Tíminn - 20.11.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 20.11.1960, Blaðsíða 11
T i M I N N, sunnudaginn 20. nóvember 1960 11 Páll í vinnustofunni. ViS deyjum einir (Ni llv). Aðal- hlutverk: Jack Fjeldstad, Henry Moan, Alf Balland. Norsk mynd. Sningarsýtaður: Stjörnubíó. Stjörnubíó er nú í þann veginn að hefja sýningar á þessari mynd, sem byggist á sannsögulegum við- burðum í hetjulegri baráttu Norð- manna gegn þýzka hernáminu í síðustu styrjöld. Þessi mynd greinir sérstæða hetju- sögu, sem íslendingum ætti að verða hugleikin. Þeir, sem með aðaihl'utverkin fara, geo-a þeim góð skil. Tækninni er að visu ábótavant ef miðað er við kvik myndaframleiðslu stórþjóðanna, en þar er líka meira um vel tekn ar myndir, sem eru einskis virði að öðru leyti. Þessi norska mynd stendur því framar þorea þeirra mynda, sem hér eru á boðstólum, að hún hefur gildi sem mannlegt plagg, þrátt fyrir tæknilega van- kanta og leiðinlegt undirspii. Jack Fjeldstad í aðslhlutverkinu sem Jen Baalsrud. Myndin er seld til tekna fyrir styrk- ingarheimili þeirra Norðmanna, sem urðu fyrir líkamlegum áföll- um af völdum stríðsins, og þó að sú .ráðstöfun auki ekki gildi mynd arinnar sem slíkrar, þá ætti hún ekki að fæh neinn frá því að sjá hana. — 3.Ó. Ungur Vestmannaeyingur, Páll Steingrímsson, opnaði í gær sýningu í Bogasai þjóð- minjasafnsins, þo ekki mál- verkasýningu, því myndirn- ar eru gerðar með þeim ólík- indum að höfundur þeirra hefur malað ýmsar steinteg- undir og notað sallann til myndgerðarinnar Hér er því ekki um venjulega mósaík að ræða. sandmósaík væri réttara en nánari skil- greining kemur í hlut fag- manna. Páll sýnir 39 mjndir. Fréttamaður leit inn í Bog’asalinn á föstudaginn og spurSi Pál lítillega um þessa sékennilegu mynda- gerð. — Hún kom til mfn í svefni efna nóttina, hugmyndin um að líma steinana svona upp, sagði Páll, og í fjóra mán- uði var ég að leita að bindi efni, það var höfuðvanda- málð. Lausnin var plast- kvoða, hana hef ég notað i allar þessar myndir. — Þú notar íslenzkar bergtegundir? — Já, langmest úr Helga- felli i Vestmannaeyjum. Eg hef mulið þær niður, og eig inlega fært fjallið í mynd- ina ef svo mætti að orði komast. — Geturðu sagt mér meira um vmnuaðferðma? ,— Eg mala fyrst grjótið i ákveðnar stærðir; sigta það, og læt svo grófu fletina vinna á móti sallanum til að fá dýþt í myndina. Eg legg plastkvoðuna undir og teikna með henni, nota við það trektar, sem ég hef smíðað mér sjálfur, teikna með trektinni um leið og límið rennur úr henni, og legg sallann ofan í, oftast ruær ekki nema einn lit í einu. — Er þetta eigin uppfinn ing hjá þér að nota plast- kvoðu sem bindiefni. — Já, ég var eiginlega bú inn að reyna allt mögulegt lím áður en mér datt þetta í hug. Hún bindur ágætlega, Myndin þolir högg, má blotna, ég hreinsa hana með því að sþrauta á hana vatni; hins vegar þola myndimar illa að núost saman og flutningar á þeim eru því nokkuð erfiðir. — Þú gengur frá ramm- anum áður en þú býrð til myndina? — Já, byrja alltaf á ramm anum. —Öfugt við þegar menn nota léreft. — Já, það er eins og hjá Færeyingunum, þeir smíða neggluna fyrst. — Er það trúaratriði? — Ekki veit ég það, en Þftta er sagt sem dæmi uþp á tækni í Færeyjum. — Hvaða steintegundir notarðu mest? — Bruna og vikur úr Helgafelli langmest, brenni stein frá Mývatni nota ég lika til að blanda með aðr ar tegundir, hann tekur vel á móti líminu, eins hef ég notað kalkstein frá Snæ- fellsnesi. — Er þér kunnugt um, Páll, að aðrir hafi notað þessa sömu vinnuaðferð á undan þér? — Eg veit ekki tii þess, annars er ég ekki fróður um kúnst annars staðar en hér á íslandi — Þú hefur ekki fengið hugmyndina úr listbókum? — Nei. Aftur á móti er ekki langt síðan ég las um það að Indíánar notuðu lit sand til myndagerðar, og sjálfsagt hafa flestir þjóð flokkar einhvern tíma not að stein eða sand í þesssu skyni. — Indíánar gera þessar myndir á jörðina, þeir binda ekki sandinn með lími? — Jú, svo hef ég heyrt að myndinni sé eytt um sól- Setur, hún fær ekki að standa nema einn dag. Það er sem sagt trúaratriði. — Það er þá spurningn hvort indíánskir andar muni sjá þessa myndagerð í friði? — Já, það er áhyggjuefni; en enn sem komið er hafa þeir ekki látið á sér kræla. — Hefurðu skýrt þessar myndir? — Já, þær heita allar ein hverjum nöfnum. — Hvað hefurðu kallað þessa? (Mynd með svörtum sand steini í grunni og hvítum grófari salla líkt og hringiðu á miðju). — Eg kalla hana Sköpun. Hún minnir mig á stjörnu- þoku, — ljósið, sem kemur út úr myrkrinu. Hér er önnur, sem ég kalla Sumar fullt af lífi. — Hvar hefur þú gengið á myndlistarskóla? — Eg ætlaði að vera á mynd listarskóla í Kanada á sín um tíma en hafði litil efni Framhald á 13 síðu. Páil mylur grjótið. Leikrit „Moliers" Georg Dandin er sýnt um þessar mundir f ÞjóSleikhúslnu f ágætri sviðsetningu Hans Dahlin frá Svíþjóð. Hér er á ferðinnl ósviklnn Moliere sýning, leikurlnn settur í hið gamla hefðbundna franska lelkform. Myndin er af Bessa Bjarnasyni og Rúrlk Haraldssyr' ' <’,utverkum ungu mannanna í leiknum. — Næsta sýning verður f kv"

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.