Tíminn - 13.11.1960, Side 9

Tíminn - 13.11.1960, Side 9
T f MIN N, sunnudaginn 13.' nóvember 1960. 9 U4T? Áz/aána mrr Þegar við litum út um glugg- ann sáum við að loftið var skýj- að um morguninn, norðaustan andvari og ekki útlit fyrir sól- skin. Þó var að mestu leyti fjalla . bjart. Við hefðum kosið það betra. Við vorum staddir á Sunnu- hvoli á Djúpavogi í þeim erind- um, að Eðvarð Sigurgeirsson ljós myndari var að byrja að taka kvikmynd af Austurlandi fyrir Austfirðingafélagið á Akureyri, ’ og átti ég að heita leiðsögumað- j ur hans í ferðinni, sökum kunnug; leika á þessum slóðum. Við höfð-1 um fengið glampandi sólskin við ; myndatökuna í Breiðdal daginn áður ,og næstu daga vorum við einnig heppnir með veður. Aust urland brosti sinu fegursta brosi, og Austfjarðaþotían lét lítið á sér bera. Við ferðafélagarnir gengum niður í þorpið frá Sunnuhvoli og bárum myndavélarnar. Á kirkjuaurunum staðnæmdumst við og þar voru teknar myndir af kirkjunni og nokkrum fleiri húsum. Þarna blasti við okkur i gamla prestsetrið Hraun, sem stendur þarna í fögrum hvammi undir einu klettabeltinu. Þarna bjó séra Jón Finnsson meðan hann var prestur á Djúpavogi. Og þarna ólust uy p tveir bræð- ur á tveimur fyrjtu áratugum aldarinnar, sem síðar urðu báð ir þjóðkunnir menn fyrir gáfur og aðra hæfileika. Þessir bræður eru þeir Eysteinn Jónsson, fyrr- verandi ráðherra og séra Jakob Jónssorr í Hallgrimssókn. Neðar á aurnum stendur gamli barnaskólinn eitt af elztu stein- húsum á Austurlandi frá árun- um 1911—1912. Hann er lágreist ur í samanburði við skólahúsin núna. Ég minnist þess nú, að í þessu litla húsi hóf ég mína skólagöngu. Þá var þar kennari Bjarni Eiríksson, síðar kaup- maður í Bolungavík, nú nýlega látinn. — Minningarnar streyma að á þessum slóðum, en fátt af þeim verður hér sagt, enda ekki allt erindi til almennings, sem bærist í hugarheimi einstaklings ins. Við félagar héldum leið okk- ar áfram gegnum þorpið fram hjá Gamla Hótelinu, sem nú er orðið hrörlegt, en var byggt afl miklum myndarskap á sínum tíma. Við héldum áfram fram hjá Framtíðinni, nýja barna- skólanum og upp að Bónda- vörðu. En það er gömul, stór insiglingavarða á háum kletti laustan við þorpið. Þaðan er mjög víðsýnt. Vogurinn fagur og lygn blasir við okkur, en hinum megin við hann eru verzl unarhús kaupfélagsins, bryggj-j urnar cg hraðfrystihúsið. Sér- i kennilegast af þessum húsum er í Langabúðin, tvö hundruð ára j gamalt bjálkahús. Ef til vill j minnist ég á hana siðar. Frá Bóndavörðunni sézt yfiri allt þorpið og sérkenni þess. Ekk ert þorp er líkt Djúpavogi. íbúð- arhúsin eru dreifð í hvömmum milli klettabeltanna. Tún er í kringum hvert hús. Einhver bú- skapur er á hverju heimili, þó að fiskiveiðarnar séu aðalat- vinnugreinin. Svona leikur efnishyggjan á okkur. Ég er farinn að tala um atvinnuvegi, afkomu, nytsemi, en ætlaði þó að tala um ailt annað. Víkjum aftur að útsýn- inu. Það er skemmtilegra. Héðan frá Bóndavörðunni sézt Papey í austri — ævintýraeyjan, sem Paparnir gerðu að bústað sínum. 1 suðri er Álftafjörður fjöllum krýndur. Sjaldan er þess minnzt, að þarna voru þeir Ing- ólfur og Leifur hinn fyrsta vetur Austfirzki piramídinn við voginn fagra á íslandi, og sá vetur var svo mildur og góður, að þeir ákváðu að flytja hingað. — og þarna er tíðarfarið enn milt og gott. Næstur Álftafirðinum er Ham- arsfjörður með reglubundnari klettabeltum en ég hef annars staðar séð. Skammt innan með Hamarsfirðinum er bærinn Strýta. En þar ólust þeir upp listamennirnir kunnu Ríkarður Jónsson myndhöggvari og Finn- ur Jónsson, listmálari. — Háls- þinghá á sína listamenn enda er umhverfið sérkennilegt og vel til þe?s fallið að vekja blund- andi listhneigð. 1 vestri gnæfir Búlandstind- ur yfir þorpið eins og egypzkur pýramídi, eitthvert fegursta fjall á Austurlandi. Og í norðri er Berufjarðarströndin með brosandi bændabýlum. Hér er góður sjónarhóll til myndatöku. Eðvarð tekur mynd ir í allar áttir. En flestar mynd- ir tekur hann þó af Búlands- tindi. Þessi tindur heillar hann með fegurð sinni. Og Eðvarð kann vel að meta fegurðina, hvar sem hún birtist. Síðar í ferðinni fengum við tækifæri að ná mynd af Bú- landstindi í sólskini og njóta þessa dýrðlega útsýnis við frið-! sæla síödegissól. Því er ekki hægt að lýsa. Þegar ég lít yfir þetta þorp, minnist ég þess, að þetta er eitt af elztu verzlunarstöðum á Austfjörðum. Hér hefur verið ríkmannlegt heimilishald kaup- manna og sýslumanna og héð- an hefur margur fátæklingur- inn farið hryggur í huga, þegar hann fékk ekki úttekt vegna skulda. — Gaman væri að geta skyggnzt inn í sögu þessa stað- ar? Hvaða fólk hefur búið hér á liðnum öldum? Ofe héðan frá Bóndavörðunni sé ég ekki leng- ur Djúpavog eins og hann er í dag, heldur eins og hann hefur verið á liðnum öldum með verzl unarhúsum úr timbri sunnan við voginn og litlum ibúðarkof- um úr torfi og grjóti inn á milli klettanna. Og mér verður litið út á sjó- inn. Þar hefur gerzt mörg harm- saga. Þarna eru Papeyjarálar, sem eru þekktir fyrir straum- hörku og úfinn sjó. Og mynd- irnar þyrpast fram í huga mér. — Þarna drukknaði Jón Þor- varðsson eldri í Papey á heim- leið frá Djúpavogi. — Þarna fórst báturinn með Þorstein Melstein trésmið, en hann var að flytja trjávið í Papeyjar- kirkju. — Og hér í Papeyjar- Eiríkur Sigurðsson, skólastióri á Akureyri, bregtiur upp gömlum svipmyndum frá Djúpavogi álnum drukknaði séra Eiríkur Höskuldsson, sem áður hafði ver- ið prestur að Hálsi í Hamars- firði, en var þá bóndi i Papey. Og þannig mætti lengi telja. En sú upptalning hefur ekki gildi nema einnig fylgi eitthvað úr sögu þessa fólks. Og enn sé ég fyrir mér at- burð einn, þegar ég lít út í Hlífólfsskerið. Sagt verður hér frá honum í stuttu máli. Þetta gerðist miðvikudaginn 27. marz frostaveturinn 1918. — Þá geysaði norðan stórhríð hér á þessum slóðum. Tveir vélbátar frá Norðfirði, Sæbjörg og Sæ- farinn, eru á leið til lands úrj róðri. Sæbjörg komst upp í Bóndavörðulágina. En þegar Sæfarinn kemur inn að Svarta skeri þraut olían. og rak svo bátinn upp í Hlífólfsskerið. All- ir mennirnir fjórir björguðust upp í skerið. En þar var köld vist, því að særokið gengur stöð- ugt yfir þá og hver dropi frýs á þeim. En ofurlítið lægði veðr- ið um það leytið sem slysið vildi til og gerði það björgunina auðveldari. En Djúpavogsmenn hafa hrað j ar hendur, þegar þeir sjá slysið, því að þeir höfðu auga með bátunum. Þeir setja lítinn bát yfir tangann frá Vognum aust- ur í Bóndavörðulágina, þar sem Sæbjörg var. Með henni fóru þeir út að skerinu, lægðu sjóinn með olíu, og með því tókst þeim að láta bátinn reka á taug út að skerinu og bjarga mönnun- um, sem voru mjög þrekaðir, enda höfðu þeir verið í skerinu 4—5 stundir. Má segja, að þeim væri bjargað úr bráðum háska. Einn af þeim, sem stóð að þess- ari vasklegu björgun var Lúðvík Hansson, hinn góðkunni skip- stjóri á Djúpavogi. Það er ánægjulegt að rifja upp þessa manndáð sjómannanna á Djúpa vogi. Þannig er björgunin úr Hlífólfsskeri í stuttu máli sögð. Rétt innan við Djúpavog er jörðin Búlandsnes. Sennilega er það landnámsjörð. Þar var eitt sinn sýslumannssetur. Þar bjó Marteinn Tvede sýslumaður. Hann fluttist til Reykjavíkur 1938 og lézt skömmu síðar. En ekkja hans fluttist aftur til Djúpavogs, og elzta dóttir hans varð kaupmannsfrú á Djúpa- vogi um tugi ára Þetta fólk hefur því komið mjög við sögu Djúpavogs. EIRIKUR SIGURÐSSON, skólastjóri. Búlandsnes var einnig læknis- setur í mörg ár. Þar bjó hinn vinsæli læknir þeirra Berfirð- inga, Ólafur Thorlacius. Synir hans eru margir þjóðkunnir menn: Sigurður, skólastjóri Austurbæjarskólans (látinn), — Birgir ráðuneytisstjóri og Krist ján ráðuneytisfulltrúi. Barnabæk ur Sigurðar Thorlacius „Um loftin blá“ og „Sumardagar“ gerast einmitt á þessum slóðum. En nú er Búlandsnes í eyði og ósköp ömurlegt að líta þang að heim fyrir þá, sem notið hafa gestrisni þeirra læknishjónanna í hlýjum og vistlegum salarkynn um. Saga fólksins og landið er samofið í eina heild. Saga Djúpa vogs er það umhverfi, sem þar ríkir, með fögrum fjölíum og bláum sundum, en jafnframt líf fólksins, sem þar hefur lifað í sorg og gleði. En saga þessa fólks verður alltaf að mestu leyti óskráð. Við vitum aðeins um nokkra einstaklinga, helzt þá er einhver mannaforráð höfðu. Hér bjuggu valdamiklir kaupmenn og eitt sinn var hér sýslumannssetur, eins og áður hefur verið drepið á. Hér vil ég segja ofurlítið frá nokkrum atburðum, sem gerzt hafa á Djúpavogi, — valdsviði Djúpa- vogsverzlunar og tveimur verzl- unarstjórum hennar. Djúpivogur er einn af þeim stöðum hér á landi, sem varð fyrir Tyrkjaráninu 1627. Tvö ræningjaskip komu þar inn og lögðust gegnt Berunesi rétt á móti Djúpavogi. Fóru ræningj- arnir þaðan á þremur bátum yfir fjörðinn. Þetta var síðari hluta nætur. Danskt kaupskip lá á höfninni. Tóku þeir allt fólk í kaupskipinu og verzlunar húsunum í svefni, alls 15 manns. Á Búlandsnesi og Búlandsnes- hjáleigu handtóku þeir 17 manns, þar á meðal 6 vergangs- menn, en Búlandsnes var þá kristfjárjörð. Bóndinn á Bú- landsnesi, Guttormur Hallsson, skrifaði hingað úr útlegðinni, en ekki auðnaðist honum að kom ast hingað aftur. Ýmis örnefni eru þarna frá þessum tímum. Má þar nefna Álfheiðarskúta ofan við Búlands nes. Sagnir segja að í þessum skúta hafi kona með þessu nafni bjargast undan Tyrkjum. Ekki verður hér farið lengra út í þetta mál eða lýst hátterni Tyrkjanna í nágrenni Djúpa- vogs. Annar einstæður atburður gerðist á Djúpavogi árið 1670. Danskur verzlunarmaður, Her- Hermann Kock, lenti í einhverj um orðahnippingum við Þorstein Guðmundsson frá Melrakkanesi i búðinni á Djúpavogi. Lauk þeim orðaskiptum með því, að Her- mann skaut Þorstein til bana. En það sem merkilegra virðist er það, að Hermann virðist aldrei hafa fengið neinn dóm fyrir morðið. Önnur eldri skipahöfn er þó við Berufjörð en Djúpivogur. — Það er Gautavík á Berufjarðar- strönd, nokkuð löngu innar vest an við fjörðinn. Þar virðist hafa verið ein aðalhöfn á Austfjörð- um á söguöld, og er hennar víða getið í fornsögum. Þar kom að landi Þangbrandur prestur svo sem kunnugt er. Síðar fluttist höfnin frá Gauta vík til Djúpavogs. Á einokunar- tímunum voru þrjár löggiltar verzlunarhafnir á Austurlandi: Vopnafjörður, Reyðarfjörður og Berufjörður. Verzlunarstaðurinn við Berufjörð var á Djúpavogi að minnsta kosti frá 1602 og sennilega fyrr. Þar voru góð hafnarskilyrði. Verzlunarsvæðið var frá Gvendarnesi til Skeið- arár, og tók þannig yfir suður- hluta Suður-Múlasýslu og alla Austur-Skaftafellssýslu. Þannig hélzt þetta einnig fram eftir 19. öldinni. Má af þessu ráða, hver miðstöð Djúpivogur var á Suðausturlandi allan þennan tíma. Verzlunin á Djúpavogi minnk ar fyrst verulega, þegar verzlun hófst á Papós í Hornafirði 1863. Síðar fluttist sú verzlun á Höfn 1897. Það var Ottó Tuliníus kaup maður, sem fyrstur hóf verzlun á Höfn. Ekki verður hér rakin verzlunarsaga Djúpavogs, en að- eins minnst lítillega tveggja verzlunarstj óranna. Danska verzlunarfélagið Örum & Wulf hafði verzlun á Djúpa- vogi eftir að einokunin hætti fram á þessa öld, er Kaupfélag Berufjarðar var stofnað. Voru verzlunarstjórarnir því oft danskir menn og misjafnlega vin sælir. Þóttu þeir gera manna- mun og vera oft harðir við fá- tæklinga í viðskiptum. Þessir menn voru valdamiklir, en höfðu þó sína húsbændur yfir sér. Um aldamótin 1800 var ís- lenzkur maður verzlunarstjóri á Cjúpavogi. Hét hann Jón Stefáns son og var frá Ormsstöðum í Breiðdal. Kona hans, Elín Katrín var af dönskum ættum. Hann var verzlunarstjóri til dauða- dags 19. nóv. 1818, þá 51 árs að aldri. Jón var mikill bóka- maður og stofnaði lestrarfélag á Djúpavogi. Hann sendi einnig handrit til Bókmenntafélagsins í Kaupmannahöfn Hann var j hagmæltur og eru Ijóð hans (Frambald á 12. síðu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.