Tíminn - 17.12.1960, Side 16

Tíminn - 17.12.1960, Side 16
I! *-H3 Laugardaginn 17. desember 1960. 286. blað. Fegurð íslands í máli og myndum Tólf þjóftkunnir menn lýsa eftirlætisstöíum sínum — upphaf aí miklu verki f gær barst blaðinu ný Helgafellsbók „ísland í máli og myndom", mjög sérstæS bók og falleg. Hefur forlagið snúið sér til tólf þjóðkunnra manna og beðið þá að skrifa grein um uppáhaldsstaðinn sinn, sveit hérað eða blett, eins konar ástarjátningu til landsins. Forlagið ráðgerir að halda þess- ari útgáfu áfram en í þetta fyrsta bindi skrifa eftirtaldir menn, sem allir eru pjóðkunnir: Alexander Jóhannesson, fyrrv. rektor grein hans heitir Skagafjörður, Davíð Sxefánsson skáld frá Fagraskógi skrifar um Eyjafjörðinn efl nefnir grein sína í haustblíðunni. Einar ól. Sveinsson, Úr Mýrdal, Guð- brandur Magnússon, Landnám ein- staklingsins, Gísli Guðmundsson, aiþingismaður, Á norðurslóðum, Helgi Hjörvar, fyrrv. skrifstofustj. útvarpsins, Grængresi, Jóhann Briem, listmálari, Þjórsárdalur, Jóhann Gunnar Ólafsson, Ef að — 8 dagar til jóla — Askasleikir kemur í dag Sá sjötti, Askasleikir, var alveg dæmalaus. — Hann fram undan rúmunum rak sinn ifjóta haus. Þegar fólkið setti askana fyrir kött og hund, hann slunginn var að ná þerm og sleikja á ýmsa lund. Teikning eftir Tryggva Magnússon. Vísurnar gerði Jóhannes úr Kötlum. staður finnst um frón, Kristján Karlsson, rithöfundur, Mývatns- sveit, Páll ísólfsson, tónskáld, (Framhald á 13. stðu). Shakespeare-þýðingar Bókin sem allir tala um fæst hjá öllum bóksölum. Bókaútgáfan SAGAN Matthíasar komnar út Þá eru Shakespeare-þýðing- ar Matthíasar Jochumssonar komnar út í þriðju prentun á vegum ísafoldarprentsmiðju, nýtt bindi af ritum Matthíasar, mikið að vöxtum og vel búið. í bindinu, sem er nær fjögur hundruð blaðsíður að stærð, þétt- prentaðar og lesmálsdrjúgar, eru fjórir songarleikir, Macbeth, Ham- let, Rómeó og Júlía og Othelio. Shakespeare-þýðingar Matthías- ar hafa verið ófáanlegar í mörg ;ár, en hér koma þær allar í vand aðri útgáfu með skýringum Matt- híasar sjálfs og bókarauka eftir Svein Einarsson, sem ritar um leikhússlíf í Engiandi á dögum Shakespeare. Með leikritum Shakespeare er ritsafn séra Matthíasar, það sem nú er að koma út hjá ísafold, orð- »ið fjögur bind>i. Fyrsta hindið geymir frumsamin ijóð, annað hihdið þýdd Ijóð, hið þriðja Sögu- kafla af sjálfum mér og svo hið fjórða, iþetta nýkomna, leikritin, Kviknaði í Skrattabæli Að kvöldi miðvikudagsins 7. des. sl. varð elds vart í gömlu húsi, sem stendur við eitt gróðurhúsa Ingimars Sigurðssonar, garðyrkju- bónda að Fagrahvammi. Sviðnaði þar eitthvað lauslegt á gólfi, og •lagði af i’eyk. Slökkvilið Hvera- gerðis slökkti: fljótlega. — Hús þetta er bárujárnsklætt timbur- hús, sem starfsfólk gróðurhúsanna hefur stundum dvalizt í. Enginn dvaidist í húsinu, er eidurinn kom upp. Meðal Hvergerðinga hefur húsið ver'ið nefnt „Sfcralttabæli“ — en enginn veit hvers vegna! Tollpóstur til sex Mikill póstur berst að erlendis þessa dagana. Fólki sem fær send irgar erlendis frá skal bent a að tollpóststofan verður opin til klukkan 6 í kvöld. sem hann þýddi. Einnig er'u Sög’ ur herlæknisins, sem Matthías þýddi, þrjú stór bindi, nýiega kom- in út á vegum ísafoldar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.