Tíminn - 06.02.1960, Side 3
T í MI N N, laugardaginn 6. febrúar 1960.
3
Gasljósin slokkna
nú óðum í vitunum
Og rafmagnsljós lýsa út í nóttina viSsvegar
á ströndintni
Vitamál voru til umræðu á nýtt vitahús og vélahús fyrir
Fiskiþingi í gær og urðu um
það talsverðar umræður, eink
um hvað snerti vitabygging-
ar og leiðarmerki við Austfirði
og Vestfirði.
Helztu vitaframkvæmdir
síðast liðið ár voru þær að
reist var viðbygging við vita-
húsið á Dalatanga og settar
þar niður tvær 3,5 kw disilraf-
stöðvar. Radíóvitanum á
Dalatanga var breytt og send-
ir hann nú stöðugt.
Rafstöðvar í vitana
Settar voru upp sjálfvirkar
dísilrafstöðvar til reynslu í
Hólmsbergs- og Knararósvita.
Stöðvar þessar hafa reynzt
vel og stóraukið ljósmagn vit-
anna. Lagfæringar á öðrum
vitum voru þessar:
Hornbjargsviti. Sett var raf-
magnsljós í vitann og radio-
vitanum breytt og látinn
senda stöðugt.
Galtarviti. Þar var reist
Framsóknarvist
á Akranesi
Framsóknarfélag Akraness
heldur skemmtisamkomu meíj
Framsóknarvist og dansi í Fé-
lagsheimili templara næstkom-
andi sunnudag kl. 8,30. — Þar
hefst 5 kvölda keppni og verða
veitt góð heildarverðlaun að
þeim loknum.
Takið þátt í vistinni frá upp-
hafi.
Aðgöngumiðasala í Félags-
heimili templara kl. 4—5 á sunnu
vatnsaflstöð.
Skarðsfjöruviti. Nýr viti á
Skarðsfjöru í Meðallandi. Vit-
inn er 20 metra há stálgrind,
smíðuð í Landssmiðjunni.
Ljóstæki vitans eru sænsk.
Stokksnesviti. Lögð heim-
taug frá radarstöðinni á
Stokksnesi og sett rafmagns-
ljós í vitann.
Gasljósin hverfa
Pöntuð voru ný tæki vegna
breytingar frá gasljósi í raf-
magnsljós 1 vitana i Svalvog-
um Hjalteyri, Svalbarðseyri,
Þorlákshöfn og Melarhorni.
Reist var hús vegna leiðarlj ósa
á Álftanesi fyrir innsigling-
una inn á Skerjafjörð. Lánað-
ur var til reynslu radlostefnu-
viti frá fyrirtækinu AGA í
Sviþjóð. Prófunum í vita þess-
um er ekki lokið.
Þá var í gær rætt um síld-
arverksmiðjur og vigtun á
síld.
Flokksst
Þeir sem búa nærri kvikmyndaverkbólum eru ýmsu vanri og Iáta sér ekki bylt við verða þótt upp
skjóti kollinum fólk í ólíklcgustu búningum, konum í kjólum frá síðustu öld eða kúrekum alvopn-
uðum inni í miðri borg. Þessi mynd var tekin skammt frá Rank-kvikmyndaveri, þar sem „eskimóa-
stúlka" í fuilum skrúða er að stíga í strætisvagn. Stúlkan er reyndar japönsk, en klædd samkvæmt
hlutverki sínu í mynd sem nefnist „Grimmir sakleysingjar".
[Serforingjunum 1 Aisír
skipað heim tii Parísar
NTB—París, 5. febr. Þrír
franskir ráðherrar, sem de
Gaulle virðist treysta vel,
fljúga til Alsír á morgun og
eiga að rannsaka þar hverra
aðgerða sé þörf til þess að
koma á fullu öryggi og ró í
landinu. Sex skipulögð félög
hægrimanna og öfgamanna í
Alsír hafa verið leyst upp. 60
kunnir hægrimenn í Alsír
hafa verið settir 1 fangelsi.
De Gaulle var í forsæti á tveggja
stunda ráðuneytisfundi í daig, þeim
Fundur Framsóknarkvenna
Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík heldur fund í Fram-
sóknarhúsinu uppi þriðjudaginn 9. þ.m. kl. 9 síðd. Steinunn
Ingimundardóttir heimilisráðunautur Kvenfélagasambands fs-
Iands flytur erindi um hollar fæðutegundir og sýnir skugga-
myndir.
Á fundinum verða teknar ákvarðanir um bastvinnunám-
skeið og geta félagskonur skrifað sig á það á fundinum Þátt-
taka verður mjög takmörkuð. Sýnikennsla mun hefjast kl. 2
á mánudag í Framsóknarhúsinu.
Fulltrúaráðið
Sú breyting verður á, að fundur í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna,
sem átti að vera mánudagskvöldið 8. febrúar, færist til miðvikudags-
kvölds 10. þ. m. Fundurinn verður í efri sal og hefst kl. 8,30.
fyrsta eftir að forsetinn fékk auk
in völd.
Alger hlýðni við forsefann
Þetta var 'líka fyrsti fundur
I hiinnar umsköpuðu stjórnar. í
grundvallaratriðum er stjórnin
óbreytt. Höfuðeinkenni hennar er
fullLkomin og alger hollusta við
stefnu forsetans. Þetta er enn
ijósara einkenni en áður, einkum
eftir brotitför Soustelle. Við em-
bætti hans tekur GauUistinn Ro-
bert Lecourt, sem var ráðherra
án stjórnardeildar. Frey upplýs-
ingaráðherra og Guillaumat landv.
ráðherra verða nú báðir ráðgjafar
i forssetisráðherruns.. Messmer úr
i flokki jafnaðarmanna verður laind
vnmarðherra og hefu de Gaulle
i>á aftur tengt böndin við þann
i flokk. Aðeiins einn nýr maður
j baetist í stjórnina og tekur hanr
! við embætti upplýsingaráðherra
Breyting á hegningar-
lögunum
Á ráðuneytisfundinum var gera
breyting á hegnin'garlögunum,
ekki er enn kunnugt um innihald
hennar. Er hún gerð til að tryggja
öryggi ríkisius segir í tiilkynn-
ingunni. Er þetta enn liður í
hreinsun de Gaulle. Ráðherramir
sem fara til Alsír eru Messmer,
innanríkisráðherrann Chatenot og
dómsmálaráðherrann. Messmer
kom fyrir aðeins tveim dögum til
Parísar, en hann hefur verið
lauttinanit í her Frakka í A-Alsír
og staðið í bardögum síðustu vik
ur. Hann er 43 ára og var um
skeið landstjóri Frakka í V-Afr-
íku.
Handtökur í Alsír
Eftir að 6 skipulagðar hreyfing
ar öfgaimanna í Alsír voru leyst
ar upp í morgun. Hóf lögreglan
handtökur ýmissa hægri manna.
Er áli'tið að um 60 þeima hafi
verið haindteknir í dag. Sagt er,
ag fundizt hafi miikið af skjöl-
um í ver'ksmiðjuhverfi eimu. Hafi
lögreglan rekist þar á mann, sem
gekk undir nafninu „foringinn".
Þá fundusit áætlanir um að ná
vopnum frá birgðastöðvum hers
-ins á tilteknum degi.
Sagt er að margir af háttsett
um liðsforingjum og hersliöfð-
ngjum í Alsír-hernum hafi /eng
'i-I skipun um að koma til París-
ar. Meðal þeirra sé Marcel Bi-
geard, höfuðsmaðurinn, sem
frægastur viirð fyrir vörn Dien-
hien-phu í Indó Kína.
\8a!fundiir Fram-
sóknarfélags
Arnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Árnessýslu verður haldinn á Sel-
fossi sunnudaginn 7. febrúar n. k.
kl. 2 e. h. — Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf.
Gerðu aðsúg
að Mikojan
NTB—Havana, 5. febr. Lög-
reglumenn urðu aS skjóta all-
mörgum skotum, að vísu upp
í loftið — til þess að dreifa
óeirðarseggjum, sem æptu að
Mikojan hinum rússneska í
Havana í dag. Var varaforsæt-
isráðherrann að leggja blóm-
sveig að styttu Jose Marti,
þjóðhetju Kúbumanna.
Mikojans sem kom við á
Keflavíkurflugvelli, er í Hav-
aira til að opna sovézka sýn-
ingu þar.
Niður með kommúnismann
Fjöldagöngumenn hugðust
gera aðsúg að Mikojan og
koma í veg fyrir að hann legði
sveiginn. Voru joeir sjálfir
með blómsveig og báru borða,
sem á var letrað: Lengi lifi
Castro. Niður með Mikojan
og kommúnismann.
Atburðurinn gerðist ( al-
menningsgarði einum. Var
Castro með Mikojan og fór
hið skjótasta með hann inn í
sýningarskálann, sem þarna
var rétt hjá, Bað Castro fólkið
að vera rólegt. Menn létu sér
samt ekki segjast og varð lög-
reglan að dreifa fólkinu.
Munu um 20 hafa verið hand-
teknir.