Tíminn - 23.11.1960, Side 14
14
ar, er hann kvaddi hana við
hliðið.
Hann gekk strax heim á
leið, og nú hafði hann allan
varann á. Það var augljóst,
að það var ekki Matt, sem
hafði gægst inn til hans
fyrsta kvöldið hans í kofan-
um, og hann hefði heldur ekki
látið sér nægja að hlæja
hæðnislega, ef hann hefði
verið sjónarvottur að svo
innilegu sambandi sem verið
hafði milli þeirra Kate á fjall
inu. Þar að auki voru litlar
lífcur til þess, að hann væri
kominn heim, því að hann
hafði fengið sér vinnu við
skógarhögg í öðru byggðar-
lagi, og henni yrði ekki lokið
fyrr en eftir viku. Clay var
dálítið skömmustulegur, þeg
ar hann læsti sig inni í kof-
anum þetta kvöld, en hann
hafði um svo margt að hugsa,
að hann gleymdi fljótlega
þessum ógeðslega kerlingar-
hlátri. Honúm fannst sem
hann héldi Kate enn í faðmi
sér, en einmitt sú hugsun
vakti honum minningar, sem
hann hefði helzt viljað vera
laus við.
Það var eins og Leona, hin
fagra, ljóshærða og auðtælda
kona, væri í hverju skoti að
hlæja að honum. Eitt sinn
hafði hún haldið hjarta hans
í vel snyrtum höndum sín-
um, og hún hafði löngum ver-
ið það keppikefli, sem hann
sóttist eftir. Hennar vegna
hafði hann farið út í að
skrifa bókina fyrír Marshall,
og hann hafði haft hana í
huga, þegar hann setti pen-
ingana í bankann. Leona, er
hafði sjálfstætt starf og gat
ekki hugsað til þess að lifa
af lágum kennaralaunum ein
um saman. En Clay hafiði
fengið nýja von, þegar hann
lank við að skrifa bókina, og
hann gerði ráð fyrir að ein
hvem tíma mundi hann
skrifa bók undir sínu eigin
nafni. En þá kom þjófnaðar-
málið upp, og draumar hans
urðu að engu, þegar Leona
og allir gamlir vinir hans
sneru við honum bakinu.
En hann hugsaði þó mest
um Kate. Það voru litlar lík-
ur til þess að hann þyrfti að
skammast sín fyrir hana, því
að hann átti enga kunningja
nú orðið utan þessarar sveit
ar, og jafnvel þótt hann ætti
afturkvæmt héðan, mundi
hann aldrei tíma að rifa hana
upp úr þessum f jalladal, sem
hún elskaði svo heitt. Og hér
mundi fólk einungis öfunda
hann af því að hafa igifzt
henni, því að færri fengu að
njóta hennar en viidu. En
hann gat ekki varizt beiskju,
þegar honum var hugsað til
þess að þurfa að eyða því
sem eftir var ævinnar í þess-
um afkima veraldarinnar.
10. kafli.
Þegar Clay varð þess vís-
ari við nafnakall í bekknum,
að Jessie Mae hafði ekki kom
PEGGY GADDYS:
ið í skólann í þrjá daga í röð,
þótti honum tími til kominn
að tala við föður hennar.
Hann hafði sérstakan áhuga
á þessari stúlku, ekki einung
is vegna þess að hún var vel
gefin og námfús, heldur líka
af því að Kate lét sér annara
um hana en aðra.
Býli Beasleys lá í útjaðri
byggðarinnar, og útlit þess
var nákvæmlega eins og
Clay hafði hugsað sér það.
íbúðarhúsið var aðeins tvö
herbergi, og húsagarðurinn
var fullur af sorpi og skrani.
Þrír lj óshærðir barnungar
vora að leika sér með flösku
brot, blikkdósir og slétta, mis
lita steina. Þegar þeir sáu
Clay, flýðu þeir eins og hrædd
ir íkomar. Á bak við húsið
heyrðist glamra í járnkeðju
og hundur geyjaði í viðvör-
unarskyni.
Clay hélt áfram göngu
sinni upp slitnar tröppur,
sem lágu að útidyrunum.
Mögur kona í óhreinum kjól
kom til dyra. Hún hélt á
barni á handleggnum, og
bamið var klætt í mussu úr
mjölpoka, sem enn mátti lesa
verksmiðjumerkið á.
■— Eruð þér frú Beasley?
spurði Clay brosandi og tók
ofan.
— Já, herra, svaraði húu
skelfd-
— Eg er Clay Judson, nýi
kennarinn, útskýrði hann. —
Við höfum saknað Jessie-Mae
úr skólanum í nokkra daga,
og ég var farinn að óttast um
að ef til viil væri hún lasin.
— Nei, hún er ekki lasin,
stamaði móðirin.
í sama bili gaf hún frá sér
vein, því að þung mannshönd
greip í öxlina á henni og
slengdi henni til hliðar. Joe
Beasley kom í ljós, ógeðsleg-
ur karl, varla ódrukkinn og
með vikugamalt skegg á niður
andlitinu.
— Jessie-Mae er hætt í skól
anum, kennari, og þér þurfið
15
álkan
ekki að koma hingað til þess
að snuðra hana uppi, hreytti
hann út úr sér. — Hún hefur
fengið alla þá skólamenntun,
sem hún hefur þörf fyrir. Hún
veit alveg nóg til þess að
verða eiginkona, og það mun
ekki líða á löngu þar til hún
giftist. Og svo skuluð þér
hypja yöur burtu af minni
landareign, áður en ég siga
hundinum á yður.
— En góði minn! andmælti
konan varfæmislega og
reyndi að forðast höggið, sem
að henni var rétt.
— Ef þér viljið ekki að hún
haldi áfram námi, þá skuluð
þér ráða því, mælti Clay og
átti fullt í fangi með að halda
sér í skefjum. — En það er
þó mikill skaði, því Jessie-
Mae er bæði vel gefin og dug
leg.
— Hún á að gifta sig, þrum
aði Joe, — og maðurinn henn
ar vill ekki að hún sé að eyða
tímanum í svoleiðis óþarfa.
Hann gekk einu feti fram-
ar og það var bæði sigur
glampi og ógnun í augnaráði
hans.
Og þér getið sagt Bill Epp
erson það, að það sé þýðingar
laust að neita mér um út-
tekt í reikning, hélt hann
áfram. Eg mun ekki biðja
hann um fimmeyringsvirði
hvað þá meira.
Konan snökti og hann leit
reiðilega á hana. Clay fann
að hann mundi aðeins missa
stjóm á sér ef hann gerði
tilraun til þess að segja þess
um armingja til syndanna,
TÍMINN,
svo að hann sneri frá og gekk
heimleiðis.
Á leiðinni varð hann þess
vísaxi, að einhver elti hann
í runnunum við veginn, og
að lokum stanzaði hann og
hrópaði hátt:
— Þú þarna! Komdu fram
í dagsljósið.
Hann heyrði óttaslegið and
varp, og rétt á eftir stakk
Jessie-Mae kollinum fram á
milli runnanna.
— Mig langar svo mikið að
tala við yður, sagði hún, —
en ég þorði ekki að láta
pabba vita um það. Þér vökt
uð hann, og hann er alltaf
í slæmu skapi, þegar hann
hefur setið við og drukkið
brennivín fram á nótt.
— Að því er ég bezt veit,
er hann alltaf í vondu skap.i,
sagði Clay.
Hún kinkaði kolli döpur í
bragði, og sólin glitraði í
gylltu hári hennar. Ef hún
hefði sæmilegan mat að
borða og klæddist þokkaleg
um fötum, var ekki , um að
villast, að stúlkan væri bráð
falleg.
— Get ég gert nokkuð fyrir
þig? spurði Clay.
— Það getur enginn gert
neitt fyrir mig, kennari, svar
aði hún með örvæntingar-'
svip. — Eg verð að fremja
sjálfsmorð. Það er engin leið
önnur.
— Guð hjálpi þér, Jessie-
Mae! Þú mátt ekki tala
svona!
— Er betra að giftast
Heard gamla? spurði hún
beiskjulega. — Hann lánar
okkur út úr búðinni, og við
getum ekki borgað honum
með neinu öðru.
Þá var skýringin fengin á
því, að Joe var ekki hrædd-
ur við Bill Epperson lengur.
— Þess vegna kem ég ekki
aftur í skólann, hélt hún á-
fram. — En það var afskap-
lega gaman, og mér likaði vel
að vera þar. Kate lánaði mér
bækur og hjálpaði mér á all-
an hátt, og það varð raunar
auðveldara eftir að þér kom
uð. Það hlýtur að vera dásam
legt að vera þar sem fólk veit
mikið, les mikið og gengur
vel til fara. Kate hefur sagt
mér, að þér vitið um skóla,
þar sem fátækir unglingar
geta fengið að búa og vinna
fyrir sér með náminu. Eg var
að óska mér þess að komast
að á slíkum skóla, en nú hef
ur Heard gamli sagt, að við
eigum að gifta okkur um jól-
in. Og þá verð ég ekki lengur
í lifenda tölu.
miðvikudaginn 23. nóvembeT 19G0.'
Hún sagði þetta svo hvers
dagslega, að Clay varð ljóst,
að henni var alvara. Hún ætl
aði að lifa í voninni eins
lengi og hún gæti, en þegar
allt um þryti var hún ’stað-
ráðin í að fleygja sér í ána.
— Slíkir skólar eru til,
Jessie-Mae, sagði Clay. — Eg
þekki ekki mikið til þeirra,
en ef þú-vilt hafa biðlund og
treysta mér, þá skal ég lofa
þér því að útvega þér skóla-
vist með þessum kjörum.
Eitt andartak ljómuðu
augu hennar, en svo urðu þau
myrk aftur, full örvæntingar.
— Pabbi mun banna mér
að fara.
— Þá skal ég sjá til þess,
að þú komist að heiman án
hans vitundar, sagði hann og
hraus hugur við sínum eigin
orðum. Hann vissi, að hann
tók á sig geysi mikla ábyrgð
með því að gera þessa ung-
l'ingsstúlku aiigerlega háða
því, að hann sæi henni far-
borða.
Miðvikudagur 23. nóvember:
8.00 Morgunútvarp.
8.30 Fréttir.
9.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 „Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Miðdegisútvarp.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Á
flótta og flugi“ eftir Ragnar
Jóhannesson; X. (Höfundur
les).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir. — Tónleikar.
18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Framhaldsleikritið „Anna Kar-
enina" eftir Leo Tolstoj og Old
field Box; IV. kafli Þýðandi:
Ásiaug Árnadóttir. — Leik-
stjóri: Lárus Pálsson. Leikend-
ur: Helga Vaitýsdóttir, Rúrik
Haraldsson, Guðmundur Páls-
son, Helgi Skúlason, Þorsteinn
Ö. Stephensen, Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir o.fl. — Á undan
flutningnum verður flutt yfir-
lit um þrjá fyrstu kaflana.
20.50 Vettvangur raunvísinda: Hvern
ig eru raunvísindi kennd? (Örn
ólfur Thorlacius fil. kand. talar
við nokkra kennara í þeim
námsgreinum).
21.10 Tónleikar: „ísland", svíta fyrir
tvö píanó eftir Hans Sternberg
(Eva Thoma og Werner Heider
leika).
21.30 Útvarpssagan: „Læknirinn Lúk
as" eftir Taylor Caldwell; Xni,
(Ragnheiður Hafstein).
22.00 F.réttir og veðurfregnir.
22.10 „Rétt við háa hóla": Úr ævi-
sögu Jónasar Jónssonar bónda
á Hrauni í Öxnadal, eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson; V. (Höf
undur flytur).
22.30 Djassþáttur (Jón M. Árnason).
23.00 Dagskrárlok.
EIRÍKUR
VÍÐFÖRLI
Merki
Jómsvíkinga
14
Þriðja ör Axels lendir nákvæm-
lega í miðju skífunnar og menn
eru hrifnir af meðhöndlun hans á
boganum sem sýnir einstakt kæru-
leysi. Ervin óskar honum til ham-
ingju.
Nú kemur Vulfstan og reynir að
koma vingjarnlega fram við Axei.
— Hver hefur kennt þór að skjóta
af boga? spyr hann forvitnislega.
Hann er grunsamlega hnýsinn um
fortíð drengsins.
Axel ætlar að svara, en þá heyr-
ist fugl garga hátt í skóginum, og
hann þagnar.
Tjala er farið að gruna margt.
Því eru Danirnir svona forvitnir?
Hann heyrði líka fuglinn garga. —
Var það kannski mer'ki frá ein-
hverjum mannlegum fugli?