Tíminn - 12.11.1960, Qupperneq 2

Tíminn - 12.11.1960, Qupperneq 2
T f MIN N, laugardaginn 12. nóvember 1960. Ræða Ólafs Jóhannessonar (Framhald af 7. sICu). betur en áður hafði verið kostur fyrir rikisstjórnum þeirra þjóða, sem í þessu máli höfðu verið erfiðastar og and snúnastar þessari ákvörðun ísl. ríkisstjórnarinnar. Málinu var þess vegna ekki endan- lega lokið. — Skeytið var sent 20. ágúst og var þá enn látið í það sklna, að þvi er virt ist, eftir því sem fram kom hér af þessu skeyti eins og það var birt hér, að möguleik ar væru enn þá opnir til þess að ganga um þær dyr, sem bent hafði verið á í skeytinu 18. mai 1958. Þá stóð svo á, að það var ekki farið að fram kvæma þessa reglugerð. Fisk veiðilandhelgin var þá ekki komin til framkvæmda, og það verður að minni skoðun alls ekki borið saman, að hreyfa þessu máli á þann hátt sem gert var þá, og hitt að nú eftir að þessi reglugerð hefur verið í gildi um þetta langan tlma og hefur verið framkv. um þetta langan tíma, að fara þá að taka upp samningaum- leitanir um tilslakanir á henni við þá einu þjóð, sem ekki hefur viljað viðurkenna gildi þessarar reglugerðar í verki. Eg held þess vegna, að það geti engum blandazt hugur um, að þetta tvennt, aðgerðir ríkisstjómarinnar sumarið Dómur Sverris Framhald af 1. síðu. segja, að þegar hér var komið fengu fulltrúar sjávarútvegsins engu áorkað til breytinga öðru en því, að vextir af stofnlánum voru ekki hækkaðir af þeim lán- um, er stofnað hafði verið til fyrir lagasetninguna.“ Nei, ríkisstjórnin hafði ekkert við útvegsmenn að tala. Hún hafði sina alvitru stofu-sérfræðinga til að styðjast við. Það var henni nóg. Því einu fékkst um þokað, að ok- urvextir voru ekki reiknaðir af e’.dri lánum, en einnig það hafði verið fyrirhugað. „Lömun hjóÖarlíkamaus^ Einn af spekingunum úr þing- l.ði ríkisstjórnarinnai lét svo um rnælt norður í landi s. 1. vor: að OKurvextirnir væru líklega það skynsamlegasta sómastrik, sem stjórnin hefði gert, Sjálfstæðis- maðurinn Sverrir Júlíusson. er á öðru máli. Hann segir: „Allir iandsmenn viðurkenndu að stórra átaka væri þörf og upp skurð yrði að gera á þjóðarlík- rmanum *il þess að forðast efna- hagslegt nrun. En i þessum efn- um held ‘g að megi líkja aðgerð unum við, að uppskurðuriiui muni leiða af sér lömun þjóðar- líkamans, og þess vegna sé nauð- synlegt að snúa við áður cn það er orðið im seinan og færa fram leiðsluvcxtina og útiánin í sama horf og pau voru áður.“ Þungur dómur Nákvæmiega þetta hefur stjórn- arandstaðan sagt í heilt ár. Sjálf- sogt má með nokkrum hætti segja, aó hún sé ekki hlutlaus í dómum smum, enda þótt þen séu raunar Ijyggðir á staðreyndum. sem við hlasa hverjum manni. En varla verður Sverrir Júlíusson vændur um pólitíska hlutdrægni í garð rikisstjórnarinnar. Samt er dóm- er hans sá um „viðreisnar' -að- gerðir hennar, eftir árlanga reynslu af þeim, að þær „muni leiða af sér lömun þjóðarlíkam- ans“. Er hægt að kveða upp öllu þvngri dóm yfir því ástandi, sem ríkisstjórnin hefur leitt yfir þjóð- ura og atvinnuvegi hennar? 1958, og aðgerðir ríkisstj. nú eru á engan hátt sambærileg- ar. Menn geta haft sínar skoð anir á því, hvort þessar að- gerðir nú eru nauðsynlegar eða ekki, og mér dettur ekki í hug að vera með neinar get- sakir í garð hæstv. ríkisstjórn ar um það, að hún sé þar með að breyta á móti betri vitund. Eg efast ekki um það, að þeir séu að velja í þessu efni þá leið, sem þeir telja nauðsyn- lega, og það er þeirra mat. Aðr ir hafa aftur á móti aðra skoð un á þvi. En hvað sem því mati líður, þá verður þetta tvennt alls ekki borið saman. Hæstv. ríkisstjórn getur þess vegna ekki leitað eftir stuðn- ingi fyrir þá ákvörðun, sem hún hyggst taka nú í þessu máli, í neinu fordæmi frá sumrinu 1958. Það er alveg útilokað. Einhliða-orðaleikur. Eg held þess vegna, að það stoði hæstv. ríkisstjórn ekk- ert I málflutningi sínum að benda til fordæmis frá 1958. Þær ákvarðanir, þær ráð stafanir, sem þá voru gerðar, voru sjálfsagðar. Þær voru í fyllsta samræmi við það sem tíðkast í samskiptum þjóða, og voru-eins og á stóð alger- lega sjálfsagðar til þess að reyna að fá samþykki og við- urkenningu annarra þjóða á þeirri ákvörðun, sem til stóð að yrði tekin. Hæstv. dómsmrh. vék að því hér áðap, að það stoðaði lítið að ræða um það, hvort um væri að ræða einhliða yfir- lýsingar eða samning, það væri orðaleikur einn eins og hann orðaði það í gær. Ef það hefði farið á þá lund, að orð ið hefði verið undir þá orðsend ið hefð verð undr þá orðsend ingu, sem fór frá Islenzku ríkisstjórninni, þá væri það orðaleikur einn, hvort talað væri um einhliða yfirlýsingar eða samninga. Það er nú varla ástæða til í þessu máli að vera að ræða um svona atriði en ég vildi nú bara spyrja hann: Við skulum segja sem svo, að eftir sendingu skeyta þessara, sem hér er um að ræða, þá hefðu hinar einstöku ríkisstj Atlantshafsbandalags ins lýst því yfir við fyrirsvars menn íslenzka ríkisins, að bær hefðu fyrir sitt leyti ekk ert við að athuga þá ákvörð un íslenzku ríkisstj. að fisk- veiðilandhelgin skyldi fram- vegis vera 12 sjómilur, en þó þannig að hún kæmi ekki til framkvæmda að því er varð- aði ytri sex mílurnar við skul um segja um næstu þrjú ár, og síðan hefði svo reglugerð in verið sett hér i samræmi bar við. Mundi þá hæstv. dóms málaráðh, telja það, að með þessum hætti hefði verið kom inn samningur á milli íslands og aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins um þetta mál? Eg held nú, að það sé ekki venjulegt að kalla slíkt samn inga.“ Bjarni Benediktsson tók til máls að nýju. Svaraði hann spurningum prófessors Ólafs Jóhannessonar út í hött. Taldi ekki rétt að blanda inn af- stöðu minnihlutans í svo mik ilvægt mál eins og löggjöf um landhelgina!!! Tilræði í Rómaborg (RÓM, 10.11.) — Ungur skellinöðrukappi gerði Ginu Lollobrigidu slæman grikk og skaut henni skelk í bringu í dag, í miðri Rómarborg. Hann renndi skellinöðrunni sinni upp að hlið Rolls Royce bíls- ins hennar Ginu, dró fram blaðlangan hníf og rak hann á kaf — í eitt dekk bílsins. Bílstjóranum tókst að stöðva bílinn án þess að hann færi á villigötur og skemmdi eitt eða annað, svo skaði að þessu sinni varð ekki annar en þetta ónýta dekk. Miss Gina lýsti piltinum svo, að hann hafi verið rétt laglegur ungur maður, en hann jók ferðina og hvarf án þess að líta aftur. Bílstjórinn tók þegar til ó- spiltra málanna við að skifta um dekk, en Gina fékk sér| leigubíl og hélt áfram til kvik myndaversins. „Eg fer að halda, að ég sé ekki sérlega vel kynnt hérna, sagði Gina.“ Rússneska lista- fólkið heimsækir Akranes Akranesi, 11. nóv. — Rússneska listafólkið, sem hingaS kom til landsins fyrir skömmu í boði MÍR, hélt tónleika í Bíó-höllinni á ^ikra- nesi s. 1. miðvikudagskvöld. Á tón leikum þessum komu fram sópran söngkonan Valentina Klepatskaja, bassasöngvarinn Mark Reshetin og píanistinn Evgenia Kalinkovitskaja sem annaðist undirleik fyrir söngv arana. Áheyrendur tóku lstafólkinu for'kunnar vel, enda var tónlistar- flutningur þess allur með hinum mesta glæsibrag. Varð það að syngja mörg aukalög og blómvend- ir bárust því í þakkarskyni. Formaður MÍR-deildarinnar á Akranesi er Halldór Þorsteinsson. G.B. UMMÆLI ÓLAFS (Fi-amhald af 1. siðu). •fc Þá var reynt að afla fyrirfram v’ðurkenningar Nafo- þjóðanna á rétti okkar til einhliða aðgerða Þó að Nato-þjóðirnar hefðu orðið við málaleituninni hefði það ekki verið samningur á nokkurn hátt. + Það sem gerðist 1958 var ekki annað en skylda ríkis- stjórnarinnar, að tilkynna öðrum þjóðum þá ákvörðun okkar um að færa út í 12 mílur og kynna málstað okk- ar og reyna að afla viðurkenningar á rétti okkar til út- færslunnar. •fa Telja má líklegt, að það hafi verið vegna þessarar við- leitni og kynningu ríkisstjórnarinnar, að allar þjóðir — nema Bretar — viðurkenndu í verki 12 mílna fiskveiði- lögsöguna. Breytast úrslitin? (Framh af t síðu). fyndi leiðir til afvopnunar. Kennedy segist þakka þetta traust og vænta góðrar sam- vinnu við kanzlarann í barátt unni fyrir friði í hejminum. Kennedy hefur móttekið orð- sendingu frá Macmiilan forsætis- ráðherra Breta en ekkert hefur verið gert opinskátt um hvað hún fjallar. Talið er þó, að Macmillan ræði um mikilvæg atriði i sam- bandi við utanríkismál. Macmill- ar. hefur og í hyggju að fara vest- ui um haf einhvern næstu mán- aða til þess að ræða- við Kennedy. Adenauer hyggst einnig halda vestur um haf — sennilega 15. febrúar n. k. til viðræðna við Kennedy. Búizt er þó við, að Ad- cnauer reyni að komast vesfur um haf fyrir þennan tíma. Blumen- feld leiðtogi jafnaðarmanna í Ham borg hefur dvalizt í Bandaríkjun- um að undanfömu. Blumenfeld fór þess á leit við Kennedy að bann heimsækti Berlín og lofaði Kennedy að athuga það mál nánar. Báðir á Plórída Nú er nær lokið talningu at- kvæða við íorsetakjörið í Banda- ríkjunum. Kennedy hefur nú fengið. 33.591.799 atkvæði eða 50,2% en Nixon 33 307.866 eða 49,8%. Eftir er að telja atkvæði á 1800 kjörstöðum af 166 þúsund- um. Nixon er kominn til Miami á Flórida þar sem hann hyggst hvíla sig nokkra daga ásamt konu og dætrum sínum tveimur. Kennedy hélt einnig til Flórída í dag. Hann fór einn, enda á kona hans ekki heimangengt eins og á stendur. Iíennedy mun dveljast sér til hressingar á Palm Beach. Kennedy ekki kosinn — eða hvað? Þær fréttir berast nú frá Bandaríkjunum, að foringjar repu biikana hafi verið hvattir til þess að láta fara fram endurtalningu á atkvæðum í öllum fylkjum Bandaríkjanna. Eins og nú stend- ur hefur Kennedy hlofið 332 kjör- menn, en Nixon 191. Republikan- ar telja hins vegar líklegt, að Nixon vinni hiKa 32 kjörmenn Kaliforníu af Kennedy þegar talin verða utanijörstaðaatkvæði í fylk inu. Einnig gera þeir ráð fyrir að Við endurtalningu komi í ljós, að Nixon en ekki Kennedy hafi unnið hina 27 kjörmenn í Illinois. Yrðu þessar breytingar hefði Kennedy aðeins 273 kjörmenn og Nixon 250 er, 269 kjörmenn mynda meiri- hluta. Republikanar búast hins vegar við, að við endurtalningu kunni að breytast niðurstöður í Snður-Karounu, Missouri, Minne- scta og Nýju Jersey sem gætí þýtt að Nixon shefði meirihluta kjör- manna. Þess er getið í fréttinni að endurtalning atkvíæða muni h.afa í för með sér gífurleg fjár- útlát fyrir republikana. %8sending Af sérstökum ástæovm eru nem- endur Eiðaskóla frá 1930 og síðar beðnlr að koma tll viðtals I Breið- flrðingabúð uppi n. k. sunnudag é fímabilinu frá kl. 2—7 e. h. Nokkrir Eiðamenn. Kominn (rá Lundúnum Kári Guðmundsson, mjólk- ureftirlitsmaður ríkisins, sem fór til Lundúna 21. okt. sl., til þess að sækja þar mjólkur- sýningu — The Royal Dairy Show, kom aftur til landsins þann 4. þ.m. Ný st jórn í Stúd- entafélaginu Nýlega var haldinn aðalfundur í Stúdentafélagi Háskóla fslands. Var félaginu kjörin stjórn fyrir veturinn 1960—61. Hlutu eftirtald ir mepn kosningu: Formaður: Steingrímur Gautur Kristjánsson, stud. jur., gjaldkeri Þór Guðmunds son, stud. oecon, ritari Heimir Steinsson, stud. mag., og meðstjóm endur Friðjón Guðröðarson, stud. jur. Kristján Össur Jónasson, stud. oecon. Fráfarandi stjórn skipuðu þeir Pétur Gautur Kristjánsson, Jón Arnalds, Svanur Sveinsson, Kristinn Sigurjónsson og Halldór Halldórs. Héraðshátíð Framsóknarfélags Borgfirðinga Laugardaginn 19. nóv. n,k. heldur Framsóknarfélag Borgfirðinga almenna héraðshátíð að Hlöðum á Hval- fl'raðarströnd og hefst hún kl. 8,30 s.d. Ræður fiytja Halldór E. Sigurðsson, alþm. og Daníel Ágústínusson. Ávarp frá S.U.F. flutt af varaform. Jóni Óskarssyni. Erlingur Vigfússon, tenórsöngvari, syngur með undir- leik Ragnars Biörnssonar, og Karl Guðmundsson, gam- anleikari fer með skemmtiþætti og eftirhermur. Hljómsveit úr Reykjavík leikur fyrir dansj. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Féh<r Framsókiiarkveima Félag Framsóknarkvenna heldur fund næst komandi miðvikudagskvöld kl. 8,30 í Framsóknarhúsinu. Fund- arefni: Mjög áríðandi félagsmál, erindi og kvikmynd. Framsóknarvíst á Ákranesi Stjórnin Framsóknarfélag Akraness heldur skemmtisamkomu í Félagsheimili templara sunnudag 13. þ.m. kl. 8,30 e.h. Spiluð verður Framsóknarvist og dansað Aðgöngumiðar seldir í sama stað milli kl. 4 og 5 á sunnudag og við innganginn, ef eitthvað verður óselt.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.