Tíminn - 06.02.1960, Side 16

Tíminn - 06.02.1960, Side 16
Laugardaginn 6. fcbrúar 1960. 29. blað. Áskriftarverð kr. 35.00. Vanskil annarra snerta ekki LÍÚ Fráleitt að Fiskimannafélagið geti lögsótt LÍÚ fyrir skuldir einstakra útgerða Kristján Ragnarsson, fulltrúi LÍÚ hringdi til blaðsins í gær, og kvaðst mjög hissa á þeirri frétt, að_ Föroya Fiski- mannafélag hyggðist höfða mál á hendur LÍÚ vegna van- greiddra launa til færeyskra sjómanna Við birtum hér út- drátt úr ummælum hans. — ÞaS er fráleitt að halda því frarrt, að Föroya Fiski- mannafélag geti sótt Landssambandið til saka vegna van- greiddra launa. Auðvitað er hvert einstakt útgerðarfélag ábyrgt fyrir skuldum sínum, en ekki þau samtök sem þau stofna sín á milli til þess að létta sér sameiginleg störf. Óánægt met$ vanskil Þess má einnig geta, að LÍÚ er mjög óánægt með van- skil hinna ýmsu útgerða, og hefur gert allt sem í þess valdi stendur til þess að hjálpa þeim aðilum, sem illa hefur gengið að fá laun sín fullgreidd. Samstarf LÍÚ og danska sendiráðsins hefur alltaf verið með ágætum, og LÍÚ verið boðið og búið til þess að veita því allar upplýsingar. sem það hefur yfir að ráða. Blaðið hefur einnig orðið vart við það, að mönnum þykir nokk-,, urrar tvísagnar gæta í því, að við komu færeysku sendinefndarinn- ar lét hún svo ummælt, að markmiðið væri að tryggja Færeyingum sömu kjör og íslenzkum fiskimönnum, en við brottför, að markmiðið hefði verið að tryggja Færeyingum sömu kjö- hér og þeir fá heima Um þetta mál sagði Kristján Ragnarsson. Ekki ráínir fyrir betri kjör — Það sem færeyska sendinefndin hafði í huga, var að færeyskir sjómenn fengju sambærileg kjör hér við þao sem þeir fá í heima- landinu. Það er náttúrlega ekki okkar að dæma um lífskjör Fær- eyinga, en við neituðum ákveðið, að Færeyingarnir yrðu ráðnir fyrir betri kjör en íslendingar. Færeyska sendinefndin hélt fast við það, að færeyskir sjómenn fengju 1500 krónui danskar í lágmarks- laun á mánuði, og var aldrei rætt um annað. og hlýtur því að vera um misskilning að ræða í gær, þegar haft er eftir Friðrik Hansen, að réttlát kjör færeyskra sjómanna hér væru tryggð með 800 krón- um döns'kum á mánuði. í gærkvöldi barst blaðinu afrit af eftirfarandi skeyti, sem fær- eysku sendinefndinni var sent héðan. 800 kr. efta 1500 kr. Erlendur Patursson Fridrik Hansen M/S Tjaldur XPPP Via Torshavn Radio TM Eftirfarandi er haft eftir Friðrik Hansen í dagblaðinu Tím- inn í dag: Að það hefði verið markmið nefndarinnar að tryggja færeyskum sjómönnum sömu kjör hér á landi sem þeir njóta í heimalandi sínu, þar hefðu sjómenn 800 dansk- ar krónur í lágmarkslaun á mánuði LÍÚ hefði ekki viljað fallast á þessar tillögur og því hefði samkomulag ekki tekizt. Vegna þessara ummæla viljum vér fá staðfest hvort hér sé rétt eftir haft, þar sem í samningsviðræðum yðar við LÍÚ var staðið fast á, af yðar hálfu, lágmarkslaunum dansk- ar krónur 1500 per mánuð. Fiskiskip Milt var það þorraregn, sem féll á höfuð mahna hér í Reykja- vík í gær, það var regnhlífaveður eins og þau gerast bezt á sumrin. — Thorkil Kristensen fer úr vinstri-flokknum skýra svo frá í dag, að hinn þekkti stjórnmálamaður þing- maður og fyrrv. fjármálaráð- herra Thorkil Kristensen hafi, ákveðið að segja sig úr flokki j Vinstri manna. j Muni hann í næstu viku segja af sér öllum störfum i þeim mörgu og mikilvægu nefndum, sem hann situr í fyrir Vinstri-flokkinn. Það sem eftir er kjörtímabilsins hyggst hann vera utanflokka. Ekki er þó víst að Kristen- sen, sem nýtur mjög mikils álits í Danmörku, verði lengi utanflokka. Þann 21. febr. n. k. koma nefnilega saman í Danmörku fulltrúar ýmissa hópa innan Vistri-flokksins, sem verið hafa óánægðir með stefnu flokksins. Hyggja þeir á nýja flokksstofnun Eiukaskeyti til Tímans frá Kaupmannahöfn Blöðin í Kaupmannahöfn Afmælis- hóf FUF Afmælishóf F.U.F. í Reykja vík verður haidið í Framsókn- arhúsinu (neðri sal) laugard. 6. febr. n.k. og hefst með borð haldi kl, 7 e.h. Framreiddur verður kaldur matur og verð- ur borðað á lausum borðum. Dagskrá: Ávarp: Formaður F.U.F. Einar Sverrisson, Gísli Guðmundsson, alþm., fyrsti form. F.U.F., flytur ræðu. Árni Jónsson syngur einsöng og Ómar Ragnarsson skemmt- ir. Dansað verður til kl. 2 eff- ir miðnætti. Aðgöngumiðar fást á flokks skrifstofunni í Edduhúsinu til hádegis og í Framsóknarhús- inu frá kl. 1 e. h. Verð að- göngumiða er aðeins kr. 110 og er matarverðið innifalið. Stjórnin Ólafsfirðingar sækja á FljátainiS Olafsfirði, 5. febrúar. Hér er þvílíkt blíðviðri að menn muna ekki annað eins. Hríð hefur ekki komið síðan snemma í janúar. Þótt fyrir komi að eitthvað syrti að þá verður aldrei neitt úr því. Snjólaust er að kalla en jörð mjög svellrunnin. Nýlega var farið fram á Lágheiði. Þar hefur ekki verið minni snjór á þessum tíma í herrans mörg ár. Fremur er tregt um afla- brögð. Er vestanátt úti fyrir og er það bátunum til baga, því þeir sækja vestur á Fljóta- mið og jafnvel lengra. Af þess- um sökum hefur ekki reynst unnt að fara nema einn róð- ur í þessari viku. Ef við hefð- um stærri báta mundi þó ’engra sótt, Óskar Einarsson Stjórnmála- námskeiðiö Næsti tundur stjórnmála- námskeiðsins verður í Fram- sóknarhúsinu n.k. þriðjudags- kvöld kl. 8.30 Llmræðue*ni: Samvir.tvjmá) — Framt-m|. menn: Ó-^kar Fir.arsson og Jóakim Arason.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.