Tíminn - 24.10.1959, Side 2
T í iVI I N N , laugardaginn 24. október 1959.
IIIIiiiiiiiiiiiiiiiii
iiiiilinifilllill
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Orðsending til Finn-
boga R. Valdimarss.
FINNBOGI minn, ég sé á skrif-
um þínum í Keili frá 22. okt.
s.l., að þú hefur verið örvita af
vonzku, er þú fœrðir línur þínar
um íbúðarmál'in í letur.
Þar ásakar þú mig um íhalds-
þjónkun og undirgefni við E.v-
stein Jónsson. Félagar okkair úr
Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi
og víðar í kjördæminu, nefna
mig hins vegar kommúnista. A
þessu sérðu, hversu erfitt lífið
getur stundum verið.
Það er hvorki tími né rúm í
blaðinu til þess að rökræða við
þig um lánamál húsbyggjenda,
og læt ég mér því nægja að visa
til greinar minnar í síðasta tbl.
Ingólfs , sem þú hnekkir ekki í
einu einasta atriði, með skrifum
þínum í Keili.
Ég þori óhræddur að leggja
verk flokka okkar í lánamálum
húsbyggjenda í kaupstöðum og
kauptúnum undir dóm kjósenda
og um persónuleg afrek þin í
þeim mál'um hef ég ekki heyrt.
Tillögu minni um að bæjar-
stjórn Kópavogskaupstaðar beitti
sér fyrir því, að fá reglugerðar-
ákvæði Hannibals bróður þíns
niðurfellt, þar sem það skapaði
húsbyggjendum í Kópavogi, og
reyndar í öllu Reykjaneskjör-
dæmi, miklu minni rétt en öðr-
um tókst þú þannig, að þú neit-
aðir að taka hana á dagskrá
bæjarstjórnarfundar í febrúar
s.l. af því að nokkra klukkutíma
vantaði upp á, að hún bærist
með tveggja sólarhringa fyrir-
vara, og ekki nóg með það, hún
komst heldur ekki á dagskrá
tveggja næstu bæjarstjórnai’-
funda.
iÞú segir að ég sé ekki lík-
legur „fremur en hundtík“ til
þess að gera uppreisn gegn Ey-
steini Jónssyni. Öllum öðrum en
þér fer. betur að skrifa svona.
Hvenær hefur þú gert uppreisn
gegn húsbændum þínum, komm-
únistunum í Alþýðubandal'aginu?
Stóðstu t. d. ekki drengilega við
hlið bróður iþíns, Hannibals, þeg-
lar kommúnistarnir spcirkuðu
honum af lista sxnum í Reykja-
vík og dæmdu hann í pólitíska
útlegð? Svo þykist þú þess um-
kominn í persónulegum viðtölum
við jnenn, að 'tala um „helvítis
kommana“, sem þú átt þó allt
þitt undir!
Það er drengskapur, sem á
við þig.
Með beztu kveðju,
Kópavogi, 23. október 1959.
Jón Skaftason.
„....................„„„...........'"""
Kínverjar drepa tugi
indverskra hermanna
Ný ofbeldisárás inn fyrir landamæri Indlands
Lundúnum, 23. okt. Ind-
/erska stjórnin tiikynnti í
áag, að fyrr í þessari viku
ihefði kínverskt heriið ráðizt
nn fyrir landamæri Indiands
<og kom til harðra átaka við
indverskra landamæraverði.
Lauk átökunum svo að Kín-
verjar drápu 17 indverska
iögreglumenn, særðu þrjá
alvarlega og tóku auk þess
allmarga höndum.
Flokkskaffi
Framvegis verður afgreitt
miðdegiskaffi í Framsóknar-
ttúsinu írá klukkan 3—5 á
daginn. •
Svo <sem kunnugt er gerðu Kín
verjar fyrr í haust hvaS eftir ann
að herhiaup inn fyíir landamæri
Indlands. Tóku þeir nokkrar fram
varðsstöðvar og halda þeim enn.
Jafnframt gerði Pekingstjórnin
heyrum kunnugt, að híxn teldi stór
landsvæði, <sem hingað til hafa
verið viðurkennd sem indvenskt
land, tilheyra Kina.
Iferhlaupið var <að þessu sinni
gert í Ladak-héraði um 65 km.
sunnan við landamæri Tíbets og
Indlands. Indverska stjórnin til-
kynnir, að hún hafi sent harðorð
mótmæli og krafizt þess að þess
um síendurteknu ofbeldisárásum
verði hætt og herteknuin mönn-
unx skilafj þegar í ;stað. Indlands-
•stjórn hefur sem kunnugt er lengi
verið hlynnt Pekingstjórninni og
flutt málstaö honnar á alþjóða-
vettvangi. Sú vinátta hlýtur nú
aðdyína, enda er almenningur
í Indlandi æí'ur yfir árásum þess
um.
Yfirlýsing
Að gefnu tilefni í Morgun-
biaðinu — í dag, 23. október
— vii ég undirritaður, sem
annast alla daglega póstaf-
greiðslu fyrir Samband ísl.
samvinnufélaga, taka fram
eftirfarandi: Ég hef tekið það
sem sjálfsagðan hlut að spara
samstarfsmönnum mínum
ferð niður í pósthús með
einka-ábyrgðarbréf, þegar um
slíkt er að ræða, með því að
stimpla bréf þeirra og senda
með öðrum pósti frá Sam-
bandinu, — að sjálfsögðu
gegn greiðslu stimpilkostnað-
-v
J J
& I?.
arms.
X B B-listinn X B
Hverfaskrifstofur B-listans í Reykjavík eru sem hár
segír:
'VESTURBÆR: Vesturgötu 55A.
SKJÓLINj Ncsveg 65, kjallara.
ÆGISSÍÐA og niígr.: Kvisthaga 3, risliæð.
HVERFI NR. 11—12: Ásvajlagötu 52, sími 12391.
HVERFI ÍNR. 13: Hringhraut nr. 1—92, sími 32617.
MIÐBÆRINN: Framsóknarliúsið, Fríkirkjuvegi 7, sínii 16638.
LAUGARNESHVERFI: Rauðalæk 39, sínú 35246.
HEIMA- og VOGAHVERFI: Álfheimum 60, sími 35770.
VOGAHVERFI: Nökkvavogi 37, sími 35258.
SMÁÍBÚÐAHVERFI: Skógargerði 3, sími 35262.
HLÍÐARNAR: Barmahlíð 17, kjallari. Sími 10295.
MOSFELLSSVEIT, Leirvogstunga, sími um Brúarland.
Áríðandi er, að stuðningsfólk B-!istans hafi sem mest
samband við skrifstofurnar.
Flokksstarfiö i bænum
Kosningaskrlfstofa B-listans er í Framsóknarhúsinu II. liæð
og er opin frá ki. 1,30—22,00. Símar 15564 — 19285 — 12942
— 18589. BLISTINN
Reykjavík, 23. okt. 1959.
f.h. Póstdeildar S.Í.S.
Oskar Einarsson
Enginn árang-
ur af ieitiuni
Eins og frá var sagt í blaðinu
í gær, er óttast um afdrif mótor
bátsins Maí frá Húsavík, sem fór
á veiðar aðfaranótt s.l. fimmtu-
dags. Þegar báturinn var ekki
kominn að landi síðdegis í fyrra
dag, var hafin leit að honum, en
ekkert hefur enn fundizt. utan
hluti af ódreginni línu hans. Leit
inni var haldið áfram í gær oa;
tóku þát-t í henni 3 bátar og ein
flugvél, en árangur varð enginn.
Hvasst mun hafa verið á þeim
slóðum sem báturinn var, en hann
var mej lélega ballest, og er talið
að þegar bæði fiskur og iína var
á dekki hafi yfirvigtin verið of
mikil, og bánum hvolft. Tveir
menn voru á bátnum. ÞJ.
Efnilegur fram-
bjóðandi
Ýmsir efnilegir,- ungir menn eru
nú í kjöri fvrir Framsóknarflokk-
inn. Einn í fremstu röð þar er
Helgi Bergs, verkfræðingur.
Þegar íslendingar finnas't i fjar-
lægum löndum, kvnnast þeir oft
meira á nokkrum dögum, en á
mörgum árum í nábýli heima á
landinu sínu.. Svo var um okkur
Helga Bergs, þegar fundum okkar
bar saman austur í Asíu, þar sem
Helgi starfaði um skeið fyrir Sam
einuðu þjóðirnar, við að kenna
mönnum þar eystra, einkum frysti
húsabyggingar og ýmislegt er lýt
ur að kælingu matvæla.
Varð ég var við, að Helgi hafði
getið s'ór þar mjög góðan orðstýr
og hóldu allmargir samstarfsmenn
hans og ýmsir starfsmenn Samein
uðu þjóðanna Helga samsæti og
leystu hann þar út með gjöfum -—•
einmitt meðan ég var þarna.
Átti ég tal við einstaka þessara
manna og voru þeir fullir af dá-
læti á Helga. Sögðu þeir, að ef
við ættum marga líka hans þarna
vestur á íslandi, þá hlyti þessi
litla þjóð að vera sérstök fyrir-
myndarþjóð.
Sjálfur kynntist ég I-Ielga mjög
mikið á þessari rúmri viku, er ég
dvaldist með honum ■— stundum
á heimili hans. í stuttu máli sagt
hefi ég sjaldan á lífsleiðinni
kynnzt öðrum eins indælisdreng
í hugsun og framkomu sem Ilelga.
Fær maður og stórhuga, heilbrigð
ur maður, ágætur íslendingttr. Eg
held að næstum hver kjósandi á
Suðurlandsundirlendinu kjósi
Helga Bergs, þekki þeir hvern
ágætismann þeir eiga þar völ á að
kjósa nú i kosningunum.
Vigfús Gúðniundsson.
h4 m
mæm
BJARNI BEN: „Ætli ég sé ekki vel a3 þvi kominn að stinga á mig
barnafrádrætti fyrir ein fimmtíu börn. — Maður stendur sig svo
vel í „lífskjarabaráttunni".
Námskeið í
Ju-do
Vegna fjölda áskorana hef-
ur Glímufélagið Ármann á-
kveðið að gangast fyrir nám-
skeiði í Jrn-do, sem er nú-
tíma sjálfsvarnaraðferð, end-
urbætt úr Jiu-jitsu.
Jiu-do er tiltölulega auðlært í
aðalatriðum, og eini'öld aðferð til
að verjast ofbeldismönnum, er
óneitanlega valda oft meiðslum á
saklausum vegfarendum. En dá-
lítil þekking á Jiu-do gelur oft
komið í veg fyrir óhöpp og óþæg-
indi.
Sjálfsvarnarbrögðin eru kennd
víða um heim, og þykir sjálfsagt.
Jiu-do er kennt fjóra tíma í
vi'ku hjá Ármanni, við mikla að-
■sókn. Kennslunni er skipt í þrjá
flokka. Ákveðið er að Jiu-do verði
sýningaríþrótt á Olympíuleiktm-
um 1960 pg keppnisíþrótt 1964.
Þeir, sem áhuga hafa fyrir að
iæra iþróttina, ættu ekkiað sleppa
þessu einstaka tækifæri, þar sem
Ármanni hefur tekizt að útvega
reyndan kennara.
Námsskeiðið í Jiu-do stendur
yfir í tvo mánuði, kennt verður
einu sinni í viku. Að sjálfsögðu
geta nemendttr æft sig sjálfir
eftir að þeir hafa lært brögðin.
En áríðandi er að vera með frá J
byrjun. Kennslan byrjar á fimmtu
daginn kemur >kl. 9.30 e. h. í fim-]
leikasal Miðbæjarskólans, og kenn’
ari verður Japaninn Matsoka Sa-
wamura.
24
ÍHALDIÐ senclir út EINKA-
bréf til allra kjósenda í bæn-
um, undirritað af
24
forustuniönnum sínum. Og
innihaldið var nteðal annars
þetta:
„MEÐ HVERJUM DEGI
VERÐUR LJÓSARI SÚ
ÓSKAPLEGA SUNDR^
UNG, ÓREIÐA OG SPILL-
ING“.
Þetta er alveg rétt hjá ihald-
inu, en þetta vita allir og meira
en það. En talan
24
er táknræn og, hún mun
verða það í þessum kosningum.
Forustumennirnir ertt
24
sem undirrita bréfið —
24
lán veitti Rjarni Ben. einka-
vini sínum til að byggja
24
íbúðir, og tala íhaldsþing-
manna tnun að loknunt þessum
kosningum verð
24
þingmenn.
A.B.C.
Sjáðf boðaliðar
Þeir stuSningsmenn B-listans er starfað geta á kjördag eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofuna nú
þegar i síma 12942.
JTANKJÖRSTAÐARKOSNING: Kosningaskrifstofa Framsóknar-
ílokksins vegna kosninga xiti á landi er í Edduhúsinu, Lindar-
götu 9 A, 3. hæð. Gefið sem allra fyrst upplýsingar um kjós-
endur, innan lands og utan, sem verða ekki á heimakjörstað á
kjördag. Opið kl. 10—10. Símar 16066 — 14327 — 19613.
ÁKUREYRI: Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna á Akureyri er
Hafnarstræti 95, símar 1443 og 2406. Munið 50 kr. veltuna.
Á Akureyri fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram hjá bæjar-
fógeta alla virka daga frá klukkan 9—12 f. h., kl. 1—4,30 e. h.
og kl. 8—10 e. li. Á laugarclögum er kosið kl. 9—12 f. h. og 4—6
e. h. Á sunnudögum cr kosið frá kl. 1—3 e. h.
SELFOSS: Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna í Árnessýslu er að
Austurvegi 21, sími 100. Gefið upplýsingar um fjarverandi kjós-
endur,
KEFLAVÍK: Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna er á Framnesvegl
12. opin kl. 1—7 og 8—10, síntar 864 — 94 og 49.
KÓPAVOGUR: Kosningaskrifstofa Framsóknarraanna er að ÁJfhóls-
veg 11, símar: 15904, 23577, opin kl. 2—10 síðd.
VESTMANNAEYJAR: Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna er á
Skólaveg 13, sími 797, opin kl. 10—10.
SAUÐÁRKRÓKUR: Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna I Skaga
firði er ó Hótel Tindastól. Opin alla daga.
AKRANES: Skrifstofa Framsóknarmanna er að Skólabraut 19. Sími
160.
HAFNARFJÖRÐUR: Kosningaskrifstofa Framsóknarmanna er é
Austiirgötu 1, sími 50192.