Tíminn - 22.08.1959, Qupperneq 4

Tíminn - 22.08.1959, Qupperneq 4
4 TÍMINN, laxigardagiiin 22. ágúst 1959. Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri og ábm.: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötn Símar: 18 300, 18 301,18 302,18 303, 18305 og 18 306 (skrifst., ritstjómin og blaSamenn). Auglýsingasími 19523. * Afgreiðslan 1232S Prentsm. Edda hf. Simi eftir :(d. 18: 13 940 Ranglæti veltuútsvarsins Á SÍÐASTL. ári kom hing aö til lands sænskur hag- fræðingur, Nils Vasthagen prófessor, til fcess aö semja álitsgerð um skattamál ís- lenzkra fyrirtækja. Höfðu iðnrekendur og fleiri aöilar fariÉS þess á leit, að erlendur fi’æðimaður yrði fenginn hingað til þess að segja álit sitt um þessi mál. Vásthagen prófessor skilaði ýtarlegri skýrslu um athugun sína og benti á ýmsar leiðir til aö bæta hlut fyrirtækja til fjármagnsmyndunar í sambandi viö skattlagningu. Flestar þær tillögur hans, er snertu skattaálögur ríkis- ins, iágu þá fyrir Alþingi í frumvarpi, sem hafði verið flutt að tilhlutun þáv. fjár- málaráðherra, Eysteins Jóns sonar, og varö það nokkru síð an að lögum. Að því er ríkið snertir, hefur því mjög 'ver- ið bættur hlutur fyrirtækja í sambandi við skattamálin frá því, sem var, þegar Sjálf stæðisflokkurinn lét af stjórn fjármála ríkisins í ársbyrjun 1950. AÐ dómi Vasthagens pró fessors var það útsvarsálagn ing bæjar- og sveitarfélaga, sem lék fyrirtækin larígverst og þó fyrst og fremst hið svo kallaða yeltuútsvar. í ný- komnu hefti af ársfjórðungs ritinu „íslenzkur iðnaður,“ sem Félag ísl. iðnrekenda gef ur út, eru rifjuð upp nokkur ummæli Vásthagens prófess- ors um veltuútsvarið. Meðal annars farast honum orð um það á þessa leiö: „Getið hefur verið þess sérkennilega skatts, veltu- útsvarsins, sem lagöur er á veltu fyrirtækjanna. Ókostir skattkerfis sveitarfélaganna, sem drepið var á hér rétt áð ur, eiga sérstaklega við um þennan skatt. Mér virðist, hann vera algerlega ósam- ræmanlegur skattkerfi, sem byggist á þeirri meginreglu að skattlegja hreinar tekjur. . . . Sýnt hefur verið, að þetta veltuútsvar nemur í vissum atvinnugreinum veru lega hærri upphæð en skatt skyldar tekjur, en við ákvörð un þeirra má ekki draga frá veltuútsvarið. Það vekur undr un, þetta skuli ekki hafa verið talið brjóta í bága við regluna um skatt. „eftir efn um og ástæðum." Með því að leggja á þennan veltuskatt geta sveitar- stjórnirnar hamalð verulega þróun fyrirtækja og gert viss“ ar atvinnugreinar algerlega óaröbærar. Skattlagning á veltu virðist hafa slíkar efna hagsafleiðingar að sveitarfé- lögunum ætti ekki að vera heimilt að beita henni." SIÁKUR er dómoir hins sænska fræðimanns um veltuútsvarið, sem hann gef ur í skyn, að- hvergi þekkist nema á Íslandí, a. m, k. í því formi, sem það tíðkast hér, Það leggst á án alls tillits til tekna og efnahags fyrirtækj anna. Yfirleitt leggst það ósanngjarnlegast á-þau fyr- irtæki, sem bjóða almenningi bezt kjör og hafa því mikla veltu en lítinn gróða. Hin, sem framleiða eða selja lítið, en hafa . háa álagningu, sleppa langbezt. Þess vegna ýtir veltuútsvarið mjög und ir öfugþróun í verðlagsmál- um og starfsháttum fyrir- tækja, jafnframt því, sem það tálmar eðlilega fjár- magnsmyndun þeirra. Það er í sambandi við veltu útsvarið, sem kaupfélögin standa heldur betur að vigi en einkafyrirtæki, þar sem það leggst ekki á viöskipti við félagsmenn, og þau þurfa ekki heldur, samkv. hæsta- réttardómi, að borga veltu- útsvar, sem er umfram tekj- ur. Það verða einkafyrirtæk- in hins vegar oft aö gera. í Reykjavík hefur veltuút svarið numið 0,5—5% af heildarveltu og getur því í mörgum tilfellum orðiö mjög tilfinnanlegt. , ÞAÐ hefur, verið álit Fram sóknarmanna, að veltuút- svarið væri óviðunandi í núv. mynd sinni vegna þess hve það léki einkafyrirtækin grálega og óréttlátlega. Hér yrði óhjákvæmilega að finna leiðir til úrbóta og kemur þar sithvað til athugunar. Lág mark virðist t. d. ,að einkafyr irtækin fengju ekki lakari aðstöðu en samvinnufélögin hafa nú. Til þess að efla heil brigða fjármagnsmyndun fyr irtækja, þyrfti þó að ganga lengra. Hingað til hafa allar úrbætur í þessum efnum, — einkum þó varðandi Reykja vík, þar sem veltuútsvörin eru hlutfallslega stærstur hluti útsvaranna— strandað á því, að ekki hefur náðst samkomulag um tekjustofn í staðinn. Að því verður að stefna, jafnframt því, sem draga þarf saman kostnað- Inn við bæjarreksturinn og mæta á þann hátt lækkun tekna, sem leiddi af afnámi veltuútsvarsins í ,núv. mynd sinn.. Sá flokkur, sem lengst hef ur gengiö í því að leggja á veltuútsvar, Sjálfstæðisflokk urinn, hefur verið furðulega tómlátur um að beita sér fyr ir úrbótum á þessu sviði. T. d. hefur hann ekkert gert síðan núv. stjórn kom til valda til þess að fá þetta mál leyst. Verðbólgubraskar- arnir, sem miklu ráða í flokknum, sleppa líka furðu vel við þennan skatt. Kannske skýrir það að nokkru tómlæti-Sjálfstæðis- flokksins í þessum enum. En jafnframt sýnir það, að Sjálf stæðisflokknum er ekki treystandi til að draga úr ranglátri skatpíningu, þótt hann tali fagurlega um það. ERLENT YFIRLIT: Leysir Krustjoff Berlínarmáliö? Sögusagnir um nýiar tillögur, sem hann muni leggja fvrir Eisenhower ÞAÐ MÁL, sem öðrum | fremur verður rætt, er fund- 1 um þeirra Eisenhowers og 1 Krustjoffs ber saman, verður | Berlínarmálið. Meginástæðan 1 til þess, að Eisenhower fór inn | á þá braut að bjóða Krustjoff | heim, var sú, að hann vildi H freista þoss á þann hátt að | finna lausn á þessu vanda- | máli, eftir að Ijóst var orðið, | að ekki næðist neitt samkomu- | lag um það á utanrikisráðherra | fundinum í Genf. Því aðeins | verður eining um það milli | vestrænna þjóða að láta þar | hart mæta hörðu, að áður hafi | allar leiðir verið reyndar til | samkomulags. Fyrir Rússa | veður líka þeim mun örðugra | að beita þar ofríki, sem meira | hefur áður verið reynt til þess 1 að finna friðsamlegá láusn á | deilunni. | Yfirleitt mun það lika talinn = mælikvarði á það, hvort fundir | þeirra Eisenhowers og Krust- | joffs þoka málunum í rétta | átt, hver verður árangur þeirra | í sambandi við Belínardeiluna. I Ef hún verður jafn óleyst eftir 1 sem áður. að þessum fundum 1 loknum hvílir áfram helzti | skugginn yfir sambúð vesturs | og austurs í Evrópu. ___________ E ■ ÞAÐ ER nú yfirleitt talið, | að Krustjoff sé orðið ljóst, að | vesturveldin geta ekki fallizt | á kröfur hans um að veikja að- i stöðu sína í ‘ Vestur-Berlín, i nema Rússar slaki eitthvað til É á rnóti. Líklegt þykir einnig, | að Krustjoff sé ljóst, að póli- | tísk vigstaða hans sé ekki góð, i ef hann heldur þessum kröfum i einhliða til streitu. Eftir heim I boð það, sem hann hefur fengið = frá Eisenhower, sé líka yfir- = leitt ætlazt- til þess af. honum, | jafnt erlendis sem heima fyrir, | að hann sýni meiri tilhliðrun 1 en áður. | í framhaldi af þessu gengur | nú all.s konar orðrómur um | nýjar tillögur, er Krustjoff 1 muni bera fram, er hann hittir 1 Eisenhowtr, um lausn Berlín- I ardeilunnar. Þessi orðrómur | er nú mjög ræddur í erlendum | blöðum og hann er talinn I skapa talsvérða óvissu og nokk | urn ugg hjá ráðamönnum í | Vestur-Evrópu. TVÆR sögur eru nú eink- | um í gangi varðandi þær til- | llögur, sem lí'klegt þykir, að | KrustjofÍE muni leggja fyrir Eis | enhower. | Önnur sagan er sú. að þeg- ar dr. Milton Eisenhcwer, bróð- ir forsetans var fyrir nokkru staddur í -Moskvu, en hann fór þangað með 'Nixon, hafi Krustjoff rætt við hann eins- lega um Berlínarmálið. í við- ræðum þessum, er Krustjoff sagður hafa stungið upp á því, að Vestur-Berlín yrði alveg sameinuð Vestur-Þýzkalandi, en samið vrði um flutninga til borgarinnar miili Vestur-Þýzka lands og Austur-Þýzkalands. Herlið vesturveldanna yrði flutt frá Berlín, eftir að skipan þess kæmist á. Sögusagnir herma er.n fremur, að Milton ■Eiísenhower sé þessari lausn fylgjandi, en hann er sagður hafa manna mest áhrif á bróð- Krustjoff ur sinn síðan Dulles leið. f vesturþýzkum blöðum er þess- ari lausn andmælt, þar sem hún myndi jafngilda viður- kenningu á Austur-Þýzkalandi. Hin sagan er sú, að austur- þýzka stjörnin sé nú að undir- búa flutning ó stjórnarskrif- stofum frá Austur-Berlín til Potsdam og jafnframt hyggj- ast helztu ráðamenn hennar að setjast að í Potsdam. Þetta er lal^ð standa í sambandi við þá fyrirætlun Krustjoffs að bei-a fram þá tillögu við Eisenhow- er, að Vestur-Berlín og Aust- ur-Berlín verði sameinuð undir aíþjóðlega stjórn, t.d. útnefndri af Sameinuðu þjóðunum. ENGINN dómur skal lagð- ur á það hér, hvað er hæft í þessum sögum. Hitt má hins vegar telja líklegt. að Krustj- off beri fram einhverjar nýj- (ár tillögur og bjóði jafnvel upp á me.ira en eina lausn. | Það er greinilega Ijóst, að í 1 taflinu um Berlin, sem fer É fram á fundum þeirra Eisen- | howers og Krustjoffs, hefur sá | síðarnefndi ólíkt betri aðstöðu. | Hann hefur aðstöðu til að 1 bjóða það, sem honum þóknast | en Eisenhower verður bundinn | í báða skó. Hann getur ekki | boðið neitt til lausnar Berlín- 1 ardeilunn:, sem bandamenn = hans eru ekki samþykkir. eink 1 um þó Vestur-Þjóðverjar. | Hann getur einnig átt á hættu i harða gagnrýni heima fyrir, ef | hann býður eitthvað eða fellst 1 á eitthvað, sem hægt verður | að túlika þannig, að það sé | meiri ávinningur fyrir Rússa 1 en vesturveldin. Senniiega | mun hann því engar nýjar til- \ lögur béra fram, heldur reyna \ að kynna Krustjoff sem hezt | viðhorf vesturveldanna og | leggja til, að ástandið haldizt | sem mest óbreytt í Berlín, unz | samningar nást um sameiningu 1 Þýzkalands. | ÞÓTT Krustjoff hafi bæði = á þennan og annan hátt rýmri = áróðursaðstöðu en Eisenhower, | er fundum peirra ber saman, | má hann samt vara sig á því, | að gerasi ekki of klókur. Ef | það verður of augljóst, að hann | er aðallega að bera fram á- 1 róðurstillögur, en býður ekki i neitt raunhæft fram, er getur i leitt til sátta, geta klókindi | leitt til að sýna alvöruley.si | hans. Það skrifast þá á reikn- | ing hans, ef kalda stríðið held- f ur áfram eða jíarðnar. Et deilu i mál eins og Berlínardeilan eiga i að leysast, verður 'það ekki i gert í neinu stóru stökki held- i ur verður að gerast smám sam- | an með gagnkvæmum tilslök- ,1 unum, er draga úr tortryggn- | inni á báða bóga. Þetta verður | vafalaust sú leið. sem Eisen- | hower bendir á. Fallist Krustj- | off á hana, mun það þykja | sönnun fyrir því, að hon- | um sé ekki síður umhugað um 1 að bæta sambúðina milli aust- f urs og vesturs. Þess ber svo að gæta, að eng I inn á aðveldara með að leysa- 1 Berlínardeiluna en. Krustjoff, | því raunverulega hefur hann | átt mestan þátt í því að koma | henni í óefni með hinum ótail— | gjörnu kröfum í garð vestur- | veldanna, er hann setti fram í f fyrrahaust, § Þ.Þ. | llllllllllllll III11 ■ II11IIVII í IVIII lllllllllllll tt lllll lllll iit itíimis Frá starfi S. Þ. 63 mál á dagskrá allsherjarþmgsins Allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna kemur saman í 14. sinn hinn 15. september í aðalstöðvum sam- takanna í Nev York. Meðal þeirra stórmála, sem tekin verða til með- forðar, eru málamiðlun S. Þ. í Al- sír.stríðinu, aðild Kína að samtök- unum pg kynþáttavandamálið í Suður-Afríku. Á dagskrá þingsins, eins og hún liggur nú fyrir, eru 63 mál. Auk hinna venjulegu mála sein fjallað er um á hverju þingi verður rætt um möguleikann á því að auka með Iimatölu Öryggisráðsins og Efna- hags- og félagsmálaráðsins. Þá verður og rætt um fjölgun í Al- þjóðadómstólnun. Öll þessi mál vorn einnig rædd á síðasta þingi. Þá eru á dagskrá þingsins um- ræður um bann við tilraunum með kjarnavopn. Af skýrslum sem lagðar verða fram má nefna skýrslu um njdingu 'kjarnorkunnar og geimsins, skýrsl- ur um efnahagsþróunina í vanþró- uðum löndum, þróunina á gæzlu- verndarsvæðum samtakanna, gæzlu Iið S.Þ. (m. a.-kostnaðinn við það) og starf S.Þ. meðal flóttamanna. Allsherjarþingið verður sett af formanni sendinefndarinnar frá Líbanon. Geðverndarráðstefna í í Helsinki ....... Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (VHO) hélt dagana 24. júní til 3. júlí ráðstefnu í Helsinki, þar sem rætt var utn geðverndarmál. Ráð- stefnuna sóttu um 60 fulltrúar frá 26 Evrópulöndum. Tilefni ráðstefnunnar var meðal annars hin sívaxandi útbreiðsla tauga- og geðsjúkdóma. Um tvær milljónir af íbúum Evrópu eru nú undir læknishendi í taugaveiklun- ardeildum .sjúkrahúsa. Næst á eft- ir kvefi er taugaveiklun álgengasti sjúkdómur í iðnaðinum. Ráðstefnan ræddi árangurinn af nýjustu aðferðum í meðferð slíkra sjúkdóma, og jafnframt var rætt um þær orsakir sem liggja ' til grundvallar hinni auknu tauga- veiklun nútímamanna. Fulltrúarnir voru á einu máli um ákveðnar meginlínur í sam- bandi við meðferð geðsjúkdóma: betri hjúkrun til að ná skjótari ár- angri; betri menntunarskilyrði fyrir taugaveikluð börn. til að koma í veg fjTÍr að þau verði viðloðandi sjúkrahús eða geðverndarstofnan- ir alla ævi; skjótari greining geð- sjúkdóma með samvinnu lækna, kennara, dómara, lögreglu og starfsmanna opinberra hjálpar- stofnana; betri aðbúð og umönn- un á stofnunum íyrir börn og gam- almenni; aukinn skilniug almeiin- ings á eðíi taugaveikluar og loks auknar rannsóknir.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.