Tíminn - 13.11.1960, Side 14

Tíminn - 13.11.1960, Side 14
14 T f MI N N, sunnudaginn 13. nóvember 1960. hana nauðuga, en þá ættl hún einskis annars úrkosta. Bn ef Kate giftist ekki, voru litlar líkur til þess að hún sjálf fengi Buck Harper sem eiginmann. Einstöku sinum gramd- ist henni við sjálfa sig þeg- ar hún hugsaði til þeirrar áköfu löngunar sinnar að giftast Buck, þessum fádæma hrakfallabálki, en hún von- aðist til að geta komið hon- um til manns, og hún skyldi a.m.k. sjá til þess að rolling- arnir hans fengju sómasam- legt uppeldi. 5. kafli. Clay gekk upp stíginn, sem var varla sjáanlegur og hon- um fannst eins og hann mundi kafna ef hann losnaði ekki út úr rakanum og einmana- kenndinni í þessum af- skekkta dal. Það var eins og að sitja i einsmannsklefa! Honum hryllti við, og kaldur sviti spratt fram á enni hans, er hann hratt frá sér hugs- uninni. Stígurinn var tæplega fet á breidd. Beggja vegna stigs- ins uxu háir runnar, sem hann þekkti ekki nöfn á, en íbúar dalsins höfðu rutt sér brautir um fyrir óra löngu. Hann stanzaði og horfði um öjl, og í fyrsta sinn uppgötvaði hann, að útsýnið þaðan sem hann stóð, var eitt hið feg- ursta, sem hann gat hugsað sér. Hvítfyssandi elfurin, litlu húsin og fjólubláar hæðir i bakgrunni var áhrifamikil mynd, sem orkaði heillandi á hug hans. Eftir stutta viðdvöl hélt hann göngunni áfram og kom loks að rjóðri einu. Hann rak í rogastanz, því að beint fyr- ir framan hann lá hún á hnjánum með stóra körfu sér við hlið og tíndi uppí hana jurtarætur, sem hún gróf var- lega upp úr jörðinni. Hann virti líkama hennar fyrir sér í nýju Ijósi, og hin hreínskiln- islegu orð ekkjunnar rifjuðust upp fyrir honum. Hún var falleg, um það var ekki að villast. Þótt hún væri moldug um hendur og i and- liti, þótt kjóllinn hennar væri óásjálegur, skórnir klossaðir og hárið úfið, þá var Kate tví- mælalaust fallegasta kona, sem hann hafði séð. En það var ekki fegurð hennar ein, sem fékk hjarta hans til að slá hraðar. Kate var sjálf freistingin holdi klædd, mun- aður, sem vakti girndarhug hvers manns, sem 4 hana horfði. Aðdráttarafl hennar lá ekki í fegurðinni einni né né heldur þvl hve fáklædd hún var. Sem hann stóð þarna og góndi á stúlkuna, hálf- bogna, svo að kjóllinn féll þétt að líkama hennar, virti fyrir sér ávalar lendar henn- ar og hvíta húðina, varð hann gripinn æðislegri löngun til þess að hlaupa að henni og láta undan þeim villtu hvöt- um, sem loguðu í skapi hans; — og skeyta engu um afleið- i PEGGY GADDYS: —Ekki allir, Kate! Eg hef átt í smábrösum við hann og veit, hvernig tökum á a.ð taka hann. — Þú — og Matt? spurði hún og trúði ekki sínum eigin eyrum og horfði vandlega á hann til þess að leita ein- hverra merkja um áflog á grönnum líkama hans. — Han'h Votn ekki við mig, Kate!, mæiti hann hlæjandi, 8 • ☆ DALA - stúlk an ingarnar... Allt i einu fann hún á sér, að hún var ekki ein. Glæst eins og hind stóð hún upp og sneri sér að honum og lyfti beittum hnífnum líkt og til varnar. Hún galopnaði augun og mátti sjá, að hún hafði föln- að þrátt fyrir sólbrunann í andlitinu. Þegar hún háfði gert sér ljóst, að það var hann, lét hún hnífinn síga og slakaði á herptum vöðvum líkamans. — Clay, þú gerðir mig dauðhrædda! sagði hún og hló, en titraði dálítið. — Hélztu það væri Matt? spurði hann. — Já, hann reynir svo oft að læðast aftan að mér. — Hvað mundi ske, ef hon- um tækist það? — Þá yrði ég að giftast honum, ef ég lifði það af, svaraði hún einlægri röddu. Clay fann hversu bræðin svall í brjósti hans, og hann varð að bíða stundarkorn, áður hann gæti svarað. — En — veit faðir þinn ... — Já, honum finnst heimskulegt af mér að vilja ekki giftast Matt, sagði hún og varð niðurlút. — Auk þess mundi Matt drepa hann, ef hann skipti sér af því. — Ég hefði ekki trúað, að nokkuð þessu líkt gæti att sér stað í heiminum í dag, mælti Clay. — En þú ættir þó að vita, að allir eru hræddir við Matt hérna. — en mér veittist sú ánægja að henda honum út um dyrn- ar og út á götu. Þú getur ekki ímyndað þér hvað það var gaman! Hann vissi, að hann virkaði á hana eins og montinn hani, en hann kærði sig kollöttan. — Gerðir þú það? spurði hún. — Þetta er alls ekki til að hrósa sér af, Kate, en ég skal segja þér frá leyndarmálinu, sagði hann. — Það er til nokkuð sem heitir júdó, og sá, serm kann að beita því, hefur í fullu tré við karla eins og Matt, jafnvel þótt hann sé ekki nema meðal- maður að kröftum. Jafnvel þú gætir ráðið við hann, ef þú kynnir júdó, og ég er fús til að kenna þér undirstöðuatr- iðin. Eftir tveggja mánaða þjálfun myndir þú ekki þurfa hníf þér til varnar, ef hann gerðist nærgöngull við þig. Hann talaði hratt og sann- færandi, en svo virtist sem hún hefði ekki tekiö eftír neinu öðru en þvi, að hann hafði fleygt Matt á dyr. — Var nokkur áhorfandi að þessu? — Já, við höfðum nokkra þakkláta áhorfendur, sagði Clay brosandi. — Þú hefur sem sagt hrætt hann í burtu. Þá á hann milli þess að velja að flytjast úr byggðinni eða drepa þig, mælti hún. — Hann hlýtur að hafa haft í frammi ósvikna ógnar- stjórn gagnvart fólki? — Hann er stór og sterkuri og enginn kærir sig um að komast í kast við hann. Kate leit aftur til hans, eins og hún gæti ekki skilið neitt af því, sem hún hafði heyrt. — Hann er stór og sterkur og heimskur, ságði Clay. — Kannast þú við söguna af Davíð og Golíat? — Fólk á eftir að talá um þetta í allri sveitinni, sagði hún lágt, — og hann á eftir að sleppa sér af reiði og hatri. Hann fær enga uppreisn nema með því að drepa þig með ber- um hnefunum. — Ó, minn guð! Mikið er ég hræddur! sagði Clay hlæj- andi. — En eigum við ekki að tala um eitthvað annað. Hvað ertu að gera? — Ég er að tína grös. Þau eru notuð í meðul, en ég veit ekki hvernig eru notuð. Allt í einu horfði hún fram- an i hann og það voru tár í augum hennar. — Ó, Clay, það er svo margt sem ég veit ekíti! Hann lagði handlegginn ut- an um hana og þrýsti henni laust að sér. Hann fór með hana eins og barn, sn strax og hann snerti hana varð hann að hafa hemil á tilfinn- ingum sínum, ef hann átti ekki að missa vitið/ — Vertu róleg, Kate, sagði hann með skjálfandi röddu. Vitrustu menn eru fjarri því að vita allt, sem vitað verður. Fínar borgarfrúr mundu ekki þekkja muninn á eitruðum svepp og lyfjagrasi. — En þú veizt svo afskap- lega mikið Clay, sagði hún og horfði til hans með þakklæti. — Nei, hættu nú!, sagði hann og hló. — Ég er nú tví- mælalaust einn af heimsk- ustu mönnum, sem þú hefur komizt í kynni' við/ En nú skulum við gera samning. Ef þú vilt kenna mér það, sem þú veizt um þessi grös, þá skal ég kenna þér það, sem stendur í bókunum. Sam- þykkt? Hún kinkaði kolli til sam- þykkis, og þau gengu saman UTVARPIÐ Sunnudagur 13. nóvember: 8.40 Fjörleg músik í morgunsárið. 9.00 Fréttir. 9.10 Veðurfregnir. 9.20 Vikan framundan. 9.35 Morguntónleikar. 11.00 Messa I Dómkirkjunni (Prest- ur: Séra Friðrik A. Friðriksson próf á Húsavík. Organl.: Dr. Páll ísólfsson). 12.15 Hádegisútvarp. 13.10 Afmæliserindi útvarpsins um íslenzka náttúru; III. Hraun og eldstöðvar (Dr. Sigurður Þór- arinsson jarðfr.). 14.00 Miðdegistónleikar: Ný tónlist frá Norðurlöndunum fimm (hljóðr. á kirkjutónl. í Stokk- hólmi 10. sept. s.lá. 15.30 Endurtekið efni: „Örvænting", einleiksþáttur eftir Steingerði Guðmundsdóttur, fluttur af höfundi. 15.45 Kaffitíminn: Jósef Felzmann Rúdólfsson og félagar hans leika. 16.00 Veðurfregnir. 16.15 Á bókamarkaðinum (Vilhj. Þ. Gíslason útvarpsstjóri). 17.30 Barnatimi (Skeggi Ásbjarnar- son kennari). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þetta vil ég heyra: Anna Sig- ríður Björnsdóttir velur sér hljómplötur. 19.30 Fréttir og íþróttaspjall'. 20.00 Musterin miklu í Angkor; IV. Hversdagssaga nútímans (Rann veig Tómasdóttir). 20.30 Kórsöngur: Kvennakór Slysa- varnafélagsins og Karlakór Keflavíkur syngja. Söngstjóri: Herbert Hriberschek. Einsöngv arar: Snæbjörg Snæbjairnar- dóttir og Jón Sigurbjörnsson. Píanóleikari: Ásgeir Beinteins- son. 21.00 Á förnum vegi (Stefán Jónsson fréttamaður og Jón Sigur- björnsson magnaravörður sjá um þáttinn). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.05 Danslög, valin af Heiðari Ást- valdssyni danskennara. 23.30 Dagskrárlok. Mánudagur 14. nóvember: 8.00 Morgunútvarp. 8.30 Fréttir. 9.10 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 13.15 Búnaðarþáttur: Rödd úr sveit- inni Þórarinn Helgason í Þykkvabæ). 13.30 „Við vinnuna": Tónleikar. 15.00 Miðdegisútvarp. 18.00 Fyrir unga hlustendur: „For- spil“, bernskuminningar lista- konunnar Eileen Joyce; TV. (Rannveig Löve). 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir. 19.30 Fréttir. 20.00 Um dáginn og veginn (Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur). 20.20 Einsöngur: Magnús Jónsson syngur ítalskar óperuairlur eft- ir Donizetti, Puccini og Leon- cavallo; Fritz Weisshappel leik- ur undir á píanó. 20.40 Úr heimi myndlistarinnar (Hjör leifur Sigurðsson listmálari). 21.00 Tónleikar. 21.30 Útvarpssagan: „Læknirinn Lúk as “ eftir Taylor Caldwell; IX. (Rgnheiður Hafstein). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Hljómpl'ötusafnið (Gunnar Guð mundsson). 23.00 Dagskrárlok. EíRÍKUR YÍÐFÖRLI Merki Jómsvíkinga 6 Fjöldi mótsgesta er saman kom- inn á völlunum kringum Vogrums kastala. Verið er að mæla út keppn isstaðinn þar sem Danir og Norð- menn eiga að keppa. Eiríkur víðförli gengur um kring og heilsar gestum. — Velkominn, Knútur, sýndu nú að við Norðmenn getum farið með boga eins og á tíð Einars Þambar- skelfis. Úlfstan, (oriiigi kyr.nir sig. Það or ris* mikiil og aJtki vin- gajrniogur ‘Uiits.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.