Tíminn - 14.04.1960, Qupperneq 2
T í MIN N, fimmtudaginn 14. aprfl 1960.
Selfangarinn
iaus úr ísnum
ísafirði. 12. apríl. — Fjögur!
norsk selveiðiskip komu hing
að í dag og segja mjög vont
veður út af Vestfjörðum. Afli
þeirra var frá 1000 til 2.600
selir á skip.
Selfangarinn Maiblamsten,
sem sagt var frá í blaðinu nú
fyrir skömmu, er nú laust úr
ísnum, en vél skipsins er bil-
uð og hjálparskipið Salvador
er á leið með það til lands
í togi. — í fréttinni um dag-
inn var misprentað að Eskimo
hefði fengið 17 seli — átti auð
vtað að vera 1700. — Hér er
nú gott veður — sól og blíða.
G.S.
Málarameistara-
félagið
Aðalfundur Málarameist-
arafélags Reykjavikur var
haldinn 29. marz s.l. Formað-
ur félagsins Jón E. Ágústs-
son flutti skýrslu stjórnar-
innar frá liðnu starfsári.
Starfsemi félagsins var mjög
fjölþætt á árinu.
Eins og undanfarin ár gaf
félagið út tímaritið Málar-
ann, sem lytur mjög fjöl-
breytt og læsilegt efni varð-
andi málarastéttina- Rit-
stjóri Málarans er Jökull
Pétursson.
3þúsundtunnur
harpaðar á dag
Feríaskrifstofa ríkisins gekkst fyrir námskeiði
fyrir fararstjóra innanlands
Fyrirtækið Ægisandur h.f.'
bauð nýlega fréttamönnum og
fleiri gestum að skoða fram-
kvæmdir sínar í Hraunsvík,
en þar hefur fyrirtækið starf-
rækt í ár sand- og malar-
vinnslu. Nýlega tók fyrirtækið
í notkun nýjar hörpur og
sand- og steypuefnisgeyma,
sem auðvelda að mun alla
afgreiðslu efnisins héðan í frá.
Efnið er tekið úr fjörunni
með jarðýtu og „scraper“
og flutt upp að sand-sílóun-
um og er þar skilið í þrjár
stærðir, steypusand, loftamöl
og veggjamöl. Þrjú þúsund
tunnur eru harpaðar á dag.
Sílóin taka um þrettán hundr
uð tunnur.
Slgurður Pálsson, bygging-
armeistari, segist hafa notað
efnið með allt að helmingi
minni sementsnotkun en
venjulegt er með góðum ár-
angri.
Byggingarverkfr. Hafnar-
fjarðar sagði, að hversu löng
sem flutningaleiðin væri,
borgaði sig að ná í þetta efni.
Og luku fleiri lofsorði á efn-
ið.
Byggingu sílóanna önnuð-
ust Sveinn Guðmundsson tré
smiðameistari og Pétur Árna
son, múrarameistari, eftir
teikningu Stefáns Ólafssonar
byggingaverkfræðings.
Framkvæmdastjórar fyrir-
tækisins eru Friðþjófur Karls
son og Kristján Ómar Kristj
ánsson.
Um 100 manns á nám-
skeiði íararstjóra
Ægisandur h.f. tekur í notkun nýjar sand-
hörpur —
Á tímabilinu frá 21. janúar
s.l. til 17. marz var haldið nám
skeið fyrir fararstjóra á veg-
um Ferðaskrifstofu ríkisins og
var Björn Þorsteinsson sagn-
fræðingur forstöðumaður nám
skeiðsins. Kennsla fór fram í
fyrMestrum og enn fremur
voru sýndar kvikmyndir og
skuggamyndir, söfn skoðuð
og farið í kynnisferð um bæ-
inn og nágrennið.
Fyrirlestrar
Eftirtaldir menn fluttu
fyrirlestra og önnuðust
fræðslu á námskeiðinu, auk
Björns Þorsteinssonar: Krist-
Laugaveg 59
AIls konar karlmannafatn-
aður. — Afgreiðum föt
eftir máli eða eftir núm-
erj með stuttum fyrirvara.
Elltíma
Látió Perlu létta störfin!
■ 'v
.. ékkert gleppur
ótiebfc í gego.!
Helgitónleikar
með tónsmíðum og raddsetmngum
HALLGRÍMS HELGASONAR
fara fram í Laugarneskirkju 2. páskadag, 18. apríl
kl. 9. —
Flytjendur eru:
Alþýðukórinn, SVÍR
Páll Kr. Pálsson; orgelleikur
dr. Hallgrímur Helgason, kórstjórn og fiðluleikur
séra Garðar Svavarsson, ritnmgarlestui og bæn
Aðgangur er öllum heimill, en við útgöngu gefst
tónleikagestum kostur á að gefa í sjóð til hljóð-
færakaupa fyrir kórinn.
Málverkasýning
ÞORLÁKUR R. HALDORSEN opnar málverkasýn-
ingu í Bogasal Þjóðminjasafnsíns í dag (skírdag)
kl. 6. — Verður sýningin opin daglega kl. 2—10.
Hjúkrunarkona
óskast í Sjúkrahús Hvítabandsins frá 1. júní n.k.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkonan
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur
•V.V»V.V»V»‘V»V»V»V»V»->.»V»‘VV»V»V»V»'
ján Eldjárn þjóðmlnjavörð-
ur, Lárus Sigurbjörnsson safn
vörður, Finnur Guðmundis-
son, fuglafræðingur, Guðm.
Kjartansson, jarðfræðingur,
Björn Th. Björnsson listfræð
ingur, Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, Guðmundur
Þorláksson, kennari, Ingólfur
Daviðsson grasafræðingur og
Þórh. Vilmundarson mennta-
skólakennari.
Enn fremur fór Gísli Guð-
mundsson með þátttakendur
í kynnis- og fræðsluferð um
Reykjavík, nágrenni og Suð-
urnes.
Námskeiðið sóttu að jafn-
aði nær 100 manns. Að lokum
fluttu 25 þátttakendur leiðar
lýsingu á ýmsum málum.
Þing og mót
Mikið verður um ýmis kon
ar þing og mót hér á landi
í sumar. Hér má nefna land-
fræðingaþing, hjúkrunar-
kvennaþing, lögfræðingamót
og auk þess munu starfsmenn
tryggingastofnana halda hér
þing.
Þrjú skemmtiferðaskip
munu koma hingað frá Banda
ríkjunum og 2 frá Evrópu.
Fræðskkvöld
Garðyrkjufélags
fslands
Garðyrkjufélag íslands efn
ir til nokkurra fræðslukvölda
um garðyrkjumál í þessum
mánuði. Fundirnir fara allir
fram í Inðnskólanum á Skóla
vörðuholti og hefjast klukkan
20,30. — Fyrsta fræðslukvöld-
ið var 11. apríl, en hin verða
20., 23. og 27. apríl.
Á mánudagskvöld talaði
Aage Foged um blómaskreyt
ingar.
Annað fræðslukvöldið verð
ur miðvikudaginn 20. apríl.
Þá ræða Kristmann Guð-
mundsson og Gunnar Hannes
son um skrúðgarða við heima
hús.
Á þriðja fræðslukvöldl,
mánudaginn 25. apríl, fjalla
Axel Magnússon og Hafliði
Jónsson um grænmetisrækt-
un, og á fjórða og síðasta
kvöldinu að þessu sinni, mlð-
vikudaginn 27. apríl, talar
talar Niels Dungal um orki-
deur og Seefeld Wolf um þlóm
í listaverkum.
Aðgangur að kvöldunum öll
um eir ókeypis. Af fyrri
reynslu er óhætt að fullyrða.,
að margir muni vilja færa sér
í nyt þá fræðslu, sem fæs*-
með þessum hætti, og er það
vilji forráðamanna Garðyrkju
félagsins, að áhugamenn um
garðyrkju geti á kvöldum
þessum fengið hagnýtar leið
beiningar um áhueamál sitt.