Tíminn - 22.01.1961, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.01.1961, Blaðsíða 1
900 þúsund fjár á fóðrum Gizkað er á, atí um 900 þús- und fjár sé á fó'ðrum í land- inu a3 bessu sinni. Þó er talið, að ekki muni koma fram nema n m 840 þúsund á búnaðarskýrsl um, en samanburður á böðun- arskýrslum og búnaðarskýrsl- um frá meira en hálfu landmu veturinn 1958—1959 bendir til þess, að sauðfé sé vantalið á búnaðarskýrslum um sem næst 7,45% og nokkurn ?eg- inn sama niðurstaða varð af samanburði við skýrslur fóður- birgðafélaga ári fyrr, segir Ár- bók landbúnaðarins. T ogarar leystir Togarar ÚtgerSarfélags Ak- ureyrar hafa állir fimm legið við bryggju þar í bæ og ekki tekizt að koma þeim á sjó sakir fjárhagsvandræða. Fuglar taldir um sólhvðrf Um vetrarsólhvörf ár hvert halda flokkar manna að heim an með nesti og nýja skó, rækilega tygjaðir til langrar göngu um erfiðar leiðir bún- ir sjónaukum og ritföngum í vatnsheldum umbúðum. Hiut- verk þessara sveita er að telja fugla, sem hér hafast við að vetrarlagi. Það mun hafa verið árið 1952, sem byrjað var á fuglatalning- unni. Aðeins valdir menn, sem kunna glögg skil á fuglum, geta tekið þátt í þessu starfi, og er hveijum fengið afmarkað srvæði til könnunar. Hver einn á að skrá hjá sér þær fuglategundir, sem hann sér, og fjölda fugla af hverri tegund. Það verður að vísu stund- um að byggjast að nokkru leyti á ágizkunum, þar sem fuglar eru í stórum hópi, ekki sízt, ef þeir eru á flugi. En hjá glöggum og gætnum mönnum mun þó ekki skeika neinu verulegu. Tíu úr Reykjavík Nú um helgina munu tveir eða þrír þeirra leysa land- festar og halda til veiða, og hefur forustumönnum útgerð arinnar tekizt að afla nokk- urs fjár til bráðabirgða til þess að koma mætti togurun (Framhald á 2. síðu.) Það er dálítil gola, og veiðibjöllur og máfar voka yfir sjónum, ef vera kann, að þelr sjái eitthvað ætilegt í bárubroti. Þessar myndir voru teknar við hafnargarðinn í Vestmannaeyjum á dögunum, og sýnir belgíska togarann Marie Jose Rosette, þar sem hann steytir á hafnargarð- inum. Ertogarinn á þurru í fjöru, svo sem sjá má af myndinni fyrir miðju. Marie Jose Rosette hefur -valdið Vestmannaeyjabúum þung um búsifjum, skemmt hafnargarð inn svo tugþúsundir kostar ' sennilega að gera við hann. — (Ljósmynd: Guðmundur Gunnars- son, verkfræðingur). Stofnun Jóns Sigurðssonar 17. júní 1961 — handritaheimt —1963 1. desember í vetur flutti Þórhallur Vilmundarson, mag ister, fyrirlestur í Háskóla Is- lands og nefndi Handrita- heimt. í þeim fyrirlestri setti hann fram athyglisverða hug- mynd um „Stofnun Jóns Sig- urðssonar", er sett yrði á laggir á þessu ári á 150 ára afmæli Jóns og 50 ára afmæli Háskólans. Einnig lagði hann til, að unnið yrði að því öllum árum að leysa handritamálið og' heimta handrittn heim fyrirj 13. nóv. 1963 á þriggja alda afmæli Áma Magnússonar. Félag isl. fræða hefur núi gefið út fyrirlestur þennan fjölritaðan. f • fyrirlestrinum ræðir höfundur fyrst um vís- indastörf í þágu ísl. tungu og bókmennta, útgáfustarf og handritarannsóknir og leggur áherzlu á, hve litlu sé nú til slíks kostað hér á landi. Úr þessu þurfi að bæta og setja (Framhald á 2. síðu.) Að þessu sinni tóku 40—50 menn hafa tekið þátt í fuglataln- ingunni víðs vegar um landið. Margir gengu með fjörum, enda er þar flestra fugla von am þetta leyti árs, aðrir könnuðu kjarr- Iendi og svipuðust um við mýrar og keldur og nokkrir fóru á fjöll. Tíu manna lið úr Reykjavík fór með fjörum hér á Innnesjum og Reykjanesskaga á annan dag jóla. f þeim hópj voru meðal annarra dr. Finnur Guðmundsson, sem kannaði Grindavík að venju, og Þorsteinn Einarsson íþróttafull- trúi, sem fór með sti-öndinni frá Sandgerði að Stafnesi, þar sem hann hefur einnig talið fugla und- anfarin ár. 20—30 tegundir Möguleiki er á að sjá allt að fjörutíu tegundir fugla um þetta (Framhald á 2. síðu.) Lærði iéfalesfiir i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.