Tíminn - 16.08.1959, Qupperneq 12
Þinglausnir í gær
Kosningar ákveínar dagana 25. og 26. okt.
* Bræla
eystra
Bræla var á miðunum í fyrri
nótt og öll skip í vari. í fyrra
dag fengu l>ó nokkur skip síkl
inni á Fáskrúðsfirði. Löndtmar
bið er á öilum ltöfnum AuStan-
lands eins og kunnugí er og mun
standa fram í nti'ðja næstu viku.
Möng skip liafa siglt til Kaufar
hafnar og var þar einnig lönd
unarbið í gær, en búizt við að
löndun lyki í gærkveldi. Skipin
sigla jafnskjótt og þau hafa land
að austur fyrir Langanes afíur.
Veður gekk lieldur niður á ni35
unuin austanlands í g'ær, en var
ekki kornið bát.iveður er síðast
fréttist.
Forsetinn stað-
íestir kjördæma-
írumvarpiS
Á fundi ríkisráðs í Reykjavík í
dug staðfesti forseti íslands m. a.
stjórnskipunarlög um breyting á
stjórnarskrá lýðveldisins íslands
17. júní 1944 og lög um kosning'ar
Fundur var settnr í samein-
uðu Alþingi kl. 13.30 í gær
og' fóru þá fram þinglausnir.
Forseti gaf stutta skýrslu um
störf þingsins. Það hefð' stað-
ið í 26 daga, þingfundir í
neðri deild verið 17, í efri
deild 13 og sameinuðu þingi
14 eða alls 44. Fyrir þingið
hefðu verið lögð 9 frv.; 3
þeirra afgreidd sem lög frá
Alþingi en 6 ekki útrædd.
5 þingkályktanir voru bornar
fram, 1 þeirra samþ., sem ályktun
Alþingis en hinar ekki útræddar.
Þrjár fyrirspurnir komu fram (og
þó fleiri því sumar voru á sam
eiginlegu þingskjali), og voru all
ar ræddar.
Forseti kvað þingið myndi reyn
ast örlagaríkt þó að stutt hefði
verið. En þótt skiptar væru skoð
anir um störf þess, þá myndi það
sameiginleg von ollra, að þau mál,
er það fjallaði um, mættu reyn
ast þjóðinni til farsældar.
Þakkaði þvínæst þingmönnum og
slarfsliði þingsins góða saimvinnu
og óskaði mönnum heilla.
Eysfeinn Jónsson þakkaði for
seta árnaðaróskir og fær’ði hon
um þakkir þingmanna fyrir góða
fundarstjórn og bað menn taka
undir það með því ag rísa úr sæt
um. Va,- svo gert.
Forseti þakkoði á ný.
Forseti íslands gekk nú í sal
inn, en þingmenn risu úr sætum.
Hann kvað kosningar til Alþingis
vera ákveðnar dagana 25. og 26.
okt. Los þvi næst forsetabréí urn
þinglausnir og lýsti yfir aö þingi
væri slitiR — og bað þingmenn
m innast fóstu rj arðarinn ar.
Laos biður um
efíirlitssveit
NTB—Vientiane 15. ágúst. Bróð-
ir Sananikones forsæti'sráðherra
í Laos er nú á leið íil New York
meff beMiii Laosstjórnar til
Ifammarskjölds framkvæmdastj.
um að S.Þ. sendi ei'tirlitssveit
til Iandamæra Laos og Norffur-
VietnanVs.
Biður Laosstjórn um eftirlits-
menn frá einhverjum hlutlausum
ríkjum. Telur stjómin sennileg
ast, .að aðeins verði um einfn
mann að ræða eða aff minnsta
kosti mjög fáa. Tálsmaður stjórn
arinnar sagði, að þessir menn
fengju varla annað hlutverk en
það að staðfesta þann framburð
Laosinga, a N-Víetnamshermenn
hefðu barizt í Laos .og skýra S.
Þ. frá, hvað Þeir sjá á landamær
unum.
til Alþingis.
Þriöja tungliö
á átta dögum
Átti aft sjást meft berum augum, Tilraunin
misheppna'ðist
NTB — CANAVERALHÖFÐA
15. ágúst. Bandaríkjamenn til
kynntu í morgun með nokkru
stolti frá Canaveralhöfða, að
menn myndu um mikinn hiuta
heims geta séð bandarískt
gervitungl með berum augum.
Þaðan skutu vísindamenn í
nótt þriðja gervitungli Banda-
Flöt hey huríu
Frá frétarilara Tímans í Slaðar-
sveit 15. ágúst.
í gærmorgun birti hér í lofti
eftir langvarandi þurrkleysur. Var
góður þurrkur fram eftir degi og
breiddu bændur mikið hev, en fyr-
ríkjamanna á átta dögum. Var
fyrst 1 stað tilkynnt,. að allt
hefði gengið eftir áætlun.
En ekki var aiit sem sýndist.
Þremur stundum eftir skotið 1:1-
kynnii yfirstjór.n geimkönnuðar
Bandaríkjanna, að gervitunglið
hefði ekki komizt á braut sína um
jörðu, eitthvað hefði gengið úr
lag'i, en ekki var vitað, hvað það
var. Gervitunglið hrapaði inn í
þéttari loftlög og brann upp. Notuð
var þriggja þrepa flaug, og var
fyrsta þrepið Júpíter en hin síðari
tvö af Júnó-gerð. Sennilegast er
taliö, að síðasta þrepið hafi ekki
reynzt nógu kraftmikið, en annars
(Framhald á 11. síðu)
t--------------------
Berserksgangor
á Ákureyri
í fyrrinótt var berserkur nokkur
að verki á Akureyri. Fór liann
ölóður um stræti, og gerði sér
það helzt til skemmtunar að
mölva rúður i bifreiðum manna.
Mun hann hafa vegið að fjórum
bílum, og voru sumar rúðurnar
öfiugri en svo að venjulegt hnefa-
högg þyrfti til að vinna á þeim,
en ekkert stóð fyrir berserknum.
Allir voru bílarnir nýlegir og einn
alveg nýr. Maðurinn var gripinn
þegar að morgni og fær nú að
sæta ábyrgð fyrir þessa nætur-
skemmtun.
>_________________—/
Auknar ráöstafanir á
móti geislahættunni
ir va,- mikið magn af nýslegnum
heyjum. Er leið að kvöldi tók að
hvessa af norð-austri, og varð
f’jótlega við ekkert ráðið. Hélzt í
nótt norðaustan ofsaveður, með
þeim meiri, sem hér koma Urðu
miklir skaðar í sveitinni, hey sóp-
uðust í burtu með öl'u. svo hundr-
uðum og jafnvel þ.úsunum kapla
iiæði flatt og uppsetí.
Þak fauk af íbúðarhúsinu á
Lýsuhóli, og einnig þak af fjósi á
þekn bæ. Þá fauk þak af fjárhús-
um á bænum Barðastöðum og fauk
í sjó fram.
Heyskaðin er enn ekki fullkann
aður, því hér er enn stórviðri.
NTB — WASHINGTON, 15.
ágúst. Eisenhower Bandaríkja
forseti hefur sett sérstakt
geislaverndarráð, sem á að
hafa það hlutverk fvrst og
fremst að vei'a forsetanum til
ráðuneytis um ráðstafanir til
a ð vernda almenning fyrir
skaðvænlegum áhrifum geisla
virkra efna, er losna við kjarn
orkusprengingar.
Ástæðan er sú, að forsetinn hef
ur séð sig knúinn af aimennri
vakningu og óttai almennings við
þessi efni, aðallega •strontium 90.
Hvarvelna úr ríkjunum hafa bor
izt ádeilur á starf kjarnorkuráðs
ins, sem hefur hingað til bæði
haft yfirumsjón me ðkjarnorku-
sprengingum og fengiff skýrslur
um geislamagniö. Iíafa harðar á-
sakani,. komið frá vísindamönnum
háskólanna svo og yfirvöldum ein
stfjkra borga og héraða.
Gagnrýni. hefur harðnað mjög
aff undanförnu, og æðstu yfirvöld
þessara mála verið sökuð um víta
vert gáleysi, sérstaklega eftir að
verulegt maign af strontíum 90 hef
ur fundizt í mjólk og hveiti. Hefur
forsetinn séð sig knúinn að setja
þetta igeislaveU.indaS.ufáff, ogj má
gera rág fyrir aukpum ráðstöfun
um til að vinna bug á helrykshætt
unni í Bandaríkjunum á næstunni.
Þ.G.
Eldmessan skorin í tré
Eins og áður hefur verið skýrt
frá hér í blaðinu var 100 ára af-
mælis Prestbakkakirkju á Síðu
minnst fyrir nokkru. Við það tæki
færi var kirkjunni færður að gjöf
skírnarfontur, gerður af hínum
þjóðkunna listamanni, Ríkaröi
Jónssyni. Fonturinn er þrístrend-
ur að lögun og á hvern flöt hans
skorin mynd. Eiga þær að tákna
hina frægu Eldmessu sr. Jóns
Steingrímssonar. Gripur þessi er
forkunnarfagur og vel gerður
eins og vænta mátti af hendi hins
snjalla og þjóðlega listamanns og
ber handbrag'ði hans og sköpunar
gáfu órækt vitni. Lofar verki'ð
sannarlega meistarann. Hér birf-
ast myndir þær, sem á fontinum
eru.