Tíminn - 24.10.1959, Page 12
Reykjavík 4 st.
Annars staSar á landinu 3—7 st.
Laugardagur 24. október 1959.
„LIIÐIN TIL BÆTTRA LÍFSKJARA”
Léttir til með norS-
vestan kalda.
Sititj.
OLL AÐ VERDA SKATTLAUS
íhaldið hefur lýst því yfir að það berjisf fyrir afnámi
ailra beinna skatta. Leið þess til bættra lífskjara er að
gera eftirtalin fyrirtæki skattfrjáls og velta gjöldum þeirra
á herðar almennings
íhaldið í Reykjavík ætlar að ganga af göflunum
út af „útsvarsfrelsi" Sambands íslenzkra samvinnu-
félaga, en útsvarsfrelsi SÍS er raunverulega til-
hæfulaust með öllu. Á sama tíma og íhaldið ræðst
að SÍS, lýsir það því yfir í stefnuskrá sinni fyrir
þessar kosningar, að það berjist fyrir afnámi allra
beinna skatta.
Það þýðir að gera fyrirtæki eins og Eimskipa-
félag íslands skattfrjálst, en í ár greiðir það 854.169
kr. í tekjusk. og 2.811.000 kr. í útsvar.
Þessi leið til bættra lifskjara þýðir einnig að
gera fyrirtæki eins og ísbjörninn h.f. í Hafnarhvoli
skattfrjálst, en það greiðir í ár 209.678 kr. í tekju-
sk. og 632.400 kr. í útsvar.
Lífskjaraleið íhaldsins er líka fólgin í því að
gera fyrirtækið Sameinaðir verktakar, Aðalstræti
6 (Mbl.-húsið) skattfrjálst, en í ár er því gert að
greiða 639.330 kr. í tekjusk. og 281.000 í út-
svar, og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, til húsa á
sama stað einnig skattfrjálst, en í ár greiðir hún
421.600 kr. í útsvar.
í stefnuskrá sinni boðar íhaldið skattfrelsi Skelj-
ungs h.f. í Hamarshúsinu, en í ár greiðir það
528.432 kr. í tekjusk. og 1.686.600 kr. í útsvar.
Slippfélagið greiðir 378.750 kr. í tekjusk. og
749.600 kr. í útsvar í ár. Stefnuskrá íhaldsins um
útsvarsfrelsi nær einnig til þess. Egill Vilhjálms-
son h.f. greiðir 135.289 kr. í tekjusk. og 388.800
kr. í útsvar. Olíuverzlun íslands h.f., Hafnarstræti
5, greiðir 191.773 kr. í tekjusk. og 1.95.600 í út-
svar. Útsvarsfrelsi fyrrgreindra fyrirtækja þýðir
einfaldlega það, að skattabyrðunum er í einni
eða annarri mynd velt á herðar almennings. Það
er svo eftir að vita, hvort almenningur er sam-
þykkur stefnuskrá íhaldsins um, að þetta sé leiðin
til bættra lífskjara.
m pj wmm
Slippurlnn
Egill Vilhjálmsson
Olíufélag Islands