Tíminn - 13.11.1960, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.11.1960, Blaðsíða 7
TÍMINN, suimudaginii 13. nóvembcr 1960. 7 SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ — \ Hvers vegna vilja stjómarflokkarnir ekki lögfesta tólf mílna fiskveiSiIandhelgi? - Sjálf- stæðisflokkorinn neitaði aS standa aS útfærslunni 1958. - Hálfhugur Sjálfstæðisflokksins og Álþýðuflokksins ýtti undir ofbeldisaðgerðir Breta. - Bretar hafa reiknað afstöðu stjómar- flokkanna rétt. - Svikaferill í áföngum. - Undirlægjuhátturinn við „stóru bræðurnar- Miklar umræöur hafa orð- | ið í efri deild Alþingis um rrumvarp það á lögfestingu 12 mílna fiskveiðilandhelginnar, sem flutt er af Framsóknar- flokknum og Alþýðubandalag ihu. Ef allt væri með felldu og allir flokkar einlæglega fylgj- andi tóf mílna fiskveiðiland- helgi, ætti þetta mál að ganga fram umræðulaust. Svo eðli-, legt er, að fiskveiðilandhelgin sé ákveðin með lögum, sem A JTagi setur, en ekki með ""ghigerð, sem einstakur ráð- ^erra getur hringlað með, ef '“inum sýnist svo. Þau furðuleg tíðindi hafa gerzt, að forustumenn Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins hafa risið öndverðir gegn slíkri lagasetningu, án þess að færa fram nokkur haldbær rök fyrir þeirri af- stöðu sinni. Raunverlegu ástæðunni, sem veldur þess- ari afstöðu þeirra, vilja þeir ekki segja frá. Hún er aug- Ijóslega sú, að lögfesting 12 mílna fiskveiðilandhelginnar myndi loka þeirri leið, að stjórnin gæti veitt Bretum undanþágur til veiða innan fiskveiðilandhelginnar, án þess að bera það undir Alþingi fyrst. Þetta sýnir því vel, að stjórn in er að magnast í þeim ásetn ingi að láta undan Bretum í landhelgisdeilunni, þótt með því verði ekki aðeins þrengt að útgerðinni og afkomumögu leikum hennar, heldur einnig skapað hið hættulegasta for- dæmi í sjálfstæðisbaráttu þjóð arinnar. Þótt þetta fyrirsjáanlega undanhald stjórnarinnar komi mörgum á óvart, sem minnast yfirlýsinga stjórnarliða á fram boðsfundunum fyrir alþingis kosningarnar, er fóru fram í fyrra, þarf þetta þó ekki að koma svo mjög á óvart. ef litið er lengra aftur í tímann. Báðir stjórnarflokkarnir hafa jafnan verið hálfir og ótrygg- ir í fylgi sínu við 12 milna fiskveiðilandhelgina, þótt þeir þyrðu ekki annað en að styðja hana í orði vegna „háttvirtra kjósenda“, er kosningar voru í nánd. Nú vonast stjórn arflokkarnir til þess, að kosn ingar verði ekki fyrr en eftir þrjú ár og því sé óhætt nú að sýna hina réttu stefnu Kjós- endur verði farnir að glevma, þegar kosið verður næst. Afstaða Siálfstæðis- flokksins 1958 í umræðum þeim, sem hafa farið fram í efri deild. hefur það verið upplýst, án mót- mæla af háhu Siálfstæði'jft að hann vildi ekki standa að útgáfu reglugerðarinnar um Sennilegast hefðu Bretar aldrei gripið til ofbeidisaðgerðanna á íslandsmiðum, ef þeir hefðu ekki treyst á undan- hald Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins. Myndin sýnlr enska herskipið Duncan vera að hindra Þór í því, að halda uppi löggæzlu innan fiskveiðilandhelgi íslands. 12 mílna fiskveiðilandhelgina, þegar hún var gefin út í maí- mánuði 1958, og seinustu vik urnar áður en reglugerðin kom til fullrar framkvæmdar 1. sept. 1958, reyndi bæði Mbl. og flokkurinn að hindra það á allan hátt. Alþýðuflokkurinn var raunverulega á sama máli, þótt hann drattaðist nfeð vegna þátttöku sinnar í ríkis stjórninni. Meðal útlendinga skapaði þetta það álit, að íslendingar væru klofnir í málinu. Bretar töldu sig því ekki þurfa annaö en að ganga á lagið, því að íslendingar myndu sundrast og láta und an, ef þeir mættu nægilega hörðum mótgangi. Svo virð- ist nú sem þessir útreikninsar Breta ætli að reynast réttir að öðru leyti en því, að betta hefur tekið þá nokkuð lengri tíma en þeir hafa búizt við. íslenzka þjóðin stóð nefnilega nokkurn veginn einhuga og forkólfar stjórnarflokkanna þurftu að breyta stjórnar- skránni og fleyta sér yfir tvennar þingkosningar áður en þeir gætu þóknast Bretum. Fyrir þær kosningar urðu for kólfar stjórnarflokkanna að látast vera hinir skeleggustu í málinu, og lofa því að hopa hvergi á verðinum um 12 míl- urnar. Nú er farið að sjást í efndirnar. Svikaferil! í áföngum Ef haft er yfir sögu -»d- helgismálsins þrjú seinustu árin, blasir þar sannarlega við ófögur mynd þess. hvernig hægt er að biekkja kjósendur með fögrum fyrirheitum sem °kki er ætlunin að standa við. Fyrir vorkosningarnar 1959 °t,anda báðir stjórnarflouuTrn ir að því að Alþingi gæfi þá yfirlýsingu, að fiskveiðiland- helgin skuli hvergi vera minni en 12 mílpr, þ.e. að útlending ar fengju ekki að veiða innan tólf mílnanna. Bæði fyrir vor kosningar og haustkosningar í fyrra, hömruðu frambjóðend ur stjórnarflokkanna á því að frá þessari stefnu myndu fiokkar þeirra ekki hvika. Síðan Genfar-ráðstefnunni lauk síðastl. vor, hafa for- vígismenn stjórnarflokkanna bersýnilega verið að leita að leiöum til þess að bregðast þessum loforðum, en hins veg ar af ótta við kjósendur talið rétt að fara varlega og í á- föngum. Fyrst er það tilkynnt fyrir þremur mánuðum, að stjórnin hafi fallist á viðtöl við Breta. Þetta eigi hins veg ar ekki að leiða til neinna samninga, en það sé dónaskap ur að neita um viðræður þeg- ar óskað sé eftir þeim. og með því fáist tækifæri til að kynna málið! En það yrði ekki neitt samið, þjóðin geti verið örugg í þeirri trú. Með þessum mál- flutningi var reynt að fá menn til að sætta sig við við- ræðurnar og margir liðsmenn stjórnarflokkanna munu hafa tekið þetta sem góða og gilda vöru. Bn þegar búið er að fá liðsmennina til að sætta sig þannig við viðræðurnar. er byrjað að ympra á því, að kannske sé nú ekki svo vit- laust eftir allt saman að láta Bret.a fá einhverjar undanbág ur. Á þessu er hamrað nú og verður hamrað næstu daga, unz jarðvegurinn þykir undir búinn til að tilkvnna samn- ingana, sem búið er að gera "■'* Breta. Þennan feril leiðtoga stjóm arfl. mætti kalla svikaferil í áföngum Hann er ömurlegt dæmi þess bvernig óvanfiaðir stjórnmálamenn fara að þvi að blekkja liðsmenn sína og afla sér valda með fölskum forsendum. ur í landhelgismálinu, heldur hættulegur ósigur í sjálfri sjálfstæðisbaráttunni við næstu dyr. Alveg ólíkt Hver er skýringin? Nú munu ýmsir spyrja, hvort ekki sé hægt að finna forkólf- um stjórnarfiokkanna eitt- hvað til afsökunar í þessu máli. Vitanlega hafa þeir eng ar málsbætur til aö réttlæta það, að þeir lofuðu kjósend- um því, sem þeir ætluðu sér aldrei að standa við, eins og líka er komið á daginn. En skýringuna á því alvöruleysi og ístöðuleysi þeirra er að sjálf sögðu ekki sízt að finna í því, að landhelgismálið er þeim ekki nægilega mikið áhuga- mál, eins og sást á afstöðu þeirra 1958. Við þetta bætist svo, — og ef til vill er það að- alskýringin, — að þeir mis- skilja alveg afstöðu íslands í vestrænu samstarfi Þeim finnst ísland vera þar hinn litli bróðir, sem verði að dansa eftir pípu stóru bræðranna, Bretlands og Bandaríkjanna, og ísland verði að sætta sig við skarðan hlut og jafn- vel þrengja að landsréttindum sínum, ef stóru bræðurnir fara fram á það. Viðhorf þeirra til vestrænnar samvinnu stjórn- ast af undirlægjuhætti en ekki heilbrigðum þjóðlegum metnað. Þeir hafa sömu minni máttartilfinninguna gagnvart Bretum og Bandaríkjamönn- og kommúnstar hafa gagnvart Rússum. Þetta viðhorf er full komlega hættulegt, eins og nú er að sjást greinilega í land- helgismálinu. Ef vestrænt samstarf á að reynast íslend- ingum hollt og hagkvæmt, verður ísland að halda þar vel á hlut sínum ot levfa ekki að gengið sé neitt á rétt þess, þótt stóru bræðurnir eigi í hlut. Vegna þess, að forvígis- menn stjórnarflokkanna skort ir þennan skilning og metnað bíður ekki aðeins mikill ósig- Margt bendir til þess að for kólfar stjórnarflokkanna séu að verða hræddir við afstöðu sína. Þess vegna hafa þeir gripið til þass hálmstrá að reyna að Y Æa saman samn- ingamakl: sitt við Breta nú og viðtöl þau, sem áttu sér stað við Atlantshafsbandalagið sumarið 1958. Þetta tvennt er þó ósambærilegt á a.v>n hátt, eins og áður hefuv ^erið bent á hér í blaðinu. til sönn- unar skal aðein& bent á eftir- f arandi: 1. Viðræðurnar yKJ Nato voru teknar upp ssmkvæmt þeirri skuldbindingu, er þát't- tökuríkin hafa undirgengizt, að reynt sé að koma í veg fyrir árekstra milli þeirra. Þær voru m. ö. o. hafnar vegna skuld- bindinga, er við höfðum geng izt undir af fúsum og frjáls- um vilja. Viðræðurnar nú eru hins vegar hafnar að kröfu erlends stórveldis, sem hótar ella að beita okkur ofríki. Þar er því verið að láta undan er- lendum yfirgangi og með því skapað hættulegt fordæmi. 2. Þegar viðræðurnar fóru fram við Atlantshafsbanda- lagið 1958, var allt í óvissu um, hvort erlend ríki myndu við- urkenna útfærslu á fiskveiði- landhelginni, þótt við hefðum réttinn okkar meginn Nú hafa hins vegar öll ríki viðurkennt í verki útfærslu fiskveiðiland helginnar í 12 mílur, nema Bretar. Tilraunir þeirra til togveiða undir herskipavernd innan fiskveiðilandhelgi ís- lands, hafa reynzt alveg mis heppnaðar. Siaur 12 mílnanna má því heita alger. 3. Viðræðurnar við Atlants hafsbandalagið 1958 snerust eingöngu um það. að fá viður kenningu fyrir stærri fiskveiði landhelgi en þá var. Þær stefndu að útfærslu og stækk- un fiskveiðilanribelginnar. Við ræðurnar við Breta snúast hins vegar um það að færa fiskveiðilandhelgina inn aft- ur, a. m. k. í reynd, þótt, 12 mílna fiskveiðhanrlhelp’i ver<*ii ef til vill haldið áfram á papp írnum. 4. Með þvi að l’áta nú undan hótunum Breta og hefja við þá viðræður um raunverulesra smækkun fiskvpíðjlandViPigr- innar, — þegar sigur 12 míln- anna er þó orðinn fullkominn í reynd, — er ekki aðeins iáf ið undan síga í landbelerismál inu. heldur skapað bættuleg- asta fordæmi í sjálfstæðísbar áttu þjóðarirmar vfirlpitt Mpð (Framhald á 15. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.