Tíminn - 04.05.1960, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, miðvikudaginn 4. maí 1960.
Þrjár af Smábókum IVðenn
ingarsjóðs komnar út
Bókaútgáfa MenningarsjóSs
hefur nú sent frá sér fyrstu
bækurnar í flokki smábóka,
sem afráðið var um útgáfu á
á s. 1. ári. Er í ráði að út komi
8'—4 bækur á ári, vor og
haust, og hefur bókaflokkur-!
inn hlotið nafnið Smábækur
Menningarsjóðs. Ritstjóri er
Hannes Pétursson, skáld.
í flokki þessum verða ýms
smærri rit, bókmenntalegs eðlis,
mnlend og erlend, gömul og ný.
Þar mun jöfnum höndum birtast
skáldskapur, bundinn og óbund-
inn, ritgeTðir bréf og heimspeki-
rit. Hverju riti verður fylgt úr
hiaði með nokkurri greinargei'ð
um höfundinn eða höfundana, þeg-
ar þurfa þykir.
Samdrykkjan
Ein bóka þessara er Samdrykkj-
an eftir Piatón í þýðingu Stein-
gríms Thorsteinssonar, skálds. Dr.
Jón Gíslason sá um útgáfuna, og
ritar hann ýtarlegan og merkan
inngang og gerir þar grein fyrir
hinu menningarlega baksviði rits-
ins. Er þetta eitt frægasta rit
grískra fornbókmennta og fjallar
'im ástina, en aðalpersónan er
sjálfur Sókrates,
Trumban og Lútan
Ljóðaþýðingar eftir Halldóru B.
Björnsson. Þar er að finna þýðing-
ar á kínverskum ljóðum, og kveð-
skap eskimóa og svertingja í
Afríku. Þessi bók vei'tir innsýn í
lmgarheim framandi þjóða og er
mekill fengur að henni fyrir alla
ijóðaunnenóur.
Skiptar skoðanir
Þriðja bokin í þessum flokki er
Skiptar skoðanir, ritdeila Sigurð-
ar Nordals og Einars H. Kvaran,
sem fram for í tímaritunum Skírni,
Iðunni og Vöku árin 1925—27.
Deila þessi upphófst með gagnrýni
Nordals á lífsskoðun Kvarans eins
og hún kemur fram í s'káldverkum
hans. Er þetta í fyrsta skipti, sem
bók af slíku tagi er gefin út hér.
Væntanlegar bækur
Tvær bækur eru væntanlegar í
liaust, önnur þeirra úrvai úr bréf-
um Konráðs Gíslasonar. Þá er
væntanlegt smásagnasafn eftir
Tsékov, löng smásaga eftir Franz
Kafka, Dauðinn í Feneyjum eftir
'I'homas Mann og æfintýrið Litli
prinsin eftir franska skáldið Anto-
jne de Saint-Exupéry.
Bækur þessar eru snotrar að frá-
gangi, upplag lítið, eri verði í hóf
stillt.
Sólarhringur
Þá er komin á markað skáldsag
an Sólarhringur eftir Stefán Júlí-
usson, en hún var lesin af höfundi
sem útvarpssaga í vetur. Engin
þessara bóka er send félagsmönn-
um,
Andvari
Andvari, tímarit Bókaútgáfu
Menningarsjóðs og Hins íslenzka
þjóðvinafélags er og komin út í
nýju broti. Ritstjórar eru Helgi
Sæmundsson og Þorkell Jóhannes-
son. Þrjú hefti af Andvara munu
koma út á ári hverju framvegis.
Félagsmenn í Rvík geta vitjað
hans í afgreiðsluna að Hverfis-
götu 21.
„Ást og stjérnmál”
frumsýnt á föstudag
Á föstudaginn verður frum-
rýndur í Þjóðleikhúsinu gam-
anleikur sem nefnist „Ást og
stjórnmár og er hann eftir
brezka leikritaskáldið Terence
Rattigan. Þýðinguna gerði Sig-
nrður Grímsson, en leikstjóri
er Benedikt Árnason Leikur-
inn gerist i síðustu heimsstyrj-
öld í Englandi.
Eftir Terence Rattigan
Með aðalhlutverk leiksins fara
þau Rúrik Haraldsson, Inga Þórð-
ardóttir og Jóhann Pálsson. Aðrir
leikendur eru þau Herdts Þorvalds
dóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir,
Anna Guðmundsdóttir og Bryndís
Pétursdóttir.
Lárus Ingólfsson málaði leik-
tjöildin.
Rattigan
Terence Rattigan er fædduk
árið 1911, og er eitt frægasta
leikritaskáld vorra daga. Fyrstu
leikrit hans voru eingöngu gaman-
leikrit. Fyrsta leikrjt hans var
„Frönskunám og freisting“, sem
hann skrifaði árið 1936. Það gekk
þúsund sinnum í West Erid. „Ást
og stjórnmál“ skrifaði hann árið
1944 og „Meðan sólin skín“ árið
1943.
Fimmta vsrkið
Seinna sneri hann sér að alvar-
legri viðfangsefnum. Árið 1946
skrifaði hann „Winslowdrenginn"
og „Browning'þýðinguna" árið
1948 og „Seperate Tables“ árið
1954. Þetta er fimmta verk Ratti-
gans, sem sýnt er eftir hann hér
á landi.
Þetta er síðasta leikritið, sem
.sýnt verður í Þjóðleikhúsinu á
þessu leikári.
„Tengdasonur óskast“ verður
sýndur úti á landi í næsta mán-
uði, en óperan „Selda brúðurin"
verður frumsýnd 4. júní, n.k.
Frá nemenda-
sambandi
Kvennaskólans
Aðalfundur Nemendasambands
Kvennaskólans í Reykjavík var
haldinn 88. marz s.l. í Tjarnar-
kaffi. Fundurinn var mjög vel
sóttur. í stjórn voru kjörnar: Frú
Ásta Björnsdóttir form. Frú Reg-
ína Birkis varaform. Fr. Guðrún
Þorvaldsd. gjaldkeri. Frú Margrét
Sveinsdóttir ritari. Fr. Sigríður
Rögnvaidsd. meðstj. Ákveðið var,
að Nemendasambandið tæki upp
þann sið að halda hóf ár hvert
fyrir þær stúlkur, sem útskrifast
hverju sinni. Verður fyrsta hófið
haldið í Lídó miðvikud, 25. maí
n.k. Gefst þá hinum ýmsu árgöng-
um ákjósanlegt tækifæri til að
hittast og minhast skólans.
Hádegisklúbb-
urinn
Hádegisklúbburinn kemur
saman kl, 12 á hádegi, mið-
vikudag -á morgun). Venjuleg-
um stað.
^Framsóknar-
menn í Suður-
landskjördæmi
Framsóknarménn í Suður-
landskjöræmi halda kjör-
dæmaþing að Selfossi n. k.
laugardag og hefst það kl, 2
e h. FuMrrúar eru beðnlr að
mæta stundvíslega.
— V —
Rúrik Haraldsson og Inga ÞórSardóttir í hlutverkom sínum.
Vinsælasti gamanleikur, sem leikinn hefur verið á íslandi, DELERIUM
BUBONIS, verður sýndur 94. sinn í Iðnó á miðvikudagskvöldlð kl. 8. —
Myndin sýnir Siggu vlnnukonu og Gunnar Hámundarson leigubílstjóra
(Nínu Svelnsdóttur og Árna Tryggvaspn).
Fjórir flokkar
i sumarbúðum
Eins og undanfarin ár mun
verða efnt til sumarbúða fyrir
börn að Löngumýri í Skaga-
íirði. Hófst þessi starfsemi á
vegum þjóðkirkjunnar sum-
arið 1954 og þótti þá strax
gefa góða raun, svo að starf-
inu hefur verið haldið áfram.
Að þe&su sinni munu verða fjór-
ir flokkar í Sumarbúðunum, tveir
fyrir drengi og tveir fyrir telpur.
Sá fyrsti hefst 28. júní og er fyrir
drengi, stendur hann til 11. júlí,
næsti drengjaflökkur hefst svo 13.
júlí og stendur tii 26. júlí. Fyrri
telpnaflokkurinn hefst 29. júlí og
er til 11, ágúst, en síðari telpna-
flokkurinn hefst 13. ágúst og sum-
'arbúðunum lýkur þá 26. ágúst.
Ýmis sýslan
Sumarbúðastjóri verður að
iþessu sinni séra Lárus Halldórs-
son, en með honum til aðstoðar
verður svo annað starfsfólk. Hver
dagur hefst með fánahyllingu og
morgunbæn, en að öðru leyti er
deginum varið tii þess að fara í
leiki og synda, sýsl-a við alls konar
föndur, syngja undir bandleiðslu
fcennara, kynnast jurtum og trjám,
og verður m. a. eitthvað gróður-
sett af trjápiöntum. Þá verður
einnig farið í ferðalög um Skaga-
fjörð, komið að Hólum í Hjaltadal
og viðar.
Góð aSsókn
Aðsókn að Sumarbúðunum hef-
ur verið mjög góð undan farin
ár, og er foreldrum því ráðlagt að
tilkynna þátttöku barna sinna sem
fyrst, en þátttökutilkynningum er
veitt móttaka í Biskupsskrifstof-
unni, sími 15-0-15, í Æskulýðsráði
Reykjavíkur, síma 15937 og hjá
öllum sóknarprestum úti á landi.
Aðalfundur Framsókn-
arfélags Borgarfjarðar
Aðalfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðar verður hald-
inn í Félagshejmili Skilmannahrepps sunnudaginn 8. maí n. k,
og hefst kl. 3.
DAGSKRÁ:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Verðlagsmál landbúnaðarins. Framsögumaður Sverr-
ir Gíslason, form. Stéttarsambands bænda.
4. Stjórnmálaviðhorfið. Framsögumaður Halldór Ás-
grímsson alþm.
v,5. Ýmis mál.
Framsóknarmenn í Borgarfirði og á Akranesi eru hvattir
til að fjölmenna á fundinn.