Tíminn - 14.02.1960, Síða 1

Tíminn - 14.02.1960, Síða 1
BlaSHiu bætast stöSugt nýlr kaupendur á dcgi hverjum. 44. árgangur — 36. tbL Fylgfzt meO breytingunnl á blaðinu, hringið í síma 1 23 23 og gerizt áskrlf- endur. Sunnudagur 14. febrúar 1960. Stjórnin vill ekki leysa efna- hagsmáiin á breiðum grundvelli Stjórnarliðið felldi tillögu Framsöknarmanna um samstarf allra flokka á Alþingi um lausn efnahagsmálanna og virðist ætla að berja samdrátt- arfrumvarpiö fram, þrátt fyrir veikan meirihluta á Albingi Meí bví atS fella tillogu Framsóknarmanna um samstarf allra þingflokka um viSunandi og réttláta lausn eínahagsmálanna hefur stjórnin tekið þann kostinn, sem verstur er, atS berja fram með veikum meirihluta tillögur sínar um eflingu peningavalds- ins, óhæfilegan samdrátt í JjjóÖarbúskapnum og stór- fellda kjaraskerÖingu al- mennings. Atkvæðagreíðslur eftir aðra umræðu um efnahagsmála- frumvarp ríkisstjórnarinnar fóru fram í neðri deild Al- þingis í gær. Frumvarpið var samþykkt með lítilsháttar breytingum stjórnarliðsins og vísað til þriðju umræðu. Þingmenn Alþýðubandalags- ir.s greiddu dagskrártillögu Framsóknarmanna atkvæði, en tiílagan var felld með 21 at- kvæði gegn 16. Breytingartillaga Framsókn- armanna við 23. gr., sem er um afnám vísitölunnar, naut einnig stuðnings Alþýðubanda- lagsins, en brtl. kvað á um að greinin skyldi orðast svo: „Ríkisstjórnin vinni að því að koma á samkomulagi milli launþega og framleiðenda um stöðvun víxlhækkana á milli kaupgjalds og verð- lags." Það vakti a11 mikla athygli að vonum, að Sjálfstæðismenn skyldu greiða atkvæði á móti breytingartillögunni, því að í kosningastefnuskrá Sjálfstæð- isflokksins frá því í haust var kveðið á um þessi mál á sama hátt. Þessar ungu og fallegu stúlkur hafa eins og fleiri gaman af að líta í Tímann þessa dagana, Þær eru sömu skoðunar og fjöldi annarra, að Tíminn sé gott blað, sem vert sé að kynna sér /—.......................■« Veruleg aukn ing á fram- leiðslu áburð ar framundan Aðalfundur Áburðarverk- smiðjunnar h.f. var haldinn í Gufunesi föstudaginn 12. febrúar 1960. Fundinn sátu hluthafar eða umboðsmenn hluthafa fyrir 94% hluta- fjárins. Stjórnarformaður, Vilhjákn- ur Þór, flutti ýtarlega skýrslu fyrir hönd stjórnarinnar um rekstur og afkomu fyrirtækis- ins árið 1959. Framleiddar voru á árinu 18317 smálestir af Kjarna, og var það 671 smálest meira en árið áður. Fékkst nokkru meiri raforka en vænzt hafði verið, og er það hagstæðu árferði að > þakka. Fjárhagsleg rekstrarafkoma var góð á árinu. Lagt var í varasjóð 2,4 milljónir króna. Nú var í fyrsta sinni úthlutað 6 af hundraði til hluthafa af hlutafjáreign þeirra í fyrirtæk inu. Formaður gat þess, að frá upphafi eða eftir rúmlega 5 ára starfsemi hafi verksmiðjan framleitt samtals 107725 smá- lestir af Kjarna. Þá gat hann þess að með tilkomu hinnar nýju Sogsvirkjunar væri nú að vænta verulegrar aukningar á framleiðslu verksmiðjunnar á árinu 1960. Þá ræddi formaður um, að áframhaldandi athuganir hefðu farið fram á árinu til undir- búnings byggingu njTrar verk- smiðju, er framleiddi blandað- an áburð, og lét í Ijós vonir um, að tekin yrði endanleg ákvörðun um þetta mál á þessu ári. Við stjórnarkjör voru endur- kjörnir aðalmenn í stjórn þeir Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, og Jón ívarsson, for- stjóri, og varamenn einnig end urkjörnir þeir Halldór H. Jóns son, arkitekt, og Hjörtur Hjart- ar, forstjóri. Endurskoðandi var endurkjórinn Halldór Kjartansson, forstjóri. Ræningjadysjar og Englendingabein bls. 9 j

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.