Tíminn - 19.09.1959, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.09.1959, Blaðsíða 6
6 T I M I N N, laugardagur 19. septembe: 1959. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURíWSí Hitstjój-i og ábm.: Þórarinn Þórarin*íe» Skrifstofur i Edduhúsinu við Lindargðt* Símar: 18 300, 18 301, 18 302,18 303, 1830* og 18 306 (skrifst., ritstjómin og blaðamena) Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12 2X1 Prentsm. Edda hf. Simi eftir kl. 18: 11848 Villokenning OÐRU hvoru heyrast radd ir um það, að draga beri úr landbúnaðarframleiðslunni. Hún sé' háskalega mikil. — Bændur eigi ekki að vera að hugsa um að framleiða til út- flutnings heldur einungis það sem nægi til innanlands- þarfa. Þessar óskynsamlegu radd- ir berast úr ýmsum áttum. Það þykir kannske ekki til- tökumál þó að kommúnistar tali stundum í þessa átt, en því fer bera fjarri að þeir séu einir um þennan söng. Einu sinni fundu Sjálfstæðis menn uþp á því, að halda svo nefnda ungbændaráðstefnu. Þar vorú hinum ungu sveita- mönnum flokksins gefnar ýmsar föðurlegar ráðlegging ar af helztu landbúnaðarsér fræðingum íhaldsins. Meðal ályktana, sem þessi sam- kunda lét frá sér fara var ein, sem fjallaði um frarn- leiðslumál landbúnaðarins. Þar var talað um að fram- leiðslan yrði að miðast við innanlandsmarkað. Hærra var nú risið ekki. Og þegar einn af vinnumönnum Bjarna Ben. í verkalýðshreyfingunni sté í stðlinn á s.l. vori, þá sagði hann brýna nauðsyn bera til þess að fækka bænd um um helming. vel þó að Guðjón í Iöju og Gunnar Bjarnason tækju upp nákvæmasta áætlunar- búskap væri það ekki hægt, af ástæðum sem hver'jum manni eru augljósar. Rétt er þaö, að við fram- leiðum nú meira magn af landbúnaðarafurðum en selst á innlendum markaöi. En það er taliö að þjóðinni fjölgi um 3 þús. manns á ári. Vænta má þess að sú fjölgun aukist Ekki virðast líkur til annars ei>að mikill meiri hluti hinna nýju borgara bætist í hóp neytenda landbúnaðarvara. Ef við færum að ráðum hinna glapsýnu afturhalds- og kyrr stöðumanna, myndi þess skammt að bíða, að hér yrði skortur á landbúnaðarvöru.m. ENGINN vafi er á því að auövelt væri að vinna markaði erlendis fyrir ís- lenzkar landbúnaðarvörur, ef við værum samkeppnisfær ir um verðlag en að því verð ur að stefna. Nýelga hefur verið frá því skýrt í útvarpi af Bjarna Magnússyni fram kvæmdastjóra, fyrir sölufyrir tæki SÍS í Bandarikjunum, að íslenzkt dilkakjöt nvti mjög vaxandi vinsælda þar í landi og þætti taka öðru dilkakjöti fram. FÁVÍSI þeirra manna, sem svoan tala, er furðulcg. Hvernig dettur nokkrum manni í hug að bað sé hægt að miða franúeiðsluna ná- kvæmlega við það. sem selst á inplendum markaði? Jafn Þeir menn, sem bera sér það í munn, að íslenzkur land búnaður eigi að draga sam- an seglin, ættu aö hætta því fávíslega hjali. Með úrtölum sínum og armóði vinna þeir engum gagn en öllum tjón. OrS og ÁVALLT þegar íhaldinu þykir mikið við liggja, þá reynir það að sveipa um sig sauðargæru þess falska áróð urs, að því einu sé til þess treystandi að hafa lag á fjár málum ríkisins, það eitt berj- ist gegn höftum, ráðum og nefndum, það eitt vilji að at hafnafrelsi og einstaklings- framtak fái að njóta sín o.s. frv. Þetta er nú sá gæfulegi grunnfáni, sem ihaldið ætlar að berjast undir í kosning- unum í haust. Auðvitaö minn ist það ekki einu orði á hvern ig það hyggst koma þessum hugðarmálum í kring, enda kannske ekki von, því allir vita að það kann enginn ráð til þess að framkvæma þessi áform, sem það eignar sér þó að það vildi, en auk þess er svo öll framganga flokksins frá fyrstu tíð, i æpandi mót sögn við þessar ráðagerðir. ÍHALDIÐ tók við stjórn fjármála rikisins 1939 og hafði hana á hendi sam- fleytt í 11 ár. Jafnan áður hafði íhaldið haldið uppi lát lausum árásum á fjármála- stjórn Framsóknarmanna og sagt að það eitt kynni að fara með peninga. íhaldið var ‘að því leyti heppið nð þau ár, sem það fór með fjármála- athaínir stjórnina voru yfirleitt hag stæð. Stríðsgróðinn flæddi yfir landið og verzlunarár- ferðið var allan tímann eitt hið bezta sem veriö hefur á íslandi. En hvernig tókst íhaldinu? Síðustu 4 ár þessa tímabils var greiðsluhalli ríkissjóðs 127 millj. kr. og á öllu tímabilinu 94 millj. kr. í lok tímabils fjármálavitr- inganna var ríkissjóður kom inn í algjör greiðsluþrot. — Lausaskuldir ríkissjóðs námu á annað hundraö millj. kr. og ógreiddir reikningar lágu alls staðar. Útgjöld ríkisins margfölduðust og ríkisbákn ið þandist út gegndarlaust. Samtímis voru útflutnings- atvinnuvegirnir reknir með stórkostlegum halla, fram- leiðslan dróst saman og verð bólgan var i algleymingi. — Þannig var frammistaða íhaldsins þegar það fór með fjármálastjórnina. Langar nokkurn til þess að sagan endurtaki sig? ÍHALDIÐ þykist vera á móti höftum, ráðum og nefnd um. Það hefur sjálft sett höft og viðhaldið þeim og enginn flokkur hefur verið duglegri við að unga út ráðum og nefndum. Það segist vilja frjálst fram Nema íslenzku og hókmenntir Fimmtán norrænir stúdent- ar eru komnir hinga'ð til lands til þess að taka þátt í nám- skeiði í íslenzku máli og bók- menntum, sem fram fer við Háskóla íslands dagana 11. sept. — 5. nóvember, en alls verða þátttakendur sextán að tölu. Stúdenlaráð Háskóla íslands hef ur í samráði vifi 'Stúdentasambönd in á hinum Norðurlöndunum haft forgöngu um að námskeiðið yrði haldið hér, en sams konar nám- skeið hafa undanfarin ár verið hald in í norsku, sænsku og dönsku í viS komandi löndum. Ýmsir aðilar hafa veitt stúdentaráði mikilsverð an istuðning í sambandi við nám skeiðið, þar á meðal bæði Alþingi og Háskóli íslands. Íslenzkiíkennsla. Á námskeiðinu verður leitazt við að kenna hinum norrænu slúd entum að tala íslenzku, svo sem frekast er unnt á þeim tveggja mánaða tíma, sem námskeiðið stendur. Mun próf. Hreinn Bene diktsson annast þann hluta kennsl unnar, og verður íil að byrja með lögg megináherzla á tungumála- námið. Þegar á líður munu svo þeir prófessorarnir Einar Ól. Sveinsson og Steingrímur J. Þor steinsson flytja fyrirlestra um bókmenntir íslendinga að fornu og nýju, þ. á. m. Eddukvæði, Njálu þjóðkvæði og dansa, rímur, Lær dómsöldina, þjóðsögur, leikriía- og skáldsagnagerð, auk þess sem sérstaklega verður fjallað um verk nokkurra höfuðskálda ís- lenzkra. Auk tungumáls- og bókmennta kennslunnar munu svo þátttakend um smám saman verða kynnt ýmis önnur íslenzk efni með það fyrir augum, að þeir megi öðlast sem gleggsta mynd af landi og þjóð. — í sambandi við námskeiðið verð ur svo loks efnt til ferða á ýmsa merka sögustaði hér sunnanlands. Þátttakendur sem hingað komu Sextán norrænír stúdentar á námskeiSum Danskar stúdínur viö þvottalaugarnar. nú, eru sem fyrr 'Segir 15 að tölu, öll Norðurlöndin þátttakanda í 1 Finni, 7 Svíar og 7 Danir, en því. Þess má að lokum geta, að auk þess mun einn Norðmaður, í hópnum eru 8 stúlkur og átta sonur norska sendiherrans hér, piltar, og búa þau víðs vegar í bæn taka þátt í námskeiðinu. Eiga þá um. Rússneskt tónlistarfólk Barnahjálp S. þ. og mun leika víða um land pólsku börnin Maurice Pate, forstjóri Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), hefur lagt til að hald ið verði áfram að styðja hjálpar starfið meðal pólskra barna, sem hafa bæklazt eða særzt. Árlega særast um 800 pólsk börn af völdum sprenginga, þegar sprengjur úr síðari heimsstyrjöld springa í rústunum. Um 2000 pólsk börn fá árlcga lömunarveiki enn stærri hópur fær árlega heila blóðfall og bílslysum fer stöðugt fjölgandi. Framlag Barnahjálparinnar, sem nemur 51.500 dollurum, er fólgið í alls konar tækjum til æfinga fyrir lömuð börn og fjárhagsaðstoð við tvær stofnanir, sem laga vaxtar- lýti og bæklun. Er önnur þeirra í Konstancin nálægt Varsjá, en hin í Poznan í Veslur-Póllandi. Fram lag pólsku stjórnarinnar til þess ara stofnana á árunum 1959—62 mun nema um 2,5 milljónum doll ara. tak, athafnafrelsi og sam- keppni. Það hefur sjálft ver- ið allra flokka duglegast við að koma á hvers konar ein- okun og viðhalda henni. At- hafnafrelsishugsjón þess er fólgin í því, að gæðingar þess geti sölsað undir sig sem mest af fjármunum þjóðfélagsins og spilað með þá og spekuler að að eigin geðþótta. Sam- keppni útilokar það alls staö ar þar sem það getur. Það hefur enga heildarstefnu í neinu máli nema þá, aö berj ast alltaf fyrir sjónarmiði braskhygg junnar. í fyrrakvöld kom hingað íil lands rússneskt listafólk á vegum M.ÍR, 2 konur og 2 karl- ar. Munu þau halda hljóm- leika víða um land. Þetta fólk er í röð fremstu lista manna þjóðar sinnar og hefur getið sér frægðar erlendis fyrir list sína. Fyrstu hljómleikar tónlistarfólks ins verða á Akranesi í kvöld, þá leika þeir í Hafnarfirði annað kvöld og í Þjóðleikhúsinu á sunnu dag kl. 4. Síðan munu þau leika á Akureyri o.g viðar um landið eftir þvi sem timi vinnst til, en listafólkið mun dveljast hér hálfan •mánuð. Á fyrstu hljómleikunum koma þau öll fram samnn, en síðar mun í hyggju að eitthvert þeirra haldi einleikshljómleika. Listamenn þessir eru: Tajsía Merkúlova. Ilún er fædd í Moskvu árið 1929, og hóf nám í píanóleik á barnsaldri. Hún lauk prófi frá Tónlistarháskólanum i Moskvu. Hefur ferðazt sem einleik ari og undirleikari víða um lönd, og hvarvetna hlotið hin.a beztu dóma. Ljúdíla ísaéva, sópransöngkona. Fædd í Moskvu 1928. Hún lauk prófi frá Tónlistarskóla Gnésíns í ! Moskvu 1951. llún tók þátt í söng- 1 keppni á heimsmóti æskunnar í 1 Berlín 1951 og vann þar fyrstu l verðlaun. Síðan 1951 hefur hún ver j ið fastur einsöngvari með hljóm- ; sveit Ríkisútvarpsins og sjónvarps ins í Moskvu. Hún hefur haldið fjölda hljómleika í Sovétríkjunum, Vestur-Evrópu og ýmsum Asíu- löndum. Hún hefur hlolið mikið lof gagnrýnenda, utanlands og inn , an, enda erhún talin ein af fremstu flúr-söngkonum Sovétríkjanna. — Hún mun syngja hér íslenzkt lag með ísl. texta. Mikail Voskresenskí, píanóleik- ari; fæddur 1935 í Úkraínu. Móðir hans er kunnur píanóleikari, og hóf hann nám í píanóleik 4 ára gamáll. Hann lauk prófi frá Tónlistarhá- skólanum í Moskvu 1958. Einka- kennari hans var hinn heimsfráegi píanósnillingur Lev Oborín. M. Voskresenskí er nú kennari við Tónlistarháskólann í Moskvu og nánasti samstarfsmaður Oborins. Hann hefur farið víða um heim sem ■einleikari, og m.a. hlaut hann vérð laun í Berlín 1956 í tónlistarkeppni sem kennd var við Schumann, sams konar verðlaun í Brazilíu ári'ð eftir, og loks hlaut hann verðlaun í Búka rest 1958, í hinni miklu tónlistar- keppni sem kennd var við Enescu. Undanfarið hefur hann starfað sem einleikari með Fílharmoníuhljóm- sveitinni í Moskvu. ígor Pólitkovskí, fiðluleikari; fæddur 1930 í Moskvu. Stundaði nám í fiðluieik hjá Davið O'istrakh, og lauk prófi frá Tónlistarháskól- anum í oMskvu 1956. Árið 1955 hlaut hann \-erðlaun í tónlistar- keppni í Brússel, sem kennd er við Elísabetu Belgíu-drottningu, og 1957 hlaut haun Jacques Thiband- verðlaunin i París. Hann hefur haldið hljómleika í fjölmörgum löndum, og er nú einleikari með Fílharmoníuhljómsveit Moskvu- borgar. Þes má geta til fróðleiks að Politkovskí er eiginmaður fiðlu snillingsins Marine Jashvíli, sem íslenzkum tónlistarunnendum er að góðu kunn fyrir tónleikaför sína hingað til lands s.l. haust, og eru mönnum enn í fersku minni hinir glæsilegu hljómleikar frú Jashvíli og dr. Páls ísólfssonar í Dómkirkj- unni í Reykjavík.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.