Alþýðublaðið - 10.04.1920, Side 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
j-lörmulegt marintjóri.
Tuttugu og níu menn á bezta aldri bíða bana
í baráttunni Yið Ægi.
21. febrúar síðastl. lagði flski-
skipið „Valtýr", eign H. P. Duus
hér í bæ, út til flskjar. Prá þeim
tíma hefir ekkert spurzt til þess,
og eru menn nú úrkula vonar
um, að það sé lengur ofansjávar,
þár eð slík stórviðri hafa gengið
undanfarið, hvað eftir annað, að
skip hafa með herkjum afborið
þau. Fyrirspurnir hafa verið send-
ar í allar áttir, en árangurslaust.
Skipið hafði hjálparvél.
Þessir voru skipVerjar, og er
aldur þeirra og heimilisfang sett
aftan við nafn sérhvers þeirra:
Pétur M. S.gurðsson, skipstjóri,
Evík, kvæntur.
Vilhjálmur Gíslason, stýrimaður,
48 ára Bræðrab.st. 4, kvæntur, 4
börn.
Guðmundur Jónasson, mótoristi,
27 ára, Stýrim.st. 7.
Böðvar Jónsson, matsv., 25 ára,
Bjargarst. 6., kvæntur, 1 barn.
Pall Júníusson, 30 ára, Stokks-
eyri.
Lárus Elíasson, 25 ára, -Ber-
serkjaeyri, Snæfellsn.s.
Brandur Sigurðsson, 27 ára, Ól-
afsvík.
Vigfús Hansson, 21 árs, Sandi.
Fiiðrik Jónsson, 24 ára, Einars-
lóni, Snæfellsn.s.
Ólafur Jónsson, 27 ára, s. st.
Andrés Gestsson, 18 ára, Keidu-
dal, Dýrafirði.
Einar Gestsson, 25 ára, s. st.
Gísli Kristjansson, ]8 ára, Núpi,
Dýraf.
Guðmundur Guðjónsson, 2J. árs,
Arnarnúpi, Keldudal.
Andrés M. Eggertsson, 33 ára,
Haukadal, Dýraf.
Guðmundur ísleifsson, 39 ára,
Bergst.str. 32, ógiftur.
Sig. Guðmundsson, 33 ára,
Bi eiðuvík, Barðastr.s., giftur, 3 böm.
Vaidimar Ólafsson, 23 ára, Vest-
urg. 34, ógiftur.
Jóhann Gíslason, 27 ára, Sel-
árdal, Arnaifirði.
Kristján Jónsson, 32 ára, Njáls-
götu 19, giftur, 2 börn.
Stefán Guðmundsson, 24 ára,
LitlaKambi, Snæf.n.
Guðmundur Eymundsson, 33
ára, Hólmavík.
Jón Guðmundsson, 23 ára,
Mjóafirði.
Sig. Bjarnason, 20 ára, Þingeyri.
Peder Andersen, 40 ára, Mjóa-
firði (Norðmaður).
Guðmundur Pálsson, 24 ára,
Sandi.
Jón Árnason, 21 árs, Hafnarf.
Jósep Sigurðsson, 28 ára, Akra-
nesi.
Kristófer Bjarnason, 25 ára,
s. st., giftur, 3 börn.
Blaðið hefir enn ekki getað
fengið upplýsingar um það, hverjir
af utaubæjarmönnum voru giftir,
eða hvort þeir hafi verið fyrir-
vinna heimilis, en þess mun síðar
getið.
Mikið má" það vera, ef nokkur
er sá, sem ekki fyllist sorgar-
blandinnar skelfingar, er hann sér
að svo margir hraustir drengir
hafa fallið í valinn í baráttunni
við Ægi. Baráttu, sem sjómenn,
ekki eingöngu íslenzkar, heldur
sjómenn allra landa, eru neyddir
til að heyja, tíl þess að sjá sér
og sínum borgið. Baráttu, sem
þjóðfélagið getur ekki komist hjá
að senda úrvalalið til að standa í,
ef það á að geta þrifist. Því meiri
hvöt ætti það líka að vera fyrir
hina, sem í landi sitja, að gera
alt, sem í þeirra valdi stendur, til
þess að eftirlifandi ættingjar þurfi
ekki að fara á vonarvöl, vegna
þess að umhyggjusamur faðir,
sonur eða önnur fyrirvinna, hefir
orðið að fórna lífi sínu í hvíldar-
lausri baráttu sjómannsins fyrir
tilverunni.
Hvað eru drepsóttir og önnur
ósköp, sem yfir mannkynið dynja
á þurru landi, hjá þeim þrautum,
sem sjómaðurinn verður að þola
oft og tíðum, unz hann loks sekk-
ur í sæinn, fjarri öllum ástvinum,
úrkula vonar um það, að fá hvild
í mold feðra sinna? Hvað er
missir þeirra, sem fá að aðstoða.
vininn sinn í baráttunni við dauð-
ann, hjá því að kveðja hann glað-
an og hraustan, en sjá hann svo
aldrei aftur, hvorki lífs eða lið-
inn? Það veit enginn, nema sá,
er reynir! Eina huggun eftirlifandi
ættingja er sú, að þeir finni sam-
úðarölduna, sem að þeim rís á
allar hliðar, að þeir finni það, að
öll þjóðin syrgi hina hraustu sonu,
er gengið hafa til hinztu hvíldar
í úrsvölum faðmi Ægisdætra.
/.
Spánska veikin.
Það er rangt, sem altalað hefir
verið í bænum, að veikindin í
e/s Island séu nákvæmlega eins
og faraldur það, sem nýlega hefir
gengið hér í borginni. Hefir þetta
skraf orðið til þess, að töluvert
hefir borið á óánægju meðal þeirra,
sem fyrir óþægindum verða við
sóttkvíunina, sem er eðlileg af-
leiðing veikindanna.
Veikin í „Islandi“ er langtum
illkynjaðri en sú, sem gengið hefir
hér undanfarið, svo sem sjá má
af bréfi héraðslæknis til lögreglu-
stjóra, sem birt er hér á eftir, og
munu allir bæjarbúar telja sótt-
varnir sjálfsagðar, er þeir hafa.
heyrt hið sanna í málinu.
Bréf héraðslæknis.
Beykjavík, 9./4. ’20.
Formaður sóttvarnarnefndar hefir
farið fram á það, að skýrt væri
ákveðið hvort sjúkdómur sá, sem
fluttist hingað með e/s Islandi, sé
sama veiki, sem undanfarið hefir
gengið hér í bæ.
Eftir upplýsingum sóttvarnar-
læknis verð eg að álíta, að veiki
sú, sem hér um ræðir, sé illkynj-
uð inflúenza, að sumu all lík in-
flúenzufaraldrinu 1918. Bar sem
engar sannanir eru fyrir því, að
veiki sú, sem hér gengur yfir,
gefi ósóttnæmi (immunitet) við
illkynjaðri tegundum veikinnar,
viiðist rétt að sóttvörnum við
þessa veiki verði haldið áfram í
samræmi við þessa skoðun.
Virðingarfylst.
Jón Hj. Sigurðsson.
/