Tíminn - 29.07.1960, Qupperneq 2

Tíminn - 29.07.1960, Qupperneq 2
ra TÍMINN, föstudagini> 29..júlí* Fundur norrænna yfirkennara 5. fundur norrænna yrkis- kennara frá iðnskólum verzl unarskólum, húsmæðraskól- um o.fl., var haldinn í Reykja vík dagana 11.—16. júlí. — Fundarefni var iðnnám og sveinspróf málara. Mættir voru 4 fulitrúar frá Sviþjóð, 3 frá Finnlandi, 3 frá Noregi og 12 frá íslandi. Oanir höfðu boðið þátttöku 6 fulltrúa, en rétt áöur en fundurinn átti að hefjast til kynntu þeir, að þeir sæu sér ekki fært að senda neinn. — Gestur fundarins var Helgi Hermann- Eiríksson, fyrrum skólastjóri Iðnskólans. Fundurinn var settur mánu daginn 11. júlí í nemenda- sal Iðnskólans í Heykjavík af Þór Sandholt, skólastjóra, sem ásamt sérstakri undir- búningsnefnd hafði undirbú- ið fundinn. Þess má geta, að á s.l. hausti var haldinn fund ur í Reykjavík með fulltrú- um frá Norðurlöndunum, og á þeim fundi var efni kenn- arafundarins ákveðið og fyrir komulag í aðalatriðum. Viðstaddir setningar- athöfnina voru nokkrir gest ir, þ.á.m. borgarstjóri, frú Auður Auðuns. Að því loknu voru fundar- stjórar og ritarar kosnir. Umræðufundir um dag- skrárefni voru alla daga vik- unnar kl. 9.00 f.h. og kl. 2.00 e.h., nema fimmtudag, en þá bauð Reykjavíkurbær fundar gestum í ferðalag austur að Hveragerði, Gullfossi og Þing völlum, og var Jónas B. Jóns son, fræöslustjóri fararstjóri. Tveir fyrirlestrar voru fluttir á fundinum: ,,Dekora tiv opplæri'ng í malerfaget", sem Lie Davidsen yfirkennari flutti og ,,Udvendig malings bestandighed m.m.“ sem Guð mundur Guðmundsson verk- fræðingur hjá málningarverk smiðjunni Hörpu hér í bæ, flutti. í umræðunum kom greini- lega fram, að of lítil tengsl eru milli kennara í sérgrein um hinna ýmsu atvinnu- greina, bæði innan hvers lands fyrir sig og milli land- anna. Mikill áhugi var fyrir samræmingu á kennsluaðferð um, námsefni og jafnvel framkvæmd á sveinsprófum. Reyndist fundur þessi heppi legur vettvangur til að koma hinum mismunandi sjónar- miðum á framfæri, eins og jafnan hefur verið á slí'/um fámennum kennarafundum. Fundarmönnum gafst kost ur á að skoða málningaverk smiðjumar Málning h.f. og Harpa h.f., auk þess, að þeim var sýnd málningavinna á ýmsum stöðum í bænum. Landsamband iðnaðar- manna og Iðnaöarmannafé- lagið í Reykjavik höfðu boð inni fyrir fundargesti mið- vikudagskvöldið og stýrði þvi Björgvin Frederiksen, forseti > andssamb. ásamt Gísla Ólaíssyni bakarameistara, rit ara Iðnaðarmannafélgsins. Sömuleiðis efndu Málara- meistarafélagið í ReykjaVik og Sveinafélag málara til veizlu föstudagskvöld undir stjórn Jóns Ágústssonar mál- arameistara. Sama dag var Hitaveita Reykjavíkur skoð- uö í boöi hitaveitustjóra. Á lokahófi, laugardagii'in 16. júlí voru fundarmenn gestir iðnaðarmálaráðuneytis ins og voru Páll Pálmason, ráðuneytisstjóri og Brynjólf- ur Ingólfsson stjórnarráðs fulltrúi, fulltrúar ráðuneytis ins við það tækifæri. Hinir erlendu gestir létu i ljós óblandna ánægju yfir dvölinni hér, bæði hvað snerti beinan árangur af viðræðum fundanna og kynni af landi og þjóð, en enginn þeirra hafði komið hér áður. Forsaga þessara kennara- móta er i sem skemmstu máli sú, að frá því árið 1924 hafa verið haldin svoköiiuð yrkis skólaþing til skiptis á Norður löndunum með 5 ára milli- bili. — Tilgangur þessara þinga er, og hefur frá upp- hafi verið sá, að gefa fólki sem starfar við hina ýmsu skóla atvinnulifsins tækifæri til að ræða sameiginleg á- hugamál, læra hvert af öðru og auðvelda framkvæmdir og samvinnu á sviði yrkisskól- anna. Vegna þess mikia fjöida sem starfar orðið að þessum málum á Norðurlöndum hafa þingin orðið æ fjölmennari, og með þvi að þörfin fyrir nána samvinnu og samstarf hefur frekar aukizt en minnk að, var eftir tillögu direktors Arvas á þinginu í Kaup- mannahöfn 1954 samþykkt, að haida á árunum milli þinga, fámennari kennara- mót eða fundi, þar sem 5—6 kennurum í einni og sömu sérgrein frá hverju Norður- landanna gæfist kostur á að hittast og ræða sín sérstöku vandamál. — Hinn fyrsti slikra kennarafunda var hald inn i Finnlandi 1955, og var efni hans húsgagnasmiði. — Næst var fundur kennara i múraraiðnum í Reykjavík 1956, síðan í Sviþjóð 1957, en þar var raunar um tvo fundi að ræða. Var annar fyrir málmiðnaðarmenn, aðallega vélvirkja og hinn fyiúr kjóla saumakonur. — 1958 var fund ur fyrir rafmagnsvirkjakenn ara i Stenkjer í Noregi. — 1959 var svo haldið allsherjar skólaþing í Osló, þar sem þátt takendur skiptu hundruðum. Næsti kennarafundur á, samkvæmt regiunum að verða í Svíþjóð sumarið 1961, sá þar næsti i Danmörku 1962 og í Finnlandi 1963, en alls- herjarskólamót þar 1964, 25 árum eftir seinasta þing þar. Ástæöan fyrir því að aðeins 20 ár líða, samkvæmt áætl- uninni, milli þinga á íslandi, er sú að fyrsta þingið, sem halda átti hér 1944 féll niður Ðönsk ögrun Rúsar hafa nýlega kvartað yfir þvi, að flugvélar ýmissa þjóða hafi leikið þann leik nú hvað eftir annað að renna sér lágt yfir rússnesk skip á höfununi, m.a. hafa þeir sakað Dani um ögranir á áreitni í garð rússneskra skipa á Eyrarsundi. Danir hafa svarað því til, að ef um slíkt hefði v&rið að ræða, væru hér sennilega á ferðinni litlar einkaflugvélar, sem tilið gætu gert af sér og hefðu ekkert illt í hyggju. Þessi mynd birtist nýleg^í Khafn- arblaðinu POLITIKEN teiknuð af Mogens Juhl með eftirfarandi texta: Sjáið þið félagar, enn önnur svívirðileg ögrun gegn hinni friðelskandi Sovétþjóð. Skipið á að vera kjarnorkufleyið LENIN. Gefiai saman aö nýju eftir 14 ára skiinað Fimmtíu og sex ára gamall1 bifreiðakennari í Englandi ætl ar nú að Uvænast á nýjan leik konu, sem hann skildi við fyrir 14 árum. Herramaður þessi heitir Frederick Gilbert og sú gamla og nýja drauma- prinsessa hans Dorothy Það var á stríösárunum að Gilbert neyddist til þess að vera langdvölum að heiman og kom þá slík ólukka upp í hjúskapnum að þau hjón slitu samvistum. Son áttu þau er Brian heitir, og nú er sá kvæntur og á tvö börn. Það voru eiginlega rollingar Brjáns, sem áttu mestan þátt í því, að þau gömlu tóku saman aftur eftir svo langan aðskilnað. Ungu hjónin þurftu nefnilega við og við að bregöa sér út á kvöldin að skemmta sér og fengu þá karl og kerlingu til að sitja yfir börnunum. Þótti þeim sú i”ðj a, óskap- lega skemmtiieg, svo að þau urðu ástfangin á nýjan leik. Reyndar heldur tengdadóttir þeirra því fram, að þau hafi allan tímann síðan þau skildu, verið ástfangin hvort af öðru, en bara ekki gert sér það ljóst. Styður það henn | ar mál, að eitthvað hafði Dorothy verið farin að kjá utan í Gilbert karlinn aftur, 'áður en barnapössunin hófst, en hann lét engan bilbug á sér finna fyrr en hann sá, hvað henni fór vel ömmu- hlutverkið. Er nú allt í lukunnar vel standi í fjölskyldu þessari og mikið. tilstand og tilhlakk hj á þeim gömlu. Þó kveðst herra Gilbert ekki treysta sér í aðra brúðkaupsferð, og verður end urminningin um þá gömlu að duga í því efni. Stjórnar- og fultrúaráðsfundnr Framsóknarfélags Mýrasýslu verður haldinn aS Hóte! Bifröst sunnudaginn 7 ágúst n.k. bg hefst kl. 6 e.m. HéraSshátíS sömu félaga hefst á sama stað og degi kl. 8,30 e.m. SkemmtiatriSi. Ávörp. Einsöngur og tvísöngur: Kristinn Hallsson og GuSmundur Guðjónsson GóS hljómsveit. Nánar auglýst síSar. FRAMSÓKNARFÉLÖGIN Héraðshátíð Framsóknarfélaga Vestur-Skaftafellssýslu verSur haldiS aS Kirkjubæjarklaustri laugardaginn 6. ágúst n.k, Hefst kl. 9 e.m. Fjölbreytt skemmtiatriSi. — GóS hljómsveit. Nánar auglýst siðar. FRAMSÓKNARFÉLÖGIN !

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.