Tíminn - 23.11.1960, Síða 4
»•* r.
4
T f MI N N, miðvikudaginn 23. nóvember 1960.
hafið þér gert yður grein fyrir hve víðtæk
heimilistrygging
SAMVINNUTRYGGINGA er?
Véíabókhaldið h.f.
Bókhaldsskrifstofa
Skólavörðustíg 3
Sími 14927.
Sfúlka .
óskast til eldhússtarfa 1.
des. Upplýsingar i Hótel
Tryggvaskála.
í'lpavogur
Vil tana á leieu húsnæði
fyrir iðnað heizt í austur-
bænum
Upplýsingar í sima 24700.
upplýsingar í síma 1-70-80
í^sið í Tímanum
Minningarorð:
HEIMAKJÖR
HEIMAKJÖR
Helgi Jakobsson
frá Ökrum
Þeim fækkar nú óðum Mýra-j
mönnunum, er voru á sínum mann- (
dómsárum á fyrsta áratug þessarar
aldar. Einn úr þessum hópi, Helgi
Jakobsson bóndi á Ökrum í Hraun-
hreppi, andaðist að Sólvangi í Hafn
arfirði, 7. nóv. s.l. og var jarðsett-
ur í Fossvogskirkjugarði laugar-
daginn 12. þ. m.
Helgi var fæddur að Laxárholti
í Hraunhreppi 17. apríl 1879. For-
eldrar hans voru hjónin Guðrún
Einarsdótíir og Jakob Sveinsson.
Guðrún var þriðja kona Jakobs, og
með henni átti hann Helga, Rann-
veigu og Soffíu. En börn frá fyrri
hjónaböndum Jakobs voru, Bjarni,
Sigríður og Ingibjör'g. Guðrún
missti mann sinn frá ungum börn-
um, og nokkru síðar kom til henn-
ar sem ráðsmaður Einar Sigurðs-
son, mikilhæfur og dugandi maður,
og urðu Guðrún og hann lífsföru-
nautar eftir það. Þau eignuðust
saman einn son Sigurð, fyrrver-
andi kennara og bónda í Vogi á
Mýrum, en nú til heimili-s að Skóla-
tröð 8 í Kópavogi. Þrjú systkini
Helga fluttust til Vesturheims,
það voru Bjarni, Sigríður og
Soffía.
Fyrst þegar ég man eftir mér,
ungur drengur, þá áttu heima á ís- ■
leifsstöðum í Akraplássi Guðrún
Einarsdóttir og Einar Sgurðsson,
ásamt Helga, Rannveigu og Sig-
urði. Þetta var gott og dugmikið
fólk. Ég minnist þess, að faðir
minn hafði alveg sérstaklega mikl-
ar mætur á Helga Jakobssyni, og
taldi hann vera um margt umfram
aðra menn. Eftir löng kynni mín
af Helga, þá veit ég, að þetta var
réttur dómur. Þeir bræður Helgi
og Sigurður, ráku bú á ísleifsstöð-
um um margra ára skeið. En á
fyrri stríðsárunum hættu þeir bú-
skap um nokkur ár og fluttist
Helgi þá til Reykjavíkur, en var
þó jafnan yfir sumarið í sveitinni.
Stuttu eftir nítján hundruð og
j tutugu, þá flytur Helgi Jakobsson
j aftui' upp á Mýrar. Hann kaupir
hálfa jörðina Akra í Hraunhreppi
og byrjar þar búskap að nýju, og
þar bjó hann æ síðan góðu búi, þar
til hann hætti búskap fyrir nokkr-
um árum.
Þegar Helgi hætti búskap, þá
gaf hann Ásmundi núverandi
bónda á Ökrum, jörð sína til fullr-
ar eignar. Ásmundur kom ungur
drengur' að Ökrum með móður
sinni sem var ekkj-á og réðist ráðs-
kona til Helga. Þetta gefur til
kynna að Helgi Jakobsson var eng-
inn miðlungsmaður. heldur sérstak
ur sérstæður per'sónuleiki. Kynni
okkar Helga hafa aldrei slitnað frá
því ég var lítill drengur, og það
get ég nú sagt þegar leiðir skilja,
að ég mat hann því meir, sem ég
þekkti hann betur.
Helgi Jakobsson var' tæplega
meðalmaður á vöxt, léttur í spori
og hvikur í hreyfin-gum. Hann var
víkingur til verka, og v-erkhagur.
Smiður var hann góður, glöggur
fjármaður, og mikill hestamaður,
enda átti hann jafnan gæðinga til
reiðar. Helgi var alvörumaður og
nokkuð dulur í skapi, en gat þó
verið mikill gleðimaður í hópi
■ góðra vina. Hann var söngelskur
og fróðleikskær. Á síðari árum las
hann mikið Nýalsbækur dr. Helga
Péturs, og dáði þá speki, er þar
kemur fram.
Helgi Jakobsson var greindur
maður, og kunni vel að segja frá,
frásögnin varð öll lifandi í munni
han-s. Ég, sem þetta rita, á margar
skemmtilegar minningar frá kynn-
ingu okkar Helga. Sérstaklega
verða mér minnisstæðar nokkrar
kvöldstundir þegar ég gisti á heim-
ili hans á Ökrum, því Helgi var
gestrisinn heim - að sækja og
skemmtilegur í viðræðum, og hann
gat haft það til, að opna hug sinn
allan þó hann gerði það ekki hvers-
dagslega.
Höfum opnað nýja kjörbúð, kjöt og nýlenduvörur
að Sólhelmum 33
Reynið viðskiptin Næg bílastæði
Sími 3-52-20
HEIMAKJÚR HEIMAKJÖR
V •V»‘V.»V»V»V»V»V»‘V.»'V.»'V»V*V»'V*
Askrifendur
að ævixúnningaDók Vigtús-
ar eru .insamit ’a beðrm að
vitja hennar sem fyrs4 til
Þráins Eddi húsmu vða
Vigfúsar Hjarð.^rhaga 36
Gamli tryggðavinur, nú þegar
þú ert lagður af stað í hina miklu
ferð, þá vil ég með línum þessum
þakka þér alla kynningu, og óska
þér blessunar í hinu nýja land-
námi.
Jóhann E. Kúld.
v.-v.vx.x.x.-\,.N .-V .-V--V •-v.-v.-v. V-W.-V. w.-v.-v-v.-v.-v.-v.-v.-v-v
ALLT Á SAMA STAÐ
N ý k o m ; 8
Gabríel
Höggdeyfar
Loftnetsstengur
MiðstöSvar
og
Valnslásar
í flesta bíla
EGILL VILHJÁLMSS0N H.F.
Laugavegi 118 — Sími 22240
'v-v-v-v-v-v-v-v-v-v-v-v'v'v-v-v-v-v-v'v-v-v-v-v-v-v-v-w