Tíminn - 06.11.1960, Qupperneq 16
Hvers vegna njósnaði
Frenzel fyrir Tékka?
Sunnudaginn 6. nóvember 1960.
251. blað.
VartJ hann fyrir þvingunum austan aí í sambandi
vií gifta dóttur í Prag?
Erkibiskup af Kantara-
borg heimsækir páfa
Hefur ekki gerzt síðan á 15. öld
Erkibiskupinn af Kantara-
borg og páfinn munu hittast í
Rómaborg til skrafs og ráða-
gerða í byrjun næsta mánaðar.
| ]
dr. Fisher
erkibiskup af Kantaraborg
Þetta er í fyrsta sinn í fjórar
aldir eða allt frá siðaskiptum,
að páfinn og æðsti maður
brezku kirkjunnar hittast.
Sennilegt er talið, að guðs-
mennirnir hittist í Vatíkaninu
2. desember n. k Dr Fisher
erkibiskup af Karttaraborg er
nú á ferð um Austurlönd. Á
leið sinni heim til Lundúna
mun hann koma við í Róma-
borg og dveljast þar tvo daga
og eiga viðræður við páfann.
Johannes páfi og erkibisk-
upin-n munu ræðast við í
tvær klukkustundir. Enginn
fær að vera viðstaddur þessar
viðræður þeirra nema túlkar
þeirra. Þessi heimsókn dr.
Fishers er talin standa í sam
bandi við áætlanir páfa um
að stofna sameiginlegt ráðu-
neyti allra kristinna manna.
Sérlegur sendimaður páfa var
á kirkjuþingi í Englandi í
sumar og naut hann mikillar
gestrisni af hendi dr. Fish-
ers. Ta'tð er, að sendimaður
þessi hafi að einhverju lyti
undirbúið heimsókn þá, sem
nú stendur fyrir dyrum.
Á sér enga hliðstæðu
Hér er þó ekki um form-
legt boð að ræða af hendi
páfa né heldur hefur dr. Fish
er sérstaklega óskað eftir við-
Fátt er nú meira rætt í blöð
um á Vesturlöndum en njósn-
ir vestur-þýzka jafnaðar-
mannaþingmannsins Alfred
Frenzel, er upp komust í síð-
astliðinni viku. Frenzel var
meðlimur varnarmálanefndar
þingsins í Bonn og hafði því
styrk og fyrirætlanir Vestur-
Þjóðverja í landvarnarmálum.
Njósnir sínar stundaði Frenz
el í þágu kommúnista og nú
hefur landvarnarráðherra V-
Þýzkalands, Franz Josef
Strauss, Iýst því yfir, að ekki
ræðum við harm. Þetta er
kurteisisheimsókn eingöngu.
Dr. Fisher er 73ja ára að aldri
og Johannes páfi fyllir 79 ár
25. nóvember n.k. 0
Eftir því sem bezt verður
vitað heimsótti erkibiskup
af Kantaraborg síðast páfa-
stól 1414. Rúmlega öld síðar
verða siðoskiptm og Hlnrik
8. segir skilið við páfastólinn
á valdatíma sínum og þessi
ákvörðun hans er staðfest
1563 af Elísabetu 1.
í Vatíkaninu hefur fregn-
inni nm heimsókn dr. Fishers
verið tekið með miklum fögn
uði. Talsmaðuir páfa hefur
sagt, að Johannes páfi 23. sé
mjög ánægður að fá tækifæri
til þess að taka á móti erki-
bisHupnum af Kantaraborg.
Það er fullkomlega rétt að
nefna þetta kurteisisheim-
sókn, því engin sérstök mál-
efni verða tekin til umræðu
og úrlausnar. Þeir munu að-
eins skiptast á skoöunam.
Þessi heimsókn á sér enga
hliðstæðu öldum saman.
Nú geta menn grennzt
án þess að svelta
Nýir megrunarkúrar gefa góíSa raun
Það er ekki nokkur minnsti
vafi á því, að megrun er undir
því komin að menn haldi frá
sér sykurefnum. Þessu er sleg-
ið föstu í tímariti brezkra
lækna og höfundur ályktunar-
innar er dr Yudkin, sem er
sérfræðingur í þessum efnum.
Annars hefur verið mikið rætt
v.m það og ritað á síðast liðnum ár-
uiti hvoit megrun sé undir því
komin, að menn borði sem minnst
a sykurcfnum. N.ú segir Yudkin,
að um þetta verði ekki deilt en
hins vegar sé hreint ekki sama
hvernig menn hagi megrunarkúr-
um sínum.
5—9 pund á fveim vikum
Það sem einkum hefur verið
deilt um í sambandi við sykurefn-
ir. er það, að á sama tíma hafa
þeir, sem viljað hafa megra sig,
mátt borða eins mikið af fituefn-
um og þá lysti. Dr. Yudkin segir,
að þetta geri hreint ekki nokkurn
I skapaðan hlut til, því að með
minnkandi sykurefnaneyzlu minnki
I af sjálfu sér þörfin fyrir fituefni.
Dr. Yudkin ráðleggur mönnum að-
I cins að spara við sig sykurefni s. s.
i sykur, sætar kökur, kartöflur o.þ.h.
on eggjahvítuefni s.s. fisk, kjöt,
cgg og osta svo og fituefhi —
i cmjör og rjóma t. d. — mega menn
borða eftir löngun.
s Dr. Yudkin hefur gert tilraunir
a sex mönnum þannig, að fyrstu
! tvær vikurnar borðuðu þeir eins
1 og þeirra var vandi en fengu síð-
an aðeins 30 grömm af sykurefn-
’ um daglega. Það sýndi sig að þess-
í ir menn iögðu ekkert af fyrstu
; tvær 'Vikurn.tr en síðan, er þeir
fcru að halda í við sig af sykur-
efnunum þá léttust þeir um 5—9
pund á hálfum mánuði.
Ekkert svangir
Jafnframt sýndi það sig, að hita-
einingaþörfin minnkaði um 2000 á
j sólarhring. Þessir sexmenningar
borðuðu allt að helmingi minna en
áour og þó fituefni væru þeim
boðin þá borðuðu þeir ekkert
meira af þeim en áður og sumir
beinlínis minna. Það mikilvægasta
í sambandi við þessa tilraun var þó
það, að enginn þessara manna fann
til hungurs meðan stóð á kúrnum.
En það er einmitt hungrið, sem
rcest hefur staðið í vegi fyrir
megrunarráðleggingum læknanna.
Það er þeim nefnilega sterkara.
Áður fyrr og reyndar enn er
nönnum ráðlagt að halda frá sér
fituefnum, ef þeir vilja rnegra sig
— auk sykurefnanna. Þetta hefur
valdið hungri og menn hafa ekki
haldið það út að létta af sér ístr-
ur.ni, Dr. Yudkin telur það því
niikla bót að haga megrunarkúrum
þannig, að menn megi eftir sem
áður neyta fituefna. Aðeins það
aO neita sér um sykurefnin nægir
nionnum til megrunai Þess er og
r.ö gæta, að sykurefnin hafa lítil
álirif á taugastöð þá, er stjórnar
matarlystinni. Menn borða því ó-
hóflega mikið af þessum efnum.
C'ðru máli gegnir um fitu og eggja-
hvítuefni. Þau verka beint á þessa
s'öð og menn mettast fljótt og
er síður hætt við ofáti og þá um
leið ístru.
sé nokkur minnsti vafi á því,
að vitneskja um allar þessar
ráðagerðir séu komnar til vald
hafanna í Moskvu.
Vestur Þjóðverjar hafa nú
til athugunar hvað þeir eigi að
gera í þessu máli og líklegt er
talið, að þeir telji sig til-
neydda og gerbreyta öllum
fyrri áætlunum. Réttarhöld í
máli Frenzel eru þegar hafin
en auk hans hafa þrír menn
aðrir verið handteknir þeirra
á meðal tveir Tékkar báðir
háttsettir í tékkneska hernum.
Sem kunnugt er kom Frenzel
upplýsingum sínum í hendur
Tékka en ekki er talin minnsti
vafi á því, aö þaðan hafi þeim
verið komið áleiðis til
Moskva.
Lengi grunaður.
í sambandi við hahdtöku
Frenzel kom sá orðrómur upp
í Vestur-Þýzkalandi að enn
fleiri þingmenn væru viöriðnir
þessar njósnir en því hefur
verið lýst yfir af opinberri
hálfu, að slíku sé ekki til að
dreifa.
Sagt er, að grunur hafi fall
ið á Frenzel fyrir hálfu öðru
ári síðan. Frenzel var formað-
ur þeirra nefndar vestur-
þýzka þingsins, sem sá um
styrk til handa ættingjum
þeirra manna í Þýzkalandi,
sem orðið höfðu fórnarlömb
nazista. Nefnd þessi kom sér
upp skrifstofum viðs vegar
um allt Þýzkaland og Frenz-
el fékk komið því til leiðar, að
ýmsir af skjólstæðingum hans
veittu skrifstofum þessum for
stöðu. Snemma féll grunur á
ýmsa af þessum skjólstæðing
um Frenzel, að þeir ynnu ýmis
varhugaverð störf og um leið
beindist athygli manna að
Frenzel sjálfum.
Varð á í messunni.
En um þessar mundir varð
öryggislögreglu Vestur-Þýzka-
lands nokkuð á í messunni, er
hún lét handtaka einn af
þingmönnum landsins vegna
njósna en maðurin nreyndist
síðar alsaklaus af þeim á-
bufði. Lögreglan varð því að
fara mjög hægt í sakirnar
gegn Frenzel enda þótt hún
hefði grun um að hann stund
aði njósnir. Almenningur í
Vestur-Þýzkalandi varð nefni
lega mjög sár fyrir hönd þing
manns þess, sem saklaus var
handtekinn og ákærður. Þessi
dráttur á handtöku Frenzel
hefur hins vegar haft alvar-
legar afleiðingar.
Landvarnaráðuneytið hefur
undanfarna mánuði verið að
rannsaka hvort nokkur veik-
ur hlekkur væri í landvarna-
nefndinni en ekki getað fund-
ið hann nákvæmlega. Fyrir
skömmu síðan voru skoðaðir
skjalaskápar allra meðlima
nefndarinnar en skápur Frenz
el bar þess engin merki að þar
hefðu utanaðkomandi menn
aðgang að en hér voru geymd
leyndarskjöl m. a. varðandi
varnir landsins og aðild og
samvinnu við Atlanzhafs-
bandalagið.
Þótti til annars líklegur.
Frenzel sjálfur ber það ekki
utan á sér að stunda njósnir,
segja þeir, sem hann gerst
þekkja. Það eru nú liðin sjö ár
frá því að hann óskaði eftir
að gerast fulltrúi í varnar-
málanefndinni og flokkur
hans samþykkti þessa ósk
hans án þess að velta málinu
nokkuð fyrir sér. Sem meðlim
ur þessarar nefndar virtist
Frenzel hafa mestan áhuga á
aðbúnaði vestur-þýzkra her-
manna s. s. hvernig skálar
þeirra væru byggðir og hvað
þeir hefðu þar til hreinlætis
og matar. í þessu skyni ferð-
aðist Frenzel um landið þvert
og endilangt milli herbúð-
anna og kynnti sér ástandið.
Þýzku blöðin ræða mál þetta
mikið. Því er haldið hátt á
lofti, að þetta geti á engan
hátt rýrt álit þingsins né
heldur Jafnaðarmannaflokks
ins, sem hefur harmað fram
komu Frenzel og lýst sig reiðu
búinn til þess að gera allt sem
flýtt gæti rannsókn málsins.
Engir þýzkir liðsforingjar hafa
aðgang að leyniskjölum land
varnarráðuneytisins fyrr en
allar aðstæður þeirra hafa
verið rannsakaðar nákvæm-
lega í eitt og hálft ár og liðs
foringjar, sem eiga ættingja
austan tjalds fá aldrei aðgang
að leyniskjölum.
Var hann þvingaður?
En Frenzel er ekki liðsfor-
ingi og þess vegna fékk hann
sæti í varnarmálanefndinni
og þá um leið aðgang að leyni
skjölum. Frenzel á nefnilega
ættingja austan tjalds, þar
sem er dóttir hans en hún er
gift manni í tékknesku póst-
þjónustunni og er búsett í
Prag. Einn fyrsti liðurinn í
réttarhöldunum yfir Frenzel
er að reyna að finna hvort
nokkuð samband kunni að
liggja á milli njósna hans
fyrir Tékka og heimsóknir
dóttur hans til hans öðru
hvoru. Satt að segj a vita menn
ekki, hvers vegna Frenzel hef-
ur tekið sér þetta fyrir hend
ur og sú skoöun hefur skotið
upp kollinum að hér kunni að
vera á ferðinni þvinganir aust
an að e.t.v. þá í sambandi við
dóttur hans í Prag sem fyrr
getur.
Regn
Sjálfvirka stúlkan á Veður
stofunni sagði í gær, að
líklega tæki að rigna núna
með morgninum. Annar
maður (ekki á Veðurstof-
unni) sagði, að það yrði
'rekar snjór.