Tíminn - 19.01.1961, Blaðsíða 14
14
T f M I N N, fimmtudaginn 19. janúar 1961
skal íá að glápa á hana oft-
ar — nema ég,
Framkvæmdastjórinn flaug
í loftköstulum upp á hljóm-
sveitarpallinn: Hana, spil
ið rúmbu, strákar. Flýtið ykk
ur áður en allir eru farnir . . .
Einhver lagði kápu um
axlir mér og margar hend-
ur ýttu mér varlega í átt-
ina til hans ....
En þegar ég loks komst
til hans, var hann svo hljóð
ur og svo ástfanginn — og
aftur var hann það sem hann
hafði verið allan tímann, karl
maður, sem ég gat vafið um
litlafingurinn á mér. Hann
lagði höndipa utan um mig:
— Komdu, 'engill, vertu ekki
hræddur, sagði hann og rödd
hans var þrungin blíðu og
ást, — ég ætla aðeins að
fylgja yður heim, Alberta.
Mér hafði heppnast það. Já.
En mér datt ekki í hug, hvern
ig mér myndi takast að fá
farmiða til baka — mig grun
aði ekki, hvernig ég gæti
sloppið frá honum aftur.
íbúðin sem hann bjó í, var
stórkostleg. Hún var á efstu
hæð í gríðarmiklum skýja-
kljúf. Eg sagði að íbúðin
hefði verið stórkostleg og þar
á ég ekki aðeins við að hún
var smekklega innréttuð og
húsgögnin vönduð. Eg á við
þá sem í íbúðinni bjuggu. Þeir
pössuðu alls ekki inn í mynd
ina.
Við komum til dæmis inn
í stóra stofu með teppum á
gólfi og málverkum á veggj-
um, nýtízku húsgögnum og
öllu tilheyrandi. Og við ann-
að sófaborðið sat maður með
fráhneppta skyrtu og lagði
kapal og tómar ölflöskur
stóðu hjá honum á gólfinu.
Eða þegar við gengum inn
ganginn og hann sagði stolt
ur: Og hérna eru svefnher-
bergin. í þessu tilfelli var það
Kittens sem við fórum inn til.
Og lífvörðurinn lá í rúminu
og var að hreinsa pípuna sína
og yfir náttborðinu var
flannastór mynd af allsber-
um kvenmanni. Þegar McKfe
tók eftir því, sagði hann
gremjulega:
— Hvers lags óþverri er
þetta. Gaztu ekki tekið þetta
niður meðan ég er. að sýna
henni íbúðina.
Hann var á engan hátt nær
göngull við mig. Einu sinni
sagði hann hæglátlega: —
Allt þetta gæti verið yðar.
Eg lét sem ég hefði ekki
heyrt það, en lokaði augun-
um.
Eg var þarna í um það bil
klukkutíma og þegar ég kom
heim og fór úr kápunni,
skrjáfaði í öðrum vasanum.
Þar lá ávísun upp á tiu þús-
und dollara, undirskrifuð af
Jerome McKee og aftan á
hafði hann skrifað: Árslaun
fyrir störf í „90 klúbbnum".
Takið við þessu, engill.
En ég vissi hvernig ávís-
unin kæmi að mestum notum.
Eg smurði lit á varirnar á
ar það — þar sá ég hann.
Þegar hann hafði sýnt mér
íbúð sína nokkrum vikum
áður og ég kom auga á pen
ingaskápinn, hafði þeirri
hugsun samstundis lostið nið
ur í hug minn að í hann yrði
ég að komast, ef ég ætlaði
mér að ná í sannanir á móti
McKee. Þær hlutu að vera
í peningaskápnum — eða eitt
hvað sem gæfi sekt hans til
Eftir
Cornell Woolrich
33
mér og „stimplaði" með þeim
undir það sem hann hafði
skrifað. Eg skrifaði síðan:
Kærar þakkir, en ég tek ekki
við þessu.
Svo setti ég ávísunina í um
slag og sendi hana aftur til
hans.
í marga daga hafði hann
hringt til mín að minnsta
kosti tvisvar, þrisvar dag
hvern og minnt mig á sam-
kvæmið sem hann hafði
skipulagt, og að ég hefði lof
að að koma. Eg skyldi að
veizlan var haldin mér til
heiðurs, en hann var svo ákaf
ur að mér datt í hug að ég
ætti ekki einungis að vera
heiðursgestur, heldur ætti ég
einnig að leika húsmóður.
— Komið endilega í tæka
tíð. Eg sendi bílinn um sex-
leytið, hentar það?
— Það er óþarfi. Eg get tek
ið vagn ....
— Ekki að tala um. Þó ekki
væri. Bíllinn kemur.
Svo hélt hann áfram: —
Og gerið mér einn greiða —
verið í englabúningnum yðar
í kvöld. Eigið þér hann ekki
enn? Mig langar til að hin
sjái yður eins og ég geri.
— Eg skal með gleði vera
í honum, svaraði ég, en með
an hann talaði sagði ég við
sjálfa miig: Peningaskápur-
inn hans er innbyggður í
arininn í litla bókaherberg-
inu eða hvað hann nú kall-
kynna . . . ef hann var þá
sekur.
Hann var í smóking þegar
ég kom og skreytingamenn,
eldabuskur og þjónar voru á
spani fram og aftur að leggja
á borð fyrir um þrjátíu gesti.
McKee var eins og lítið barn
með ljómandi augu. Eg varð
að beita mig valdi svo að mér
gleymdist ekki að hann eða
aðstoðarmenn hans voru
menn sem vanir voru að
myrða ....
— Hvert er eiginlega til-
efnið — a,fmælisdagur yðar?
spurði ég.
— Ennþá betra en það. En
ég vil ekki segja yður það —
þér komizt að því seinna í
kvöld.
Lífvörðurinn Kittens kom
inn, fullur örvæntingar.
— Fjárinn sjálfur, ég get
ekki fengið slaufuna til að
sitja rétt. Eg hlýt að vera
taugaóstyrkur. Við höfum
aldrei haldið svona merkilegt
samkvæmi áður.
— Eg skal hjálpa yður,
sagði ég, til að McKee fynd-
ist enn meira til um mig.
Þegar ég sneri mér frá
Kittens, stóð McKee við hlið
mína og urraði og ég sá að
slaufan hans, — sem andar-
taki áður hafði verið í ágætu
lagi, hékk niður, skökk og
skæld.
Hann var afbrýðissamur út
í sinn eigin lifvörð.
Gestirnir tíndust að, tveir
og þrír saman. Þeir rembd
ust við hver í kapp við annan
að vera virðulegir eins og
þeim væri slíkt langt frá eðli
legt. Mennirnir brostu í sí-
fellu.
Eg sat við hægri hlið Mc
Kees og gat ekki slitið hug-
ann frá peningaskápnum:
Hann er innbygður í arininn í
bókaherberginu. Og ég verð
að komast í hann í kvöld.
Það er öruggara meðan allt
þetta fólk er hér. Með ein-
hyerjum ráðum verð ég að
sjá hvort ekki er eitthvað þar,
sem gæti gefið mér vísbend-
ingu.
Eg hrökk upp úr hugsun-
um mínum, þegar McKee
beygði sig ,að mér og sagði:
— Eg setti ekkert hjá yður
— þér eruð heiðursgestur. Og
ég hef dálítið handa yður,
sem þér fáið bráðum.
Ég leit í kringum mig og
sá að konurnar stóðu allar
á öndinni yfir púðurdósum
úr gulli, sem settar höfðu ver
ið við diskana þeirra.
Skömmu síðar reis McKee
úr sæti. Skeeter sussaði á gest
ina: — Þögn. Foringinn ætl
ar að talá.
— Mig langar til að segja
fáein orð. Eg býst við ykkur
langi öll til að vita, hvers
vegna ykkur var smalað hing
að í kvöld. Og nú skal ég út-
skýra málið. Öll finnum við
einhvern. Flestir karlmenn
finna aðeins konu. En -ég er
einn af milljón — ég fann
engil.
Þau störðu öll á mig og
klöppuðu kurteislega.
— Réttu mér hönd þína,
Engill, sagði McKee.
Eg rétti út höndina, var
dálítið kvíðandi hvað kæmi
næst. Skyndilega lá lítil opin
gimsteinaaskja á borðinu fyr
ir framan hann. Hringurinn
glitraði til mín frá silkifóðr-
inu, svo kaldur, óhugnanlega
kaldur'og stór og glæstur, og
áður en ég vissi af var hon-
um rennt upp á fingur minn.
Eg hafði aldrei á ævi minni
séð svona stóran gimstein.
Hann lyfti hönd minni
hægt og kyssti á hana og
koss hans vakti hjá mér
sömu kuldátilfinningu og
hringurinn sjálfur.
Leyfist mér að opinbera
trúlofun mína með ungfrú
Albertu French, sem á að
verða eiginkona mín.
Undir lófataki og undrunar
hrópum gestanna hallaði
hann sér að mér og hvíslaði:
— Segðu eitthvað við þau.
Segðu eitthvað. sagði hann
hvetj andi.
Ef andlit Kirks vildi að-
eins hverfa . . . . Eg hlýt að
hafa risið á fætur, því að allt
í einu var ég staðin upp, lyfti
kampavínsglasinu — ekki
móti McKee — heldur að
myndinni sem ekki vildi
hverfa úr hug mér og ég sagði
lágri en ákveðinni röddu:
— Eg drekk skál mannsins
míns.......
— Taktu hann ekki af þér,
sagði McKee seinna um kvöld
ið þegar við vorum inn í litla
bókaherberginu. — Maður má
ekki taka svona hring ofan, ég
hef heyrt það boði ógæfu.
— Nei, það er giftingar-
hrdngurinn, hugkvæmdist
mér að segja. — Ekki trúlof
unarhringurinn. Eg er hrædd
um hann. Það er svo margt
fólk hérna . . . maður veit
aldrei. Og sjáðu, hann er ofur
lítið of stór og ég vil ekki
týna honum. Leyfðu mér að
geyma hann í peningaskápn
um þínum, meðan ég er
hérna. Svo get ég sett hann
upp aftur, þegar ég fer.
Honum fannst ég vera töfr
andi. Það var sama hvað ég
hefði fundið uppá að gera,
standa á höfði eða ganga á
höndunum — honum hefði
fundizt allt jafn töfrandi.
Fímmtudagur 19. janúar:
8,00 Morgunútvarp.
12,00 Hádegisútvarp.
12,50 „Á frívaktinni“: SjómannaþátJ
ur í umsjá Kristínar Önnr
Þórarinsdóttur.
14,40 „Við, sem heima sitjum*
(Svava Jakobsdóttir).
15,00 Miðdegisútvarp.
18,00 Fyrir yngstu hlustendums
(Gyða Ragnarsdóttir og Erns
Aradóttir).
18,25 Veðurfregnir.
18.30 Þingfréttir.
19,00 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20,00 „Fjölskyldur hljóðfæranna":
Þjóðlagaþættir frá . Unesco,
menningar- og vísindastofnun
Sameinuðu þjóðanna; V.: Sítar,
lúta og gítar.
20.30 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Lárentíús-
ar saga (Andrés Björnsson).
b) íslenzk tónlist: Ýmis vetrar
iög sungin.
c) Upplestur: Magnús Guð-
mundsson les kvæði eftir
Matthías Jochumsson. N
d) Frásöguþáttur: Fótgang-
andi um fjall og dal; fyrri
hluti (Rósberg G. Snædal rit-
höfundur).
21,45 íslenzkt mál (Ásgeir Bl. Magn
ússon cand. mag.).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Úr ýmsum áttum (Ævar R.
Kvaran leikari).
22.30 Kammertónleikar.
23.10 :Dagskrárlok.
PJRÍKUR
VÍÐFÖRLl
Merki
Jómsvíkinga
60
Vúlfstan skipar manninum að
fiýta só.r til Eiríks konungs með
skilaboð urn skipti. Því næst stí.g
ur hann sjálfur á bestbak.
Hann kemur upp á na'S í nánd
við kastalann og sér manninn
fara yfir vindubrúna og veit að
boðskapur hans kemst til skila.
— Vúifstan krefst þess að þú
framseljir Sverri og Ax«i, segú-
maðurinn við Eirík. Á móti vill
hann lausláta drottninguna. Báð-
ar brýrnar skulu lyftast til merk
is um að þú séu samþykkur.
— Eg er reiðubúinn að fara-,
segir Sverrir. — Gerðu það ekki,
segir Eiríkur. Ur.i leið og hann
sér þig, mun l.ar.n drepa Vínónu.
— Eg er með uppástungu, kon
ungur, blustaðu á mig ....
I