikil hætta af honum í þessum leik. Kuldinn er fylgdi þokunni hafði sín áhrif á leik liðanna í síðari hálfleik. Þyngdi hann mjög leik Keflvíkinga, en hafði ekki eins áberandi áhrif á hina kviku og léttu leikmenn Fram. Leikur þeirral út .allan leikinn var glöggt dæmi um, að liðið er mun sterk- ara á grasvelli en á mölinni, og leikur þess virkari. Einn náungi kom með þá spurningu að fyrst nú væri leikið „heima“ og „heim- ■an“ og KRingar gumuðu svo mjög af því alð vera Vesturbæingar, hvort ekki væri sanngjörn krafa að Fram fengi að leika við þá í heimkynnum sínum í Austur- bænum, og þá á Laugrí'dalsvell- inum. Myndi það vafalaust skemmtilegra áð sjá þessi tvö lið Markahæstu leik- menn í L deild Þeir leikmenn, sem hafa skorað flest mörk í keppninni í 1. deild eru nú þessir: Sveinn Jónsson, KR 8 Þórólfur Beck, KR 7 Guðm. Óskarsson Fram 6 Ellert Schram, KR 4 Ríkarður Jónsson, ÍA 4 Gunnar Gunnarsson, Val 4 Jón Magnússon, Þrótti 4 Grétar Sigurðsson, Fram 4 leika þar, en á Melakellinum. En slíkt kemur víst ekki til greina. Síðari hálfleikur. Bæði mörk Fram í síðari hálf- leik gerði Guðmundur Óskarsson. Kom góð knattmeðferð hans mjög vel fram í þessum leik, og var hann ásamt Rúnari Guðmannssyni, bezti rnaður liðsins. Fyrra markið kom á 25 mín. Var það mjög glæsilegt mark. Fast og vel spyrnt hæðar- skot, sem hafnaði í efra hægra 'horni marksins. Síðara markið skoraði Guðmundur á 30 mín., eftir gott og skipulagt upphlaup. Guðmundur komst innfyrir vörn IBK. Heimir kom út til varnar, en Guðmundur lék fumlaust fram hjá honum og sendi knöttinn í opið markið. Nokkur kraftur færðist yfir Keflvíkingana í síðari hluta leiks- ins, með Sigurð Albertsson sem virkasta og bezta mann, en tæki- færin nýttust ekki, og lauk því leiknum með verðskulduðum sigri Fram 3:0. — Fram er nú orðið annað .stighæsta félagið í mótinu. Það getur þó vart ögrað KR úr því sem komið er, en hiklaust má segja, að gaman verður að sjá þá leika gegn KR og eigi síður gegn Akur.nesingum á grasvellinum á Akranesi. Haukur Óskarsson dæmdi leik- inn og honum til aðstoðar tveir af efnilegustu dómurum í flokki 'hinna ungu manna, sem eru að mennta sig í þeim vanþakklátu list, þeir Hreiðar Ársælsson og Ragnar Jónsson. Átti Haukur og að stoðarmenn hans ekki hvað sízt þátt í að leikur þessi var vel leik- inn, þótt Haukur af kunnu látleysi sínu hafi sagt eftir leikinn, að það hafi verið létt að dæma leik- inn, og lét orð falla um, að Fram- arar væru prúðir leikmenn. Game, > ■■ Game. Markmaðurinn í B-landsliðinu gerð- ist framherji og skoraði tvívegis Undanfarið hafa farið fram __ Valnr cifrrafii I>rntf moÁ .*?_? Undanfarið hafa farið fram fimm leikir í íslandsmótinu í knattspyrnu, 1. deild, og s.l. mánudagskvöld voru tveir leik- ir háðir. Á Meklvellinum í Reykjavík léku Þróttur og Val- ur og varð sá leikur mun t\d- sýnni en búizt hafði verið við. Valur fékk öruggan sigur, þeg ar þessi lið mættust í fyrri leik félaganna í mótinu, en nú mátti ■segjc'i, að úrslit í leiknum hafi verið tvísýn fram til hins síð- asta, þótt Valur hefði alltaf for ystu hvað mörkin snerti, og sigraði með þremur mörkum gegn tveimur. Lið Þróttar er í stöðugri framför og eftir þessum leik í!S dæma er alls ekki svo víst, að Keflavík geti talið sig örugga með að haldast áfram í deild- inni, en sem kunnugt er eiga Keflvíkingar og Þróttur eftir ■að leika í Njarðvík, og sá leik- ur sker úr um hvort liðið fell- ur niður — eða minnstn kosti benda allar líkur til þess. Að vísu hafði Valur nokkra yfirburði í leiknum við Þrótt hvað leik út á vellinum snerti, en leikmenn Þróttar hdfa sýnt það í leikjum að undanförnu, að liðið getur skapað sér tæki- færi til að skora — þó hins vegar að tækifærin hafi ekki verið notuð sem skyldi, og á það einkum við um leikinn ■gegn Fram s.l. föst'udag. Albert Guðmundsson mun vera hættur að leika með VaÆ — og þó það sé tjón fyrir liðið, er það þó rétt ákvörðun hjá Albert — í st'að þess „að visna“ ■upp í leiknum, því allir verða £.0 æfa til að halda við hæfi- leika sínum á knattspyrnusvið inu. í sambandi við þetta hafa verið gerðar nokkrar breyting- ar á Vailsliðinu t.d. er Björgvin ■Hermannsson (fyrrum landsliðs imarkmaður) kominn aftur í markið, en Gunnlaugu.r Hjálm arsson leikur nú innherja (hílim er hins vegar markmaður B-landsliðsins). Og segja má, að þett.a hafi gefizt nokkuð vel í leiknum við Þrótt því Gunn- laugur fór úr marki til að skora mörk. Hann skoralði sem sagt' tvö fyrstu mörkin fyrir Val, hið fyrra í miðjum fyrri hálfleik með skalla, en hið síðara er 18 mín. voru af síðari hálfleik, með spyrnu af stuttu færi. •— Gunnlaiugur var hættulegast'ur framherja Vals í leiknum þrátt fyrir nokkuð takmarkaða leikni, en hann e,. „stór og sterkur", og var einkum hættulegur með skalkt, þegar gefið var fyrir markið. í því sambandi kom fyr i,r einkennilegt atvik í leiknum í fyrri hálfleik. Gunnlaugur ■skallaði þá á mark Þróttar, en knötturinn lenti í höfði míJrk- manns Þróttar og fór yfir þver slá. j Nokkuð fljótlega í síðari hálf leik tókst Jóni miðherja Magn- ússyni að jafna fyrir Þrótt á nokkuð skemmtilegan hátt. — VíCur náði svo forystunni aft- ur, er Gunnlaugur skoraði, og síðan bætti Björn Júlíusson þriðja markinu við fyrir Val. En strax í næsta upphlaupi ■skoraði hægri útherji Þrótklr, Birgir Björgvinsson, og barátt-; an var í algleymingi. Bæði lið- in fengu tækifæri, sem þó ekki ■nýttus’t. j í liði Vals voru Árni Njáls- son, Matthías Hjartarson og Gunnalr Gunnarsson beztir, en hjá Þrótt' Halldór Halldórsson (sem lék nú sinn fyrsta leik gegn sínu gamla félagi). — Haraldu,r Matthíasson og Axel Axelsson. Dómari var Guðbjörn Jónsson KR, og dæmdi hann vel. — hsím. 29. þessa mánaðar. Liðið fer utan á laugardaginn 1 með Heklu. Liðið mætir á morgun ■pressuliði, sem Samtök í- þróttafréttamanna völdu. Leikið verður á Laugardals- velli. Liðin eru þannig skipuð: B-landsliðið: Gunnlaugur Hjálm arsson, Val; Einar Sigurðsson, Hrlfnarfirði; Helgi Hannesson, Akranesi; Guðmundur Guðmunds son, Keflavík; Jón Leósson, Akran. Ragnar Jóhannsson, Fram, Bald- ur Scheving, Fram; Guðmundui* Óskarsson, FrUm; Högni Gunn- laugsson, Keflavík; Björn Helga- ison, ísafirði og Ingvar Elísson, Akranesi. Varamenn eru: Þórður Ásgeirsson, Þrótti; Hörður Guð- mundsson, Keflavík; Gísii Sigurðs son, Akranesi, Grétar Sigurðsson, Fram og Guðmundur Sigurðsson Akranesi. Lið íþróttafréttamanna er þann ig skipað: Heimir Guðjónsson KR; Árni Njálsson, Val; Guðjón Jóns- 'son, Fram; Sveinn Teitsson, Akrai nesi; Hörður Felixson, KR, Helgi Jónsson, KR; Örn Steinsen KR; Sveinn Jónsson, KR; Ríkarður Jónsson, Akranesi; ÞóróMur Beck KR og Þórðuf Þórðarson, Akran. — Varamenn: Helgi Daníelsson, Akranesi; Hreiðar Ársælsson KR GrUðar Árnason KR og Rúnar Guð mannsson, Fram. íþróttafréttamenn völdu ekki þá leið, sem margir hefðu haft gaman að sjá, að tdka enga menn úr landsliðinu, en velja í þess stað leikmenn, sem ekki bafa kom ið til greina í A og B-ldadsliðin. En þar sem B-liðið er eadanlega ákveðið, varð ofan á, að velja okkar beztu menn, en nokkrar breytingair eru þó gerðar á því liði, sem sigraði Noreg á dögun- um. Helzt er þar að nefna, að nýir menn eru Heimir, markvörður, ■Guðjón, bakvörður, Helgi fram- vörður og Þórður Þórðarson vinstri útherji. Auk þess eru tals- verðíir tilfæringar á mönnum. —. Ríkarður er miðherji og Þórólfur innherji, og þeir Árni Njálsson, Sveinn Teitsson og Sveinn Jóns- son leika nú allir hægra megin, eins og þeir gera með félögum sínum, en ekki vinstra megin eins og í landsliðinu. En vissulega verður gaman aið fylgjast með hvort þessar breyt- ingar verða jákvæðar eða ekki. En hvað sem því líður verður leikur inn milli þessEJra liða áreiðanlega ■skemmtilegur. Akureyringar í úrslitum í 2. deild Keppni í 2. deild í knattspyrnil var háð í þremur riðlum, og liafa nú úrslit fengizt í tveimur þeirra. í Vestmannaeyjum léku lieimamenn við Víking úr Reykja vík og sigruðu með yfirburðum, sex mörkum gegn engu. Áður höfðu fengizt úrslit í ðeildinni Norðanlands. ísfirðingar og Akur eyringar léku á ísafirði og sigr- uðu Akureyringar með þremur mörkum gegn tveimur. Fyrir þann leik komast Akur- eyringar beint í úrslit, en úr- slit hafa enn ekki fengizt í riðl- inum í Hafnarfirðii. Þai' voru sem kunnugt er af fréttum liér á síðunni, fjögur félög. Þar urðu jöfn að stigum: Reynir, Sandgerði og Hafnarfjiirður, en liafa ekki ennþá leikið til úrslita. Það liðið, sem vinnur þann leik, mun síðan leika til úrslita við Vestmannaeyinga, og það liðið, sem sigrar í þeim leik, keppir við Akureyringa um réttinn til að leika í 1. dcild næsta sumas.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.