Tíminn - 17.12.1960, Qupperneq 6

Tíminn - 17.12.1960, Qupperneq 6
6 TÍMINN, laugardaginn 17. desember 1960. SJÖTUGUR I DAG: Þorleifur V. Sigurbrandsson verkstjóri Þorleifur V. Sigurbrandsson verkstjóri er sjötugur í dag. Hann er fæddur 17. desember 1890 í Ólafsvik. Foreldrar hans voru Sesselja Bjarna- dóttir og Sigurbrandur Brands son, sem í fjöldamörg ár var hafnsögumaður í Ólafsvík. Árið 1915 fluttist Þorleifur til Reykjavíkur og stundaði þar ýmsa vinnu til vorsins 1920, að hann réðist til ís- landsfélagsins h.f., fyrst við alls konar afgreiðslustörf og síðan sem verkstjóri. Auk þess sem íslandsfélag- ið gerði út togarana „Apríl“ og „Mai“, hina nýju, sem til landsins komu árið 1920 ann aðist það alla afgreiðslu fyrir mörg önnur fiskiskip, og á tímabili voru alls í afgreiðslu 5 togarar, auk 8 til 10 mótor- báta á vetrarvertíð- Á þessum árum var svefn- tími Þorleifs ekki alltaf lang ur, því að algengt var að unn ið væri jafnt nótt sem dag við skipin, og reyndi þá jafn- an á hina einstöku árvekni og lipurð Þorleifs við af- greiðslustörfin, sem voru um fangsmikil, eins og að líkum lætur, þar sem hann hafði umsjón með um og yfir 100 manns, og margt þurfti að útrétta fyrir skipin og fyrir mörgu þurfti að hugsa, en allt þetta leysti Þorleifur af hendi með hinni mestu prýði. Nokkru áður en íslandsfé- lagið hætti starfsemi sinni, réðist Þorleifur sem verkstj. hjá Benzíndeild Jes Zimsen, sem rak verzlun með benzín og smumingsolíur á árunum 1924 til 1930, að Hið íslenzka steinolíuhlutafélag tók aftur til starfa eftir afnám olíu- einkasölunnar, en þá varð Þorleifur verkstjóri hjá því féiagi, og síðan hjá Olíufélag ' inu h.f., sem keypti eignir H.Í.S. um sama leyti og það hóf starfsemi sína árið 1947. Eg hef verið nákunnugur Þorleifi i rúm 40 ár, og sam- starfsmaöur hans við öll þau fyrirtæki, sem nefnd hafa ver ið hér. Mér er því vel kunnugt um áhuga hans á hverju því starfi, sem hann hefur haft með höndum, og veit manna bezt að húsbændnm hans fyrr og síðar hafa metið hann að verðleikum fyrir dugnað, árvekni og samvizku semi. Þó Þorleifur sé 70 ára í dag, er hann manna unglegastur og við góða heilsu, hann er ávallt glaður og hress í bragði við hvern sem er, og í vina- hóp er Þorleifur hrókur alls fagnaðar, en sérstaklega er þó ánægjulegt að heimsækja hann á hið vistlega heimili hans á Leifsgötu 14, en þau eru samhent um að gera vin um sínum dvölina ánægju- lega, hann og hans ágæta kona, Halla Einarsdóttir, frá Fossi í Mýrdal. Við hinir mörgu vinir og samstarfsmenn Þorleifs, ám- um honum allra heilla á þess um merku tímamótum og þökkum samstarfið, sem ávallt hefur verið eins gott og á verður kosið. Jóh. G. Stef&nssons MAN-O-TILE p I a s t v e g g il ú k u r tyrir baftherbergi og eldhús MAN-O-TILE er mjög auðvelt að íireinsa. MAN-O-TILE fæst í mörgum li'tum. MAN-O-TILE er ódýrt. MAN-O-TILE er límdur á vegginn með gólfdúkalími Málning & Járnvörur Sími 12876. — Laugavegi 23. Auglýsiö í TÍMANUM Allt á sama stað CHAMPION KRAFTK FAANLEG I ALLA BILA 1, IVIeira afl 2. Öruggari ræsing 3. Minna vélaslit og betri nýting á olíu 4. Allt að 10% eldneytissparnaður iðilð iðeins um CHAMPION-KERTI Skiptið reglulega um kerti EGILL VILHJÁLMSSON H.F. Laugaveg 118

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.