Tíminn - 17.12.1960, Page 11

Tíminn - 17.12.1960, Page 11
T ÍMINN, laugardaginn 17. desember 1960. 11 Ljóðabók eftir Frímann Einarsson Frímann Einarsson hefur sent frá sér nýja Ijóðabók, sem nefnist NIÐUR DAGANNA. Þetta er önnur Ijóðabók höf- undar, hin nefndist ÖLDU- FALDAR og kom út 1952. í formála þessarar nýju bókar segir höfundur m. a.: „Þessi nýja bók er eins og nafn- ið bendir til saman sett af ýmsum myndum hins daglega lífs eins og það hefur komið höfundi fyrir sjónir bæði í náttúrunni sjá'lfri og í viðfangsefnum samfélagsins á hverjum tíma, þegar gneistað hef- ur af andstæðunum á skákhorði lífsbaráttunnar. Þá hafa sum kvæð anna orðið til í hita augnabliks- ins og þ_ess vegna nokkuð stei'kum litum“. í bókinni eru nærri hundr- að kvæði. Hún er prentuð í Prent- smiðju Suðurlands á Selfossi. Jólafötin Matrósföt, rauð og blá Matróskjólar, 4—8 ára Drengjajakkaföt frá 6—14 ára Stakar drengjabuxur, 4—14 ára Hvítar drengjaskyrtur 2—12 ára Drengjapeysur Barnaúlpur Nælonsokkar saumlausir Krepsokkar—Sokkabuxur Æðardunn—Hálfdúnn Dúnhelt léreft ÆÐARDÚNSSÆNG er kærkomin jólagjcí. Vesturgötu 12 Sími 13570 Skarphéðinn Sigurðsson (Framhald af 8. síðu). stóðu til. Þetta er leigujörð, en þrátt fyrir það hófst Skarphéðinn strax handa um miklar jarðræktar framkvæmdir og húsabætur, og er nú jörðin ein af beztu bújörðum sveitarinnar. Það, sem einkum hefur einkennt búskaparhætti Skarphéðins er fyrirhyggja og dugnaður ásamt snyrtimennsku og góðri umgengni. Þar er allt í föstum skorðum, öll tæki í fullkomnu lagi og hirðing búfénaðar eins og hún getur bezt verið. Er öll fjölskyldan mjög sam hent í að skapa það svipmót, sem á heimilinu er. Á yngri áium var Skarphéðinn glaðsinna, og átti til að vera hrók- ur alls fagnaðar, og enn heldur hann þeim eðlrskostum, sem gera hann vinsælan og eftirminnilegan. Aldurinn ber hann svo vel, að jafnvel áratugum getur munað, og í engu er um uppgjöf að ræða í fari hans. Framtíðargengi íslenzkra bænda stæði á traustum grunni, ef nógu maigir væru slíkir sem hann. Jafn- vel nú á þeim aldursmörkum sem hér er minnzt. G.Þ. Það má segja að kerling EIU hafi ekki náð tökum á Skarphéðni bónda að MinnaMosfelli í Mosfells dal, því svo ern og frár á fæti er hann í dag, að hann gerir skömm mörgum yngri manninum. Það eru þó nokkur ár síðan kynni okkar Skarphéðins hófust, og ekki get ég sagt það að ellimis- mun sjái ég á honum á þessum tírna. Hann gegnir alltaf sínum daglegu störfum vetur og sumar, enda áhugamaður um þau störf og ber bú hans merki um snyrti- mennsku bæði út sem inni. Þegar Skarphéðinn kom að Minna-Mosfelli, var þetta lítil jörð og húsakostur rýr, en nú er þarna myndarlegt bú með ágætis húsa- kosti m.a. er íbúðarhúsið nýtt og vandað að öllu leyti. Skarphéðinn er fróðleiksfús og leitar eftir að kynna sér málefni, sérstaklega þau mál sem efst eru á baugi hverju sinni. Hann er fast- ur í skoðunum og lætur þær óhik- að í ljós, en skiljanlega eru mál landbúnaðar’ins honum efst í huga. Með þessum örfáu línum vildi ég óska þér og þínum Skarphéðinn allra heilla á þessum merkisdegi í lífi þínu og langra og ánægju- legra lífdaga. Baldvin Jónsson. Frímerki Allar tegundir af notuðum ís- lenzkum frímerkjum, keyptar ttærra verðj en áður hefur þekkzt. William F. Pálsson 9 Haildórsstöðum Laxárdal S.-Þing. Frá matsveina- og veitirígaþjónaskólanum Seinna kennslutímabil skólans hefst 3. janúar. ■Innritun fer fram í skrifstofu skólans 19. og 20. desember kl. 3—5 síðdegis. Skólastjóri. Heljarfljót Jólabækurnar frá SNÆFELL f nóvember 1954 var ungur, danskur maður, Óli Miiller að nafni, myrtur í ókönnuðum frum- skógum Suður-Ameríku. Vorið 1959 lögðu þrír Danir, Arne Falk Rönne, Jörgen Bitsch og Helm- er Christiansen, leið sína inn í fiumskógana til þess áð kornast fyrir málið. f þessari bók bjóða þeir lesandanum með sér í mörg þúsund kíló- metra ævintýraferð, þar sem þeir rekja slóðir landa síns, sem myrtur var, og fara um frum- skóga og fljót, sem aldrei hafa verið merkt á landabréf, um fjallaskörð og hásléttur, þar sem snjó tekur aldrei af tindum, þótt við miðjarðar- línu sé. Þessi bók er spennandi á borð við fræg- ustu lögreglusögur, en jafnframt er hún raun- sönn lýsing á lífinu í þessu græna víti. Bókin er skr’ifuð af Arne Falk Rönne og myndir í bókinni eru teknar af Jörgen Bitsch. Verð kr. 154.50. Vesalingarnir eftir VICTOR HUGO komu fyrst út í Frakklandi árið 1862 og mun mörgum víða um lönd verða fyrst hugsað til þeir’rar bókar, er þeir heyra minnzt á franskar bókmenntir. Vesalingarnir hafa áður verið þýdd- ir á íslenzku. Kom sagan þá neðanmáls í Lög- réttu, en var síðan sérprentuð, en er fyrir löngu uppseld. Enginn vafi er á, að hér mun þykja að því mikill fengur að geta nú fengið V e s a 1 i n g- a n a aftur til lesturs á íslenzku. Þetta er bók sterkra áhrifa, tilfinningahita og mikilla and- stæðna. Verð kr. 120.00. Rósa Bennett hjá héraðslækninum. Rósa Bennett hefur hin síðari ár, sem vænta mátti, eignazt fjölda vinstúlkna á íslandi. Sög- ui'nar af Rósu Bennett eru hressandi frásagnir úr lífi og starfi hjúkrunarkvenna, spennandi ævintýrum Rósu og kunningja hennar, sem allir eru hinir skemmtilegustu og beztu félagar. Verð kr. 62,00. Jólasveinaríkið Sænski rithöfundurinn Estrid Ott er einn kunnasti barnabókahöfundur á Noi'ðurlöndum. Hún hefur skrifað fjöldann allan af barnabókum, og hafa margar þeirra orðið mjög vinsælar. Ein þeirra, Jólasveinaríkið, sem hér birtist í íslenzkri þýðingu, er viðburðarík og skemmtileg bók. Óli, aðalpersóna bókarinnar, er ekki nema sjö ára gamall. Hann dvelur með álfum í draumum sín- um .kynnist lífi þeirra og daglegum störfum og lendir í fjölmörgum ævintýrum i ríki jóla- sveinanna. Þetta er kjörin bók fyrir börn á aldr- inum 6—10 ára. Bjarni Jónsson hefur teiknað allar skemmti- legu myndirnar, sem prýða bókina. Verð kr. 48,00. BÓKAÚTGÁFAN Tjarnarbraut 29, Hafnarfirði — Geimstöðin er ný bók um uppfinningarmanninn unga, Tom Swift og vin hans, Bud Bai'clay, sem kunnir eru orðnir af afrekum sínum í bókunum: Rannsókn- arstofan fljúgandi, Kjamorkukafbáturinn, Eld- flaugin, Gervirisarnir og síðast en ekki sízt Kjarn orkuborinn, sem út kom í fyr'ra. Geimstöðin er hörkuspennandi drengjabók, sem ekki verður lögð frá sér fyrr en hún er full- lesin. Ný ævintýri kjarnor'kualdarinnar heilla alla drengi, sem gaman hafa af viðburðarhröðum og spennandi sögum. Verð kr. 62,00. Eiríkur gerist íþróttamaður er norsk drengjabók, sem eflaust mun falla ís- lenzkum drengjum vel í geð. Þetta er kjörin bók þeirra drengja, er gaman hafa af íþróttum og Eiríkur er söguhetja, sem ungir piltar munu taka sér til fyrirmyndar og allir foreldrar munu stoltii af að eiga fyrir son. Verð kr. 48,00. SNÆFELL Sími 50738.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.