Tíminn - 30.08.1959, Page 10
10
TÍMINN, sunnudagiim 30. ágúst 1959.
íslenzkt unglingalandslið í knattspyrnu þarf ekki
að standa að baki slíkum liðum á Norðurlöndum
íslenzka landsliðið í knatt-'
spyrnu hefir í sumar náð betri
árangri en nokkru sinni fyrr.
Hinn góði árangur þess í und-
ankeppni Olympíuieikjanna hef
ir vakið mikla og verðskuldaða
athygli í heimi knattspyrnunnar.
Eftir keppni sumarsins er Is-
land vidurkennt sem fyllilega
samkeppnisfært við hin Norð-
urlöndin í knattspyrnu og hinn
góði árangur hefir verið tekinn
sem merki um rnikla framsókn
í knattspyrnumálum á íslandi.
„Glöggt dæmi um framsókn þá,
er orðið hefir í íslenzkri knatt-
spyrnu, eru hinir ungu nýliða:
í landsliðsflokknum. Tveir þeirra
— Þórólfur Beck og Örn Stein-
sen — eru aðeins 19 ára. Og þeir
eiga það sameiginlegt, að þeir
eru fýrstu íslenzku „gulldreng-
irnir“.
Knattþrauti: KSí hafa þar
eignazt góða fulltrúa, sem hafa
sannað gildi þrautanna, svo að
ekki verður um villzt um rétt
þeirra í þjálfun ungra knatt-
spyrnumanna.
Æskan er framtíðin. — Til
þess að skapa sér álit hvort ís-
Jand hafi möguleika á að halda
þeim sessi, sem það hefir unnið
sér í knattspyrnuheiminum, þurf
um við því að gera okkur grein
fyrir, hver knattspyrnugeta ís-
Jenzkra unglinga er, í saman-
burði við hinar Norðurlanda-
þjóðirnar.
Hér verður því í dag reynt að
djaga fram þessa mynd. Til hlið
sjónar mun verða stuðzt við ár-
angur þann, er annar flokkur
K?t náði í nýafstaðinni Dan-
merkur og Þýzkalandsför.
Rætt við Kristin Jónsson, bakvörð í KR, um íör 2. fl.
K.R. til Danmerkur, og nauðsyn þess að koma hér upp
unglingalandsliði í knattspyrnu eins fljótt og hægt er
Takmark allra ungra manna í
KR, sagði Kristinn, væri að fá
tækifæri til að leika með meist-
araflokki félagsins — en barátt
an væri hörö, og aðeins 11
menn í liðinu. Áleit Kristinn, að
öll Reykjavíkurfélögin ættu við
sama vandamál að etja, hvað
þetta snerti.
Kvaðst hann því ekki í nokkr-
um vafa um það, að unglinga-
landslið og keppnin um að
komast í það myndi stytta að
mun biðina um sess í meistara-
flokksliðunum, jafnframt því,
sem slík keppni myndi auka
breiddina í unglingaflokkunum
og unglingalandsliðið sjálft yrði
ljós vottur framsóknar í ís-
lenzkri knattspyrnu.
Gengi liinna yngri manna
með landsliðinu, þó sérstaklega
„Gulldrengjanna“ Þórólfs og
Arnar, kvaö Kristinn bera ótví-
ræðar sönnur á, að þar væ:u
menn á réttri leið allt frá byrj-
un. Kvaðst Kristinn ekki í
nokkrum vafa um, að þjálfun
Kristinn Jónsson
Lyngby. Léku KR-ingar þá gegn
unglingaúrvalsliði sjálenzka
knattspyrnusambandsins (SBU).
þeirra félaganna og árangur Fyrir leikinn voru KR-ingar
væri nú takmark margra ung-
linga í dag.
KR-förin.
Um s.l. mánaðamót fóru 15
leikmenn úr 2. fl. KR í gagn-
Kristinn Jónsson,
liægri bakvörður.
Mér til hjálpar kallaði ég á
einn af leikmönnum 2. fl. KR,
Kristin Jónsson, hægri bakvörð,
en hann leikur jafnframt þá
stqþú með 1. fl. félagsins.
Ég valdi Kristin Jónsson úr
hópnum vegna þess, að hann er
mér einna minnisstæðastur frá
þeim leikjum, er ég hefi séð 2.
fl. og 1. fl. KR leika í sumar. —
Áður en við byrjuðum að rabba
saman var mér ljóst, að ungur
maður, sem ræður yfir jafn
mikilli knattspyrnugetu og Krist
inn hefir sýnt í leikjum sínum
i sumar, hefur ekki öðlazt getu
sína án erfiðis og ósérhlifni. En
að á móti mér sæti piltur, sem
hafði ekki látið eins og hálfs árs
veikindi, sakir hættulegrar brjóst
himnubólgu, aftra sér frá því að
Jeika knattspyrnu, hafði mér
ekki dottið í hug.
Kristinn var aðeins smásnáði,
er hann byrjaði að leika knatt-
spyrnu með KR. — En vegna
veikinda lék hann lítið með 3.
ÍL, en einmitt, meðan hann var
i þeim aldursflokki. hófust æf-
ingar í knattþrautum KSÍ. Krist
inn hafði unnið bronzmerkið,
þegar hann veiktist. En þar sem
aldurstakmark í knattþrautun-
um er miðað við 17 ár, vannst
honum ekki tími til að reyna við
silfur- né gullmerkið.
Kristinn sagði, að hann æfði
4 sinnum í viku og stundum oft
ar. Æft væri í lyá til 2 tíma í
senn. Hann kvað knattspyrnu-
áhuga vera mikinn meðal félaga
sinna í KR. Mætt væri vel á
æfingar og agi góður. Aðal-
. áhugamál flestra væri knatt-
spyrna og sumir létu sér ekki
nægja góða tilsögn þjálfarans,
Öla B. Jónssonar, og leituðu því
frekari fróðleiks í iþróttablöðun
um og erlendum bókum um
knattspyrnu og knattspyrnu-
menn.
kvæma heimsókn til vinafélags
KR í Danmörku, Bagsværd
Idrætsforening (B.I.F.), en við
það félag hefur KR átt sam-
vinnu um gagnkvæmar heim-
1 sóknir um nokkur ár. KR-ing-
arnir, sem eru á aldrinum 16 til
j 19 ára, kepptu tvo leiki við jafn-
aldra sína í Danmörku og einn
leik í Vestur-Berlín við vinafé-
lag BIF og KR, þýzka iþröttafé-
lagið Blau-Weiss. —
SBU :KR 3:1.
Fyrri leikurinn í Danmörku
var háður 30. júlí s.l. og fór leik-
urinn fram á íþróttavellinum í
talsvert taugaóstyrkir, þar sem
þetta unglingaliö hefur verið
sterkasta sérsambandslið í Dan-
mörku s.l.-tvö ár. Báru tveir síð-
ustu leikir þess vott um, að svo
væri einnig í ár, þar sem liöið
var nýlega búið að vinna úrval
unglinga frá Lálandi og Falster
með 6:2 og Fjón með 7:0. —
Blöðin höfðu látið í það sldna
fyrir leikinn, að KR y:ði að
sýna mjög góðan leik, ef þeir
ættu að geta eitthvað móti ungl
ingaúrvali Sjálendinga.
í fyrri hálfleiknum veitti Dön
um töluvert betur, — en KR-
ingar lögðu mest í aö kynnast
leikaðferð mótherjanna. í siðari
hálfleiknum voru KR-piltarnir
búnir að ná valdi yfir tauga-
óstyrk sínum og sjá út hva:
hættu væri helzt að vænta frá
liði mótherjanna.
Jafnaðist leikurinn mjög, sem
bézt sést á þvi, að staðan í hálf-
leik var 2:0 fyrir SBU, en loka-
markatala leiksins varð 3:1. Síð
ari hálfleikur var því jafn, 1:1.
Eftir leikinn hrósuðu blöðin KR
fyrir góðan leik og töldu liðið
hafa sýnt mun betri leik en við
hafði ve:ið búizt. —
BIF:KR 3:2.
Síðari leikinn í Danmörku lék
KR 2. ágúst við BIF, sem nú er
efsta liðið í Sjálandskeppninni
í unglingaflokki. Þennan leik
vann BIF með 3:2, eftir 2:1 í
hálfleik. Þennan leik töldu blöð-
in og allir, er til sáu, að KR hefði
átt að vinna. Leikur KR var mun
heilsteyptari, hraðari og áferðar
meiri en BIF-liðsins. En KR
tókst ekki að skora eins og tæki-
færin gáfu, m. a. áttu þeir fjög-
ur skot í stöng í þessum leik.
:> ■ * . i ; i l‘
í Vestur-Berlín.
KR:BlauWeiss 3:0.
Daginn eftir var ekiö til
Vestur-Berlínar í langferðabíl-
um. Fór flokkurinn þangað í
boði vinafélagsins Blau-Weiss. 1
Vestur-Berlín kepptu svo KR-
ingar þann 5. ágúst við gest-
gjafa sína. Fór leikurinn fram á
íþi'óttasvæði Blau-Weiss, sem er
í námunda við Tempelhof-flug-
völlinn. KR-ingar báru sigu: úr
býtum með 3:0. — Leikur KR
var mjög sterkur og góður allt
frá byrjun til loka og var liðið
aldrei í liættu með sigur.
Eftir leikinn vildu blöðin ekki
trúa því, að þetta væri félags-
lið. Vildu frekar álíta að KR-
liðið væri unglingalandslið fcá
íslandi. Blau-Weiss hefir mjög
sterku unglingaliði á að skipa.
Sigruðu t. d. BIF í fyrrasumar
með 6:2. —
Gestrisni og vinátta.
Meðan KR-ingar dvöldu í
Danmörku var flokkurinn sem
fyrr segir i boði BIF og naut sér-
stakrar gestrisni og vináttu, svo
sem í fyrri heimsóknum til
þessa félags, en Kristinn sem og
flestir leikmennirnir voru þarna
í annað sinn á ferð. í fyrra sinn
ið voru þeir með 3. fl. 1955. —
Til Vestur-Bei'línar komu leik
menn flestir í fyrsta sinn. Kom
sér því vel góð farai’stjórn, en
aðalfararstjóri var Sigurður Hall-
dórsson, formaður Ku K.R. í Ber-
lín bjuggu piltarnir á þýzkum
heimilum og kynntust því bet-
ur háttum og siðum þjóðarinn-
ar og þeim lífsskilyrðum, sem
Sigurvegarar KR í íslands- og Haustmóti 2. floklcs A 1958. LiSiS hefur reyndar breytzt mikið i ár, þar sem sumir
leikmennirnir hafa gengið upp úr aldursflokknum. Á myndinni eru taliö frá vinstri. Fremri röð: Gunnar Sig
urðsson, Tómas Árnason, Gísli borkelsson, Jón Sigurðsson, Ellert Schram. Efri röð. Óli B. Jónsson, Óskar Sig-
urðsson, Gunnar Felixson, Kristinn Jónsson, Þórólfur Beck, Úlfar Guðmundsson, Þorkell Jónsson og Örn
Steinsen. — Þeir Þórólfur og Örn leika enn í 2. flokki, en gátu ekki tekið þátt í för flokksins að þessu sinní
vegna keppnisfarar meistaraflokks KR.
hún nú býr við. Móttökur allar
af hendi Blau-Weiss og gestrisnl
og vinátta, sem þeir uröu að-
njótandi á hinum þýzku heim-i
ilum, verður þeim ógleymanleg..
Blau-Weiss vann BIF 3:2.
1 Ekstrabladet hinn 11. ágúst
greinir frá því, að unglingalið
frá þýzka félaginu Bau-Weiss
hafi unnið BIF þá um kvöldi’ð
með 3:2. Og segir blaðið, að í
leiknum hafi drengirnir sýnt sér
staklega góða innsýn um það,
hvernig á að leika góða knatt-
spyrnu. Rómar blaðið mjög hina
eftirtektarverðu samvimiu, sem
Bagsværd, þessir nágrannar
Kaupmannahafnar, hafa tekið
upp við erlendu félögin KR og
Blau-Weiss. Telur það, að þessi
samvinna geti verið mjög þýð-
ingarmikil fyrir uppeldi drengj-
anna yfir höfuð, þar sem mörg
dæmi séu til þess, að föst vin-
áttubönd hafi myndazt meðal
drengjanna, og hinir útlendu
gestir komi aftur til Danmerkur
í einkaerindum og sumarleyfum
og dönsku drengirnir ferðist til
útlanda.
SBU tapar 3:2 fyrir
Kaupmannahöfn.
Hinn 13. ágúst skýrir BT frá
leik sjálenzka unglingaliðsins
við unglingalið Kaupmanna-
hafnar. í þeim leik sigraði Kaup
mannahöfn óvænt 3:2. — Or-
sökin fyrir tapi Sjálendinga e:
talin sigurvissa. — Kaupm.-
hafnardrengirnir fóru í leikinn
með þann ásetning efst í huga,
að halda hinum sterku sóknar-
mönnum SBU niðri með góðum
varnarleik. Þetta tókst þeim,
auk þess sem sóknarmenn þeirra
náðu upp mun betri sóknarleik
og stóðu leikar 3:1 í hálfleik,
SBU komst sem sagt ekki í gang
fyrr en í síðari hálfleik og seg-
ir BT, að þeir hefðu átt skilið
að jafna, sakir hins sterka sókn-
arleiks í síðari hálfleik.
ísland þarf ekki að kvíða.
Af framangreindu hljótum við
að geta dregið þá ályktun, að
íslenzkt unglingalandslið þarf
ekki að standa að baki jafnöldr-
um sínum á Norðurlöndum í
knattspyrnu. Þegar þess er
gætt, að landsliðsmennirnir Þór-
ólfur Beck og Örn Steinsen voru
ekki með KR í umræddri ferð,
má jafnvel álíta, að KR hefði
getað komið sigurvegari úr öll-
um leikjum ferðarinnar, ef þeir
hefðu verið með.
Mikil breidd I unglinga-
flokkunum.
Keppni í unglingaflokkum hér
heima hefur verið hörð og tví-
sýn í sumar. En ánægjulegast
við hana er, hváð mikil breidd
er að skapast, með bættum
knattspyrnuskilyrðum út um
land. KR varð Islandsmeistari í
2. fl. A eftir tvísýna keppni
Fram varð að keppa tvo
úrslitaleiki í 3. fl. A, til að sigra
Keflavík. Og svo um s.l. helgi
kemur 3. fl. frá Akureyri og sigr
ar styrkt lið frá Þrótti og leika
Keflvíkinga sundur og saman
suður í Njarðvík.
Björt framtíð.
Ef áfram verður haldið á
sömu braut, er ekki að efa, að
úr nógu verður að velja, er til
kasta kemur um val í unglinga-
landslið, og færi betur, að hin-
ir ungu knattspyrnumenn fengu
sem fyrst tækifæri til aö sanna
ótvírætt getu sína í landsleikj-
um við jafnaldra sína frá hin-
um Norðurlöndunum.
Game.