Tíminn - 28.04.1960, Page 11

Tíminn - 28.04.1960, Page 11
Hmatménghta 2&- aprfl 19«). n ■ ■ -1 |"J'^1;"'"'....... X ff Dagur frímerkisins” Fyrir skömmu var frí- merkjasýning fyrir ung- linga hafin á vegum Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur, Tóm sfundaþátfar ríkisútvarps- ins og Félags ungra frí- merkjasafnara og nefndist hún „Dagur frímerkisins". Sýningunni er nú lokið, þátttakendur voru á milli 50 og 60 unglingar og fór afhending verðlauna fram s.l. sunnudag í félagsheim- ili Æ. R. Meðal verðlauna var blaða- hnífur er TÍMINN gaf og hann hlaut ungur piltur að nafni Kristinn H. Benediktsson fyrir mótívsafn sitt er nefndist „fs- land, land og þjóð“. Kristinn er Hafnfirðingur og á heima að Fögrukmn 12 þar í bæ. Jón Palsson stjórnandi tóm- Jón Pálsson segir frá starfsemi Æskulýísráís Reykjavíkur stundaþártarins og starfsmaður hjá Æ.R. átti erindi hingað á ritstjórnina í gær og notaði fréttamaður tækifærið og ræddi við hann um starfsemi Æ.R. á þessu ári. — Segðu mér Jón, er þessu sfarfsári lokið? — Nei, ekki er því nú alveg lokið enn, tómstundaflokkar eins og stangaveiðifl., ljós- myndafl. og söfnunarfl. .starfa eitthvað fram á sumarið, þeir eiga eftir að fara í sínar ferðir. Stangaveiðiflokkurinn fer í veiðitúra og er þeim þá kennd meðferð á útbúnaði og fleira þess háttar. Söfnunarflokkur- inn fer í söfnunarleiðangur, þá leita þeir m. a. að steinum, skeljum og jurtum, svo nokk- uð sé nefnt, nú og Ijósmynda- flokkurinn fer í ljósmyndunar- ferð eitthvað út í náttúruna. Revían „Ritt lauf 99 Leikhús Fleimdallar hefur opn- að á „Einu laufi“ í Sjálfstæðis-j húsinu við gífurleg fagnaðarlæti leikhúsgesta. Þetta er létt og gam ansöm revía og Steinunn Bjarna- dóttir og Karl Guðmundsson eiga mestan þátc í að gera hana hina ánægjulegustu. Höfundar revíunnar eru margir og efnið margbreytilegt. Haraldur Á. Sigurðsson á hér beztu þætt- ina, „Múmían“ og „Hafmeyjan". í fyrri þættinum er Karl Guð- mundsson óborganlegur sem Ses- ar í túlkun þjóðþekkts leikara. Helgi S. Jónsson á þarna tvo þætti, „Eldhúsumræðui" og „Harmsaga undrabarnsins". Þetta eru allgóðii þættir hjá Helga, einkum sá fyrri, þar sem brugðið er upp mynd af eldhúsi Breta- drottningar, en þar eru landhelg- ismál íslendinga einkum á dag- skrá. Skop fslendinga um Breta- drottningu hefur oft verið heimskulegt og smekklaust, en hér er gamansemin í öndvegi. — Svavar Gests hefur samið „Hvað heitir lagið“, en svo undarlega iiregður við að þessi revíuþáttur er ekki eins fyndinn og útvarps- þættirnir og er það óvenjulegt að fiummyndin sé skoplegri en háð- stælingin. Þrjú skáld yrkja ljóð í þessa revíu. Ómar Ragnarsson, Jón Sig- urðsson og J. O., og Eyþór Þor- láksson hefur samið lögin. Leikstjórinn Gunnar H. Eyjólfs- son hefur einnig lagt hönd á plóg- inn við samningu verksins. „Laufasexið“ heldur uppi söng og dansi í revíunni af miklu fjöri. Kemur það fram í „Söngferða- lagi“, Manninum á þriðju hæð“ og Spæinskum nóttum". Eyþór Þorláksson ieikur þar á gítar af mikilli snilld. Með söng og dansi skemmta Anna María Jóhanns- dóttir, Sigrún Ragnarsdóttir og Sigurbjörg Sveinsdóttir. Þetta eru fallegar stúlkur og höfuðprýði revíunnar. Auk þeiira koma fram Reynir Jónasson, Sigurdór Sigur- dórsson og Tryggvi Karlsson. Beztu leikarar revíunnar aúk Karls og Steinunnar eru þau Har- (Framhald á 15 síðu) 300 unglingar f frímerkjaklúbbnum — Sýningin „Dagur frímerk- isins“ tókst vel hjá ykkur? — Já, um 50 til 60 ungmennd víðs vegar af landinu sendu söfn á sýninguna. í vetur voru starfandi um 300 ungmenni í frímerkjaklúbbum Æskulýðs- ráðs. — Hvernig var sýnmgunni hagað? — Henni var skipt í þrjá flokka, fyrsti flokkurinn var stærstur en það var mótívsöfn- un, þá voru íslenzk söfn í öðr- um flokid og í þriðja flokki voru erlend söfn. Þetta var góð sýning og óhætt að segja að vöndun og einlægni við söfnun sé mikil meðal þátttak- endanna. 3000 unglingar á vegum Æ.R. — Svo við snúum okkur aft- ur að starfsemi Æskulýðsráðs, hve margir unglingar voru starfandi hjá ykkur í vetur við tómstundaiðju? — Það, er óhætt að segja að um 1400 unglingar hafi verið í beinni tómstundaiðju, en alls um 3000 hafi verið á vegum Æ.R. í tómstundaiðju eða verk legum greinum. Starfsemin fer að mestu fram í félagsheimil inu að Lindargötu 50, svo og út um allan bæ í félagsheim- ilum íþróttafélaganna og í skól um bæjarins. — Hvenær byrjar starfsemin á haustm? — Húr, byrjar vanalega um miðjan október, þegar skólar eru komnir í gang og er fram í miðjan apríl, en með þeim undantekningum sem ég gatum áðan. — Hvetnig gengur piltunum á s’jóvinr.unámskeiðinu? — Þe r eru nú að æfa af kappi kappróður á vegum Sjó- mannadagsráðs og líklega keppa þeir á Sjómannadaginn við jafnaidra sína. Danir eru framarlega í æskulýðsmálum Þú hefur kynnt þér tóm- stundavinnu erlendis? — Já, ég fór m.a. til Kaup- mannahafnar árið 1957 á veg- um Æ.ft. og tilefn iferðarinnar ! var að skoða alþjóðlega sýn- ingu á lómstundavinnu. Ég tel Dani hiklaust einna lengst komna t þessum málum. T.d. get ég sagt þér frá tómstunda- heimili, sem danska Iögreglan hefur í gamla borgarhluta K- hafnar, „PUK“ er starfsemin nefnd í daglegu tali eða Polit- iets Ungdomsklubber. Það var danskur lögregluþjónn, Svend Gredsted, sem kom þessu á stað 1952. Hann starfar nú á vegum Sameinuðu þjóðanna, ferðast m.a. um og flytur er- indi. Hefur þessi starfsemi bor- ið mjög góðan árangur í þessu hverfi og segja má að þetta sé fyrsta tilraunin sem ber ár- angur á meðal unglinganna þar. Hjá PUK finna ungling- arnir viðfangsefni við sitt hæfi, þarna eru alls kyns vinnustof- ur fyrir tómstundastörf, les- liringar, kvikmynda- og músík klúbbar svo nokkuð sé nefnt. f heimilum PUK er einn þriðji hluti unglinganna vandræða- börn, í eins konar „betrunar- húsum“ i orðsins fyllstu merk- ingu og verða þau að mæta þar á degi hverjum. Þau geta valið á milli vandræðaheimila og PUK. Meginstyrkur heimil- anna er æskufólk sem starfar þar af frjálsum vilja og eins og ég segi, þá hefur þetta reynzt vel meðal lögreglunnar, bæjarbúa og ungiinganna sjálfra. Nú er Jóni ekki lengur til setunnar boðið, hann þarf að mæta niður í útvarpi eftir skamma stund, tómstundaþátt- urinn kallar. Fréttamaður þakkaði Jóni kærlega fyrir innlitið og ánægjulegt viðtal. jhm. Daprir milljóna- mæringar Flugvélinni frá London hafði .seinikað, svo að ég sat við morgunverðarborðið og blaðaði í myndablaði. Ég rak augun í grein, sem bar fyrirsögnina: „Ríkustu menn heimsins". Olíukóng- urinn Paul Getty var þar efstur, en þetta var sam- safn einhverra aumkunar- verðustu manna, sem ég hef nokkurn tíma séð. Ennin voru hrukkótt, augun flökt andi. Maður gat haldið að sérhver þeirra hefði orðið fyrir stórslysi. Ef maður lítur svona út við að verða milljónamær- ingur, þá þakka ég guði fyr ir fátækt mína. En til allrar hamingju, þá sá ég brosleitan mann neðst á síðunni. Það var hinn skeggjaði Nubar Gub- enkian, sonur hins sáiluga mr. 5 pct. Það var líkt og enn héngju kampavínsperlur í hinu gráa .skeggi hans. Hér var greinilega maður, sem naut lífsins í ríkum mæli. Hinn glaðlegi Gulbenkian gaf mér þá trú á ný, að það væri kannske ekki svo slæmt eftir aillt saman að vera mlljónamæringur. Gild afsökun í Vancouver í B. C. var James Roebrtson ákærður fyrir að yfirgefa slysstað, en var sýknaður, þegar hann afsakaði sig með því, „að hann hefði verið hræddur um að kona sín myndi kom ast að því að hann hefði verið úti með öðrum kven- manni“. Skakkir turnar Brezka ríkisstjórnin hef- ur viðurkennt að tveir turn ar á þinghúsinu séu skakkir. Hinn 109 metra hái turn með hinni frægu Big Ben klufcku hallast um 37 cm. Klukkan vegur 13 tonn. Victoriaturninn, sem er 112 metrar á hæð og er á hinum enda Westminster Palace hallast einnig um 38 cm. John Hope atvinnumála- ráðherra hefur hins vegar ekki miiar áhyggjur. Hann hefur látið svo um mælt: Báðir turnarnir eru undir nákvæmu eftirliti, sagði lord John, og þeir munu ekki hrynja fyrr en löngu eftir að menn hafa komizt bæði til Marz og Venusar. Ástæðan fyrir því að turn- arnir eru skakkir, er senni- lega sú, að þýzk sprengja sprakk við bygginguna * seinni heimsstyrjöldinni. Westminster Palace var byggt árið 1867. Nýr fa’Öir Börn ræðast við í Holly- wood: — Hvernig lízt þér á nýja pabbann þinn? Ég þekki hann. Hann var pabbi minn í fyrra. Uppskurður Skurðlæknar á sjúkrahús- inu í Pretoria fjarlægðu fyr ir nokkrum dögum sex tommu langan vasa'hníf úr heila manns, sem ekki vissi einu sinni að hann var með hann. Maðurinn, sem hét G. J. A'osæ. k.om inn í sjúkrahús- ið og sagði að hann hefði miklar kvalir í höfðinu. Við rannsóknir fundu læknarnir lítið ör yfir vinstra auga hans. Við enn nánari rannsóknir komust læknarnir að því, að sex tommu langur hnífur með opið blað hafði farið inn í heilann í átt að hægra eyra. Læknarnir opnuðu sárið og tóku hnífinn út. Hnífur- inn hafði farið í gegnum svonefnt „dauft svæði“ í heilanum en ekki skaddað hann til muna. Koize getur ekki skýrt frá því, hvernig hnífurinn hefur komizt inn í höfuð hans. Sekts'Öur fyrir Chopinleik Réttur í Stokkhólmi kvað nýlega upp dóm, sem sýnir að fclassísk hljómlist lætur ekki alltaf vel í eyrum fólks. Píanóleikarinn Curt Roman hefur verið dæmdur í sekt ir fyrir að hafa valdið ná- granna sínum tjóni með píanóleik sínum. Nágrann- inn er 80 ára gamall skóla- kennari. Það var sérstaklega Chopin, sem sænski píanó- leikarinn lét þetta ganga út yfir og meðan hann lék og lék varð sálarástand ná- grannans verra og verra, seg ir í forsendum dómsins. Leikur píanóleikarans var svo ofsafenginn, að hann hlaut að hafa skaðleg áhrif á heilsu fólks með venju- legt heyrnarskyn, segir einn ig í forsendum dómsins. Rétturinn var á því máli, að píanóleikari verði að spila til að halda sér í æf- ingu, en rétturinn getur ekki fallizl á slíkt, ef það leiðir til líkamlegs og sálarlegs tjóns annarra

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.