Tíminn - 20.11.1960, Blaðsíða 9

Tíminn - 20.11.1960, Blaðsíða 9
g 0777 a ivrr? ■ # Þegar ég var um 10 ára aB aldri, varð ég Friðriks fyrst vör. Eg sá hann með huldu fólki uppi hjá Svörtuklett- um. Þá spurði ég hann, hvort hann væri huldumaður. Sagði hann, að ég mætti kalla sig það. Eg álít, að Friðrik hafi sagt þetta, til þess að ég yrði siður hrædd við sig. En ég hafði áður kynni af huldu- fólkinu og bar traust til þess. En nú veit ég, að Frið rik er mennskur, framliö- inn maður, en enginn huldu maður. Hann er kærleiksrik vera, sem vill hjálpa mönn- um og lina þrautir þeirra. Um þetta leyti var móðir mín mikið veik. Þá var ég orðin kunnug Friðriki, og spurði hann eitt sinn, hvort hann gæti hjálpað móður minni. Hann tók því vel. En ég varð mjög undrandi, er ég sá hann birtast í hvítum slopp eins og læknar nota. Áður vissi ég ekki, að hann væri læknir. En móður minni brá þegar til bata, svo að hún komst á fætur skömmu síðar. Eg sagði henni frá þessu. Og báðar vorum við sann- færðar um, að Friðrik hefði hjálpað henni. Þetta barst til eyrna heimilisfólks og á næstu bæi. Það var upphaf ið að dularlækningum Frið riks. Einn af merkustu atburð um, sem fyrir mig hafa kom ið gerðist kvöld eitt í Öxna felli. Rigning hafði verið um daginn, en ég gekk út um kvöldið. Eg gekk upp fyrir bæinn og sá regnbogann í litskrúði sínu yfir sveitinni. Mér hafði verið sagt, að menn gætu óskað sér ein- hvers, ef þeir kæmust undir enda reignbogans. Kom mér nú þetta i hug. Féll ég þá í einhverja leiðslu þar sem ég sat á þúfu og sá fagurt, dásamlegt lithaf allt í kringum mig. Fannst mér ég vera komin undir enda regnbogans og eiga óska- stund. í þessu einkennilega hrifningarástandi óskaði ég þess af allri sálu minni, að mér mœtti veitast það að geta hjálpað þeim, sem þjást og linað þrautir þeirra. Óskinni fylgdi mikill fögn- uður og hrifning. Enn man ég eftir þúfunni í túninu, þar sem ég sat, þegar þetta gerðist. Þessi stund er mér ógleymanleg. Innskot frá höfundi: Svo virðist sem þessi óeigin- gjarna ósk Margrétar hafi fallið máttarvöldunum svo vel, að þau létu hana ræt- ast. Og ekki verður annað séð en það, að Margrét hafi öðlast þarna heilaga vígslu til þess hjálpar- og liknar- starfs, sem hún hefur helg að líf sitt. Þetta sama kvöld byrjuðu lækningar Friðriks fyrir al- vöru. Þá um kvöldið kom Jóhanne.s Kristjáns^on. aldr aður maður, með mörg lækningabréf austan frá Bærinn í Öxnafelli, æskuheimili Margrétar. Friðrik dularlæknir r / / Á vegum bókaútgáfunnar^ /Fróða í Reykjavík er nýkominí /út bók, sem nefnist SKYGGNA^ / KONAN. Hefur Eiríkur Sigurðs-' /son, skólastjóri, tekið bókina sam- ^an, og er hún um Margréti frá- ^Öxnafelli, rituð eftlr henni og- ^birtar ýmsar lækningasögur,. ^skráðar af öðrum. Hér birtist^ ^með leyfi útgefanda kafli úr bók-f ^inni, og segir frú Margrét þar fráf ^Friðrik dularlæknl. . Húsavík. Voru það fyrstu lækningabeiðnir lengra að. En áður hafði ég verið beð in um hjálp frá Friðriki handa sjúku fólki úr ná- lægum sveitum. Og nú hófst annasamt tímabil i lifi mínu. Hjálpar beiðnir bárust víða að með ferðamönnum, bréfum og símskeytum. Þetta gerðist árið 1924 og þá var ég 16 ára. Mest fékk ég 200 bréf í eínu. Annars skiptu þessi bréf þúsundum, og var til af þeim full kista í Öxna- felli, en þau glötuðust í hús bruna síðar. Ekki gat ég svar að nema fáum bréfum af þessum fjölda, en las þau öll og kom efni þeirra á fram- færi við Friðrik. Ekki veit ég um árangur nema af nokkrum hluta af hjálpar- beiðnunum. Við og við fékk ég þó þakkarbréf fyrir það, að lækningar Friðriks hefðu borið árangur, og hinir ólík legustu sjúkdómar batnað. Þegar ég var beðin fyrir sjúkling, birtist Friðrik venjulega. Mér finnst sam- band mitt við hann mjög náið. Eg þarf ekki að skrifa upp nöfnin. Hann t.ýnir aldrei neinu nafni og sinnir hjálparbeiðnunum Eg get hugsað um þetta við heimilisstörfin og barf ekki nauðsynlega að hafa rtund í einrúmi, meðan lækningin fer fram. En þegar fólk kemur til mín og biður mig fyrir sjúkl inga, þá syfjar mig oft mik íð og dregur úr mér mátt Vera má, að þá sé teKin ein hver orka frá mér til lækn inganna. Oft heyri ég þá raddir, sem segja, að þess- um sjúklngi muni batna. Bregzt það þá ekki. En sé al ger þögn, bendir það til, að sjúkdómurinn sé svo alvar- legur, að hann muni leiða til dauða. Fæ ég á þennan hátt hugboð um árangur af lækningunum. Aldrei hefur Friðrik sagt mér, hver hann var, meðan hann lifði hér í jarðneskum líkama. En mér finnst þó, að hann hafi verið læknir. Að útliti er hann hár og dökkhærður, skiptir hárinu í vinstri vanga og greiðir það aftur. Hann hefur hátt og breitt enni og dökkgrá augu. Þau eru sérstaklega falleg, mild, en þó einbeitt. Framkoman bendir til skap stillingar. Hann er oft.ast í gráum fötum, en stundum í hvítum slopp. Friðrik sá, sem Guðrún frá Berjanesi hefur samband við, er ann ar maður. Þegar ég var beöin fyrir sjúkling, hugsa ég til Frið- riks. Þá heyri ég fljótt svör hans og þekki röddina. Það er eins og símasamband sé á milli okkar. Skilyrði þess, að þessar andlegu lækningar heppnist er, að fólkið sé opið fyrir þeim, segir Friðrik. Oft ger ast þó lækningar án þess að fólk viti. En margs konar misskilningur kom fram fyrst í stað. Sumt fólk hélt, að hafa þyrfti opna glugga eða dyr, svo að Friðrik kæm ist inn. Það er auðvitað mesti misskilningur. Sumir hafa orðið varir við Friðrik í þess um lækningaferðum, en aðra hefur dreymt hann. Stundum er um að ræða bata á sjúkdómum, en í öðr um tilfellum er aðeins breyt ing á hugarfari sjúklings- ins, hughreystingar og frið andi áhrif. Allir læknar þekkja, hve mikils vert það er, að sjúklingurinn hafi trú á bata, og hve andleg ’íðan sjúklingsins er mikils verð. Þá er og vitað, að orsakir sjúkdóma eru oft andlegar. Sem dæmi um nauðsýn trúar á andlegar lækningar er eftirfarandi saga. Tvær gamlar konur bjuggu í sama húsi. Önnur hafði Margrét frá Öxnafelll trú á andlegum lækning- um, en hin ekki. Báðar voru heilsulitlar. En svo aukast veikindi vantrúuðu konunn ar, og virðist henni þá hún hafa trú á lækningum Frið riks. En við þilið hinum meg in lá hin konan, og hafði hún ekki beðið um neina hjálp. Þá dreymir konuna, sem bað um hjálpina, að Friðrik komi til sín og segi eftir litla stund: Hér er ekki hægt að hjálpa, allar leiðir eru lokaðar. En konan hélt að hann ætti við dyrnar eða gluggana. Hún fékk engan bata. En hin konan fékk snöggan bata og komst á fætur. Þakkaði hún það Frið riki. — „Sá getur allt, sem trúna hefur.“ Eitt sinn kom að Öxna- felli gamall maður, Guðm. Jónsson, kennari í Hjalta- staðahvammi í Skagafirði. Hann var góður og ástúð- legur maður. Áður en hann fór, segir hann, að sig langi til að biðja Friðrik að gera svolitið fyrir sig. Ekki vegna þess að hann þurfi þess með heldur vegna annarra. Hann trúi á mátt andlegra lækn inga. Hann sagðist hafa hár lausan blett á höfðinu. Þeg ar hann hafi verið ungur, hafi hann átt erfitt með að hylja hann fyrir ungu stúlk unum. Nú standi sér á sama um hann. En ef Friðrík gæti grætt hár hans á þessum bletti, mundi það gefa mörg um trú á lækningamátt hans. Síðar á þessu sama ári kom Guðmundur aftur að Öxnafelli. Sýndi hann mér þá hár sitt. Var þá hárlausi bletturinn hári vaxinn og ógerlegt aö sjá, hvar hann hafði verið. Var Guðmundur mjög glaður yfir þessu fyr- irbrigði. Eg segi þessar tvær lækn ingasögur sem dæmi um það, hve fólk tekur misjafnt við andlegum lækningum. En ég hef aldrei skrifað neitt hjá mér af lækning- um Friðriks og tel heppi- legra að frásagnir af því komi frá öðrum. En auk lækninganna var Friðrik mér alltaf nálægur og hjálplegur og er enn. Eg ætla að segja hér frá tveim ur dæmum, þar sem hann hjálpaði mér á undursam- lgan hátt. í æsku hafði ég gaman af að vera úti og fór oft ein- förum. Eg var hrædd við vatn, en þó var eins og vatn ið drægi mig að sér. Eitt kvöld að vorlagi fór ég ein út fyrir tún. Þá var mikill snjór og ör leysing. Eg stað næmdist við gildrag eitt, og rann mikill vatnsflaumur eftir gilinu, en stór skafl lá að því. Eg fór út á skafl inn og starðí niður i straum iðuna. En ég gætti þess ekki að vatnið hafði grafið und- an skaflinum. Allt í einu springur skaflinn og fell- ur niður í gilið, en ég hrapa niður í gjótuna. í fátlnu hugsa ég til Friðriks. Þegar ég kom til sjálfrar min aft ur, stóð ég uppi á skaflin- um. Eg er þess fullviss, að í þetta skipti hjálpaði Frið rik mér, en ekki hef ég hug mynd um, hve langur sá tími var, sem ég mundi ekki eftir mér. Sennilega hefur það þó verið stutt stund. Eg var eitthvað undarleg um kvöldið. Og ekki sagði ég neinum frá þessu, fyrr en nokkru síðar. Þegar Þóra systir mín var smábarn, var ég látin gæta hennar. Tvisvar minnist ég þess, að Friðrik hafi tekið Þóru og haldið á henní. En í bæði skiptin var ég ein með hana. Eg álít, að hann geti það ekki í návist fleiri manna. Eitt sinn, er ég var að gæta Þóru, fór ég með hana út á hlað. Eg bar hana á bak inu. Þá prílaði ég með hana upp á spýtur, sem lagðar voru ySir gamlan sleða á hlaðinu. En spýturnar voru svo ónýtar að þær brotn- uðu, og datt ég um leið og missti Þóru. Mér varð bilt við, þvi að ég óttaðist að barnið hefði meitt sig. En þegar ég leit við, sá ég hvar Friðrik hélt á henni og legg ur hana gætilega niður. Hann hafði þá tekið á móti henni, er ég missti hana. Mikið var leitað til mín um lækningar á árunum 1923—1925. Sumarið 1924 gekk lömunarveikin i Eyja firði og kom fólk að Öxna- felli til að Ieita lækninga bæði að nóttu og degi. Gerð (Framhald á 13. síðu).

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.