Tíminn - 06.01.1961, Qupperneq 2
2
TÍMINN, föstudagina 6. jamiar 1961,
Reynt að forSa strasdi
(Framhald af 1. síðu.)
Viðskiptamálaráðherra hefur
tjáð mér, að sjávarútvegurinn eigi
nú við að etja reks'trarfjárörðug
leika, er einkum stafi af þvi, að
fyrirtæki hafi á undanförnum ár-
um ekki fengið nægilegt fjármagn
til langs tíma vegna þeirra fram-
kvæmda, sem þau hafa ráðizt í.
Um leið og vertíð hefst sé því nauð
synlegt að gera ráðstafanir til þess
að allmiklu af skuldum sjávarút-
vegsins til skamms tíma verði
breytt í löng lán. Ríkisstjórnin
telur því brýna nauðsyn bera til,
að stofnlánadeild sjávarútvegsins
verði nú þegar heimilað að opna
nýja lánaflokka, er geri henni
kleift að vinna að lausn þessara
mála. Jafnframt er nauðsynlegt að
ákvæði séu sett um heimild til
tímabundinnar innheimtustöðviín-
ai, sem grípa megi til, ef á þarf
að halda, til þess að koma í veg
fyrir rekstrarstöðvun á meðan ver
ið er að athuga fjárhag fyrirtækja
sem sækja um lán.
Með því að ég felst á, að brýna
nauðsyn beri til að setja viðbótar
lög um stofnlánadeild sjávarútvegs
ins, eru hér með samkvæmt 28. gr.
stjórnarskrárinnar, gefin út bráða
birgðalög á þessa leið:
1. gr.: Stofnlánadeild sjávarút-
vegsins er heimilt að opna nýja
lánaflokka í þeim tilgangi að bæta
fjárhagsaðstöðu fyrirtækja, er
stunda sjávarútveg og fiskvinnslu
og hafa ekki á undanförnum árum
fengið nægilegt fjármagn til langs
tíma til þeirria framkvæmda, sem
þau hafa ráðizt í.
2. gr.
Lán þessi sikulu aðeins veitt
gegn veði í fiskiskipum, vinnslu-
stöðvum og vélum sjávarútvegsins
og með einfaldri ábyrgð viðskipta-
banka viðkomandi fyrirtækis.
Lánstíma skal miða við áætlaðan
endingartíma hinna veðsettu eigna.
Hámarkslánstími skal vera sem
hér segir: Lán út á fasteignir 20
ár, lán út á skip 15 ár og lán út á
vélar 10 ár.
Vaxbakjör skulu ákveðin af
stjórn stofnlánadeildarinnar að
höfðu samráði við ríkisstjórn.
Aður en lán er veitt, skal fara
fram nýtt mat hinna veðsettu
eigna, þar sem þær skulu metnaT1
til endurkaupsverðs að frádregnum
afskriftum, er miðist við rýrnun
eignarinnar frá því að hún varð
til.
Telji stjórn stofnlánadeildarinn-
ar, að fengnum tillögum frá við-
skiptabanka umsækjanda, þörf á
sérstakri athugun á fjárhag um-
sækjanda, áður en unnt verði að
afgi'eiða lánbeiðni frá honum,
getur hún tilkynnt það skiptaráð-
anda, og er þá hvers konar kyrr-
setning eða aðför vegna skuldbind-
inga lánbeiðanda óheimil á hendur
honum og ábyrgðarmönnum hans,
þangað til lánsumsókn hefur ver'ið
afgreidd, þó aldrei lengur en til
31. desember 1961. Eigi verður bú
hans heldur tekið til gjaldþrota-
skipta á því tímabili.
Frá því stofnlánadeild hefur
sent ofangreinda tilkynningu til
skiptar’áðanda og þar til lánsum-
sókn hefur verði afgreidd, þó ekki
lengur en til 31. desember 1961,
má lánbeiðandi ekki selja eignir
sínar umfram venjulega afurða-
sölu og ekki veðsetja þær nema
fyrir nauðsynlegum rekstrarlánum
og yfirléitt ekki gera neinar þær
ráðstafanir, er veruleg áhrif geti
haft á efnahag hans.
4. gr.
Lánveitingar samkvæmt lögum
þessum skulu háðar ákvæðum laga
nr. 41/1946, þó ekki ákvæðum 3.—
11. greinar.
í reglugerð, sem ráðherra sá,
sem fer með bankamál, gefur út að
fengnum tillögum stjórnar stofn-
lánadeildarinnar, skal setja nánari
reglur um lánskjör og önnur atriði,
eftir því sem ástæða þykir til.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 5. jan. 1961.
Ásgeir Ásgeirsson.
(L. S.)
Gylfi Þ. Gíslason.
Segir lausu starfi
Á fundi bæjarráðs 27. des. s. 1.
var lagt fram bréf frá skjala- og
minjaverði, þar sem skýrt er frá að
Oddur Björnsson, starfsmaður við
safnið hafi sagt lausu starfi sínu.
SamiS um kaup
á íbuðarskúr
Á þessum sama fundi heimilaði
bæjarráð húsnæðisfulltrúa að semja
um kaup á íbúðarskúr Hallmundar
Sumarliðasonar, Setsvör 2, svo sem
lagt var til í bréfi hans dags. 22 þ. m.
Brottflutningur á skúr
samþykkt
Á fundi bæjarráðs var lagt fram
bréf Þorgeirs Jóhannssonar, dagsett
10. þ. m., um brottfl'utning skúrs,
er stendur á lóðinni nr. 24 við Álf-
heima, og ennfremur lögð fram um-
sögn lóðanefndar. Féllst bæjarráð á
umsögnina.
Stöftumælar vií
Tryggvagötu
Á þessum sama fundi var lagt
fram bréf frá lögreglustjóra, dagsett
22. f. m., með þeinri tiUögu umferðar
nefndar frá 30. nóv., að stöðumælar
verði settir upp í Tryggvagötu, sunn
anmegin götunnar frá Pósthússtræti
að Ægisgötu, með þeim undantekn
ingum, að bifreiðastöður verði bann
aðar frá Naustunum að Grófinni og
á beygjunni við vélsmiðjuna Hamar.
Stöðutími verði 15 og 30 mínútur.
Skautar hverfa
í fyrraikvöld var piltur nokkur, 11
ára að aldri, að koma frá því að leika
sér á skautum á Tjörninni, en
gleymdi skautunum sínum í biðskýli
strætisvagnanna við Kalkofnsveg.
Þetta voru brúnir skautaskór með
hvítum reimum, stærð nr. 38, og
voru skautarnir festir undir með eir-
nöglum. Tegundin heitir Ving, og
skautarnir eru hlaupaskautar. Sá,
sem fann skautana, eða aðrir þeir,
sem upplýsingar geta gefið, eru
beðnir að láta rannsóknarlögregluna
vita.
ICona öklabrotnar
Kl. 18,20 í gærkveldi datt kona i
tiúsasundi við Laugaveg 67 og mun
sennilega hafa brotnað á hægra
ökla. Konan heitir Aðalheiður Þór-
arinsdóttir. Var hún flutt á slysa-
varðstofuna.
Fyrirsögn í ÁlfiýðublaSinu í gær:
Alþýðutólaðið kom fram með merkilegt nýyrði í gær. Menn kannast við
topphænur, toppendur, toppfigúrur og toppídíóta, — en nú hafa topp-
kratar bætzt í safnið.
Innbrot á
Ákranesi
í fyrrnótt var brotist inn í
skrifstofu Sigurðar Hallbjörns
sonar h.f. á Akranesi, en skrif
stofa þessi er uppi á lofti í
fiskvinnslustöð fyrirtækisins,
á svokölluðum Kampi við Vest
urgötu. Hafði þjófurinn kom
izt inn í gamalt hús eða skúr
sem áfastur er aðalbygging-
unni, brotið upp hurð á milli
og þannig komizt inn í aðal-
bygginguna. Síðan hélt hann
upp á loft, reyndi fyrst að
brjóta upp timburþil að skrif
stofunni, en það gekk ekki sem
bezt. Sprengdi hann hurðina
þá upp. Á skrifstofunni var
ekki peningaskápur, heldur
læst skrifborð. Sprengdi þjóf
urinn það upp og náði í 3000
krónur í seðlum. í skrifborð-
inu var einnig talsvert af
vinnulaunum í umslögum, en
annað hvort hefur þjófurinn
ekki tekið eftir þeim, ellegar
haldið að í umslögunum væri
ávísanir, og voru þau þess
vegna ósnert. — Málið er í
rannsókn. -Guðm.
Grænlahd
(Framhald af 16. síðu).
ungu. í fyrstu kom það ekki
út nema einu sinni á ári eða
svo og var dreift um eins og
bók og allir lásu með mikilli
áfergiu. Árið 1952 var blaðið
Fjórir Akur-
eyrartogarar
bundnir
Fjórir togarar ÚtgerSarfé-
lags Akoreyringa h.f. eru
bundnir við bryggju síðan
fyrir áramótin, og er ekki fyrir
séð, hvenær þeir komizt á sjó,
vegna fjárhagskreppu útgerð
arinnar.
Útgerðarfélagið gaf í gær út
fréttatilkynningu um ástandið þar
sem segir, að áfallin iðgjöld af
tryggingum skipverja hjá trygg-
ingastofnun ríkisins og ógrerdd
útflutningsgjöld af ísfis'kförmum
seldum erlendis nemi meira fé en
félagið hafi getu til að leggja út.
Látið er í ljós það álit, að meðan
aflabrögð og veðurfar haldast svip-
uð og að undanförnu sé ekki væn-
legt að senda togarana til veiða.
Skipin eru hins vegar höfð reiðu-
búin í von um að greitt verði af
opinberr'i hálfu úr fjárhagsörðug-
leikum útgerðarinnar, og skiþverj-
ar félagsins verða á kaupi, þar til
annað verður ákveðið. — Fimmti
togari útger'ðarfélagsins er á veið-
um.
svo sameinað Grönlandspost-
en. Ritstjórar voru lengst af
Grænlendingar.
Fréttir M landsbyggðinni
Fagnaí nýju ári
Siglufirði, 3. jan. — Hér var
gamla árið kvatt með venjulegum
hætti, og fór það allt fram með
rólegheitum og spekt. Tendruð
voru blys að venju í hlíðinnj fyi'ir
ofan bæinn — í Hvanneyrarskál
frammi á brúninni og upp í hlíð-
inni beggja megin. Voru þar allt 60
blys. Neðan við skáltna í hlíðinni
var svo aftur raðað bálstöngum
svo að mynduðu ártalið 1961.
Skíðamenn stóðu fyrir þessu að
vanda. 2 skip voru í höfninni, og
var þaðan skotið miklu af flug-
eldum. Álfadans og brenna voru
niðrr í bænum, og fjölmenntu bæj
arbúar þangað. Stóðu kennarar og
nemendur Gagnfræðaskólans fyrir
þeirri skemmtun. BJ.
„Einar Hálfdáns“, nýr
látur
Bolungarvík, 5. jan. — Nýtt 250
lesta austur-þýzkt skip kemur til
Bolungarvíkur í kvöld. Eigandi er
Einar Guðfinnsson, en skipstjóri
er Hálfdán Einarsson, einn afla-
sælasti skipstjóri þeirra Bolvík-
inga, sem kemur með skipið frá
Þýzkalandi. Nafn .hins nýja skips
er Einar Hálfdáns, og verður það
gert út á línu þegar í stað upp
úr helginni. GS. ,
Bátar í slipp
Eyrarbakka, 4. jan. — Vertíðar-
undirbúningur er í fullum gangi
hér í slippnum, en þar eru nú
fimm bátar. Einn er kominn á flot.
Ekki er venjulegt, að róðrar séu
hafnir héðan fyrr en viku eða
hálfan mánuð af janúar. ÓM.
Þeir fóru heldur
betur „á ba(J“
ísafirði, 4. jan. — í fyrradag
lön^uðu hér nokkrir togarar smá-
slöttum af fiski, 8—20 lestum.
Þetta var heimatogarinn Sólborg,
Maí og Karlsefni að sunnan og svo
einn færeyskur togari. f hópi skip-
verja var margur „vaskur“
drengur, og gerðist hin mesta óöld
í bænum við komu S'kipanna
og drykkjuskapur svo að til vand
ræða horfði. Brúarfoss kom hing-
að til að taka 800 lestir af fiski-
mjöli til útflutnings, og er þetta
fyrsta koma skipsins hingað. GS.
PatreksfjarÖarbátar róa
Patreksfirði, 5. jan. — Héðan
var farið í róðra strax um kvöldið
1. janúar. Bátarnir eru 4, og bezti
afladagurinn var í gær, 6—8,7 lest-
ir. Gæftir hafa að vísu verið mis-
jafnar, og ekki hægt að sigla á
beztu miðin, norðvestur af Bjargi,
af þeim sökum. Kaldbakur h.f., eitt
Vatneyrarfyrirtækjanna, hefur tek
ið austur'-þýzka togarann Pétur
New York/Havana 5. |an.
(NTB) — 65 starfsmenn sendi
ráðs Bandaríkjanna í Havana,
komu til Palm Beach á Florida
í dag. 10 starfsmenn eru eftir
í Havana en þeir eru væntan
legir heim mjög fljótlega. —
Sviss mun eftirleiðis gæta
hagsmuna Bandaríkjanna á
Kúbu.
Blaðafulltrúi sendiráðsins kvað
það ekki hafa komið á óvænt að
Thorsteinsson á leigu hjá Suður-
fjarðarhreppi, sem kominn var í
þrot með reksturinn, og gerir hann
út á línuveiðar héðan. Heyrzt hef
ur einnig, að fyrirtækið muni
kaupa annan hát og gera út héðan,
og munu þá róa héðan 6 skip í
vetur. Bátarnir hafa í haust og
fram að áramótunum aflað 130—
200 tonn hver, og má það heita
sæmilegt en lakar'a þó en árið áð-
ur. S.J.
Flestir vegir færir
Reyðarfirði, 3. jan. — Hér hefur
verið blíða síðasta tímann og snjó-
laust að kalla í byggð. Góð færð
er nú orðin yfír dalinn til Egils-
staða. Eskifjarðarvegurinn er op-
inn, en Fáskrúðsfjarðarleiðin lok-
aðist 22. des., og er það óvenju
seint. 2—4ra stiga hiti er hvern
dag, og helzt má það að veðri
finna, að það hefur verið vætu-
samt. MS.
stjórnmálasambandi var slitið við
Kúbu. Hins vegar eru blöð víðs-
vegar um heim ekki á einu máli
um þetta. Kommúnistablöð telja
þetta lið í undirbúningi að inn-
rás á Kúbu, og blöð á Bretlandi
telja, að stjórnmálaslitin hafi verið
fijótfærnislegur verknaður og ó-
nauðsynlegur nú rétt fyrir stjórn
arskiptin. Bandaríkin vísa á bug
ásökunum Kúbu um innrás á eyna.
Hins vegar segjast andbyltingar-
menn á Kúbu albúnir að láta til
skarar skríða í byrjun febrúar en
þeir muni ekki fá styrk frá
Bandaríkjunum.
Stjórnmálaslitin fljót
færnisleg ákvörðun