Alþýðublaðið - 10.04.1920, Síða 1
Alþýðublaðið
Greíið tit af Alþýðuílokknum.
1920
Laugardaginn 10. apríl
Alþbl. kostar I kr. á mánuði.
Húsnæðiseklan.
Á hún að stöðva
atvinnuvegi Reykjavíkur?
Á síðari árum hafa orðið ýmsar
•atórfeldar framfarir hér í borginni,
avo sem vatnsveita, gasveita,
■skolpræsagerð, gatnagerð og gang-
•stétta, höfn bygð og nú byrjað á
rafveitu. Botnvörpunga og mótor-
iiáta hafa menn keypt, og einkum
'hafa botnvörpungarnir orðið happa-
sælir, bæði fyrir eigendurna og
t»æjarfélagið í heild.
Á þessum árum hefir bæjarbú-
>um fjölgað míkið, því margt fólk
þarf til að leysa af hendi alla þá
vinnu, sem þessi fyrirtæki hafa í
för með sér, og hingað til heflr
•ekki verið skortur á verkafólki.
Nú eru menn sem óðast að
kaupa nýja og gamla botnvörp-
unga, og telst svo til, að með
vorinu verði þeir orðnir 30 talsins.
Jáikinn fjölda manna þarf á öll
þessi skip og mikinn mannfjölda
þarf til að verka og hirða aflann,
sem þau flytja á Jand, og gera
iiann að góðri verzlunarvöru.
Stór geymsluhús, þurkhús og
stakkstæði hafa verið bygð, og
íbúðarhús éru reist á verkunar-
stöðvunum fyrir fólk, sem vinnur
'þar á sumrum og hingað flyzt
víðsvegar að, sem flest mun vera
■einhleypt fólk, er að mestu leyti
aíðar tekur sér bólfestu í borginni.
Ýmiskonar iðnaður, atvinnu-
rekstur og verzlun heflr aukist og
margfaldast á þessum árum, og
iteykjavík er orðin borg — þó
ekki sé hún stórborg.
Þótt þetta hljómi nú alt saman
íagurlega og lýsi dugnaði og fram-
takssemi borgara Reykjavíkur, þá
er hér samt einn höfuðgalli á
öllum framförunum, og hann er
aá, að mikill hluti af verkafólki
borgarinnar er sama sem hús-
næðislaus, og fjöldi fólks alveg
húsnæðislaus. Pað fólk, sem at-
vinnurekstur borgarinnar þarfn-
ast til viðbótar héðan i frá, hefir
hvergi höfði sínu að að halla.
Bæjarstjórnin heflr gert tilraun
til áð bæta úr húsnæðiseklunni
með því að byggja Suðurpólinn
svo kalláða, láta mönnum í té
lóðir á leigu, leggja vegi um þetta
lóðasvæði og að ýmsu leyti létt
undir með mönnum, sem hafa
ætlað að byggja ný hús eða breyta
gömlum húsum til aukningar á
húsnæði.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
heflr gengist fyrir stofnun Bygg-
ingarfélags Reykjavíkur, og hefir
það félag þegar komið upp fjölda
íbúða, og heflr bæjarstjórnin stutt
það félag, bæði með því að láta
það fá lóðir undir húsin með góð-
um kjörum, og eins með því að
ábyrgjast lán til að byggja fyrir.
Nú er svo komið, að einstakling-
um er um megn að byggja sér
hús, vegna dýrleika á byggingar-
efni og óhagstæðra lánskjara, og
sem stendur er algjör þurð á efni
til bygginga, og horfir því til stór
vandræða, ef ekki verður bætt úr
þessu hið bráðasta, eða réttara
sagt á komandi sumri.
Tveir aðilar, bæjarstjórnin og
fulltrúaráð verklýðsfélaganna, hafa
reynt að bæta eftir megni úr hús-
næðiseklunni, og er nú komið að
þriðja aðilanum í þessu máli, að
gera skyldu sína, en það eru at-
vinnurekendur bæjarins.
Frá mínu sjónarmiði séð, er
það ekki hættulaust fyrir þá, að
láta þetta mál lengur afskiftalaust,
því það getur orðið til þess, að
atvinnufgrirtœkin stöðvist vegna
fólkseklu.
Engin heimilislaus fjölskyldu-
maður ræður sig á skip né getur
stundað aðra atvinnu, og einhleypir
menn og konur leita sér annar-
staðar atvinnu, þegar ekkert útlit
er fyrir að það geti fengið húsa-
skjól í borginni, og alveg útilokað
79. tölubl.
frá því að geta gift sig og stofn-
sett eigið heimili.
Atvinnurekendur í Regkjavik
þurfa að leggja fram eina miljón
króna með góðum lánskjörum,
til bgggingar ibúðarhúsa handa
verkamönnum.
Ef bæjarstjórn og atvinnurek-
endur tækju höndum saman í
þessu máli, þá má vera að mikl-
um voða yrði afstýrt. En haldi
þeir, sem peningaráðin hafa, áfram
að leggja fé sitt í vaxtabréf, botn-
vörpunga og geymsluhús, getur
farið svo, að þeir fái lítinn arð í
aðra hönd innan ekki mjög langs
tíma.
Og, ekki veldur sá, er varar.
Agúst Jósefsson.
Ii dagim 09 vegim.
Eafmagnið. Ætlast er til að
rafafl úr Elliðaánum verði á boð-
stólum hér næsta ár, og verður
það þá lang ódýrasta ljósmetið
sem hægt verður að fá. Ættu
menn sem fyrst að láta undirbúa
hús sín til þess að taka á móti
rafmagninu, því skeð getur að það
verði erfiðara að fá það gert seinna.
Vill Alþbl. því benda lesendum
sínum á augl hér í blaðinu frá
„H.f. Hiti & Ljós.“
Dýrt blað. Eitt eintak af Morg-
unblaðinu frá í fyrradag, fyrri
prentun, keypti maður nokkur í
gær fyrir io krónur.
Athygli skal vakin á fundi þeim
um uppeldismál, sem Umdæmis-
stúkan heldur annað kvöld.
Unig-ling'ssttillia 14 til
16 ára óskast á fámennt heimili
nú þegar. Gott kaup. Upplýsing-
ar á Bræðraborgarstíg 10 b.