Tíminn - 04.02.1961, Qupperneq 1

Tíminn - 04.02.1961, Qupperneq 1
Þessi mynd er tekin í Grindavík og sýnir báta vera að sigla inn í rennu þá, sem þar er fariS um til hafnar. Þarna var það, sem bátnum Arnartindi hlekktist á í gær með þeim afleiðingum, að einn bátsverja, Ingibergur Karlsson í Karlsskála, drukknaði. Ljósmynd: Á. E. „Faðir minn kallar kútinn": Stórfelld, ólögleg brugpn fullyrðing Péturs Sigurðssonar á Alþingi í gær Á sér stað stórfelld, ólögfeg bruggun í landinu? Menn eru kannske ekki reiðubúnir til þess aS svara þessari spurn- ingu fyrirvaralaust. Einn er þó sá, sem ekki er í neinum vafa. Þa'ð er Pétur Sigurðs- son alþingismaður. Bjórfrumvarp hans var til fyrstu umræðií á alþingi í gær, og í frám- söguræðunni sagði Pétur, að ár- lega væru fluttir inn í þúsunda- tali glerkútar, fimmtíu til sextíu lítra, með ýmsum sýrum og vökv- um í. Ekkj bólaði á því, að slíkir kútar væru sendir úr landi aftur. Pétur kvaðst ekki vera í vafa um, til hvers kútarnir væru not- aðir, enda vissi hann, að mjög væri eftir þeim sótzt. Dró hann hik- laust af þessu þá ályktun, að : landinu ætti sér stað stórfelld, óiögleg bruggun. Baldur Georgs spurður Eitt þeirra fyrirtækja, sem mik- ið flytur inn af sýrum á kútum, er Pólar h.f. Tíminn hringdi til Baldurs Georgs, sem er starfs- maður þar, og spurði hann, hvort mikil eftirspum væri eftir gler- kútunum hjá Póium. — Þeir renna út eins og heitar pylsur, svaraði Baldur. — Og til hvers haldið þér, að fólk ætli að nota þá? sgurði blaðamaður. — Við auglýsum þá til heimilis- nota, svaraði Baldur. Margir segj- ast ætla að nota þá sem blómaker eða mála þá og skreyta til hibýla- prýði. Það getur svo sem verið a?: þetta sé fyrirsláttur og 90% at þeim sé notað til bara eins .. Já — jæja. Þeir renna út, það er vist. Meira veit ég ekki. sp'omm Ein nótt 20 þús. tunnur Síldaraflinn í fyrrinótt var hvorki meiri né minni en rúm- ar 20 þús. tunnur, enda var veiðiveður hið bezta. Torfurn- ar voru þó ekki eins þéttar og stundum áður. í gærkvöldi leit ágætlega út með veiði í nótt, og veður var einnig gott. Hins vegar eru nú allir söltunar möguleikar fullnýttir, og frystihús in, að minnsta kosti sums staðar, farin til að lækka verðið á síldinni til útgerðarinnar. Er frystisíldar- verðið fært niður í krónu úr 1,80 áður. Verðið í bræðslu er aðeins 60 aurar, svo að uppgripin eru nú ekki íengur hin sömu, þött síldin haldist — enda eru markaðsmögu leikar fyrir frysta síld takmarkað- ir. 6000 til Akraness Til Akraness bárust í gær um 6 þúsund tunnur, og var Höfrung- ur n hæstur með 1200 tunnur. Til Hafnarfjarðar munu hafa komið um 3500 tunnurj og þar var Auð- unn hæstur með 1100. Til Reykja- víkur og Suðurnesjahafnanna barst einnig mikil síld. Veiðin í fyrrinótt var út af Selvogi, og í gærkveldi héldu bátarnr á sömu slóðir. 'k'k'k Bjórmálið er enn á dagskrá og hefur gefiS tilefni til blaðaútgáfu. Títt er þó til þess vitnað, að kvenþjóðin sé mótfallin bjórnum, en fátt er svo með öllu illt . . . Það er nú, að sögn, mjög í fíiku hjá kvenfólki að láta greiða hár sitt upp úr bjór, helit dönskum, og má sjá virðulegar frúr feta inn á hárgreiðslustofur Hafnar með ölflöskur undir hendinni, segir í háðdálkum danskra blaða. Áferð hársins ku verða betri, ef greitt er upp úr sterku öli. Annars er uppgötvunin bandarísk, auglýst af öigerð þar. Ólafur Lárusson prófessor látinn Ólafur Lárusson prófessor andaöist S gærmorgun, 75 ára aS aidri. Ólafur !ét af prófessorsemb- ætti 1955 eftir fjörutíu ára starf í bjónustu háskólans. Hann var hinn gagnmerkasti fræðimaður og skrifaöi margt um lögfræðileg og sagnfræði- leg efni. Meðal annars lagði hann mikla stund á rann- sóknir á bæjarnöfnum og gaf út ritgerðasöfnin Byggð og saga og Lög og saga. Kennslu- bækur í lögfræði skrifaði hann einnig. „snemma því á fætur fer og flýti mér í kútinn". (Páll Ólafsson) laBtsBKfstsHesiqfrÆi&xmMSiMU&fsra Lík sjómanns- ins fundið Maðurinn, sem fórst með triilubátnum Arnartindi frá Grindavík í innsiglingunni inn í Jhöfnina þar í fyrradag, hét Ingibergur Karlsson, til heim- ilis að Karisskála í Grindavík. Flak bátsins kom upp í dag og rak skammt frá slysstaðnum. Fannst !ík Ingibergs þar rétt hjá. Útlit er fyrir að Einar Jónsson, sá er lengst svamlaði í sjónum utan við brimgarð- inn áður en honum var bjarg- að en hélt þó fullri meðvit- und, komizt óskemmdur frá slysinu, og var hann farinn að hressast t gær Hafði hann þó fengið aðkenningu af lungna- bólgu. wcmnw—nn nfT «b—m——■§ Þjóðverjar styrkja fjárhag Bandarikjanna - bls. 3 MIBláfiÍlKÍ l

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.