Tíminn - 22.01.1961, Page 16

Tíminn - 22.01.1961, Page 16
■SSi Sunnudaginn 22. janúar 1961. 18. blað. Siálfsmynd af Bolus Krim — málaranum, sem sýnt hefur me3 félögum sínum í mörg ár — en þó aldrei verið til. Sníllingurinn, sem aldrei var til Um allt Þýzkaland skemmta menn sér við það, hvernig list fræðingar og listunnendur hafa verið blekktir. Efnt var til málverkasýningar í Miinc- hen, til minningar um ungan listamann, er nefndur var Bolus Krim. Sýningin stóð í viku, og menn hrósuðu hin- um ódauðlega snillingi allt hvað aftók. En rétt eftir aðj sýningunni lauk, uppgötvað-j ist, að Bolus Krim hefur, aldrei verið til, enda þótt' hann hafi sýnt list sína opin berlega í morg ár, ásamt þrem ur öðrum málurum. Sýningin var mjög 'hátíð-, leg. Kjörnir menn fengu boðs ■ kort, sem svört slaufa var. bundin við, og þegar þeir komu í Leopoldstrasse, þar sem sýningin var, hékk þar( stórt, svart spj ald með nafni listamannsins. Við ^dymar var' hækja, sem listamaðurinn hafði notað, á gyltum trjábol og sorgarslæður umhverfis. Þar hjá var grænn krans með böndum og vefjum og 6jálfs- mynd af þeim, sem heiðra skyldi. j Við opnun sýningarinnar J hélt einn af félögum lista- mannsins svo hjartnæma ræðu, að menn hrærðust, og á meðan stóð svarthærð stúlka er verið hafði í sama komp j aníi, hreyf-ingarlaus við hlið , hans. Æviatriði hins ágæta mál- ara voru sögð á þá leið, að , hann hefði fæðzt í Póllandi; og móðir hans hefði dáið þar í fangabuðum Þjóðverja. Sjálf ur hefði hann orðið fyrir slysi við grjótnám og verið örkumla upp frá því. Loks hefði hann horfið, er hann var einn á göngu á afskekktum stað, og ekki annað fundizt en hækja hans. Menn gengu hljóðir um sýn ingarsalinn, skoðuðu listaverk ’ in með andakt og lásu hinar; lofsamlegu úrklippur úr blöð i (Framhald á 2. síðu.) I DularfuEI örlög 42 Gyöinga í síðast liðinni viku sökk bátur, er á voru 42 Gyðingar, karlar, konur og börn, undan strönd Marokkó, en áhöfnin bjargaðist. Nú hafa yfirvöldin í Marokkó handtekið skip- stjórann og borið þeim sök- um að hafa verið með á skipi sínu farþega, er ekki höfðu nein vegabréf. En margt annað þykir dular fullt og grunsamlegt í þessu sambandi og er uppi sá orð- nómur, að Gyðingum hafi ver Sö varnað að komast í björgun arbátana. Skipstjórinn, Francisco Mor illa, er spánskur, en skipið sigldi undir fána Hondúras. Eigandinn er Spánverji í Gí- braltar, en Englendingur hafði tekið það á leigu. Engin hjálparbeiðni var send út, þegar skipið fórst, og það voru serkneskir fiski- menn, sem fyrstir urðu varir við slysið og kölluðu á hjálp. Nýr ballettmeistari við Þjóðleikhúsið Hefur starfaS í Englandi og Svíþjó'ð S.l. sunnudag kom til lands ins ballettmeistarinn, Veit Bethke, og er hann ráðinn sem ballettmeistari við List- dansskóla Þjóðlekihússins. Eins og kunnugt er hefur Erik Bidsted verið aðalkenn ari við Listdansskólann s. 1. haust, en vegna veikinda gat ekki orðið af því. Þjóðleikhússtjóri reyndi strax að ráða annan ballett- meistara í stað Bidsteds, en vegna skorts á færum mönn um til slíkra starfa, eftir að starfsemi er byrjuð í leikhús- um nágrannalandanna, tókst það ekki fyrr en nú. Dansaði í „Annie Get Your Gun Veit Bethke er enskur ríkis borgari, fæddur í Þýzkalandi, en hefur hiin síðari ár starf- að mest í Svíþjóð, einkum þó í Stokkhólmi. Hann er bæði sólódansari og ballettmeistari og má geta þess, að hann hef ur dansað á móti Alizia Mark ova, Beryl Grey og Violette Elvin, sem allir eru mjög þekktir, sem sólódansarar. — S.l. sumar var hann ballett- meistari við ballettkvikmynd, sem S.A.S.-félagið lét gera. Bethke hefur einnig starfað mikið við söngleikasýningar, einkum í London og var hann aðal dansari 1 6öngleiknum „Annie get your gun“. Þegar leikurinn var sýnýdur þar. í Listdansskóla Þjóðleik- hússins eru nú 220 nemendur og verður fróðle/jt að sjá hvernig Bethke ballettmeist- ara tekst að þjálfa hinn unga islenzka ballett. Félagsmálaskólinn tek- ur til starfa í dag Félagsmálaskóli Framsókn- arflokfcsins verður settur í Framsóknarhúsinu klukkan hálf þrjú 1 dag. Skólanefnd og skólastjóri hafa lengi unn ið aö þvi að skipuleggja starf skólans. Var byrjað á því þegar síðastilðið sumar. Skólanum er ætlað mikið hlutverk í fræðslu- og út- breiðslustarfi flokksins, og er þess vænzt, að hann veröi vel sóttur. Ingi B. Arsælsson, formaður skólanefndar. Gunnar Dal, skólastjóri. Gíraffa- stíllinn, segja tízku- spámennirmr í ár verður það fínast, að ■ stúlkurnar séu grannar og andlitið lítið og nett, mjaðmir fyrirferðariíllar og fótleggir ■ langir. Þetta segja tízkuspá- mennirnir í París að minnsta 1 kosti. Og þegar sérfræðing- arnir frönsku leiða hugann að því, hvað stúlkurnar eiga að hafa næst blessuðum kroppnum á sér, þá úrskurða þeir hiklaust, að tízka ársins krefjist þess, að þar verði allt að vera prýtt blúndum, knipplingum og leggingum Það er kosturinn við þessi fyrirmæli, að þeim er hægara jað framfylgja en sníða vöxt- !inn eftir frönsku formúlunni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.