Tíminn - 06.01.1961, Page 9
TÍMINN, föstndaglnn 6. janúar 1961.
9
í dag er sextugur Tómas
Guðmundsson, skáld.
í stuttri blaðagrein eru eng
in tök á að rekja ævi og
þroskaferil skáldsins til neinn
ar hlítar, eingöngu bent á
nokkur atriði í skáldskap og
lífsviðhorfi þessa ljóðsnillings
íslendinga. Þeim sem nota
vilja afmæli Tómasar til
glöggvunar á skáldinu og
manninum, skal bent á bráð
skemmtilega og fróðlega sam
talsbók Matthíasar Jóhannes
sens en hún er nýlega komin
út á forlagi Almenna Bóka-
félagsins. Þá hefur Helgafell
gefið út heildarsafn af ljóð-
um Tómasar í tilefni dagsins
og fylgir því safni ítarlegur
,formáli Kristjáns Karlssonar.
Tómas Guðmundsson hefur
hvorki lifað viðburðaríka né
stórbrotna ævi, sé litið á ytri
atvik eingöngu. í æviskrám
er þess getið að hann sé fædd
ur þennan dag fyrir 60 ár-
um á Efri-Brú í Grímsnesi,
sonur hjónanna Steinunnar
Þorsteinsdóttur og Guðmund-
ar hreppstjóra Þórarinssonar.
Stúdentspróf 1921, kandídats-
próf í lögfræði 1926, málflutn
ingsmaður í Reykjavík 1926—
1929, aðstoðarmaður á Hag-j
stofu íslands 1929—1943.
Svo litsnauð upptalning ár-
tala og atvika segir lítt til um
það, að hér er á ferð eitt
þroskaðasta og listrænasta
ljóðskáld þjóðarinnar, skáld
sem veitti þrá og söknuði
heillar kynslóðar útrás í lif-
andi orði. Skáld sem auðgaði
ljóðheim íslendinga að fín-
gerðari lyrik en áður hafði
heyrst og nam ný lönd hugar
og hjarta.
Tómas Guðmundsson ólst
upp heima í Grímsnesinu unz
hann fer til Reykjavíkur og
sezt í fyrsta bekk Menntaskól
ans. Bráðungur hafði hann
fyllt þykkar stílabækur af
kvæðum og vísum, lært af móð
ur sinni af festa sér fegurð-
ina í minni, reikað um skóg-
inn sem angaði allan daginn
og látið sig dreyma við elfunn |
ar söng. Víst er um það að
söngur elfunnar niðar í flest j
um ljóðum hans síðan og verð i
ur því greinilegri sem lengra:
líður frá því hann reikaði
drengur á bökkum Sogsins. (
Og hvort skyldi vísir að hóg |
látri og innlifaðri kímni:
skáldsins lejmast í tilsvari
sem sveitungar hans hafa
eftir honum þriggja ára
gömlum. Frænka hans ein
dvaldi á heimilinu og tók ó-
spart í nefið, einn morgun
réttir hún sveininum pontu
sína og spyr hvort hann vilji
fá sér í nefið. Tómas lét ekki
á sér standa en fyllti nasirn-
ar af tóbaki, hnerraði síðan
ósköpin öll, kastaði upp og
fékk óstjórnlegan svima. Síðar
sama daginn þegar drengur-
Inn hafði nokkum veginn náð
sér eftir þessa hrellingu, rétti
frænkan pontuna að honum
aftur og bauð honum meira.
„Nei, ég tek ekki í nefið nema
einu sinni á dag“, svaraði
Tómas.
Leiðin liggur úr friðsælu
bernskunnar í upplausn og
ólgu Reykjavíkurlífsins. Borg
in tekur á móti hinum hrif-
næma sveini með ljóðum, víni
og söng. Gömul siðalögmál og
lífshættir höfðu farið for-
görðum með breyttum þjóð-
Sextugur í dag:
Tómas Guðmundsson
skáld
III
:
féiagsvenjum og upplausn
eftirstríðsáranna.
Fegurðin, ástin og sorgin
eru leiðarstjörnur hins óstýri
láta unga skáldakyns sem vex
úr grasi. Tómas er ölvaður af
unaðsemdum lífsins, sólskinið
ljómar í Austurstræti og hann
á stefnumót fyrir sunnan
Fríkirkjuna, jafnvel kola-
kraninn finnur náð fyrir aug
um hans og verður að skáld-
skap.
Hér lærðist oss að skrópa úr
lífsins skóla.
Hér skalf vort hjarta sumar-
langt af ást.
Og þótt hún entist sjaldan
heila sóla.
fann sál vor nýja, þegar önn-
ur brást.
Tómas yrkir um Reykjavík
og lítur borgina nýjum aug-
um, hann er fyrstur allra
skálda að sjá höfuðborgina í
skyni draums og ævintýrs og
lesendur hans uppgötva fullir
undrunar að umhverfi þeirra
er þrungið Ijóðrænum og skáld
legum töfrum, þrátt fyrir
skarkalann, kotungsbraginn,
drabbið.
Strætin syngja. Gatan glóir.
Grasið vex á Arnarhól.
Tómas nýtur lífsins, æsku
og ástar. Á þessum árum höf
um við fyrir satt að ungt skáld ;
í menntaskóla (4. bekk?) hafi
lötrað þungt hugsi í kringum |
Tjörnina og gotið óhýru auga
að Iðnó. Þar fór fram dans-
leikur og þar var ástin hansi
á Hagstofunni. Veröldin er
köld og grá í augum skálds-
ins sem þráir „safírbláa voga“
og „keisarans hallir“. Því verð
ur Tómasi að líta um öxl og
gefa sig á vald endurminn
ingum og leiðslu horfinna
daga. Hann lifir æsku sína
á ný í ljóðunum, vekur upp
fornar ástir og vermir hugann
við eilífðarvonina:
En hver veit nema Ijósir
lokkar,
lítill kjóll og stuttir sokkar,
hittist fyrir hinumegin?
Þá getum við í gleði okkar
gengið suður Laufásveginn.
Tómasi-hefur stundum ver
ið legið á hálsi fyrir að víkja
undan vandamálum dagsins,
koma sér hjá að taka afstöðu
jtil þeirra afla sem stríða um
iheiminn. Raunar tekur skáld
ið afstöðu til málanna, þótt
hann æpi ekki á gatnamótum
og hitt mun sönnu nær að
þeir sem ásaka hann fyrir
hættulegt hlutleysi í þjóðfé-
lagsmálum, finna að afstaða
hans er einmitt ákveðin og
einbeitt. Tómas er ekki bylt
ingaskáld sem heimtar nýjan
heim, hann er ekki kominn
til að boða mönnum þúsund-
áraríki á jörðu.
Hann sættir sig við ríkj-
andi skipulag og trúir raun-
ar á það. En réttlætiskennd
hans er næm og hann líður
engum að troða á þeim sem er
minni máttar né undiroka
þá sem miður mega sín.
Hann krefst frelsisins öllum
til handa en það er hvorki
frelsi öreigans né auðjöfurs-
ins — heldur einfaldlega það
frelsi sem er fólgið í því „—
að mega lifa eins og manneskj
ur.“
Pólitískir öskurapar hafa á-
sakað Tómas fyrir hégómlegt
formdekur og líkt ljóðum hans
við innihaldslaus skrautker.
Hann iðki listina listarinnar
vegna, hafi engan boðskap að
flytja og hafist við í fílabeins
höll, fjarri hjartaslögum lífs
ins. Slíkar ásakanir sýna ekki
annað en það að Tómas hef-
ur rétt fyrir sér þegar hann
segir við Matthías Johannes-
sen: „Einræðisríkin vita, að
skáldskapur og listir efla ein
staklinginn til andstöðu við
samhæfinguna, magnar sér-
eðli hans gegn múgeðlinu.”
Enda hefur sýnt sig að Tóm
as býr yfir þeim manndómi að
tala skýrt og skorinort þegar
honum er niðri fyrir og mik-
ið liggur við. Það sýna kvæði
(Framhald á 13. síðu.)
ein. Hann hafði ekki fengið
inngöngu í salinn, hvort sem
það var vegna þess að skot-
silfur hrökk ekki fyrir inn-
gangseyri eða strangari kröf
ur voru gerðar til klæðaburð
ar en hægt var að uppfylla.
Þrisvar hafði hann knúið
dyra og beitt allri sinni fljúg-
and mælsku til að fá dyra-
vörðinn á sitt mál og lofa sér
að smjúga inn svo lítið bæri
á. En allt kom fyrir ekki, dyra
verðinum varð ekki hnikað og
allt útlit fyrir að skáldið unga
yrði af samfundum við ást-
mey sína í kvöld. En þessi ár
voru tími blossandi inspíra-
sjóna og nú kom það skáldinu
að gagni. Hann minntist þess
að á Slökkvistöðinni átti hann
góða vini og þeir áttu aftur á
móti langan stiga. Þangað
flýtti sér skáldið og nú bar
mælskan árangur, innan
stundar var hlaupið með him
inháan stiga á handvagni út
að Iðnó, stiginn reistur i
snatri upp að opnum glugga
á efri hæð hússins og skáldið
flaug þannig á vit ástmeyjar
sinnar. Kvöldinu var borgið.
Og ungir elskendur mætast,
Dg óskir hjartnanna rætast,
er húmið hnígur á bæinn
En brátt eru þessi ár liðin,
söknuður og tregi kominn í
stað leiftrandi ástar og lífs-
gleði. „Stúdentsárin æsku-
glöð“ eru að baki, nú er setið
á málflutningsskrifstofu og
beðið eftir strjálum viðskipta
vinum og loks sezt um kvrrt
FLJÓTIÐ HELGA
Að haustnóttum einn ég að heiman geng
því harms míns og gleði bíður
hið myrka fljót, sem við flúð og streng
svo fallþungum niði líður.
Það kom hingað forðum á móti mér
hvern morgun í sóldýrð vafið.
í kvöld á það sefandi söng, sem ber
minn síðasta vordag í hafið.
Já, hér fann ég aldir og örlög hjá
í elfunnar niði streyma,
og hljóðum mér dvaldist við hylji þá,
sem himin og stjörnur geyma.
Þar hvarf mér sú veröld, sem vökunnar bm*
Þar varð mér hver ævinnar dagur
að heilögum söng, er um hjartað leið
svo harmdjúpur, sár og fagur.
Þá settust þeir íöfrar í sál rainni að,
sem síðan ég mátti ekki verjast.
Og því lét mig ósnortinn æðimargt það,
sem öðrum varð hvöt til að berjast.
— Ég veld þeirri sök, því ég veit hver hún er.
sú veröld, sem fékk mín ei notið.
En hér fann ég ungur í hjarta mér
þann himin, sem ég gat lotið.
Og geiglausum huga ég held til móts
við haustið, sem allra bíður.
Og tregandi harmljóð hins helga fljóts
úr húminu til mín líður.
Eins veit ég og linn, að það fylgir mér
um firð hinna bláu vega,
er hníg ég eitt síðkvöld að hjarta þér,
ó, haustfagra ættjörð míns trega.
y{(S\v\cj\ ðnrvj .
r
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
/
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}
}