Tíminn - 23.11.1960, Blaðsíða 3
T f MI NjN, miðvikwdagiim 23.„póvember 1960.
Syallarínn að
Flúðum og
Selfossi
Hvolsvelli í gær. — A5 undan
förnu hefur ungmennafélagið
Baldur sýnt hér að Hvoli sjón
leikinn Saklausa svallarann,
við geysilega aðsókn og af-
bragðs undirtektir. Nú tim
helgina hyggst Baldur leggja
land undir fót og sýna að Flúð
um í Hrunamannahreppi á
laugardagskvöldið kl. 9, og á
Selfossi á sunnudaginn kl. 9
síðd. — Borið hefur verið hið
mesta lof á leikflokkinn fyrir
frammistöðuna í Saklausa
svallaranum, og er þess því
að vænta, að fjölmennt verði
á sýningar þessar.
Kammertónleikar í
Austurbæjarbíói
f kvöld og anhað kvöld held
ur Strengjakvartett Björns
Ólafssonar tónleika á vegum
Tónlistarfélagsins og hefjast
þeir kl. 7,15 í Austurbæjarhíó.
Á efnisskránni eru tvö verk. —
Hið fyrra er kvartett nr. 2 op.
36, eftir Jón Leifs, en síðara
viðfangsefnið er kvartett nr.
12 í Es-dúr op. 127, eftir L.v.
Beethoven.
Árið 1947 varð Jón Leifs fyr-
ir því þunga áfalli, að missa
dóttur sína 17 ára gamla, sem
var fiðluleikari. Strengja-
kvartettinn samdi hann til
minningar um dótturina og er,
eins og segir í efnisskránni,
„fyrsti þátturinn um bernsku
hennar og barnaleiki, annar
þátturinn um æsku hennar og
æskuþrá, sem lýkur með dauð
anum, en þriðji þátturinn sálu
messa um eilífðina og uppris-
una“.
Strengjakvartett Beethov-
ens er stórfenglega fagurt
verk, einn af þeim 6 kvartett
um, sem hann samdi síðustu
3 áviár sín.
Er ekki að efa að marga
mun fýsa að heyra strengja-
kvartett Bj örns Ólaf ssonar
flytja þessi verk, en í honum
eru auk Björns, sem leikur á
1. fiðlu, Jósef Felzmann, 2.
fiðla, Einar Vigfússon, cello
og Jón Sen, viola.
Hæstaréttar-
úrskurðar óskað
Enn hefur dregið til tíðinda
í „morðbréfamálinu" svo-
nefnda. í gærmorgun úrskurð
aði rannsóknardómarinn í
málinu að ekki væri hægt að
fallast á framhaldsrannsókn
og vitnaleiðslur vegna ýmissa
atriða, sem verjandinn hefur
gert kröfu um að tekin verði
til athugunar. Sækjandi ósk-
aði eftir því að forsendur fyrir
þessum úrskurði yrðu lesnar
upp, en því var hafnað. Hins
vegar var því lofað að sækj-
andi og verjandi fengju að sjá
forsendurnar áður en um þær
yrði fjallað í Hæstarétti, en
þangað hefur verjandinn vís-
að úrskurði rannsóknardóm-
arans.
Nú er aðeins rúmur mánuður til jóla og undirbúningur þegar í fuilum
gangi. Verzlanir eru í þann veginn að hefja jólaútstillingar — sumar þegar
byrjaðar. Jólatrén eru einnig að koma til landsins, svo sem sjá má af
myndinni, sem Ijósmyndari blaðsins tók á hafnarbakkanum í gærdag. Það
er yerið að skipa upp jólatrjám. (Ljósm.: TÍMINN, KM).
Tvö slys vegna
sólblindu í gær
Annaí á Hafnarfíarííarvegi — hitt á Nóatúni
í gær urðu tvö slys með 10
mínútna millibili vegna sól-
blindu, annað á Nóatúni en
hitt á Hafnarfjarðarvegi. Á
Nóatúninu varð listamaður
fyrir bíl, en á Hatnarfjarðar-
veginum lítil telpa,
Kl. 14,05 var Veturliði Gunnars
son á gangi suður Nóatúnið og
var rétt kominn að gatnamótum
Sigtúns, er bifreið ók aftan á hann.
Hafði bifreiðarstjórinn blindazt af
sólnni, enda var á móti henni að
■aka, og sá ekki gangandi manninn
fyrr en í óefni var komið, enda
hálka á veginum. Engin gangstétt
er þarna.
Kl. 14,15 varð lítil stúlka, Fjóla
Sigríður Harðardóttir, Litlu-
Brekku í Garðahreppi, fyrir bíl á
Hafnarfjarðarvegi, efst norðan í
Hraunholtshálsi. Var hún á vinstri
vegar'brún, en bifreiðarstjóri fjög
urra manna bíls, sem á eftir henni
kom, sá hana ekki vegna sólarinn-
ar.
qt
Þrefaldur
árekstur
Þrír bílar lentu i árekstri á
Strandgötu í Hafnarfirði í
gær. Þar stóðu tveir bílar kyrr
ir, er þriðji bíll kom aftan að
þeim og gat ekki stöðvað
vegna hálku. Rakst hann á
þann aftari og ýtti honum á
undan sér á þann fremri. —
Skemmdir urðu furðu litlar.
Veturliði mun hafa meiðzt í
baki, en var fluttur heim eftir við
komu á Slysavarðstofunni. Fjóla
Sigríður var einnig flutt heim eft-
ir að hafa komið við á Slysavarð-
stofunni, en blaðinu er ekki kunn-
ugt um meiðsli hennar.
Bræla á Sel-
vogsgrunm
Síldveiðin hefur verið treg
eftir helgina, og í gærkvöldi
lágu flestir bátar inni í höfn
um verstöðvanna, þar sem
bræla var á Selvogsgrunni, en
þar hefur helzt verið afli und
anfarið.
Á mánudaginn bárust rúm-
ar 2000 tunnur til Grindavík-
ur, en í gær ekkert, sem telj-
andi er. Vestmannaeyjabátar
voru margir úti, en voru ný-
lega látnir úr höfn, er blaðið
hafði fregnir af.
Til Keflavíkur komu i gær
4 herpinótabátar. Sá afla-
hæsti var með 520 tunnur. —
Akranesbátar komu allir heim
í fyrrinótt, og voru sumir með
dálítinn afla, er þeir komu,
samtals um 1550 tunnur. —
Hæst var Sigurvon með 515
tunnur. Reknetabátar voru
með 10—50 tunnur.
3 !
Brutu boðordin og
hættu að
Eins og lítillegs var sagt
frá í blaðinu í gær hefur
Laugarássbíó nú lokað um
sinn vegna ágreinings við
verðlagsstjóra um aðgöngu-
miðaverð. Samkvæmt verð-
lagsákvæðum má verð að-
göngumiða alls ekki vera
bærra en 27 kr fyrir sætið,
miðað við beztu sæfi en
Laugarássbíó hefur selt mið-
ann á 50 krónur.
Undantek'nng er þó gerð, þegar
kvikmyndahúsið sýnir myndir, sem
vegna tækniútbúnaðar er ekki
hægt að sýna í öðrum kvikmynda-
húsum, en Laugarásbíó hefur sem
kunnugt er tæki til að sýna mynd-
ir, sem teknar eru með svonefndri
Todd-AO aðferð, sem er ein sú
fullkomnasta aðferð, sem þekkist.
TÍMINN hafði tal af verðlags-
stjóra um þetta mál. Sagði hann
að verðlagsákvæði mæltu svo' fyr-
ir, að eigi mætti selja aðgöngu-
miða dýrara en 14,00 kr., 16,00 kr.
og 18,00 kr. á kvöldsýningar, en
vær'i myndin óvenjulega löng, má
leggja 50% á, og verður verðið þá
kr. 21,00, 24,00 og 27,00.
Síðasta mynd Laugarássbíós, Á
hverfanda hveli, tók tæpa fjóra
klukkutíma, en krafðist ekki sér-
stakrar tækni. En sakir lengdar
hennar seldi kvikmyndahúsið inn
á sama verði og á Todd Ao myndir
kr. 25,00, 35,00 og kr. 50,00. Um
mynd þá, sem nú var hætt að
sýna, gegndi að öllu leyti sama
máli, en það var myndin Boðorðin
10.
Sagði verðlagsstjóri, að sér
hefði ekki verið kunnugt um, að
bíóið seldi svo dýru verði á myndir
sínar. En strax og hann hefði fr'étt
það, hefði hann farið á stúfana og
skýrt forráðamönnum hússins frá
verðlagsákvæðinu. Ein sýning var
haldin eftir það, en eftir að verð-
lagsákvæðin voru ítrekuð í út-
varpi og blöðum, hafi það hætt
sýningum. Sagði verðlagsstjóri
einnig, að ef bíóið hæfi sýningar
á ný og seldi inn á sama verði og
áður, yrði þetta mál dómsmál.
Valdimar Jónsson, framkvæmda
stjóri kvikmyndahússins, sagði
blaðinu, að engin ákvörðun hefði
verið tekin hver’su sýningum yrði
háttað í framtíðinni, eða hvert
verðið yrði. Sagði hann, að að vísu
sýna þau
væri hægt að fara í krinum þetta
ákvæði með því að selja inn á
myndina í tvennu lagi, t. d. með
því að selja tvo miða í einu á tvö-
földu venjulegu verði, en það væri
að fara í kringum lögin og það
kynni hann ekki við. Auk þess
væri ekki rannsakað hvort bíóið
gæti staðið undir því, vegna þess
að leiga eftir kvikmyndina er
grcidd í hlutfalli við aðsókn hér,
og var í samningum gengði út frá
sama aðgöngumiðaverði og gildir
fyrir Todd Ao myndir.
Sem sagt, Laugarássbíó er lokað
um óákveðinn tíma,
20 þús. mál í
PoIIinum
Akureyri I fyrradag. — Síldar
verksmiðjan í Krossanesi við
Eyjafjörð hefur á undanförn-
um vikum tekið á móti tutt-
ugu þúsund málum smásíldar
og millisíldar, sem veiðst hef-
ur á Pollinum og innst í frið
inum. Síðustu dagana hefur
ekkert aflazt, og er nú að verða
búið að bræða það síldarmagn
sem fyrir liggur í geymslu.
Hlyna kóngs-
syni stolið
í fyrradag var tveimur
myndum og einum Keramik-
vasa stolið úr forstofu neðar
lega í Hlíðunum. Myndir þess
ar voru úr myndasamfellu úr
ævintýrinu um Hlyna Kóngs-
son, og sýnir önnur þeirra at
riðið „syngdu, syngdu, svan-
ur minn,“ en hitt leitina að
Hlyna kóngssyni. Myndunum
var stolið úr stigagangi, þar
sem þær héngu á stigaveggn
um. Einnig var stolið litlum
keramikvasa, sem stóð á hillu
þar í ganginum.
Ef einhver hefur orðið var
við framangreinda muni, er
hann vinsamlega beðin að láta
rannsóknarlögregluna vita.
@ UTÁN QR UEm J
9 féllu í Leopoldville
Leopoldville — 22.11
í nótt kom til alvariegra átaka á
milli herflokks S.þ. frá Túnis og
hcrmanna Mobutu ofursta fyrir ut-
ar. sendiráð Ghana, en þar stóðu
hcrmenn S.þ. á verði. 9 féllu í val-
ir.n og margir særðust. en talið er
að um 250 hermenn S þ hafi þarna
átt í höggi við jafnmarga hermenn
Mobutus. í sendiráðinu dvaldist
emn sendiráðunauta Ghana er Mo-
butu hafði áður vísað úr landi en
fulltrúinn vildi hvergi fara. í dag
kom hinn brezki yfirmaður Ghana-
hers til Leopoldville og með hon-
um til Ghana fór sendiráðsfulltrú-
uin og ferðuðust þeir í rússneskri
fíugvél. Áreksturinn nótt er einn
sá alvarlegasti er heriið S.þ. hefur
lent í síðan að bað kom til iands-
ins.
Sáttanefnd skipu'ð í
Moskvu
Nýju-Dehlí—22.11.
Indverska blaðið Hindustan
Timcs skýrir frá því í dag og telur
s’g hafa það eftir góðum heimild-
um, að á leyniráðsteinu kommún-
ista í Moskvu, sem enn er í fullum
gangi, hafi verið sktpuð nefnd er
hafi það hiutveik aö lægja þær
cldur er nú séu á milii hinna ýmsu
kommúnistaríkja. M a. sé alvar-
legur ágreiningur a milli ráða-
manna Rússlands og Kína og vilji
h nir kínversku komn.únistar ekki
samþykkja þá kenningu Kiústjoffs,
að styrjöld sé ekki 'umflýjanleg.
Johnson ræddi viíS
De Gaulie
Pcrís—NTB 22.11.
Kjörinn varaforseti Bandaríkj-
anna Lyndon B. Johnson gekk í
aag á fund Ðe Gaulie Frakklands-
forseta og ræddi við hann í eina
k!st. M. a. færði hann honum ham-
ingjuóskir : tilefni dagsins, en De
Gaulle er sjötugur í dag. Að lokn-
um viðræðunum við forsetann
ra^ddi Johnson við Debré forsætis-
ráðherra.