Tíminn - 29.07.1960, Blaðsíða 7

Tíminn - 29.07.1960, Blaðsíða 7
TÍMINN, föstudaginn 29. júlí 1960. 7 VETTVANGUR ÆSKUNNAR RITSTJÓRI: DAGUR ÞORLEIFSSON ÚTGEFANDi: SAMBAND UNGRA • FRAMSOKN ARMAN NA Smíðaði rafstöðina sjálfur Bæjarlækurinn hefur um aldir gegnt margháttuðu hlutverki í lífi bóndans og sve'itafólksins, enda oft reynt að reisa bæi ekki fjarri lækjum og giljum. Þar voru skoluð plögg, þar var skepn um brynnt og þangað var sótt allt það vatn, sem heimilið þarfn aðist. En þó að bæjarlækurinn hafi um aldir verið þýðingarmikill lið- ur í sveitabúskap, hefur margt breytzt, — lækurinn er ekki eins þýðingarmikill og áffur, því að ný tækni hefur víða breytt þörfum manna og viðhorfum. Þó er bæjar- lækurinn víða í fullu gildi, og hef ur bætt á sig fjölmörgum hlut- verkum, ekki veigaminni en að sjá heimilinu fyrir vafcni, núna hit- ar hann víða heilu húsin, sér fyrir rafmagni til allra hluta og um leið léttir’ hann fólkinu störfin. Heimagerð rafmagnsstöð. Á bænum Heggsstöðum býr ung ur maður, Guðmundur Albertsson, sonur bóndans þar, Alberts Guð mundssonar, er þar hefur um all langt skeið búið búi sínu í Hnappa dal, sem er sérkennilegur og fræg ur fyrir náttúrufegurð og fjöl- breytni í landslagi. Guðmundur á Heggisstöðum er einn þeirra, sem komið hefur beizlinu á bæjarlæk- inn — og sem er fágæfcara, hann hefur' algerlega einn unnið að þessari virkjun, reiknað fallhæð, smíðað túrbínu, og yfirleitt gert alla skapaða hluti, sem til þarf — og múna eru Heggssfcaðir raflýstur bær fyrir tilstilli bóndasonarins. Fx'éttamaður frá SUF notaði tæki- færið til þess að forvitnast um þessa heimagerðu virkjun, þegar hann átti leið um Hnappadal nú fyrir skömmu. Þetta er tilrami. — Það tekur nú ek-ki að vera að taka mynd af kofanum, segir Guðmundur, þegar við hófum myndavélina á loft. Þetta er bai'a tilraun og fi'kt. Þetta er önnur virkjunin, sem ég geri. Fyrsta túrbínuhjólið, sem smíðaði ég eftir að hafa reiknað falihæðina. Rafallinn er úr gam- alli vindrafstöð, 32 volt, og rnn það bil 500 vött. Þeir' snúast hægt þessir vindrafstöðvamótorar, en eru góðir. Annars er ókostur að vera með 32 volta spennu, því að erfitt er að fá útvarpstæki fyrir 'hana. Hins vegai' fást nægar Ijósa- perur, því að margir bátar nota 32 volt. Guðmundur Albertsson á HeggsstöS- um. Hann smiðaði sér rafstöð sjálfur. ég smíðaði, var alltof .stórt, þetta Rörin í virkjunina sótti ég í ónýta vatnsveitu niðri á Akranesi, gróf þau upp sjálfur og flutti hing að í dalinn. Annars er lækurinn of lítill, svo að ég er byrjaður að viða að mér í nýja virkjun, stærri. Nýja stöðin. Við höfum eins og ég sagði not- að rafmagnið frá þessari til ljósa. Bærinn er raflýstur, svo og fjósið, hlaðan og fjárhúsin, en hins vegar getum við ekki notað það til fleiri ;; Rafstöðin er i þessum kofa. Sést móta fyrir vstnsleiðslurörunum upp brekk- una. Nýja rafsföðin verður annars staðar. Þó mannvirkið láti ekki niikið yfir sér, hefur það þó framieitf nægilegt rafmagn til Ijósa úti og inni á Heggsstöðum. starfa, segir Guðmundur. Þess veg-na hef ég undirbúið stærri virkjun þarna -niðurfrá, í lækn-um þar. Ég er þegar farinn að viða að mér ý-msum hlutum. Keypti jarðkapal af manni úr Reykjavík, túibínu af manni úr sveitinni hér fyrir sunnan, rafal keypti ég svo af kunnin-gja mínum og rörin gróf ég upp á sama stað. Leiðslan úr stíflunni verður 130 metra lön-g og fallhæðin 18 metrar. Ég geri ráð fyrir', að þarna fái ég 6—7 j kílóvött og er það nægilegt til að hita -upp bæinn og til allra hei-m- ilisþarfa, segir Guðmundur. Stíflan er ódýrust, heldur hann áfra-m. Ég bý hana nú úr torfi, svo að hún 'kostar mig ekkert, segir' hann að loku-m, þegar við spurðum um kostnaðarhliðina. Hæfileikar. Barátta fyrir nútímaþægindum' -cr oft falin í kröfum -um rafmagn, því að rafmagnið er frumskilyi'ði j þæginda. Venjulegast f á menn raf-1 magn frá rí-kisveitum eða einkaraf- veitum. Guðmundur á Heggsstöð- u-m er ei-nn þeirra íslenzku sveita manna, sem -hafa lagt á sig vökur til að raflýsa bæinn sinn og um leið einn þeirra, er hafa með þrautseigju komið máiinu í fram- k,væmd af ei-gin ram-mlei-k. Raí- v-eita þessi er mjög merkileg. Ekki kannske sérstaklega fyrir það, að hún veitir fólkinu á bænum auk- in þægindi, heldur fremur vegna þess, að ósk-ólagenginn maður í sveit leysir í frístundum sínum flókin sérfræðiatriði, og hri-ndir van-dasamri hu-gmynd í fram- kvæmd. Vera má, að ein-hver, sem þess- ar lín-ur les, fari að dæmi Guð mundar á Heggsstöðum og reyni að virkja bæjarlækinn sinn fyrir heimilið. —jg. Rannsókriir og heyskapur Fréttamaður SUF hitti ,að máli þá feðga Stefán Sigurðsson, bónda í Akurholti og Hinrik Stefánsson, son lians. Bændur eru eins og allir vita meira og minna háðir veðurfarinu. Þurrkuri-nn er mikil bless-un í sveit unum, hins vegar má ekki vera alltaf þurrkur, því að þá sprettur gra-sið ekki. Fyrir1 borgarbúa er sólskin fyrst og fremst þægilegt, gefur hraustlegt útlit, en engin áhrif hefur það á efnahaginn, nema fyrir þá, sem selja sólkrem, þó rigni á su-mrin. Óþurrkurinn — Hrakið hey. Það var mígandi rigning, þegar við komuni að Akurholti. Þar -sem undirritaður vildi fræðast nokkuð um óþurrkinn, þá spurðum við þá feðga, hver munur er á hey- skap í góðri tíð og slæmri. Sleíán varð fyrir svörum: — Þó ótrúlegt sé, þá renna flestir bændur nokkuð blint í sjó- in-n með fóðuröflun og fóðrun, sagði Stefán. Þegar heyið hefur lengið lengi á túninu, mar'gblotnað cg 'hálfþornað, fer úr því mikil næring. Já, í raun og veru getur skolazt svo mikið af efnum úr heyinu, að það verður gagnslaust fy-rir .skenpurnar. Ef hins vegar heyið þor'nar fljótlega eftir að slegið er, þá helzt næringin í gras inu og skepnurnar þrífast vel. Eng in úrræði eru á takteinum fyrir bændur til að vita hversu gotf tóð ur heyið hans er. Þetta er' þó mjög bagalegt, því að ef heyið er gott, -þarf minni fóðurbæti. Þetta má segja á ljósari hátt. Hugsum ok-k ur að þú hafir gott hey, en telur einhverra hlufca vegna, að það sé snautt af efnum. Þú mokar fóður bæti í skepnurnar fyr’ir þúsundir króna, en hefðir getað -sparað þér það, því að a-furðir aukast ekkert. Skepnurn-ar vinna ekki úr meiru en var í heyinu. [ Rannsóknir á heyi. Eins og ég sagði áðan, hafa bændur ekki ráð á neinum aðferð- um til að rannsaka heyið sitt á haustin og verða því að gizka á, hvað heyið er gott. Ég veit ekki, hvort það sfcendur undir sér, að láta rannsa-ka þetta. á hverjum bæ, ’ en ón-eitanl-ega væri það þægilegt. Þó væru jarðvegsrannsóknir í túnu-m ennþá nauðsynlegri. Jar'ð- vegurinn á hinum einstöku túnum er afa’- ~:-isfn. Jafnvel misjafnt á eir '’ændur bera hins veg: trð á túnin eftir Bóndinn í Hrossholti er með yngstu bændum á Snæfellsnesi. Einar Tenry Gíslason, bóndi í Hrossholti, er aðeins rúmlega tvítugur. Einar lá á spítala í allan fyrravetur eftir bifreiðarslys, on hefur ekki enn ná3 fullri heiisu. Sarnt hefur honum tekizt með ódrepandi dugnaði að ná inn miklu heyi f sumar, þótt hann hafi ekki annað manna sér tii hjálpar við heyskapinn en tvo unglinga innan við fermingu. Hér sjáið þið Einar á traktornum sínum við heyskapinn. ágizkun. Þarna er sömu söguna að segja. Mikið fé mætti spara, ef jarðvegsranrisókni-r væru frarn- kvæmdar, því að þá væri hægt að bera þau efni ein á túnin, sem skortur er á í jarðveginum. Mistök hjá okkur bændum eru því miður algeng í báðum þessum þýðingar- miklu liðum, sa-gði Stefán. Við verðum að verja meira fé til r-ann sóknarstarfa, en það verður ekki nema m-eð öflugri bænd-asamtök- u-m. Félagslíf unga fólksins. Þegar við höfðum þegið ágætar veitingar, hætti að rigna. Við gengum út á túnið í áttina að bif- reiðinni, því að við vildum ek-ki tefja fólkið lengur frá heyinu. Notuðum við tækifærið til að spyr'ja Hinrik nokkuð um unga fólkið í sveitinni. — Það er nú lítið félagslíf hjá okk-ur núna um h-eyskapinn. Allir eru svo önnum kafnir. Annars má segja, að heilbrigt félagslíf sé nauðsyn í fá-mennum sveitu-m, svo nauðsynlegt, að fátt er meira virði. Eg er t. d. viss um það, að flóttinn frá sveitunum hefði stöðvazt fyrr, ef byggð hefðu verið nægilega mörg samkomuhús. B§frei5asalan Sala er örugg hjá okkur Símar 1909? o° 18966 Ingólfs.-træti 9 BÍLASAL.INN viS Vitatorg Sími 12500 Rússajeppi ’60 fæst undir kostnaðarverði Dodge Weapon ’53 fæst á goðu verði. v BÍLASALINN við Vitatorg Simi 12500

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.