Tíminn - 04.02.1961, Blaðsíða 11

Tíminn - 04.02.1961, Blaðsíða 11
TÍMINN, laugardaglnn 4. febrúar 1961. ¥" ■:■■ okza Viskí og sódi á Hótel Borg Bro Brille kallast háðfugl einn danskur, sem skrifar spé sitt f Ekstrablaðið í Kaup- mannahöfn. Hann segir þar ýmsar kostulegar sögur, og nú síðast hinn 31. janúar sá hann sér leik á borði að skemmta Dönum svolítið á kostnað ís- lendinga. Svo er mál með vexti, segir Bro Brille, að hinn kunni, danski útvarpsfréttamaður, Ole Kiihnel, fór reisu nokkra til Bandaríkjanna núna um ára- mótin, og á þeirri leið hafði hann viðkomu á íslandi, en þar segir útvarpsmaðurinn að allt sé nú dýrara en nokkru sinni fyrr, svo blátt áfram sé „uforskammet". Eftir heimkomuna segir Kiihnel þessa sögu sem dæmi um það. — Svo vildi til, að ég lenti á Hótel Borg ásamt Niels Thom- sen varaformanni Fiskifélags- ins í Esbjerg, og Niels Bjerre- gaard, formanni Fiskifélagsins í Fredarikshavn. Niels Thomsen var út undir sig, enda þekkti hann betur til staðarins og sagði við okkur Bjerregaard, að hann skyldi bjóða okkur upp á viskí og leggja það til, ef við sæjum um sódavatnið. Hann kom með viskíflöskuna, en við Thomsen pöntuðum 10 sódavatnsflöskur í gistihúsinu og þóttumst græða vel, en hins vegar yrði Thom- sen að ,blæða“. En útkoman varð gróði Thomsens. Það kom ☆ Ole Kuhnel hlær að gamansögum frá íslandl. ☆ sem sé á daginn, að viskíflösk- una hafði hann keypt á 12 danskar krónur í flugvél, en við Bjerregaard .urðum að borga 44 d. kr. fyrir þessar 10 sódavatnsflöskur. Og Kiihnel hefur líka smá- skrítna söga að segja um Kenn- edy Bandaríkjaforseta og ís- lendinga, það er að segja áhrif- in af stjóm Kennedys á utan- ríkisverzlun íslands. Það er stjórnarstefna Kennedys, segir Kuhnel, að styrkja kaupmátt og gengi dollarins, og hann héfur þess vegna kveðið svo á, að allt sé keypt heima í Banda- rfkjunum, sem hægt sé að fá þar. Það er einn liður í þeirri áætlun, að bandaríska setuliðið í Keflavfk skuli kaupa allar fæðutegundir, sem unnt er, heima í Bandaríkjunum, en ekki á íslandi eins og verið hefur. Fyrsta ráðstöfun í þessa átt var að afþakka áður gerða pönt- un á nokkra magni af frystri síld í Reykjavík. En daginn eftir fékk hið ís- lenzka síldarfirma allstóra pöntun á frystri sílu frá Banda- ríkjunum. Varan skyldi afhent og send vestur þegar í stað, og var send með flugvél til Banda- ríkjanna. Þar var hún sett í aðra flug- vél og «end til Keflavíkur. Þar með var allt í samræmi við stjórnarstefnuna, segir Kiihnel þessi og hlær dátt. Þrír skálkar ganga á land í Keflavík og Kópavogi Hyggjast einnig heimsækja ÞjóSleikhúsií) Eins og getið var um bæði í blöðum og útvarpi í haust varð Leikfélag Vestm^nna- eyja 50 ára á s.l. hausti. í tilefcii afmælisins kom það upp sýningu á „Þrem skálkum“ eftir Gandrup, eem er léttur söngleikur. Til leik stjómar vax fenginn Eyvind- ur Erlendsson. Hefur leikur- inn verið sýndur þrisvar sinn um á kvöldsýningum í Vest mannaeyjum, auk þess að ein barnasýning var sýnd fyrir yngstu leikhúsgestina. þáttunga), sem hugmyndiu er að sýna ásamt öðru efni á tveim kvöldvökum, sem fé lagið hyggst koma upp á yfir standandi vertíð. Þá verða einnig teknar upp aftur sýn- ingar á „Þrem skálkum“, svo að segja má að mikíl og ó- venjuleg gróska sé \ leiklistar lífi þessa bæjarfélágs. Nú um helgina hyggst leik félagið ganga á land og sýna „Þrjá skálka" fyrst n.k. lauk ardagskvöld í Félagsbíói í Keflavík, og á sunnudag er - og Kennedy verzlar á Islandi D0KT0RINN OG FRAMRÆSLAN (Framhald af 8. síðu). Er nú ekkl blessaður doktorinn búinn að bera nóg á borð fyrir íslenzka lesendur í bili? Ef hann langar til að skrifa meira varð- andi íslenzkan landbúnað, — ut- an við sitt þrönga sérfræðisvið, — þá vil ég vinsamlegast benda hon- um á að ganga fyrst í gegnum annan hvorn bændaskólann. Við það myndi fróðleiksþorstinn ef til vill örvast það mikið, að hann taki Framhaldsdeildiná á Hvanneyri á eftir. Að þessu loknu hefði hann öðlazt lágmarks aðstöðu til þess að skrifa faglega um landbúnaðar- mál almennt. Til þess ag fyrirbyggja allan misskilning, þá vil ég taka það sérstaklega fram, að þessi ábend- ing er ekki gerð í óvirðingarskyni við doktorinn, enda veit ég, að hann tekur það ekki þannig. Vís- indamenn hafa orð á sér fyrir að vera hógværir, af hjarta lítillátir, þyrstir í fróðleik og manna fyrstir til að játa sínar yfirsjónir. Þeir eru sífellt að leita að sannleikanum. Fyrir þessi aðalsmerki eru þeir metnir meira en aðrir menn. Gamall málsháttur segir: „Oft verður góður hestur úr göldum fola“. Þetta eru margstaðfest sann- indi og eiga ekki síður við um menn en hesta, enda oftar heim- færð upp á menn. Ef við grúskum í fortíðinni, þá finnum við dæmi þess, að margir okkar ágætustu brautryðjenda -á ýmsum sviðum kunnu sér lítt hóf á yngri árum. Það var hin skapandi orka þess- ara framgjúörnu, ungu manna, sem stundum brauzt út fyrir tím- ann þannig, að þeir gerðu ýmiss konar elaDDaskot. A þessum forsendum hef ég þá trú, að dr. Bjarni Helgason eigi eftir að verða atorkusamur leið- beinandi á sviði landbúnaðarins, ekki endilega um landþurrkun, heldur í sambandi við ræktun jarð vegsins, og óska ég honum allra heilla á þeirri braut. Ég geri ekki ráð fyrir að ég svari honum meira um framræsl- una. Það hefur þegar verið tekið á aðalatriðunum, og ég er ekki gefinn fyrir málþóf eða orðaskak. Að síðustu skal þess getið, að í fyrri grein minni voru nokkrar prentvillur og ein þeirra meinleg. Þar stendur: „Það er hinn svokall- aði eðlilegi flái eða eðlilega fáa- kom“, en á að vera: fláahorn. Þá þykir mér rétt að geta þess í sambandi við endurprentaða skurðarmynd, sem birtist í Morg-i unblaðinu þ. 17. des. s.l., en undir'j henni stendur meðal annars: „Blað| inu þykir hins vegar rétt að benda á, að myndin, sem vegna mistakal bii'tist með grein Bjarna Helgason-j ar í gær, sýndi tiltölulega nýlega! grafinn fi'amræsluskurð, svo að ekki er vitað um endingu hans ennþá.“ Rétt er það, að mynd þessi, sem fylgdi grein minni, var tekin af nýlega gröfnum skurði, en mynd- in er gömul. Þessi skurður átti s.l. sumar 10 ái'a afmæli. Það er lítill aldur, enda sjást engin ellimörk á honum enn. 3. janúar 1961. Eftirmáli. Framanritaða grein sendi ég Morgunblaðinu til birtingar, en fékk hana endursenda í gær með svohljóðandi orðsendingu: „Því miður treystum við okk- ur ekki til að halda þessari rit- deilu áfram í Morgunblaðinu rúmsins vegna. f.h. ritstjómar Morgunblaðsins Matthías Jóhannessen." Eins og lesendum Morgunblaðs- ins er kunnugt, réðst dr. Bjarni Helgason í Morgunblaðsgreinum sínum hatramlega á okkur, sem mælt höfum fyrir skurðgröfuskurð um hér á landi. Ég svaraði honurn með grein í Morgunblaðinu þ. 3. des. s.l. og hann mér aftur í sama blaði þ. 16. s.m-, þar sem hann meðal annars lagði fyrir mig nokkrar spurnnigar. Nú þykir „rit- stjórn“ Morgunblaðsins nóg komið um þessi landbúnaðarskrif. Skal ekki um það fengizt, en liggur ekki eins nærri að gizka á, að hér um ráði meira sú kennd, sem grípur foreldri, er bera þarf blak af vndræðabami, sem það ræður illa við, en tekur hvað sárast til? 31. janúar 1961. Ásgeir L. Jónsson. Bankamálanefndin (Framhald af 6. síðu). eða álitsgerðir, sem fjalla um helztu greinar umfangsmik-! ils og þýðingarmikils máls. Ekki er ósennilegt að fræði- menn eigi einhverntíma eftir að rannsaka það, hvort þessi skrif hafi á einhvem hátt fundið leiðina til almennings í skrifum um bankamál tntina seinustu árin eða í samaaingu þessa frumvarps. Ég hefði talið eðlilegt að gögn nefndarinnar hefðu verið birt, fyrst og fremst all „Innslglin á þessu veðbréfi eru ekki bara til skrauts karl minn." — Ýstru-Morten og Óli malari — Einar Þorsteinsson og Haraldur Guðnason. Leikfélagið ýtti af stokkun; um leikskóla í haust undir j stjórn Eyvindar og varð að- i sókn að honum mjög góð.! Skólinn starfar enn, og hafa! nemendur hans komið fram! á nokkrum kvöldskemmtun- um, auk þess sem skólinn sá um kvöldvöku kvenfélagsins „Líknar“ hinn 1. des. Þótti mönnum þar örla á nokkrum ar álitsgerðir og söguleg yfir lit. Ég tel þetta ekki þýðing arminna fyrir þá sök, að at hugun mín fyrir nefndina á; gangi seðLabankamálsins j sannfærði mig um það, að bæði árið 1901 og 1927 (við stofnun Íslandsbanka og end urskipulagningu Landsbank- ans) var þjóðin blekkt í veiga miklum atriðum. ágætum leikkröftum, sem Vestmannaeyingar líta vonar augum til um komandi leik- starfsemi. Leikfélagið er nú að æfa upp nokkra leikþætti (ein- ákveðin eftirmiðdagssýning fyrir böm, einnig í Félagsbíói. Á 6'unnudagskvöldið hyggjast þeir Vestmannaeyingar fara sjálfir í leikhús, og þá vænt- anlega Þjóðleikhúsið. Á mánu dagskvöld sýna þeir svo „Þrjá skálka“ í Félagsheimili Kópa vogs og halda heim þá nótt gegnum Þorlákshöfn. Eins og áður er sagt er leik ur þessi léttur söngleikur og einkennist af lífi og gleði. Munu því Suðurnesjamenn og Kópavogsbúar óefað taka vel á móti þeim Eyjaskeggjum um helgina. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.