Tíminn - 12.01.1961, Síða 3

Tíminn - 12.01.1961, Síða 3
jT’f'MTN-N, fimmtudaglnn 12. janúar 1961. Þessi mynd var tekin við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti í gærdag og sýnir gerla það tjón, sem þar varð, af rokinu í fyrrinótt. (Ljósm. TÍMINN, K.M.) Rokið í fyrrinótt olli víða tjóni Veðurhæðin mest í Eyjum. Bátar sukku í Keflavík. • —i 3\ Hefur Van Acker leyst Gordíonshnútinn: Málamiðlun líkleg eítir 23 daga átök Leiðtogar stjórnmálaflokkan'na á fundi með Eyskens til að finna leiðir til lausnar verk- fallinu — breytingartillaga Van Ackers sam- þykkt í belgíska þinginu í fyrrinótt gerSi aftakaveð- ur af suðaustri um Suðvest- urland. Víða urðu nokkrir skaðar í óveðri þessu, en svip legastur var sá þáttur, sem veðurhæðin mun hafa átt í því, að togarinn Marie Jose Rosette fórst við Vestmanna- eyjar. Aftökin urðu mest í Vestmanna eyjum. Þar fór vindhraðinn upp í 13 vindstig. Varð þar hvassast um þrjúleytið í fyrrinótt. Voru kcmin 11 vindstig um miðnætti. Fauk þar þak af hlöðu í Þórlaug- argerði, og varð bóndinn þar, Páll Árnason, fyrir allmiklu tjóni. Telur hann þetta hafa verið með verstu veðrum í Eyjum. í Reykja- vík varð hvassast á fimmta tím- anum í gærmorgun, en veðurhæð- in mun varla hafa farið yfir 10 v:ndstig. Ofviðrið geisaðj um allt Suðvesturland. en var verst með- f'am ströndnni. Víða varð nokk- urt tjón af völdum veðursins. Athens — Georgíufyliii NTB 11. jan. — Örlagaríkt spor í sögu Georgíu var stigið í dag, er tveir blökkumenn hófu nám í hinum 175 ára gamla háskóla fylkisins. Blökku mennirnir heita Charlayne Hunter, 18 ára, sem ætlar að nema blaðamennsku, og Hamilton Holmes, 19 ára læknastúdent. , Nokkrir forvitnir stúdentar fylgdust með þeim félögum, er þeir sóttu fyrstu tímana í morgun, en ekki verður sa.gt Steypumót Hallgrímskirkju í Reykjavík mun einna mest tjón hafa orðið á Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti. Þar fuku steypu mót, sem búið var að slá upp, allmikið mannvirki, og fauk spýtnabrak og fjalir vítt um völl. Búið var að setja járnbinzli i nokkurn hluta af mótunum. Það verk er auðvitað einnig ónýtt, og er þetta tjón allt mjög tilfinnan- legt. Húsið logaði utan Stór vinnuskúr tókst á loft í Álfheimum í Reykjavík. Kastað- ist hann á raflínu og braut niður. staur. Við það slógust leiðslurnar í tólf hæða íbúðarstórhýsi, en raf- magnið læstist í hráblauta vegg- ii,a og hljóp eins og eldingar um allt húsið utanvert. Bátar slitn- uðu upp í höfninni, og áttu lög- regla og hafnsögumenn fullt í fangi við að festa þá og koma á reglu og láta eigendur vita, hvern- íg komið væri. Braggi við Skúlagötu fauk. og að koma þeirra hafi vakið neina sérscatka athygli Dómsúrskurður er fyrir því, að háskóli þessi skal öll um opinn, en staðarleg yfir- völd hafa lengi reynt að hamla þar á móti. Holmes sagði í blaðaviðtali í dag, að hann hefði ekki trú á því, að stúdentar við háskólann myndu gera blökkumönnum erfitt fyrir. Ef eitthvað yrði gert á þeirra hlut eða slíkt reynt, myndu þar vera að verki utanaðkomandi öfl. brak úr honum fór víða. Bæjar- srarfsmenn voru vaktir upp til að tína saman hráviði og járnplötur, en af þessru gat stafað mann- hætta. Ymislegt fleira en hér var talið fór á hreyfingu í fyrrinótt. Rigning mikíl fylgd veðrinu. M.a. flæddi inn í kjaliara Grensássbak- aríis, og hjálpaði lögreglan við að bera út úr geymslu þar Trillubáts saknað Mikinn hluta nætur í fyrrinótt var saknað trillubáts frá Akra- nesi. Héldu menn í fyrstu, að hún hefði farið til Reykjavlíkur, en ekki fannst hann þar í höfninni. Gttuðust menn þá um bátinn. Þetta var Biörg AK 21, 6 lesta og tveir menn á. Um hálfþrjú- leytið í fyrrinótt kom svo bátur- inn siglandi inn í höfnina á Akra- nesi, og þót.tu það undur í því veðri, sem þá var Bátar sukku Allvíða urðu truflanir a síma og rafmagni í óveðri þessu. Ekki er vitað um skemmdir á húsum eða öðrum mannvirkjum í Vest- mannaeyjum, þar sem veðrið var þó verst. f Keflavík spkku tveir trillu- bátar i höfninni. Annar þeirra a.m.k., Snærellingur var tekinn af botni í dag, mikið brotinn. í Sandgerði flæddi vatn inn í kjallara, enda var þar óvenju- niikið vatnsveður í Grindavík var bálhvasst snemma dags í fyrra- dag, og töpuðu sumir bátanna, sem á sjó voru, nokkru af línum. Einn mun hafa misst 15 bjóð Gekk norður yfir Veðrið gekk skyndilega niður millj klukkan 7 og 8 i gærmorg- un. Það komst norður yfir há- lendið, og gerði 9 vindstiga rok ! framhluta Skagafjarðar snemma um morguninn Einnig varð nokk uð hvasst á Austfjörðum Auglýsið í Tímanum Briissel—NTB, 11. jan. — Málum var á þann veg komið í Belgíu í dag, að bjartari horfur virtust vera á því, að málamiðlun tækist í hinu hatrama verkfalli, sem stað- ið hefur nú í 23 daga. Leiðtogar verkalýðssam- bands jafnaðarmanna komu saman til fundar í dag og ræddu það nýja viðhorf er skapazt hefur við þann vilja, er ríkisstjórnin hefur sýnt til samkomulags, eftir tillögu Van Ackers, fyrrverandi for- sætisráðherra, sem miða að því að draga úr og milda sparnaðarráðstafanir belg- ísku ríkisstjórnarinnar, en þær eru sem kunugt er or- sök hinna miklu verkfalla. .Verkalýðssamband jafnaðar- 'manna í Liege sendi í dag frá sér áskorun til flokks- manna um allt land, að styðja verkfallsmenn í enn ríkara mæli en fyrr, og skor- aði á landsmenn að hefja alls herjarverkfall til þess að mót mæla efnahagsaðgerðum rikis stjórnarinnar. Baldwin konungur ræddi í dag við Leo Collard, tals- mann stjórnarandstöðunnar. SÍÐARI FRÉTTIR: Fullvíst þykir nú, að fyrsta stóra skrefið til lausnar hinu alvarlega verkfalli í Belgíu hafi nú verið stigið, og segja má, að fullkomlega nýtt við- horf hafi nú myndazt. Formenn þriggja helztu stjórnmálaflokka landsins, kaþólska flokksins, jafnaðar- manna og frjálslynda flokks ins, komu saman í kvöld á lokaðan fund í skrifstofu Gastoon Eyskens forsætisráð herra, til þess að ræða leiðir til lausnar verkfallinu, sem komið er vel á veg með að leiða efnahag landsins á heljarþröm, og haft er eftir góðum heimildum í Brússel í kvöld, að sú lausn sé nú á næstu grösum, þó að vitað sé um harða andstöðu verka- lýðsforingja innan jafnaðar- mannaflokksins. Tillaga Ackers samþykkt. Formennirnir komu saman í skrifstofu forsætisráðherra eftir að þjóðþingið hafði ein róma samþykkt breytingartil lögu við efnahagsmálafrum- varp ríkisstjórnarinnar, sem borin var fram af Van Acker, fyrrv. forsætisráðh. jafnaðar- manna, og lögð fram í morg- un. En í gærkveldi flutti hinn aldni stjórnmálaskörungur ræðu í þinginu og kvatti til samninga og samkomulags. í morgun var þessi breyting- artillaga lögð fyrir stjórnar kjörna þingnefnd, sem þegar samþykkti nær einróma stuðning við hana — aðeins fulltrúi kommúnista greiddi atkvæði gegn stuðnimrsyfir- lýsingu. Umdeilt atriði. Breytingartillaga Van Ack ers var um mjög umdeilt at- riði í frumvarpi ríkisstjórn- arinnar, en samkvæmt breyt ingartillögunni skulu allar ráðstafanir stjórnarvalda vegna atvinnuleysis ræddar af þinginu, áður en þær koma til framkvæmda, en ráðstafan ir vegna atvinnuleysis voru mikið hitamál í verkfalli því, er nú hefur staðið í 23 daga. Stjórnmálafréttaritarar I Brússel eru sammála um það, að auðséð sé nú, að á báða bóga ríki mikill áhugi fyrir því að’ leysa hið alvarlega verkfall og binda endi á það ástand, er nú sé að því kom ið að setja Belgíu í tvær and stæðar heildir. PáH Þorleifsson bókari, látinn Páll Þorleifsson bókari, Hagamel 29, andaðist í fyrra- dag, eftir langvinna van- heilsu. Útför Jóns á Rjarna- stöðum Jón Marteinsson, fyrrver- andi bóndi á Bjarnastöðum í Bárðardal, var jarðsettur að heimili sínu í dag á 94. af- mælisdag sinn. Hann andað- ist 4. janúar. Sjóslys viö Marokkó- sírönd Tanger—NTB 11.1. — 21 lík hefur nú r'undizt eftir að lysti- snekkjan Priee fsá Honduras' fórst fyrir utan strönd Marokkó með 40 manns um borð. Aðeins þrír hafa fundizt með lífsmaiki, skipstjórinn og tveir af áhöfn- inni, en þeim var bjargað upp í spænskan fiskibát er kom á slys- staðinn. fjöldi skipa og báta tckur nú þátt í björgunarstarf- inu. Meirihluti þeirra er á skip inu voru, voru ísraelsmenn, m.a. konur og born. Merkisdagur í sögu Georgiufylkis: Blökkumenn hefja nám við háskóla fylkisins

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.