Tíminn - 30.07.1959, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.07.1959, Blaðsíða 8
T í MIN Nj fimmtudagínn 30. júlí 1950. Minnnig: Finnbogi Magnússon, LágaíeSli : Dey.r fé — deyja frændr d,eyr sjálfr it sama — en orðstir — deyr aldreigi — hveim er sér góðan getr. Mánudaginn 22. júní síðastliðinn varð brákvaddur Finnbogi Magnús son bóndi að Lágafelli í Austur- Landeyjum. Þessi sorgarfregn kom sem’þruma úr heiðskíru lofti yfir bæ og byggð, þar sem hann var nýskeð glaður og hress að vanda, og mátti segja á blóma- skeiði ævinnar. Hann var fæddur 25. febrúar 1908 að Reynisdal í Mýrdal. Foreldrar hans voru Guð- rún Jónsdóttir £rá Giljum i Mýrdal og.Magnús Finnbogason, Einarsson ar hreppstjóra í Presthúsum, en móðir Magnúsar var ‘Matthildur dóttir séra Páls Pálssonar prófasts í Höngsdal. Má af þessu sjá að Finn bögi á.Lágafelli var af Skaftfellsku bergi.brotinn, traustu og vel gefnu.1 Finnbogi sýndi það lika fljótt, er hann kom hér í Landeyjarnar, ung ur að árttm, að hann var dugmikill og stórhuga. Hann kom að Lága- felli 'fyrst sem kaupamaður árið 1930 til sæmdarhjónanna Sæmund- ar Óiáfssonar og Guðrúnar Sveins- dóittur. Og árið 1931 byrjaði hann að húa á Lágafelli. Og giftist þar sama ár Vilborgu Sæmundsdóttur á Lágafelli. Vilborg reyndist manni sínum traust og afkastamikil í önn dagsins enda sýnir það allt á Lága- felli utan stokks og innan að þau !ha£a verið samhent um að gera garðinn frægan, verkin sýna merk- in. Lágafellshjónunum, Finnboga og Vilborgu, varð tveggja barna auð-| ið, sem eru Hólmfríðut fædd 1931' gift Reyni Jóhannssyni og eru þau búsett í Hafnarfirði. Magnús er fæddur 1933 og er hann heima að Lágafelli aðalaðstoð móður sinn- ar eins og komið er. Bæði eru jþessi Ligafellssystkin, Hólmfríður og Magnús myndarleg og góð eins j og þau eiga kyn til. Biinnbogi á Lágafelli skilaði' miklu og vel unnu dagsverki eftir ekki lengra æviskeið. Hann breytti óræktarmóum og blautum mýrum í .gróandi tún á flákastórum svæð- um. Hann ræsti þetta allt og girti með traustum girðingum. Hann byggði stórbyggingar yfir sívax- andi heyleng og fénað, og allt með mestu vandvirkni. En það var meira en Lágafells- heimilið sem Finnboga var trúað fyrir. Hann gegndi mörgum trúnað- arstörfum út á við, bæði fyrir sveit sína og hérað. Hann átti sæti í sýslunefnd, hreppsnend, skatta- nefnd, Búnaðarfél. og deildarstjóra störfum með meira. Allt var þetta vel af hendi leyst, því hann var bæði samvizkusamur og vandvirk- ur að hverju .sem hann gekk. Finn- bogi skrifaði svo vel að það var prýðí á öllum reikningum og plögg um, sem frá honum komu. Hér er sem sagt skarð fyrir skildi, þegar Finnbogi er fallinn frá öllum störf um inn á við og út á við, heima og heiman. Af þessu má sjá, að hér er margs að minnast og margt að þakka. Lágafellsheimilið með aliri sinni gestrisni og margþættri góðvild sem við höfum notið þar, Land- eyingar, og hverjir aðrir ,sem þar hafa að garði borið. En þrátt fyr- ir allt veit ég að missirinn er mest ur á hans eigin heimili. Því að hann var indæll heimilisfaðir í ailan máta elskulegur eiginmaður og góður faðir, já góður húsbóndi í einu og öllu. Og skjólgott hefur lengi þótt undir Fellinu, bæði fyr- ir börn og gamalmenni, sem þar hafa dvalizt eða dagað uppi, og talar það sínu máli um þá sem þar haf húsum ráðið. Þð er eitt, sem gleður mig mest, að lí-ta yfir farinn veg Finnboga á Lágafelli, og það er hversu hann virti kirkju og kristni. Hann var kirkjurækinn og söngelskur. Eg er sannfærður um að hann var trú- maður. Hann vissi á hvern hann trúði. Og ef til vill hefur hann ver ið kallaður heim, til þess að starfa meira Guðs um geim. Góður Guð blessi honum eilífðarförina. Því stutt og fljót er stundin nauða, en stór og löng er eilífðin. Og að síðustu vottum við Vil- borgu á Lágafelli, hörnum hennar og öðrum vandamönnum, okkar dýpstu samúð við fráfall Finnboga á Lágafelli með alúðarþökk fyrir allt og allt. í Guðs friði. GuSni Gíslason. Krossi. V.V.’.V.VAV/.VAVV.V/.V MinningarortJ Tapað Barnaþríhjól tapaðist 2. júlí ú leiðinni Rvík—Eyjafjöll. •— Finnandi láti vinsamlegast vita að Yzta-Skála. Sími um Varma- hlíð. VV.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V V.V.’.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V Nýir fjaðra- og svefndýnu svefnsófar seljast í dag og á morgun með 1000 krória afslætti. Nýtízku áklæði. Sófasalan Grettisgötu 69 (Opið 2—9.) .■.v.vv/.v.v.v.v.v.v.v.v. /AW.V.V.V.V.V.V.V.V.V. Vélritunarstúlka vön og reglusöm, óskast 12— 18 stundir á viku — Bréfa- skriftir á íslenzku, ensku og dönsku. Vinna allan daginn gæti komið til greina. Tilhoð merkt „Bréfritari" sendist blað inu fyrir 6. ágúst n.k. w.v, a m a a m m (Framhaja ar S. siðu) 1918, er ég heimsótti æskustöðvarn ar. Var mér þá tekið tveim hönd- um í Krossgerði. Vildu þau ágætu hjón að ég dveldist þar miklu leng ur en ég hafði tíma til. Þá voru synir þeirra, Ingólfur og Sigurður, sem síðar drukknuðu, að vaxa upp en þó nokkuð innan við' fermingu. Meðan ég dvaldist þar var fært frá. Drengirnir .höfðu aldrei verið í hjásetu, svo það varð úr, að ég fór með þeim fyrata daginn. Hafði gaman af að líta fornar hjásetu- stöðvar og gat leiðbeint þeim hvar léttast væri að hafa ærnar fyrstu dagana. Síðan fór ég með Vilborgu, Jó- hönnu í Berunesi og Þóru dóttur Vilborgar í ferðalag á hestum suð ur að Geithellum, og heimsóttum þar Helgu systur Vilborgar. Ferða lagið var hið ákjósanlegasta og ferðafélagarnir ekki síðri. í baka- leið komum við á Djúpavog.um lágnættisskeið. Þar lá þá strand- ferðabáturinn Reginn, en með honum ætlaði Þóra til Hornafjarð ar. Allir voru komnir í svefn. Eg tók þá bát ránshendi og flutti Þóru um borð í .skipið. Þegar ég kom í land aftur voru þær Vil- borg og Jóhanna búnar að vekja upp og greiða fyrir gistingu. Eftir þetta sá ég ekki Vilborgu aftur fyrr en hún fluttist til Reykjavíkur. Eftir það hittumst við af og tU. Og við hjónin nutum þeirrar ánægju að geta heimsótt hana röskum sólarhring áður en hún dó. Þá var hún jafn ung í anda sem endranær. Nú er andi hennar horfinn til himnanna hæða, þar sem hún fæf í ljósbrotum eilífðarlífsins aft- ur að líta og dveljast með ástvin- um sínum, sem þangað eru horfnir á undan henni. Við hjónin þökkum henni alla tryggð hennar við okkur og ágæt- ustu kynni á lífsleiðinni o,g óskum henni góðrar heimkomu til eilífð- arlífsins. Ástvinum hennar vottum við innilega samúð við vistaskiptin. Jón Þórðarson. HarSstjórn Breta í Nyasalandi NTB—LONDON, 28. júlL — Um- ræður eru í brezka þmginu um svokaUaða Deviin-skýrslu, sem e,- árangur af rannsókn á ástandinu í Afríkunýlendum Breta í Nyasa landi. Kemur þar fram hörð gagn rýni á nýlendustjiómina og sagt a'ð í Nyasalandi sé nú hreint löig- regluríki eB ekki réttarríki. — Bar Verkamannaflokkurinn frant vantraust á stjórnina vegna Itinn ar slæmu nýlendustjómar, en seint í gærkvöldi var vantraustið fellt með rúmlega 20 atkv. mun Umræður þesa r vekja geysilegt umtal og athygli, en svipt hefur verið ofan af kúgun nýlendu stjómarinnar á blökkumönnum, AuglýsiS í Tímanum meS FALKiNN HLJÖMPLÖTUDEILD WW.VW.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.’.VAV.V.V.W.V.V.V I i; Skrifstofan er flutt á Laufásveg 2 KVENFÉLAGASAMBAND tSLANDS I V.V.V.VWWW.W.W.VWWW.VV.V.V.VW/WWWW kWWWWVvW.VWWWWAW.VV’AVWAV.W/JWWV Símanúmer okkar er !j 10 — 5—10 } ANDERSEH & UkUTH H.F. % VERKSMISJAN FÖT H.F. í VWJWWW/WAV.V/A,.\VW//.WW.V//.WAWV,WV

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.