Tíminn - 30.11.1960, Síða 8

Tíminn - 30.11.1960, Síða 8
8 T f MIN N, miðvikudaginn 30. nóvember 1960. í dag er sjötugur Stígur Sæ- land lögregluþjónn í Hafnar- firði. Stígur hefur gegnt starfi lögregluþjóns í 40 ár sam- fleytt, síðustu árin þó verið fangavörður. Fréttamaður Tímans brá sér heim til Stígs og innti hann frétta af löng- um starfsferli. — Þú ert Hafnfirðingur að uppruna? — Já, faðir minn var Sveinn Auðunsson sjómaður hér í Firðinum. Hann var bæjarfulltrúi um skeið og stofnandi verkamiannafélags ins Hlífar. Mig minnir að fé- lagið sé stofnað 1906. Það var ekki hlaupið að því að stofna til slíkra samtaka á þeim ár- um. Atvinnurekendur urðu ó- kvæða við og reyndu að gera verkalýðnum allt til miska sem þeir gátu. Félagsmönnum var sagt upp starfi og fengið ( fólk sunnan með sjó í stað- ! inn. Þeir fengu jafnvel stúlk ur frá Færeyjum til að vinna. Það átti að útiloka bæjarfólk ið. — Þú gerðist lögregluþjónn 1920? — Já, áður hafði ég unnið margt til sjós og lands, svar- ar Stígur, — ég hafði unnið daglaunavinnu, vegavinnu og var á sjó. Eg reri meöal ann- ars frá Dritvík, Grindavík og Skálum á Langanesi. Það var orðið lítið um útræði f Drit- vík á þeirri tíð. Ekki nema tveir bátar. Annan átti Þor- steinn Jónsson borgari á Seyðisfirði og hjá honum var ég formaður. Við vorum fjórir á bátnum. Svo varð ég leiður á þessu og lét .strákana róa með mig í veg fyrir bát, sem sigldi hjá. — Þú hefur stungið a<f? — Já, það aflaðist ekkert og ég nennti ekki að vera að þessu. Svo fór ég norður að Skálum, þar var heldur líf- legra. Þar voru um hundrað manns á verstöðinni. Þar var ég líka formaður og var eig- andi að bát á tímabili. Þar reri ég líka hjá Þorsteini borg ara. Hann keypti lifur og stein! bræddi hana. — Steinbrœddi? — Já, hafði heljarstóra; potta á hlóðum, svo var ausið úr pottunum á tunnur. Við vorum hafðir í þessu í land- legum. — Aldrei lent í neinurn hrakningum? — Nei, ekki svo heitið geti. Þó komumst við stundum í h&nn krappan þegar róið var frá Grindavík. Það var mikið brim á sundinu og einu sinni fyllti skipið. En við komumst klakklaust úr þeim háska. — Svo kvœnist þú. — Já, gifti mig 1916. Konan j mín er Sigríður Sæland. Raun' ar hét ég ekki Sæland þá, ég j var bara Sveinsson, Sæland! er ættamafn, sem ég tók1 mér seinna. \ — Hvernig er nafnið til komið? — Það var ekkert sérstakt tilefni til þess. Mér þótti það bara fallegt. Eg held það sé bæjarnafn á Flatey í Skjálf- anda. Bauð ölæðismönnunum inn og tökst að spekja þá með kaffi Rætt við Stíg Snæland lögregluþjón, sem er sjötugur \ dag. STÍGUR SNÆLAND — Hvað voru, margir lög- regluþjónar í Hccfnarfirði þeg ar þú byrjaðir 1920? — Við vorum ekki nema tveir, svarar Stigur, Magnús Jónsson hét hinn. Það voru lítil skilyrði fyrir lögreglu- þjón hér í bænum þá. Það var engin lögreglustöð og ekki einu sinni fangahús. Ekki einu sinni skýli. Við urðum bara að reyna að siða mann- skapinn. Það gekk oft erfið- lega. Verst var það á vertíð- unum, þegar aðkomusj ómenn voru. Þá var drykkjuskapur mikill. Það varð að koma þeim heim til sín sem hér bjuggu, hinum um borð í skipin. Þetta slampaðist einhvem veginn. — Það urðu aldrei hættulegir bardagar. í eitt skipti urðu snörp átök í Gút emplarahúsinu, við urðum tveir að ryðja húsið. í annað skipti logaði allt Árnabó í slagsmálum. Þá varð líka aö ryðja húsið. — Eg man eftir einu gaml árskvöldi, þá var ég á ferð um bæinn og kom að Hótel Björninn. Þar voru fjórir öl óðir menn og börðu húsið ut an með ópum og óhljóðum. Eg skipaði þeim að hætta j þessu, þekkti einn þeirra, hafði róið með honum. Þeir vildu ekki láta skipast. Heimt uðu að þeim væri hleypt inn! og látnar veitingar í té. Eg sagði þeim, að þeir skyldu bara koma heim til mín og fá kaffi. Þeir létu seejast. lötruðu með mér ljúfir eins og lömb. Konan mín var ekki beint hrifin að fá þá í heim- sókn en bar þeim kaffi og kökur, og þeir voru hinir ró- legustu. Þá spurði einn þeirra: „Heyrðu Stígur minn, meg- um við ekki hella út i hjá þér?“ Eg benti þeim á gútempl araflaggið á borðinu og sagði þeim, að það væri mitt svar. Og þar við sat. — Þú ert reglumaöur? — Já, hef aldrei smakkað áfengi, svarar Stígur, búinn að vera í stúku frá þvi ég var 8 ára gamall. Eg er núna heið ursfélagi í Daníelsher nr. 4 og líka Umdæmisstúkunni nr. 1 og reyndar líka heiðurs- félagi Stórstúkunnar. Það var gott líf í bamastúkunni hjá okkur í Daníelsher. Það er ein elzta starfandi stúka á landinu, stofnuð 1885. Eg er búinn að vera þar gjaldkeri frá 1924. — Þú hefur tekið mikínn þátt í félagslifinu? — Já, ég er líka í Slysavarn arfélaginu, er þar heiöursfé- lagi, við bæði hjónin. — Var ölvun meiri í gamla daga en nú? — Eg álít að drykkjuskap ur unglinga hafi aukizt, svar ar Stígur, — áður voru það helzt fullorðnir menn sem við áttum í höggi við. Og það var leiðindaaðstaða, hvergi al- mennileg fangageymsla eins og ég sagði þér. Það var fanga klefi í kjallaranum hjá Bæj- arútgerðinni, þar voru ölvað ir menn geymdir ef mikið lá við. Þar voru þeir eftirlits- lausir að öðru leyti en þvi sem við lögregluþjónamir gátum sinnt þeim. Svo voru þeir hafðir í gamla barna- skólanum um tíma. — Við fengum fangahús ár ið 1946 og síðan var ég viö fangavörzluna, heldur Stígur áfram. Þar voru tveir og tveir í klefa. — Er það satt, að þú hafir spilcvð vi& fangana? — Nei, svarar Stígur, — en ég færði þá stundum saman j fjóra í klefa, svo þeir gætu spilað bridge. Og sagði þeim til. Það var nú ekki annað. i Það er stundum betra að fara j áð þessum mönnum með góðu. — Hvencer var fjölgað lög- regluþjónum í Firðinum? — Það var í stríðsbyrjun, þá var meira að gera hjá okk ur, svarar Stgur, — annars vorum við orðnir þrir. Sá þriðji bættist í hópinn 1925. Það var Kjairtan Ólafsson, faðir Magnúsar ritstjóra. J Hann var lögregluþjónn í nokkur ár. Árið 1932 var okkur þremur sagt upp. Það voru kreppu- tímar, og bæjarfélagið hafði ekki efni á að borga okkur kaup. — Og va<r þá enginn lög- regluþjónn? — Við vorum ráðnir aftur upp á byrjendalaun. Svoleið is fóru þeir að því. — Urðuð þið ekki illir? — Jú, en það var ekki um annað að gera, við sóttum allir um stöðurnar aftur og vorum ráðnir. Það var ekk ert annað að fá og við þótt- umst bara heppnir. — Er þér ekkert sérstaklega minnisstœtt frá starfsferlin- um? — Það væri helzt þegar dómsmálaráðherra hringdi til okkar og spurði, hvort ekki vantaði fanga í fangageymsl una hjá okkur. Þá var einn strokinn þegar að var gáð. Ráðherrann sagði að fanginn dveldist i góðu yfirlæti á heim ili sínu en bað okkur að sækja þó pilt. Við ókum heim til ráð herrans á samri stundu. Þaö var Bjarni Benediktsson í þann tíð. Þar sat strokufang inn inni í stofu með heilt kart on af sígarettum á hnjánum. Hann hafði brotizt út úr klefa sínum og farið beint heim til Bjarna til að semja um náð un. — Bjami spurði, hvort hann mætti hafa eldspýtar með sér í klefann. Það varð úr að ég tók fram eldspýturn ar, svo drengurinn gæti reykt, það má ekki reykja nema frammi á gangi. -j. BÆKUR OG HÖFUNDAR Ivar Orgland þýðir Ijóð Steins Steinarr á norsku Ivar Orgland, hinn kunni saminna ljóða. Samtímis þýð r.orski sendikennari við Há- inSum á ljóöum Steins kem ..... ur ný ljóðabók frá hans hendi skola Islands lætur ekki deig- og nefnist ATLANTIDER og an síga við þýðingar íslenzkrr er þetta þriðja ljóðabók Org- VISU Ijóða. Hann dvelur að ekki hér á landi lengur. held- ur heima í Noregi og á bessu hausti hefur Fonna Forlag í Osló sent trá sér tvær bækur eftir hann. Eins og kunnugt er samdi Ivar Orgland mikla ritgerð um Stefán frá Hvítadal og þýddi ýmis ljóð hans. Eftir: hann er einnig bók þýðinga á ljóðum Tómasar Guðmunds sonar ENNO SYNG VAR- NATTI og önnur með kvæð- um Davíðs Stefánssonar JEG SIGLER í HAUST. Nú kemur bókin PA VEG- laust K bgkéj cmfæyp bgkéj ing“ af ljóðum Steins Stein- arr. Þetta er stórt úrval af ljóðum Steins og framan við þýðingarnar er allmikil ritgerð um Stein og skáld- skap hans. Kvæðin eru valin til þýðingar úr öllum ljóða- bókum Steins, en þó einna flest úr Ferð án fyririieits. Bókin er einstaklega vel úr garði gerð og á kápu er mynd af málverki eftir Þorvald Skúlason. En Ivar Orgland sendir einnig frá sér bækur frum-j lands. Hinar fyrri eru LILJE IVAR ORGLAND OG SVERD, sem út kom 1950 og MJÖD OG MALURT, sem út kom 1959 og hafði að geyma skopkvæöi. Sést á þess ari nýju bók eigi síður en hin um fyrri, að Orgland er all- gott skáld. Atlantider er ekki stór bók en fagurlega gjörð. Þessar nýju bækur Orglands, svo og hinar fyrri, munu fást í íslenzkum bókaverzlunum, og mun marga fýsa að eign ast þær. -AK

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.