Tíminn - 28.04.1960, Qupperneq 9
TÍMINN, thmatndaghm 28. aprfl lMfi.
9
þrammaði í hörkugaddi t-il
Bessasfcaða og rak hnefana
að nösum yfirvaldsins þar
1 mótmælaskyni við fyrir-
hugaðan hreppaflutning á
varnarlausum ómaga.
Hún var mikill sögusjór,
amman sú, og hlúði ræki-
lega að listamannsspírunni
í sál drengsins, sumt mælti
hún af munni fram, annað
hafði hún lesið eða heyrt.
Sumar þær myndir, sem
drengurinn sá þá, hanga nú
í víðum hallarsölum víðs
vegar um heim.
m.
Drengurinn byrjaði mjög
ungur að teikna. En for-
eldrarnir litu raunhæft á
málið: Þú átt að verða lög-
fræðingur, piltur minn. Þar
sem lögfræðin er, þar eru
peningarnir. — Þau sögðu
ekki: og prettirnir, því að
þetta var í gamla daga. Og
piltinum var snarað í læri
til Finnboga Rúts. Skyldi
sá voðamaður búa Jón und
ir menntaskóla. Þetta var á
þeim árum þegar Finnbogi
Rútur var til húsa á baklóð
Fálkans við Laugaveg, átti
þá í útistöðum við mennta-
skólann, las utanskóla og
haföi ofan í sig með
kennslu, var þrællesinn í
heimspeki Nietzche, hafði
um sig hirð í húsinu og
stundaði kukl á kvöldin,
var nokkurs konar Galdra-
Loftur þama í hverfinu.
Það varð þó ekkert úr
kennslunni, þvj að þegar
Rútur sá myndir Jóns og
heyr'ði framtíðardrauma
hans, var hann ekkert að
tvínóna við hlutina, skellti
bókunum og sagði stutt og
laggott: Málaðu þá, mál-
verkið, það er alþjóðamál;
lögfræðinga er hægt að
framleiða eftir þörfum eins
og brauðsnúða.
Þar við sat, en Jón var
tekinn í klíku Rúts í hús-
inu á baklóð Fálkans og býr
að því enn þann dag í dag.
Það voru minnisstæðir tím
ar, þeir Bjami Guðmunds-
son‘, Sveinn Benediktsson og
fleiri inni í húsinu við dul-
spekigrúsk og kukl, en yngri
bróðir Sveins, Bjarni Ben.,
þá smápatti, í myrkrinu fyr
ir utan, ólmur j kuklið þótt
ungur væri — og sótti fast
inngönguna.
Sagan segir að enn sé
reimt í þessu húsi.
IV-
Málaðu, það var orð i
tíma talað. En hálfkák var
Jóni fjarri skapi, hann var
búinn að fá tilsögn hjá
Mugg, en vildi meiri mennt
un, og þar sem hann snæld
aðist glaðbeittur og léttur
á fæti milli borða, ung-
þjónn í bíókjallaranum hjá
Rósenberg og eftir að
hann var kominn á lager
inn hjá Jóni Sigurðssjmi,
rafvirkjameistara, og far-
inn að handfjatla spottana
og rafmagnsklæmar, leit-
aði hugurinn tíðum til
Listaháskólans í Kaup-
mannahöfn, en þá vantaði
það sem lagt hefur marg-
an íslenzkan efnismanninn
að velli: peninga. Vafalaust
hafa piltinum þá þótt svart
ir þeir álar sem skildu að
þann hálfdanska kaupstað,
Reykjavík, O'g borgina við
sundið- Til ríkisvalds þeirra
tíma var þá sem nú tilgangs
laust fyrir listamannsspíru
að renna vonaraugum. í þá
daga var lífið saltfiskur og
púl; í dag er það enn þá
meiri fiskur, og miklú meira
.— líka verksmiðjur og ís-
skápar og vængjaðir bílar
með krómi — og sandur af
peningum, í fyrsta sinn í
íslendssögunni. En mörgum
ráðamönnum þjóðfélagsins,
sem mettaðir eru menning
ararfi kynslóðanna, blóði,
tárum, svita og fórnum þús
und ára, kemur ekki í hug
sú sjálfsagða kurteisi að sjá
um það, með ekki meiri
vinnu en handaupprétt-
ingu, að arfinum verði skil
að með sem minnstum af-
föllum, helzt með vöxtum,
til næstu kynslóðar. Alsæl-
ir dingla þeir hausnum og
depla augunum: Getum við
étið það?
Tími fávitans nálgast
risastórum skrefum.
En svo ég vindi mér aftur
á sporið, og taki hlutina al
varlega, þá varð rás viðburð
anna Jóni j hag, og á því er
enginn vafi að þar hefur
verið að verki sá alsjáandi
guð sem ku halda sig á svip
uðum slóðum og gerfitungl-
in. Amman Þuríður gaf
drengnum ómælt af viti og
lífsreynslu langrar ævi, en
það kom í hlut Jóns kaup-
manns frá Hjalla að leggja
tii þá veraldlegu hluti, sem
menntun varð keypt fyrir
Sá heiðursmaður, sem á-
nafnað hafði frænda sin-
um og nafna, Jóni Engil-
berts, nokkra skildinga eft
ir sinn dag, safnaðist til
feðra sinna um þessar
mundir, einmitt þegar
nafni hans þurfti á farar-
eyri að halda, og þannig
varð að tonni, pundið, sem
merkismaðurinn Jón frá
Hjalla hafði varðveitt svo
dyggilega mdð ævilöngu
vafstri í grænsápu, stein-
olíu og sveskjum.
V.
Leiðin lá til Kaupmanna
hafnar, þar sem frægir ís
lendingar renndu sér á
brjóstkassanum eftir gang
stéttunum og hestvagnar,
hlaðnir stríðsölinu Tuborg
og Carlsberg, þvældust fyr-
ir klingjandi sporvögnum,
mitt í hinni háturnuðu
menningu Danaveldis. Ekki
var síður forvitnilegt að
hlusta á söngvara hella
brennivínsrosta margra
nátta yfir angndofa kon-
sert-gesti — eða velja milli
brauðpakkanna j hvítu
vögnunum á Ráðhústorg-
inu, silfurpakkann, gull-
pakkann og lúxuspakkann
eða Tívolipakkann, þessa
snyrtilegu pakka, sem
segja meira um þjóðarsál
Danmerkur en margir lexi-
konar, og maula innihaldið
meðan heimsfréttimar
skunduðu frá austri til vest
urs hátt á húsi Politiken,
því húsi, sem Fredrik
nokkur Flugmann, þekkt-
ur maður í Danmörku,
byggði á sínum tíma. Tove
hét dóttir hans. Henni
kvæntist Jón Engilberts, og
hefur þessi danska kona
síðan verið tungl nátta
hans og sól langra daga. En
borgin við sundið hafði upp
á fleira að bjóða en kostu-
legt listamannalíf og við-
kynningu við tundurskeyti
í mannsmynd eins og Sig-
urjón Ólafsson og sam-
drykkju með hættulega
gáfuðum mönnum á borð
við Otto Geldsted, Svavar
Guðnason, Sverri Kristjáns
son, Hjört Halldórsson,
Árna Kristjánsson og fleiri
góða menn. Einn bezti
myndlistarskóli Norður-
landa var staðsettur í Kaup
mannahöfn, og þar stund-
aði Jón nám um árabil og
við þann orðstír, að honum
var að námi loknu veittur
Van Gogh styrkurinn, þótt
útlendingur væri. Um skeið
dvaldist hann við nám í
Listaháskólanum j Osló og
kann málarinn margar sög
ur af höfðingslund Krist-
manns Guðmundssonar og
hjálpsemi hans við íslenzka
listamenn í kröggum í Osló.
Jón kom heim um Pets-
amo 1940 og var þá orðinn
frægur málari á Norðurlönd
um. Hann hefur verið bú-
settur hér síðan.
VI.
Málarinn býr í eigin húsi
og sérkennilegu við Flóka-
götu í Reykjavík. Á efri
hæðinni er vinnustofan og
nær glugginn upp á þak
hússins, þaðan má sjá öll
djásn Vetrarbrautarinnar
þegar húma tekur og heið-
skírt er.
Þegar maður kemur inn
í þetta hús er því líkast að
hundrað bollastell séu að
brotna, en það er þá varg-
urinn Callas, uppáhalds-
söngkona málarans, að
syngja. Yfir teppið, fram
hjá fálátu Búddalíkneski á
stalli, svífur kona fislétt-
um skrefum og speglast í
glerjum frummynda eftir
Picasso og Sigurd Winge,
Tove, kona Jóns, og fagnar
gestum með þeirri hrífandi
alúð og þokka sem einkenn
(Framhald á 15. síðu).