Tíminn - 29.07.1960, Side 5

Tíminn - 29.07.1960, Side 5
TfMIPCtf, fðstodaginn 29. jálí 1960. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdast.ióri: Tómas Amason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsingastj.: Egili Bjamason. Skrifstofur 1 Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. ■- J Hvað vakir fyrir Krustjoff? Hið þekkta blað enskra vinstri iafnaðarmanna ,,New Statesman" segir á laugardaginn, að það taki fullkom- lega undir þau ummæli Macmillans í nýju bréfi hans til Krustjoffs: Mér er alveg ómögulegt að skilja hvað vakir fyrir þér um þessar munair? Blaðið bætir því við, að hin mikla áróðurssókn Rússa að undanförnu hafi vakið bæði ótta og undrun í Bret- landi. Ef menn hverfa eitt ár aftur í tímann, var framganga Krustjoffs og forustumanna Rússa með allt öðrum hætti. Þeir ræddu þá málefni mjög í sáttatón og menn byggðu á því vonir um batnandi friðarhorfur. Nú er þetta alveg breytt. Nú er haldið uppi hörðustu árásum gegn vestur- veldunum á öllum sviðum og eins og hvert tækifæri not- að til að blása að æsingum og árekstrum, sbr. Kongo og Kúbu. Slík framganga er vissulega ekki til þess fallin að bæta samkomulagshorfur og draga úr alþjóðlegum viðsjám, heldur einmitt hið gagnstæða. Þetta gefur þeim öflum, sem eru ósáttfúsust vestan tjalds, byr í seglin, því að þau geta með verulegum rétti bent á, að stefnan hjá Rússum sé eitt í dag og annað á morgun. Jafnframt veikir þetta aðstöðu þeirra, sem telja rétt að koma nokkuð til móts við Rússa. Hér er því eins og markvisst stefnt að því að skipta heiminum í tvær harðsnúnar fylkingar í stað þess að reyna að bæta andrúmsloftið og auka brýrnar milli aust- urs og vesturs. Hvenær, sem er, getur líka hlotist af slík- um vinnuaðferðum eitthvert mikið óhapp, þótt það hafi alls ekki verið tilgangurinn að stuðJa að því. Það er því von allra frjálslyndra og friðelskandi manna í heiminum, að þeirri miklu og áhættusömu áróð- urssókn, sem nú er haldið uppi frá Moskvu, linni sem fyrst. Ef hún heldur áfram, munu fylgja henni vaxandi viðsjár, vaxandi vígbúnaður og vaxandi hættur. Á meðan getur ekki neitt þokað í samkomulagsátt. Þess ber því að vænta, að rússneskir valdamenn hverfi aftur til þeirrar s'efnu, sem þeir fylgdu í fyrrasumar, því að hún er leiðin til bættrar sambúðar. En þá má ekki heldur standa á vestrænum þjóðum að mæta þeim austrænu á miðri leið. Vaxtaokrið Stjórnarblöðin eru nú hætt að guma af þeim árangri, sem hin gífurlega vaxtahækkun á að nafa borið. Aukning sparifjárins er nefnilega minni í ár en í fyrra, og eftir- spurnin eftir lánsfé aldrei meiri. Slíkt var fyrirsjáanleg afleiðing annarra aðgerða ríkis- stjórnarinnar og því var vaxtahækkunin ekki annað en hreint fálm út í bláinn. Hitt er hins vegar meira en komið á daginn, að vaxta- hækkunin veldur fjölmörgum einstakúngum og atvinnu- fyrirtækjum hinum þyngstu búsifjum. Þess vegna á ríkisstjórnin að afnema vaxtaokrið tafar- laust. Með því sýndi hún nokkurn lit á að draga úr þeim eifiðleikum, sem hinar óþörfu og óviturlegu aðgerðir hennar hafa valdið, þótt miklu meira þurfi til, ef bæta á þar úr að fullu. > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > > ERLENT YFIRLÍT- Hinn mikli tækifærissinni Ver'ður Krustjoff áhrifamesti stuðningsmaður Nixons? ÞAÐ fór cins og vænta mátti, að Richard Nixon varaforseti var einróma kjörinn forsetaefni republikana á flokksþingi þeirra, sem hefur staðið yfir í Chicago undanfarna daga. Framgainga Nixons í sam- bandi við flokfcsþingið leiddi það vel í fjós, að hann er séður stjórnmálamaður og mikill tækifærissinni. Það eru fyrst og fremst hægri öflin, sem ráða flokksvél republikana, er hafa lyft honum til valda og tryiggðu honum fyrir fram út- nefninguna á flobksþinginu. Þegar til þings kom, sneri Nix- on sér hins vegar strax til Nel- son Rockefelier og samdi við hann um allrótækar breytingar á kosnin-gastefnusfcránni, er hægri menn flokksins höfðu undirbúið. Þetta kom hægri mönnum mjög á óvart, þótt þeir yrðu að láta undan síga, er þeir Nixon og Rockefeller stóðu saiman. ÞETTA ATVIK sýnir, að Nixon -er mi-klu -meira pólitískur reiknin-gsmaður en hug-sjóna maður. Hann varðist að lát-a það uppi þa-ngað til flokksþing demokrata var u-m garð gengið, hvort hann ætlaði heldur að .sta-nda til hægri eða vinstri í kosnngabaráttunni. Af þeirn ástæðu-m hvatti Nelson Rocke- feller hann til þess að gera skýra grein fyrir afstöðu si-nni, en Nixon vék sér jafnan undan. Blaðamenn, sem eru hliðhollir Nixon, t-elja að hann hafi fyrst viljað sjá hverjir yrðu frambjóð endur demokrata. Ef það yrðu þeir Kennedy og Humphrey, eins og búizt var við um -skeið. hefði það v-erið ætlun hans að leita sér fyl-gis í Suðurríkjun- u-m, þar sem Humphrey er illa þokkaður, og geiði hann sér þá von u-m að vinn-a a. m. k. þrjá þeirra, eins og Ei-senhower 1952 og 1956, eða Texas, Florida og Virginia. Eftir að Johnson var valinn varaforsetaefni demokrata, treysti Nixon ekki á þetta 1-engur, h-eldur ákvað að reyna að vinna fylgi svertingja í norðurríkjunum. Til þess þurfti hann að ná samningum við Rockefeller og s-etja upp róttæk-a stefnusfcrá í kynþátta- málunum, eins og nú hefur ver ið gert. f kosningabaráttunni ætlar Nixon svo að tefla, eins og hér sé nýr Lincoln á ferð- in-ni. ÞAÐ SEM hér hefur gerzt, sýnir það vissul-ega ljós-1-ega, eins og áður segir, að Nixon skortir ekki pólitísk klókindi og getur vel hagað skoðunum eftir ástæðuim. í þess-u liggur bæði styrkur han-s og veikleiki sem stjój|nmálamann.s. Af þess- um ástæðum er Nixon óragur við að velja sér þau voon og baráttu-aðferðir, sem honum þy-kja sigurvænlegust á hverj- um tíma. og hefur oft svnt. að hann er ekfci neitt sérstaklega vandur að meðulum. Menn. sem þannig vinna. geta oft náð Tangt og það hefur Nixon líka tek’zt. Veikléi-ki hans liggur hins veg- ar í bví, að menn vita aldrei fullkomlega hvar beir hafa hann og hvar honum kann að skj-óta uno í næsta lei-k Mar.gt bendir hó til he«s. að Nixon hafi aukizt ábvrgðartilfinning og festa með aldrinu-m. en þó Mynd þessi blrtist í New York Times á þriðjudaginn og sýnir Nixon vera að svara spurningum um kynþáttamálið á biaðamannafundi í Chicago. hvílir enn á honum það álit, að hann sé einn mesti tæki- færissinninn á stjórnmálasviði Bandaríkjanna. Þetta mun bæði reynast honum og Bandaríkjun- um til óþæginda, ef hann verð -ur kosinn forseti, ne-ma honu-m ta-kist þá að breyta þessu áliti með verkum sínum. Hætt er hins vegar við, að -það geti tekið nok-kurn tíma. NIXON er 47 ára gamall. Hann er alinn upp við heldur lítil efni og mikla trúrækni, þótti heldur hlédrægur og ómannblendinn í uppvextinum og skaraði þá ekki neitt sérstak lega fram úr. Hann lauk ungur lögfræðiprófi, var í sjóhernum á stríðsárunum, en fékk ek-ki tækifæri til að vinn-a sér sér- stakan frama. Eftir stríðið hóf hann lögfræðistörf, unz hann var valinn til framboðs í kjör- dæmi til fulltrúadeildar B-anda rí-kjaþifigs árið 1946. Nixon hafði ekki sótzt eftir framboð inu en var fenginn til þess, þeg ar aðrir höfðu dregið sig í hlé, þar sem þing-maðurinn, sem var fyrir, þótti öruggur í sessi. Nixon vann þó kosninguna, en áróðursaðferðir hans þóttu hi-nar óvön-duðustu. Á þin-gi vann hann sér mikið frægðar- orð fyrir glöggskyggni, er hann þótti sýna í hinu svonefnda Hissmáli, en þar kom í ljós, að háttsettur embættismaður í utanríkksþjónustunni hafði njósnað fyrir komnninista. Þetta varð til þess, að Nixon var teflt fra-m s-em öldunga deiid-armanni fyrir republikana í Kaliforníu 1950. o,g vann hann þá kosningu eftir einhverjar umdeildustu áróðursaðferðir. sem nokkur frambjóðandi í Ba-ndarík.iunum hefur beitt. Tveimur árum seinna var hann kjörinn varaforseti og hef-ur verið það seinu-stu 8 árin. Flokkshr'æður hans segjia, að h-ann hafi mjög eflzt að reýnslu og þroska á þessum tíma og sé því rnanna bezt búinn undir það að gegna forsetaembættinu. Það er viðurkennt af öllum, að Nixon skortir hvorki vits- m-uni né dugnað. Ræðumiaður er hann góður. Hann semur jafnan ræður sínar sjálfur, en siíkt er ekki algengt hjá handarískum stjórnmálamönnu-m, o-g oftas-t talar hann blaðal-au-st. Hann lcann orðið vel að koma fram í fjölmenni, en glaðleg fram- koma hans þykir þó byggjast m-eira á þjálfun en upplagi. Hann er s-agður eiga fáa nána vini og ráðgjafa Margt bendir til, að hann gæti orðið ráðríkur í forsetastólnum og því ólík-ur Eisenhower. ÞAÐ ER tvimælalaust, að viðureign þeirra Nixons og Kenn-edys verður hörð, því að báðir eru harð-skeyttir baráttu menn og miklir skipuieggjax'ar. Nixon á hér undir hög-g að sækja, því að demokratar eru miklu fleiri en republikanar. Hann verður því að treysta á fylgi óháðra kjósenda. Ef til vill skiptir það þó mestu fyrir Nixon, að Krustjoff haldi áfram að sk-amma hann. Rifrildi þeirra í Moskvu í fyrra hefur orðið Nixon meira til fram dráttar en nokkuð annað, og síðan hefur Krustjoff haldið áfram að styðja hann með því að sbamma hann a-lltaf öðru hvoru. Krustjoff veit það vel, hvað hann er að gera með þessu, því að ha-nn hefur nýlega sagt í gamni og alvöru, að hann ætli að ráða úrslitum for seta-kjörsins í Bandaríkjunum. Og vilji Krustjoff halda kalda stríðinu áfram, kýs hann Nix on, því að ut-an Bandarikj- a-nna er Nixon miklu meira tortryggður en Kenn-edy. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.