Tíminn - 08.12.1960, Page 1

Tíminn - 08.12.1960, Page 1
íslenzkur fræðimaður fyrsti styrkþeginn Á þessu háskólaári var stofn að til norrænnar styrkþega- stöðu við háskólann í Kaup- mannahöfn. Með styrk þess- um, sem er mjög myndarleg- ur, er ætlunin að gera einum ungum fræðimanni frá Norð urlöndum kleift að stunda rannsóknir í Danmörku um eins árs skeið, en jafnframt á styrkþeginn að annast kennslu við háskólann. Rektor Kaupmannahafnarháskóla skrifaði öllum Norðurlandahá skólum s.l. vor og óskaði ábend ingar um styrkþega. Nú hefur háskólanum borizt bréf Kaup mannahafnarháskóla, þar sem frá því er skýrt, að mag. art (Framhald á 2 síðu). Laganna verðir í höfuðborg lands ins hafa þá sérstöðu fram yfir aðra borgara, að þeir geta geng ið að símtólum utan á húsveggj- um og talað þaðan að vild sinni. Að vísu er þeim þröngur stakk- ur skorinn með hvert þeir hringja því þegar þeir lyfta upp tólinu fá þeir einungis samband við stöðina. Það er kannske gott og blessað, og trúlega engin nauð- syn að hringja á aðra staði, en varla þætti þeim neinn afslagur í að geta hringt heim til konunn- ar og tjáð henni, hvenær þeirra sé von til matar. Kannske hefur hann líka verið að biðja strákana á stöðinni að skila því, þessl? (Ljósm.: TÍMINN KM). Samdráttur og uppsagnir í flestum atvinnugreinum Spamaður fyrir- finnst enginn 2. umræða fjárlagafrumvarpsins á Alþingi í gær 2. umræSa um fjárlagafrum varpið fyrir 1961 fór fram á Alþingi í gær. Stóð umræðan fram á nótt og var ekki lokiS er fundi var frestað. Magnús Jónsson frá Mel var framsögu maður fyrir nefndarálitj meiri hlufans og talaði fyrstur. Halldór E Sigurðsson hafði framsögu fyrir nefndaráliti 1. j minnihluta, — Framsóknar- manna. (Síðari hluti nefndar- álits, 1. minnihlutans er birt l á þingsíðu blaðsins — bls. 7) Halldór E. Sigurðsson ræddi nokkuð um sparnaðarloforö fjármálaráðherrans við af- greiðslu fjárlaga 1960, sem hann þá sagði að myndi verða raunhæfar á næsta fjárlaga- frumvarþi, enda stæði heildar endurskoöun ríkisútgj aldanna yfir. Var vikið að þessum á- formum æ ofan í æ. Menn voru því eftirvæntingarfullir, er fjárlög fyrir 1961 voru lögð fram og bjuggust við góðum og raunhæfum sparnaðarráð- stöfunum. Mönnum hnykkti við, því að sparnaður fyrir- fannst enginn — heldur þvert á móti — eyðsla skyldi að auk ast um 50 milljónir frá fjár- lögum þessa árs og ekki bættu stuðningsmenn ráðherrans úr við afgreiðslu i fjárveitinga- nefnd. Fjárlög munu hækka um 85—90 milljónir kr. frá fjárlögum þessa árs. Þurfti eyðsla að aukast? En þurftu fjárlögin að hækka? — Gengislækkunin tók ekki gildi fyrr en að á- liðnu þessu ári, en samt voru útgjaldaliðir áætlaðir eins og gengislækkunin hefði gilt allt (Framhald á 2. síðu). Áhrifa „viðreisnarinnar" gætir nú á æ fleiri sviðum. Hin dauða hönd hennar er á góðum vegii með að drepa í dróma allt atvinnulíf þjóðar- mnar í sveit og við sjó. Bygg- ingar eru að stöðvast og stöðv aðar. Ræktunarframkvæmdir 1 sveitum hverfandi. Iðnfyrir- tæki að segja upp starfsfólki. Þannig er það ástand. sem við blasir eftir að helstefna íhaldsstjórnarinnar hefur verið ríkjandi í eitt ár Hvar sem til hefur spurst út um land, eru framkvæmdir annað tveggja alveg stöðvað- ar eða hafa dregist stórlega saman. í sveitum má það heita hreinn viðburður að nokkurs staðar sé byggður húskofi. Ræktunarframkv. eru hverfandi. Úr kaupstöð- um og þorpum er sömu sögu að segja. Byggingaframkvæmd ir allar, og þó einkum íbúða- byggingar, liggja því nær alveg niðri. Það, sem komið hefur til þessa í veg fyrir at- vinnuleysi víðsvegar úti um land, er fyrst og fremst sjávar aflinn, sem víða hefur verið með meira móti. Sama saga úr höfuðstaðnum Hér í höfuðstaðnum hnígur allt að hinu sama: samdrætti í iðnaðinum, atvinnuleysi. í Háaleitishverfi t.d., sem verið hefur eitt helzta byggingar- hverfið, eru 2/3 hlutar af bygg ingunum stöðvaðar. Þar var nokkru af lóðum úthlutað í (Framhald á 15. síðu) HvaS líður útlán- um úr landbúnað- arsjóðunum? Eysteinn Jónsson kvaddi sér hljóðs utan dagskxár í neðri deild í gær og beindi fyrirspurn til land búnaðarráðheri'a um hverju liði úthlutun lána úr Ræktunarsjóði og Byggingarsjóði sveitabæja. Ráð herrann hefði mar.gsinnis endurtek ið yfirlýsingar um það, að lánum yrði úthlutað úr sjóðunum eins og tíðkazt hefði. Enn vær'i engin lán farin að veita úr sjóðunum, en lið ið væri íast að áramótum og hver að verða síðastur, ef afgreiða ‘á þessi mál fyrir áramót. Spurði hann ráðheri'ann, hvort hann gæti ekki sagt eittKvað ákveðið um það, hvenær sjóðunum yrði aflað fjár magns, svo að þeir gætu lánað út eins og áður. Ingólfur Jónsson landbúnaðarráð herra sagði, að það væri óþarfi að spyi’ja um þetta. Sjóðirnir myndu lána út eins og áður. — Ekki lét hann þó uppi hvenær það yrði ná kvæmlega tiltekið, en lét á sér skiljast að lánin yrðu afgreidd fyrir áramót. Ríkiö styðji vatns- teit Keidhverfinga Laufási, Kelduhverfi, 6. des. — Eins og frá hefur verið skýrt í blöðum og útvarpi var borað eftir köldu vatni á nokkrum bæjum í Kelduhverfi í sumar og haust Verk þetta reyndist mjög kostnaðarsamt og hefur bess nú verið farið á leit við hið opinbera að það veiti hlutaðeígandi bændum fjárhagsaðstoð til þess að standa straum af þessum framkvæmdum. Ýmsir kvörtuðu undan því í haust og vetur, að vatnsból þrytu í þurrkunum og yrði því að aka cllu vatni i menn og skepnur langa eða skamma leið. Þeir mega (Framhald á 15. siðu).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.