Tíminn - 06.10.1959, Qupperneq 8

Tíminn - 06.10.1959, Qupperneq 8
8 T í MIN N , þriðjudaginn G. október 1959. BW.V.V.'.V.V.W.V.V.W.V.VV.W.V.V.V.W.V.V.SWV \ SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS TQNLEIKAR J í Þjóðleikhúsinu í kvöld kl. 8,30. Stjórnandi: Wilhelm Bruckner-Ruggenberg hljómsveitarstjóri við ríkisóperuna í Hamborg Viðfangsefni eftir Hándel, Wagner og Beethoven Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu. BWWWWWWWWWWtfWWWWWWWVWWWWWVWW Uppboð sem auglýst var í 69., 70. og 74. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1959, á hluta í Grænuhlíð 8, hér í bænum, eign dánarbús Þórðar Péturssonar, fer fram eftir ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur á eigninni sjálfri laugardaginn 10. október 1959, kl. 2V2 e. h. Uppboðsskilmálar, veðbókarvottorð og önnur skjöl varðandi söluna ,eru til sýnis hér í skrifstofunni, og auk þess gefst mönnum kostur á að skoða íbúð- ina eftir samkomulagi við skiptaráðanda. Borgarfógetinn í Reykjavík. BV.WAV.W.'.V.'.W.V.V.W.W.V.V.V.V.W.W.V.V.V wmnitmiimiiimmmTOntiiimiiimmnHiimimiiniHiimiiniiniiiBiw Verksmiðju- og íbúðahús eru til sölu. Eignir þessar eru skammt frá Akur- eyri, allar í frekar góðu standi. Stórt eignarland fylgir með eignum þessum. Kaupverð og greiðslu- skilmálar mjög hagstæðir. Nánari upplýsingar veitir fulltrúi vor Björn Ólafs í Reykjavík og útibú \ vort á Akureyri. LANDSBANKi ÍSLANDS Vélbátar 1 £ Til sölu eru 3 vélbátar, 12, 29 og 63 smálestir, allir í frekar góðu standi. Nánari upplýsingar veitir fulltrúi vor Björn Ólafs. 1 LANDSBANKI ÍSLANDS Reykjavík. „Nýtt Leikhús“ SÖNGLEIKURINN RJÚKANDI RÁÐ Texti: Pír 0. Man Tónlist: Jón M. Árnason I4 Leikstjóri: Flosi Ólafsson Sýning í Framsóknarhúsinu í kvöld kl. 8,30. JÍ Miðasala frá 4—8, pantanir í síma 22643. „Nýtt Leikhús“ Bróðir minn Einar Jónsson V. ættaður frá Kleif í Landeyjum, iéit 2. þ. m. að heimiii sínu Strep ' ' Rock, Manitoba, Canada. Fyrir hönd ættingja, Ingimundur jónsson. INNILEGAR ÞAKKIR færum við öllum fyrir samúðarkveðjur og hluttekningu við fráfail og jarðarför Sæmundar Ingimundar Guðmundssonar. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Rikey Eiríksdóttir. | Opið bréf til Sigurðar Sigmundssonar formanns húsnæðismálastjórnar Opið bréf til formanns húsnæð- ismálastjórnar, hr. Sigurðar Sigmundssonar: Þegar ég las grein þína „íbúð arlán og atkvæðaveiðar" kom mér í hug Ketill prestur í sögu Borgarættarinnar. Með persónu Ketils bregður ■skáldið Gunnar Gunnar.sson upp mynd af hinum ófyrirleitna S'kálki, isem einskis svífst. Ketill prestur er látinn standa fyrfr altarinu og ásaka vanda- mann sinn um glæp, sem hann sjálfur hafði framið. Með þessu ætlaði Ketill að gera sig að hin- um hreina dýrling í augum safn aðarins. Hann hélt að með þessu tiltæki myndi hann geta upp- hafið sjálfan sig en svínbeygt venzlamenn sína, ;sem hann ótt- aðist, af því þeir þekktu óþokka- eðli hans. Tilræði Ketils heppnaðist ekki. Boginn brast í hendi hans, og hann var fyrirlitinn og smáð ur. Sá er munur Ketils og þín, að Ketill iðraðist, leitaði í bæn til Guðs síns og gerðist mein- lætamaður, en sennilega munt þú aldrei iðrast gerða þinna, fyrr en ef það verður á bana- sænginni. Hver er tilgangurinn? Þegar maður hugleiðir grein þína í Útsýn, þá er auðséð, að það eina, sem fyrir þér vakir, er að gera samstarfsmenn þína tortryggilega í augum almenn- ings, og um leið að gera tilraun til að skapa kosningabombu, sbr. viðbrögð Þjóðviljans. Þú veizt að fjárskortur byggingarsjóðs og algert áhugaleysi núverandi stjórnarvalda til að auka fjár- magn til íbúðarlána, veldur ótrúleguin vandræðum hjá þeini mikla fjölda manna, sein er að reyna að eignast þak yfir höfuð- ið. Þú heldur að þér takist með lognum sakargiftum að láta þetta fólk trúa þvi, að samstarfs menn þínir séu vondir menn, sem noti það litla fé, sem þeir geta útdeilt, aðeins til atkvæða- kaupa, en hirði ekkert um ástæð ur umsækjenda. Þú ætlar að reyna að koma þeirri skoðun inn hjá almenningi, að þú sért siðbótarmaðurinn, sem aðeins þjónir réttlætinu, en fáir litlu áorkað fyrir vondum mönnum og viðsjálum. Þú 'treystir því, að meðstjórn endur þínir glúpni og leggi ekki í það þarfaverk að sanna farísea hátt þinn og fullkomið siðleysi í opinberu starfi, en slíkt er mis skilningur hjá þér. Því þú verð- ur að athuga það, að meðstjórn- endur þínir eru ekki eins og fermingarstelpur, sem hægt sé að bjóða upp á smáævintýri í öngstrætum eða skrifstofubygg- ingum og skilja þær svo þar eftir útgrátnar og niðurbrotnar. Formannshæfileikar þínir. Þú hefur með skrifum þínum í blaðið Útsýn sýnt alþjóð, hversu fær þú munir vera um það að vera leiðandi maður þýð ingarmikillar stofnunar. Hverjum manni mcð heil- brigða skynsemi, enda þótt hann hafi ekki starfað að félagsmál- um, hlýtur að vera það ljóst, að það eru allfáránleg vinnubrögð hjá formanni stjórnar hvaða stofnunar sem er, að hlaupa í blöð með lognar sakargiftir og óviðurkvæmilegar getgátur í garð þeirra manna, sem sá sami þarf að hafa samstarf við, varð andi stjóriv stofnunarinnar. Starf formanns hlýtur ávallt að eiga að vera það, að samræma ólík sjónarmið sín og meðstarfs- manna, og viðhalda virðingu og trausti þeirrar stofnunar, sem hann veitir forstöðu. Hvernig heldur fólk að ástandið yrði, ef bankastjórar einhvers bankans lægju í blaðadeilum og bæru hvor öðrum á brýn hin verstu óþokkaverk í embættis- reksta-i? Hvað yrði um Innflutn- ingsskrifstofuna, ef Guðmund- ur Hjartarson hlypi í blöðin, ef hann þættist ekki ráða nógu miklu, og bæri samstarfsmönn- um sínum á brýn hvers konar bolabrögð? Þó skrif þín séu til þess ætl- uð að skapa kosningabonibu, þá hlýtur það að misheppnast. Óspillt fólk hlýtur að sjá, að formaður stofnunar, sem horfir ekki í að leggja að veði alla virð ingu stofnunar þeirrar, er liann veitir forstöðu, formaður, sem útilokar alla samstarfsmögu- leika við þá, sem eiga að stjórna stofnuninni með honum, for- maður, sem skirrist ekki við að stela eða láta stela bréfum og skjölum frá meðstjórnendum, til þess að misnota þau á. póli- tískum vettvangi, — allt í póli- tískum tilgangi, slíkur maður getur ekki verið formaður neinn ar stjómar, eða borið ábyrgð á nokkurri stofnun. Hvað þá held- ur, að þessum sama manni sæmi að bera aðra menn þeim sökum, að þeir séu of pólitískir í opin- beru starfi. Þú veizt sjálfur, .að í gerðabók um Húsnæðismálastjórnar eru skráðar á þig vítur, hvað eftir annað, fyrir misbeitingu á valdi og aðstöðu, og í tilefni af þessu síðasta frumhlaupi þínu, sá Egg ert Þorsteinsson, alþingismaður, sem er einn af húsnæðismála- stjórnarmönnum, ;sér ekki ann- að fært í upphafi fundar þann 3. okt. 'S. 1. en kveðja sér hljóðs utan dagskrár til að víta fram- komu þína sem formanns stjórn arinnar. Lét Eggert í því sam- bandi bóka eftirfarandi: * „Eg tek ekki afstöðu til þeirra persónulegu tleilna, sem upp hafa risið liér, og væntan- lega frekar á opinbcrum vett- vangi, milli þeirra Sigurðar Sig- mundssonar annars vegar og Hannesar Pálssonar og Ragnars Lá.russonar hins vegar, um innri störf húsnæðismálastjórnar. Hins vegar liggur sú staðreynd Ijós fyrir, að formaður, sem á að vera um leið höfuðforsvars- maður stofnunarinnar hefur uppvakið þessar opinberu deil- ur, er óhjákvæmilega hljóta að rýra stórum álit stofnunarinnar í lieild. Af þessum ástæðum og 1 öðrum, sem fyrr eru cftir mér 3 bókaðar í fundargerðum stofn- = unarinnar varðandi störf for- = manns, þá skora ég á formaiin, = að lianu víki sæti og láti vara- f mann sinn taka sæti sitt". f Á þesstnn sama fundi lét fuli- | trúi Landshankans í Húsnæðis- i málastjórn, uppi þá skoðun, að | liaiin teldi framkomu formanns | vítaverða og mjög óhcppiiega, -1 þó að hann léti ekki bóka neina | yfirlýsingu um þau efni. Á sama hátt og þessir 2 inenn, | sem bezt þekkja störf þín í Hús- i næðismálasljórn, sjá sér «kki | annáð fært en víta framkomu i þína mun öll þjóðin dæma | þigj Mest munu þó AJþýðu- | bandalagsniennirnir sjálfir ótl | ast afglöp þín. Uni hvað stendur deilan? Að svo miklu leyti, sem tskrif = þín eru ekki misheppnuð kosn- I ingaskrif og óskiljanleg löngun I til að niða niður þá stofnun, | sem þér hefur verið falið að | bera ábyrgð á, þá eru þau til- i raun til að telja fólki trú um að ' i þú sért einhver heilagur siðbóta 1 meistari, sem ætlir að útrýma = allri spillingu, rífa hana upp | með rótum, og tróna svo <sjálfur | á stóli réttlætis og heiðarleika. | Sem sagt Ketill (Gunnars«Gunn- | arssonar) endurborinn. Með til- | liti til þessa, er því rétt að snúa | sér að þvi atriði og rekja fcril = þinn að nokkru í Húsnæðismála- i stjórn. = Faríseinn | 'í skrifum þínum í Útsýn, þar | sem þú ert að reyna að vefja | þig helgihjúpnum, þá kemst þú i svo að orði: | „Hér varð lillu um þokað, ‘isvo | fast var allt í gömlum skorðum. = Ég bar mig upp við ráðherra | minn og sagði mínar farir «ekki | sléttar. Hannibal bað mig -engu i kvíða, við skyldum kenna sér- i réttindaflokkunum siðaðra i manna háttu. Ráðherrar þeirra i og útgerðarstjórn skyldu veröa 1 að sætta sig við úthlutunarregl- f ur eða taka að sér að v-erja sið- , f leysið opinberlega að öðrum i kosti. Hann beitti sér fjTÍr nýrri I löggjöf um húsnæðis- og lána- | mál um vorið. Ég tók við for- i mennsku i Húsnæðismálastjórn = í júnímánuði. Sumarið (1957) = fór í það að semja uppköst að | reglugerðum, vegna hir.na nýju | laga og rifast um hverja neglu | gerðargrein, sem máli -skipti | við aðra fulltrúa í Húsnæðis- i málastjórn". Það hefur óneitanlega verið | gaman að heyra það, þegar þú . = hefur hlaupið til að klaga fyrir | skapara þinum. Snemma byrja § raunir þínar. Allir vondir við | litla drenginn. i Nú er pabbi oltinn úr ráð- i herrastól og sendur í útlegð, nú i er ekki hægt að klaga fyrir i góða pabba, og þá verður að 1 klaga fyrir alþjóð. En þar tekst I verr til, þvi að þá sannast bara | ■hvers konar uppvakning Hanni- | bal hefur vakið upp, þegar hann i karaði þig og sendi þig inn i i húsnæðismálastjórn. Líklega i gengur þú af Húsnæðismála- i stofnuninni dauðri. Varla hefur i góði pabbi ætlazt til þess *af þér. | En þjóðsögurnar segja, að það i sé stundum erfitt að ráða við | uppvakninga, og þú ert líkiega | sá versti uppvakningur, sem i þjóð vor hefur eignazt. 'Frh. 1 Hannes Pálsson | frá Undiítfelli. | niiiiiiiiiiiiiiiifiiiittfiiiiiiniiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiitriimiiiiiiiiHiiiiiiiiiviiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiirrniiiiiinniiiiiimiiiiiiiiiiríiiiiiiinYiiiiiiiuiiiitfiiimiiiiiiM BLAÐBURÐUR TÍMANN vantar unglinga til aö Þera blaðið í eftir- talin hverfi. Stórholt Háteigsveg Laugarás Kársnes Bólstaðahlíð Lindargötu Laugarnesveg Laugateig Sími 12323. A víðavangi . (Framhald af 7. síðu) a'ð menn segi sig ekki úr nefnd, sem hefnr ekki lialdið fundi í 1 Vi ár, hvað finnst homnn þá 11111 nefndarformann, sem vanrækir að kalla saman fund í 12 ár, án þess að segja áf sér? Finnst Bjarna ekki að slíkan mann megi á.saka um sviksemi, ef íhægt er að bera hana Þórarni á brýn? Vonandi skorast Bjarni ekki und- an að.svara þessu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.