Tíminn - 06.10.1959, Page 12
Á þilfari Langiðkuls.
Langjökull er byggður
eftír ströngustu kröfum
Langjökull, hið nýja og
glæsilega skip Jökla h.f., kom
inn á höfnina í Reykjavík
seinni partinn á sunnudag. í
í gærkveldi afheinti Leik-
dómarafélag íslands Brynj-
ólfi Jóhannessyni, leikara, silf
urlampa félagsins í hófi, sem
það hélt honum og konu hans
í Tjarnarkaffi.
HéraðshátíS
í Borgarfirði
Framsóknarfélögin í Borgar-
fjarðarsýslu halda héraðshátíð að(
Logalandi, Reykholtsdal n.k. laug
ardag og hefst hún kl. 21.
Rœður flytja Gunnar Guðbjarts
son og Alexander Stefánsson.
Hinn vinsæli gamanleikari Karl
Guðmundsson, skemmtir.
Eronkvartettinn leikur fyrir
dansi.
Vönduð kosninga-
handbók
Komin er út kosningahandbók,
sem Fjölvís gefur út, fyrir kosn-
ingarnar í þessum mánuði. í bók-
inni er að finna fjölmargar upp-
lýsingar um kosningar hér á landi,
birt er iskrá yfir alla kjörna þing-
imenn á tímabilinu 1927—1959,
igreinar eru úr kosningalögunum,
skrá yfir íbúafjölda og kjósendur
á kjörskrá. Efnt er til verðlauna-
getraunar um úrslit í komandi kosn
ingum og þrenn verðlaun veitt,
1000, 500 og 300 kr.
Flokkskaffi
Framvegis verður afgreitt
miðdegiskaffi í Framsóknar-
húsinu frá klukkan 3—5 á
daginn.
gær skoðuðu fréttamenn skip
ið í boði Ólafs Þórðarsonar,
framkvæmdastjóra Jökla h.f.
og annarra forráðamanna
Brynjólfur hlýlur verðlaun þessi
fyrir leik sinn í „Allir synir mín-
ir“. Ólafur Gunnarsson var veizlu
stjóri og minntist fyrst iátins
styrktarfélaga, Axels Helgasonar,
forsjóra. Síðan lýsti hann nýjum
styrktarfélögum, og eru þeir þess
ir: Bárður Daníelsson, verkfræð-
ingur; Ilaraldur Kröyer, stjórnar
ráðsfulitrúi; Jóhanens Elíasson,
bankastjóri og Sigurjón Sigurðs-
son, lögreglustjóri.
Því næst afhenti Ásgeir Hjart
arson Brynjólfi lampann og minnt
iist leikstarfs hans í ræðu. Einnig
afhenti hann frú Guðnýju Helga
dóttur hlómvönd.
Kjölurinn að m.s. Langjökli var
lagður í skipa'smíðastöðinni Aar-
hus Flydedok og Maskinkompagni
AS í Árósum 26. september 1958.
Skipinu var hleypt af stokkumuim
15. apríl 1959. Reynsluferð var
farin 25. september s.l. Skipið
var afhent eigendunum, H.f. Jökl-
ar í Reykjavík, 29. sept. s.l.
A,ðalmál skipsins eru: Lengd
88.00 m, breidd 12,25 m, dýpt
4,90 m. og gefur það „dead-
weight“- 2063 longton við 16 feta
djúpristu. Skipið, sem er frysti-
skip, er byggt eftir ströngustu
kröfum Lloyds til skipa, sem sigla
á öl'lum höfum og auk þess er
skipið styrkt til siglingar í ís.
Skipið hefur Lloyds vottorð, um,
að það haldi —20 gráðum á cells:-,
íus við 25 igrá^a sjávarhita og
35 gráða lofthita. Skipið, sem hef-
ur þrjár Sabro frystivélar, þarf
aðeins tvær þeirra til þess að
halda þessu frosti.
í skipinu eru fjórar lestir, sem
hver um sig getor haldið því hita
Btigi, sem óskað er, innan þeirra
takmarka, sem áður getur. Rúni-
mál lestanna er 87000 teningsfet.
Lestaropin eru fjögur og er þeim
(Framhald á 11. síðu)
Brynjólfur Jóhannesson, Ásgeir Hjarfarson og frú Guðný Helgadóffir.
Brynjólfur fékk
silfurlampann
Útihúsin loguðu
við olíugeyminn
íbúSarhúsið stóð eitt eftir í húsasamstæðunni
Milli klukkan sex og sjö í
gærmorgun varð’ elds vart í
hlöðu að Syðstu-Grund undir
Eyjafjöllum. Brann þar þak
af tveimur sambyggðum hlöð-
um, fjós og skúr. Allt hey
mun vera brunnið eða
skennnt af vatni,
Slökkviliðið á Hvolsvelli kom
þegar á vettvang, en sem kunn-
'ugt er lögðu Samvinnutryggingar
Hvolsveffi til brunaliðsbíl fyrir
nokkru, svo og fólk af næstu bæj-
um. Logn var fyrst um morgun-
inn, svo mun auðveldara var að
vinna að björgunarstarfinu en
eila. Húsin á Syðstu-Grund voru
sambyggð íbúðarhúsinu að mestu,
en í sundinu milli húsanna var
stór olíugeymir. Tókst að verjast
því, að iogarnir næðu honum, og
um hádegi hafði heppnazt að
Mökkva í húsunum. Þá logaði enn
í heyinu, en eldurinn mun hafa
komið upp neðst i því. Um kl.
sex í gærkvöidi voru björgunar-
menn í þann veginn að komast
niður fyrir eldinn, en hann hafði
þá gosið upp hvað eftir annað.
Nautpeningi bjargað
Ekki tókst að bjarga fjósinu,
en nautgripir náðust út í tæka tíð.
Smalað á
jeppum
Fosshóli, 5. okt. — Á morgun verð
ur farið í þriðju leit héðan, og
verður leitað alla leið inn undir
jökla. Er þetta sennilega í tyr.sta
sinn, sem farið er eingöngu á
jeppum til leita, en gangnamenn
munu fara á tveimur jeppum með
kerrur, sem féð skal flutt í. —
A() sönnu hafa jeppar verið hag
nýtti,- við göngur fyrr, en þá hafa
hestar verið notaðir jafnframt.
Þeim hefur nú verið komið fyrir
að Holti, en þar var autt fjós. Þ
búðarhús'ið slapp óskemmt, enda
stóð vindur af því, en um há-
degisbil lók .að hvessa og rigna,
og torveldaði það mjög slökkvi-
6tarfi’ð.
Tjón bóndans, Sigursteins Guð-
laugssonar, er mjög tilfinnanlegt,
þar sem ailí hans hey mun vera
stórskemmt og ónýtt, auk þess,
sem brunatrygging á húsunum var
mjög ;.lág.
Veiddu sel
. á stöng
' Syo bar til fyrir nokkru, að
tvéif inenn úr Reykjavík brugðu
sér norður á Akureyri, vopnaðir
veiðistöngum til hámeraveiða.
Létu þeir þar úr höfn við mik-
inn orðstír og hugðust nú
fækka drjúgum hámerastofni
hér við land.
Þegar báturinn lagðist að
bryggju eftir útivistina, sást
þar samt engin liámeri. Var þá
farið að inna eftir aflabrögðum,
en létu þeir lítið yfir. Fór þó
svo að lokum, að þeir sögðust
hafa fengið sel á stöng en enga
hámeri. Voru þeir lítt ánægðir
með veiðina og kölluðu seliun
ódrátt liinn versta. Þykir nú
Akureyringuin mn hafa skift,
því yfirleitt henda menn hámer-
um þegar þær villast í veiðitæki
þeirra, en selur þykir hið bezta
búsílag. En Reykvíkingunum
varð við sem þeir hefðu fengið
marhnút á öngulinn og báðu
menn blessaða að hafa ekki Iiátt
mn ódrá.ttinn. En hér sannast
hið fornkveðna, að flýgur
„fiski“sagan, því liún var komin
á undan þeim til höfuðborgar-
innar.
Almennur kjósenda-
fundur í Kópavogi
Almennur kjósendafundur verSur haldinn í félagsheim-
ilinu í kvöld kl. 9 e.h.
Framsögumenn verSa:
1. Jón Skaftason, héraðsdómslögmaSur
2. Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður
3. Tómas Árnason, deildarstjóri.
Öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Almennir kjósenda-
fundir fyrir norðan
Almennir kjósendafundir verða haldnir á vegum Fram-
sóknarflokksins sem hér segir:
GRENIVÍK þriðjudag 6. okt. kl. 9 síðd.
DALVÍK miðvikudag 7. okt. kl. 9 síðd.
HÚSAVÍK fimmtudag 8. okt. kl. 9 síðd.
LAUGUM föstudag 9. okt. kl. 9 síðd.
ÓLAFSFIRÐI laugardag 10. okt. kl. 9 síðd.
Ræðumenn á fundunum verða 4 efstu menn B-listans
í Norðurlandskjördæmi eystra þeir
Karl Kristjánsson alþm.
Gísli Guðmundsson alþm.
Garðar Halldórsson bóndi
Ingvar Gíslason lögfr.