Tíminn - 06.01.1960, Blaðsíða 4
TÍMINN, miðvikuðaginn 6. janúar 19».
Skrifstofustúlka
Óskum eftir að ráða stúlku til vélritunarstarfa.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist í pósthólf 1297 fyrir 10. þ. m.
OSTA OG SMJÖRSALAN S/F
Snorrabraut 54.
Námsflokkar
Reykjavíkur
Kennsla hefst á morgun 7. jan.
Bætt verður við þremur nýjum byrjendaflokkum,
1 dönsku, í spænsku og í véiritun. í málaflokkunum
verður megináherzla lögð á talæfingar.
Innritun í Miðbæjarskólanum í kvöld og annað
kvöld kl. 7.30—9 síðdegis.
Upplýsingar í síma 34148 daglega kl. 6—7 síðd.
Skólastjóri.
Blaðburður
Tímann vantar unglinga til blaðburðar í eftirtaliu
hverfi:
Lindargötu
Hverfisgötu
AFGREIÐSLAN.
„Síðasti dans“
í dag er þrettándmn, og í kvöld
! verður framsóknarvist í Framsókn
arhúsinu. Þar imun væntanlega
verða fjölmennt og skemmtun góð,
enda stjórnar Vigfús samkomunni.
Það sést, að margir hugsa til
skemmtunar með Vigfúsi, og í gær
barst blaðinu smákvæði frá ,,ónafn
greindum" utan af landi, og er það
helgað Vigfúsi og þrettándavistinni
í Framsóknarhúsinu. Ónafngreind-
ur kallar vísurnar: Síðasta dans:
Þeir sögðu nú „Síðasti dansinn"
og sveiflumst í hraðri för.
Konurnar blíðlega brosa.
Vér bjóðum þeim koss á vör.
En allt er með ýmsum litum,
og engin er vissan þar.
Hamingjustjörnurnar hallast,
og horfið, sem áður var.
Já, svona er oft okkar saga,
þá sáiin er heit og ör.
Og daganna minnast hér margir,
því mikið er líf og fjör.
Vonir og óskir svo verða
að velta um örlagahjól;
það eru dýrðlegir dagar
og draumar við norðurpól.
Hann Vigfús hér vegina ruddi
og vald’ okkur Framsóknarvist,
og síðan höfum við sungið
saman, spilað og íkysst. —
Hann var í heitari löndum
og heillaði ikáta mey. —
í túrista töfraböndum
en traustur samt vorri ey.
1. jan. 1960.
Með vinsemd og virðingu.
Óþekktur hagyrðingur.
b(iiifiiifii+iif+iifi',',',
'i'SitXXitSififititifi'SitiiSitstSSSifSS,
I ÖKUMENN!
[ Veri'8 varkárir —
| varizt slysin.
Fá eru þau seglskip, er sjást á
siglingu um Norðurhöf. Tími segl
skipa er liðinn, en í staðinn kom-
in vélskip, knúin með kolum, olíu
eða kjarnorku. Þau seglskip, scm
enn eru á floti, eru annað hvort
i eigu mitljónamæringa eða skóla-
skip fyrir sjóliða. Skip þetta sem
hér er á myntíinni, er 4 eigu
danska flotans og þjáifar það sjó-
liða, sem fara síðan á herskip
„hans hátignar' Friðriks IX.
Seglskip þessi eru að mörgu frá-
brugðin þeim gömlu, og nú hafa
þau hjálparvélar, sem grípa má
til, ef veður eða segl bregðast,
einnig hafa þau öll tæki, sem
nauðsynleg eru talin til siglinga
nú á dögum.
Ein lítil tillaga’ g
Ein af jólakveðjunum í Útvarp
inu, erlendis frá, á jóladaginn,
var flutt af konu frá höfuðstað
Islendinga í Vesturheimi, og sú
kona er ritstjóri eina íslenzka
vikublaðsins, sem gefið er út ut-
an íslands. iEtli það séu ekki
fleiri en sá , er skrifar, sem
fundið hafa til kinnroða undir
ræðu konunnar, yfir að við hér
hcima skuliun ekkj kaupa þetta
eina blað frænda okkar í Vestur-
heimi meira en við gerum? Ætt-
um við nú ekki að taka okkur
saman og senda Heimskringlu —
Lögbergi svona eíns og hundrað!
nýja áskrifendur að blaðinu, (
liérna frá gamla landinu, í ný-
ársgjöf?
Við myndum gera þar gott
verk fyrir blaðið og ennþá betra
verk fyrir okkur sjálfa, að styðja
samlanda okkar vestanhafs í ís-
lenzkri þjóðræknisbaráttu.
Hysginn bóndl tryggir
dráttarvél kina
— Opnaðu helv . . . dyrnar, heyrirðu
það . , . hún heyrði það.
DENNI
DÆMALAUSI
)&'i'Si'S+fi'+'iiifi'i-'ifiiiiif+'+f+fi','+'ifsf,'ifi'^i!i'*fi'+'iiSi','i'r'ifiiif±fiiiii&
Fréttatilkynning frá orðuritara:
Á nýjársdag sæmdi forseti ísalnds
að tillögu orðunefndar þessa menn
heiðursmerkjum hinnar íslenzku
fálkaorðu:
Guðjón Guðmundsson, bónda og
hreppstjóra, Eyri, Ingólfsfirði, ridd-
arakross, fyrir féLagsmálastörf og
búskap.
Ekkjufrú Hjaltalínu Guðjónsdóttur,
Núpi, Dýrafirði, riddarakross, fyrir
kennslu- og garðyrkjustörf.
Jón Magnússon, fréttastjóra, rikis-
útvarpsins, riddarakross, fyrir emb-
ættisstörf og störf að upplýsingamál-
um.
Jón Gauta Pétursson. bónda og
oddvita, Gautlöndum, Mývatnssveit,
riddarakross fyrir félagsmálastörf
og búskap.
Kristjan L. Gestsson, verzlunar-
stjóra, Eeykjavík, riddarakross, fyrir
stcrf í þágu iþróttamála.
Kristján Kristjánsson, borgarfó-
geta, Keykjavík, riddarakross, fyrir
embættisstörf.
Kristján Jóhann Kristjánsson, for-
stjóra, Reykjavík, fyrrv. formann
Félags íslenzkra iðnrekenda, riddara-
ikross, fyrir störf í þágu íslenzks iðn-
reksturs.
Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstj.,
Reyðarfirði, riddarakross, fyrir fé-
lagsmálastörf.
Reykjavík, 4. janúar 1960.
Orðuritari.
A gamlárskvöld opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Kristín B. Helga-
dóttir og Rúdolf Axelsson lögreglu-
þjónn í Reykjavík.
- K AUPI
ísléni’lí _frlniertcí Jh'iíta vértli.
, yériikrí >end ókeýpis.*
crí l«Br y n jó I fss on,
^ . Pórthóll 734, ReykjaVik.
Skipadeild SÍS:s’
Hvassafell er í Stettin, fer þaðan
á morgun áleiðis tii Rvíkur. Amar-
fell er í Kristiansand. Jökulf-ell fer
í dag frá Borgarnesi til' Skagastnand-
ar, Eyjafjarðar- og Austfjarðahafna.
Dísarfell fer í dag frá Rvík til IBöndu
óss, Skagastrandar og Austfjarða-
hafna. Litlafell fer í dag frá Rvík
til Austfjarðahafna. Helgafell átti að
fara í gær frá Sete til Ibiza. Hamra-
fell fór framhjá Gíbraltar 4. þ. m.
á leið til Batumi.
Skipaútgerð ríklsins.
Hekla er væntanieg til Rvíkur ár-
tíegis í dag. Esja er á Austfjörðum
á suðurleið. Herðubreið fór frá Rvík
gær austur um land tii Borgarfjarð-
Skjaldbreið fór frá Rvk í gær-
kveldi vestur um land til Akureyrar.
Þyril'l er á leið til Fredrikstad. Herj
óifur fer fró Rvik kl. 22 í kvöld til
Vestmannaeyja.
Fiugfélag íslands:
Millilandaflug: Millilandaflugvélin
Gullfaxi fer tU Glasgow og Kaup-
mannahafnar 1. 8k,30 1 dag. Væntan-
leg aftur til Rvíkur kl'. 16,10 á morg-
un.
Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Húsavlkur,
ísafjarðar og Vestmannaeyja. — Á
morgun er áætlað að fljúga til Akur
eyrar (2 ferðir), Bíldudais, Egilsstaða,
ísafjarðar,. Kóþaskers, Patreksfjarð-
ar, Vestmannaeyja og Þórshafnar.
Loftleiðir.
H-jkla er væntan’eg kl. 7.15 frá
New York. Fer tU Stafangurs, ICaup-
mannahafnar og Hamborgar kl. 8,45.