Tíminn - 14.04.1960, Qupperneq 3
TÍMJN N, fimmtudaginn 14. apríl 1960.
3
BANDARISKA TILLAGAN
FÉKK AÐEINS 43 ATKVÆÐI
Þarf að fá 58 atkvæði til þess að ná samþykki
í gær fór fram atkvæða-
greiðsla í nefnd á sjóréttar-
ráðstefnunni í Genf um fram-
komnar tillögur. „Atkvæði
féllu þannig um aðaltillögur,
sem lágu fyrir nefndinni, að
tillaga Asíu- og Afríkuríkja
um 12 mílna landhelgi var
felld með 39:36, en 13 sátu
hjá, en bræðingstillaga Banda-
ríkjanna og Kanada var sam-
þykkt með 43:33 atkv. en tólf
sátu hjá. Tillaga íslands var
samþykkt í nefndinni ’með 31
atkvæði gegn 11 en 46 ríki
sátu hjá.
í nefnd nægir einfaldur
meirihluti til þess að tillaga sé
samþykkt, en á sjálfri ráð-
stefnunni, sem byrjar fundi
sína á þriðjudaginn, þarf %
hluta atkvæða til þess að til-
laga nái samþykki. Bræðings-
tillagan þarf því að bæta við
sig 15 atkvæðum til þess að ná
samþykki þar og virðast ekki
neinar líkur til þess. Úrslitin í
nefndinni hafa áreiðanlega
orðið fylgismönnum hennar
þar mikil vonbrigði, því að
samkvæmt frásögn ,.The Tim-
es“ á laugardaginn, þóttust
Ingvar Gíslason formaður
Framsóknarf. Akureyrar
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Akureyrar var haldinn
s.l. þriðjuadg, 12. apríl, í
Gildaskála Hótel KEA. Á fund
inum gengu í félagið allmargir
nýir fél'agar og hefur félaga-
tala vaxið verulega síðast lið-
ið ár.
Fráfarandi stjórn var end-
urkosin, en hana skipa: Ingv
ar Gíslason, formaður; Arn-
þór Þorsteinsson, varaform.;
Guðmundur Blöndal gjaldk.;
Richard Þórólfsson, ritari og
Hallur Sigurbjörnsson með-
stj órnandi.
í blaðstjórn Dags var auk
formanns kjörinn Guðmund-
ur Guðlaugsson. Að lokum
var kosið 12 manna fulltrúa
ráð félagsins.
Fundurinn ræddi sérstak-
lega leiðir til aukinnar út-
breiðslu Tímans og ríkti ein-
hugur um að efla gengi blaðs
ins að mun á Akureyri og var
kjörinn sérstök nefnd til að
vinna að útbreðslunni. —
S.l. ár hefur kaupendatala
blaðsins á Akureyri hækkað
um rúmlega 100 og er tak-
markið nú að fjölga kaupend
u menn um a.m.k. þá tölu á
þessu ári.
þeir þá vera orðnir vissir um
55 atkv. með tillögunni, en
hún fékk að þessu sinni aðeins
43 atkv.
Eins og nú horfir, bendir
því allt til þess, að engin nið-
urstaða verði á ráðstefnunni.
Áður en atkvæðagreiðslan
hófst, tilkynntu fulltrúar
Burma, að þeir hefðu dregið
tillögu sína til baka, enda var
hún í meginatriðum sam-
hljóða tillögu Sovétríkjanna.
Eins og áður segir, falla
niður fundir á ráðstefnunni
yfir hátíðarnar, en allsherjar-
fundur ráðstefnunnar hefst á
þriðjudaginn eftir páska, og
er reiknað með. að hann
standi fram á föstudag, en ráð
stefnunni verður að ljúka í
síðasta lagi á laugardag eða
sunnudag, því að á mánudag
hefst önnur ráðstefna á veg-
um Sameinuðu þjóðanna í
Þjóðahöllinni í Genf.
Það er almennt talið að að-
al áróðurmn hefjist á ráð-
stefnunni eftir atkvæða-
greiðsluna í nefnd og þá verði
lagt ofurkapp á af báðum aðil-
um að vinna einstök ríki, sem
óvissa afstöðu hafa haft, á sitt
hand.
Dean aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna á ráðstefnunni lét þau
orð falla eftir atkvæðagreiðsl-
urnar í gær, að úrslitin væru
mjög uppörvandi fyrir Banda-
ríkjamenn og teldi hann
nokkrar líkur á að tillagan
næði % hluta atkvæða á ráð-
stefnunni.
Yfirlýsing
Sungið djarft um
holdlegar ástir
Carmina Burana í Þjóftleikhúsinu 23. og 24 |j. m.
Mjólkurbúshindurinn
(Framh. af 1. síðu). ^ |
í mjólkurflutninga fyrir allt svæði MBF. Var tilboðið frá 12
til 16% lægra en flutningsgjöld mjólkurbúsins eru nú, 12%
lægra um sveitirnar og 16% lægra til Reykjavíkur. Því fylgdi
þó það skammrif, að tilboðið átti að umreikna, ef ástæða þætti
til, svo sem ef varahlutir. hækkuðu eða annar reksturskostn-
aður yrði á einhvern hátt meiri en Landleiðir gerðu ráð fyrir.
Stjórnin lagði fram frávísunartillögu við þessa tillögu, og
var hún samþykkt með þremur mótatkvæðum. Helztu rök
fyrir synjun tilboðsins voru þessi: Það er mjög ósennilegt, að
hægt sé að bjóða betri þjónustu en félagið býður nú eftir 30
ára reynslu. Hætt er við því, að þegar hlutafélagið ætti allan
bílaflotann yrði tregða á að teggja bíla og bílstjóra út í tvísýnt
veður og illfæra vegi, svo sem nauðsynlegt er að gera og gert
hefur verið, því allt stendur og fellur með því, að mjólkin
komizt í tæka tíð til búsins. Það er aðalatriðið, og hætt við að
það breyttist, ef hlufafé!rg, sem aðeins hugsaði um eigin hag,
tæki við völdum. Ef svo til þess kæmi, að Landleiðir segðu
upp samningum. sem ekki væri óhugsandi, er óvíst hvernig
stæði á fyrir MBF að kaupa allan bílaflotann aftur og vafa-
samt hverf ásigkomulag hans yrði þá. Landleiðir ætluðu sem
sé að byrja á því að kaupa bílakost MBF, en það hefði kostað
nokkrar milljónir, því bílarnir eru milli 30—40, allt saman
nýlegir og stórir vagnar, meira að segja sumt tcnkbílar, sem
eru miög dýrir.
Stjórn Mjólkurbús Flóamanna skipa nú: Egill Thorarensen,
formaður, Sigurgrímur Jónsson, sr. Sveinbjörn Högnason,
Eggert Ólafsson og Þorsteinn Sigurðsson. —s—
Utaf forsíðugrein í Tíman
um í dag, um frímerkjamálið
óska ég að taka fram, að ekki
er rétt farið með það sem ég
er þar talinn hafa borið fyrir
rétti. Einnig skal það tekið
fram, að póst- og símamála-
stjóra var ókunnugt um af-
hendingu þessara frímerkja.
Að öðru leyti er ekki ástæða
til að ræða þetta mál, þar
sem það nú fer til dóms.
Þetta bið ég yður vinsam-
legast að birta í næsta blaði
Tímans.
V'irðingarfyllst,
Egill Sandholt.
Málverkasýning
Þorlákur B. Halldórsson
hefur opnaS málverkasýningu
i Bogasal Þjóðminjasafnsins
og sýnir hann 28 olíumálverk
og 12 teikningar.
Myndirnar eru allar „nat-
úralistískar", eða landslags-
myndir af ýmsum stöðum,
Sýningin verður opin frá
kl. 2—10 í 10 daga.
Nýr togari
í dag er væntanlegur til Reykja-
víkur hinn nýi togari Guðmundar
Jörundssonar, útgerðarmanns
„Narfi“ R.E. 13. Togarinn var
smíðaður hjá skipasmíðastöðinni
Nobiskrug G. m. b. H. í Redsburg
i Vestur-Þýzkalandi og var afhent-
ur eftir revnsluför s. 1. laugardag.
r Ganghraði skipsins í reynsluför
xeyndist 16 mílur. Skipið er mjög
I iullkomið og búið öllum nýtízku
| tækjum. Guðmundur Jörúndsson
kc-mur sjálfur heim með skipinu.
Skipstjóri ex Þorsteinn Auðuns-
í son.
Þjóðleikhússtjóri og dr. Ró-
bert A. Ottóson ræddu við
íréttamenn í gær um Carmina
Burana, verk eftir þýzka tón-
smiðinn Carl Orff, sem frum-
flutt verður í Þjóðleikhúsinu
laugardagínn 23. þ. m. Annar
flutningur verður daginn eft-
ir, sunnudag, en verkið verður
aðeins flutt í tvö skipti.
«
Frumflutningur hefst kl. 8,
en flutningur á sunnudag kl. 3
Nafnið Carmina Burana þýð
ir Ijóð frá Bæjaralandi, en
orðtextinn í þetta verk er
tekinn úr handritum, sem
fundust í klaustrinu Bene
dictbeuren á 19. öld. Handrit
þessi, afar merkileg, eru frá
13. öld, en þá ortu lærðir
menn á latínu. Nokkuð af
handritunum var þó skráð á
fornfrönsku og fornþýzku, en
það er aðeins minni hlutinn.
Veraldlegt
Tónskáldið valdi orðtexta
úr þessum handritum, sem
eru mjög veraldlegs eðlis. —
Verður það sungið hér á frum
málinu, en það er gert hvar
vetna í heiminum, þar sem
Carmina Burana eru flutt, en
verkið hefur nú farið sigur-
för um Evrópu og Bandaríkin.
Sagði dr. Robert að gam-
an væri að fá textann þýdd-
ann til söngs, en kvaðst
hræddur um, að siðferðis-
vandlætarar myndu mót-
mæla, þvj víða er skarpt og
djarft kveðið um holdlegar
ástir og þessa heims gæði.
Ástin vex
Verkið hefst með söng um
örlagagyðjuna, drottning
heims, sem hefur allt ráð
mannanna í hendi sér, og end
ar á sams konar söngv-
um. Þess í milli er sung-
ið um vorið, víndrykkj-
una og ástina. Steiktur svan-
ur liggjandi á fati syngur
tenór í öðrum þætti og harm
ar þar legu sína undir gín-
andi tönnum þeirra, sem
ætla að éta hann, sem eitt
sinn synti á ánni.
í þættinum um ástina ger
ist það, að maður spyr hvað
verði, þar sem tvö eru í klefa
saman, og annar svarar, að
þá vaxi ástin og jafnt
fram úr miðju. Kór og hljóm
sveit undirstrika þetta með
stórmiklum tilþrifum.
Þá er fluttur lofsöngur til
Venusar, Ave Venus, en síð-
ast lætur örlagakórinn til sín
heyra.
Söngfólk úr Þjóðleikhúss-
kórnum og Fílharmóníu, um
70 manns, flytja þetta verk,
og Sinfóníuhljómsveitin leik
ur. Einsöngvarar eru Kristinn
Hallsson, Þorsteinn Hannes-
son og Þuríður Pálsdóttir og
dr. Róbert A. Ottóson stjórn
ar. Ýmis sjaldséð hljóðfæri
verða tekin fram, m.a. hrossa
brestur, en hann hefur enn
ekki verið fenginn.
Höfundurinn, Carl Orff, er
talinn mjög athyglisvert nú-
tímatónskáld. Þetta verk
hans er eitt hið markverðasta
frumstætt, hreinlegt og magn
þrungið.
Rekstur sendirátSa
(Framh. af 1. síiiu).
utanríkisþjónustuna innbyrð
is, svo sem áður er að vikið.
Hugmyndin er, að ríkin fimm
sameinist um eitt sendiráð
í hverju hinna Norðurland-
anna. Þessi hugmynd mun
oft hafa komið fram áður, en
aldrei náð fram að ganga.
Hitt atriðið varðar sam-
starf um utanríkisþjónustu í
hinum nýju ríkjum Afríku og
Asíu. Þar skuli sá háttur á
hafður, að ríkin sameinist um
eitt sendiráð í viðkomandi
ríki og skuli það Norðurlanda
ríkið, sem kostnaðinn ber af
sendiráðinu, jafnframt skipa
sendiherra þann, sem þar
gegnir störfum.
— Aðils.