Tíminn - 04.02.1961, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.02.1961, Blaðsíða 7
 TÍMINN, laugardaginn 4. íebrúar 1961. 7^ H x&t-'wd Deilur um bjorinn hófust á Alþingi í gær Fyrsta umræSa um ölfrum- varpið hófst í neðri deild í gær. Flutningsmaður, Pétur SigUrðsson, 12. þm. Reykjav., flutti langa og ýtarlega fram- söguræðu fyrir frumvarpinu og kom víða við. Næstur hon- um talaði Halldór Ásgrímsson og var umræðunni frestað og fundi slitið að ræðu hans lok- inni. Pétur Sigurdsson sagði, að það væri misræmi í áfengis-í löggjöfinni að leyfa sölu sterkra drykkja, en banna sölu öls, sem væri veikasta stig áfengis skv. skilgr. laga. Sagði hann að þingmenn væru ekki sjálfum sér sam- kvæmir með því að fylgja nú verandi framkvæmd mála, þ. 'e. sölu eldsterks brenni- víns, en banna sölu drykkja, sem hefðu lágmarks áfengis- innihald, á þeirri forsendu, að það væri skaðlegt, og hví þeir þingmenn leggðu þá ekki til að banna alla sölu áfengis. Pétur taldi reynsluna af banni hinS vegar ekki hafa verið góða hjá þeim þjóðum, sem það hefðu reynt. í því sambandi minnti Pétur á, að glerkútar, 50—60 lítra, væru fluttir inn í þúsundatali og eftirspurn eftir þeim tómum væri gífurleg og menn á bið- listum um kaup á slíkum kút um. Sagðist Pétur ekki vexa í vafa um til hvers þeir væra notaðir, enda bryti bruggunl manna til eigin neyzlu ekki gegn réttarvitund almennings Þá sagði Pétur, að mikill bjór væri þegar drukkinn í land- inu og rökstuddi- það með því að benda á að tappað hefði verið á yfir 4 millj. ölflaskna hiá ölgerðinni á «.l. ári, en tómar flöskur hefðu ekki ver ið fluttar inn um árabil, þrátt fyrir mikla rýmun slíkra um búða. Pétur minnti á að áfeng ur bjór væri bruggaður í land inu handa varnarliðinu og er- lendum sendiráðum, óg hann Jíkaöi mjög vel, sendiráðin keyptu fremur íslenzkan bjór en erlendan. Andstæðingar bjórsins «egja að sala hans muni skapa hér hömlulaust áfengisflóð og auka drykkju skap einkum meðal unglinga. Pétur sagði að hann gerði ráð fyrir að sömu hömlur yrðu á «ölu bjórsins og áfenginu, þ.e.! Áfengisverzlun ríkisins annað ist dreifinguna. Þá ræddi Pétur um kynni sín af neyzlu annarra þjóða á bjór, einkum verkamanna í hafnarborgum Evrópu, og kvað það fjar- stæðu, sem andstæðingar bjórsins héldu fram um drykkjuskap þeirra. Ekki væri rétt að gera samanburð um áfengisneyzlu við þær þjóðir, sem neyttu bjórs, því að neyzla á 2 ölflöskum á dag á mann svaraði til 12 alkóhól lítra á ári eða myndi sexfalda áfengisneyzlu íslendinga, ef Ölírumvarpið til fyrstu umræðu reiknað væri á þann máta. Enginn héldi því þó fram að ein ölflaska með máltíð væri skaðleg eða skapaði áfengis- böl. Bindindismenn á Akur- eyri drykkju hið umdeilda „Maltó“, sem innihéldi 1—2% áfengismagn og innbyrtu með því að drekka tvær flöskur af Maltó á dag 4 lítra af hreinu alkóhóli á ári, en teld ust samt áfram baráttumenn gegn áfengi. íslendingar drekka nú 1,9 lítra af alkó- hóli á mann á ári eða miklum mun minna en flestar aðrar þjóðir, en samt væri talað um áfengisböl af andstæðingum bjórsins. Taldi Pétur aö bölið væri miklu fremur fólgíð í neyzluvenjum en neyzlu- magni miðað við alkóhólinni hald. Skapa þyrfti almenn- ingsálit sem fordæmdi of- neyzlu áfengis' og afneina yrði drykkjuósiði. Kenna þyrfti þjóðinni að umgangast áfengi án þess að það yrði henni til skaða, en álit sál fræðinga segði óeðlilegar hömlur æra upp þá tilhneyg- ingu manna að komast yfir það, sem erfitt væri, að núJ. Þá minnti Pétur á ofnautn á fleiru en áfehgi gæti verið hættuleg og leitt til tortím- ingar, eins og ofneyzla sumra lyfja oe vissrar fæðu eins og t.d. fitví, en ofneyzla fitu væri orðin algengaífta dánarorsök in í Bandaríkjunum og meiri hluti sjúklinga á lyflæknis- deildum spítala í Danmörku þjást vegna ofneyzlu á ýmis konar lyfjum — einkum kvalastillandi lyfjum. — Ef taka ætti rök andstæðinga bjórsins gild, ætti að banna sölu á slíkri fæðu og lyfjum. Þá las Pétur úr skýrslu finnsks vísihdamanns um vísindaleg- ar rannsóknir á þessum mál- um öllum, sem hann (þ. e- sá finnski) hefði boðið Rikis útvarpinu til flutnings hér, en útvarpið .afþakkað á þeirri forsendu aö „þá yrðu templ- arar vitlausir". Álit Fager- holms forseta finnska þings- ins á niðurstöðum þeirra rannsókna væri sú, að úr neyzlu sterkra drykkja væri ekki dregið með því að auka hömlur, heldur með því að leyfa hömlulitla sölu á veik- Halldór Ásgrímsson tók i ■næstur til máls. Rakti hann nokkuð sögu áfengismála hér á landi. Fremur hljótt hefur verið um áfengismálin að und anfömu, en þau voru áður mikið hita- og baráttumál og endaði barátta bindindis- manna með ■s'etningu bann- laganna. Bannlögin voru frá upphafi gölluð og þegar Spán verjar hótuðu að hætta að kaupa af okkur saltfisk, sem var aöal útflutningsvara þjóð arinnar, þá var gefið eftir og spánarvínadrykkjan hófst. Henni' fylgdi ekki hin svokall aða drykkjumenning, þrátt I fyrir fullyrðingar andbann- I inga og óleyfileg bruggun i hélt áfram, því að í skjóli | Spánarvínanna, var hægt að i neyta alls konar áfengra drykkja. Spánarvínin urðu eins konar tízkudrykkur og áfengisneyzla kvenna óx, og var áfengisbannið raunveru- lega úr sögunni með Spánar- I vínunum. Það kostaöi síðan | ekki Langa baráttu andbann- i ing að fá leyfða sölu sterkra :drykkja. Minntist Halldór síðan á tvö i ölfrumvörp sem borin hefðu verið fram á Alþingi, 1932 og 1947, sem hann taldi að hefðu verið mun betur Komið verði upp skóla fyrir leiðbeinendur um fiskverkun 1 Þeir Irsgvar Gíslason, Jón Skaftason, Geir Gunnarsson og Gísli Guðmundsson flyt|> tillögu til þingsályktunar um skóla fyrir fiskimatsmenn, verkstjóra í fiskiðnaði og aðra leiðbeinendur um fiskverkun. Tillagan er svohljóðandi: ' I ,.,Alþingi ályktar aö sJcora á ríkisstjórnina aö beita sér hiö fyrsta fyrir setningu löggjafar um sérstakan skóla fyrir fiskimatsmenn, verkstjóra i fiskiönaði og aöra leiðbeinendur um fisk- verkun. í greinargerð með tillög- unni segir: i Á síðasta þingi fiuttu Ingv- ar Gíslason og Jón Skaptason þáltiil. samhljóöa þeirri, sem hér liggur fyrir. Ingvar Gísla son hafði ýtarlega framsögu fyrir tillögunni, er hún var til umræðu á þinginu í fyrra, og var málinu síðan vísað til allsherjarnefndar. Nefndin náði ekki til þess að skila á- liti,' en einstakir nefndar- menn hafa þó látið í ljós, að þeir séu málinu efnislega fylgjandi. Meðal sjóma^na og útvegsmanna hefur tillög Ingvar Gíslason unni verið vel tekið, og má sérstaklega geta þess, að á síðasta aðalfundi Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna var ákveðið að skora á Al- þingi að samþykja tilöguna. Þar ism flutningsmenn telja nauðsyn þessa máls mikla og þeim er kunnugt um, að málið á víða fylgi að fagna, líta þeir svo á, að endurflutn ingur tillögunnar sé sjálf- sagður, og vænta þess, að mál ið fái afgreiðslu. NautSsyn fyrir fisk- veiðiþjóti Skóli þessi er engin of- rausn fiskveiðaþjóð eins og íslendingum. Þvert á móti er hann hin mesta nauðsyn og mun áreiðanlega sv’ara kostn aði og vel það. Mikið er nú talaö um aukinn fiskiönaö í landinu, og allir eru sam- mála um nauðsyn hans fyrir þjóðarbúið. En vart er hægt að hugsa sér árangur í þeirri iðngrein án sérmenntunar ,all mikils hóps manna l}ér í land inu sjálfu, er hafi á hendi matsstörf, verkstjórn og leið beiningarstörf. Þá virðist það lgiða beinlínis af hinum sí- auknu kröfum um fiskmat (sbr. nú síðast lögin um fersk fiskeftirlit), að hið opinbera sjái fyrir nothæfri menntun fyrir þá menn, sem slík störf hafa á hendi. Þeir, sem þekkja til sögu landbúnaðar mála á íslandi, vita, hvert gildi búnaðarskólanna hefur verið fyrir þróun landbúnað arins. Enginn skóli sambæri- legur búnaðarskólunum er til fyrir sjávarútveginn. Hans er i þó ekki síður þörf, og því fyrr ' sem honum er komið á fót, I því betra. undirbúin en þetta frumvarp og taldi Pétur kjarkmikinn að standa einn að slíku, ó- þurftarmáli, og taldi að heppilegra hefði verið fyrir þingmanninn að leita sér að einhverjú þjóðþrifamáli í staðinn. Að auki væri frum- varpiö með, eindæmum illa undirbúið og beindi Halldór síðan nokkrum spumingum til flutningsmanns. Spurði hann hver ætti að hafa fram leiðslu ölsins með höndum, hvort á hún að vera frjáls, eða í einkarétti ríkisins. Ef svo væri, gæti ríkið þá selt einkaréttinn í hendur fram- leiðenda eins eða fleiri, og hvert gjald skyldi ríkið þá taka fyrir. Á Áfengisverzlun- in að koma sér upp ölgerð? Hvemig á eftirlitiö að vera með framleiðs'lunni eða telur flutningsmaður ekki nauðsyn legt að hafa eftirlit með henni? Halldór beindi fleiri slíkum spurningum til flm. Halldór sagði að 3 y2% bjór væri hættuegur byrjendum, sem eru að komast á bragðið, en hins vegar teldu þeir, sem komnir væru á bragðið hann of veikan. Þessi veiki bjór væri lævís og vekti löngun til frekari áfengisneyzlu, en eipn af leyndardómum bjórs ins er sá, að menn þyrstir af að drekka hann og vilja drekka meira. Þetta frumv. gæti af ýmsum verið talið hógvært, en það væri lævíst, því beðið væri um lítið núna, undir því yfir skyni aö verið sé að leita sam ræmis í áfengislöggjöfri-ii til að brjóta niður varnarmúr- inn í von um að geta beðið um meira síðar. Halldór sagðist ekki telja/ vínbann tímabært eins og á- stand væri nú í áfengismál um þjóöarinnar og gæti flutn ingsmaður hlakkað yfir því. Sagði hann að með tilkomu bjórsins myndi hrösunar- hætta unglinga fyrir >feng- inu stóraukast og taldi furðu legt að flm. skyldi leyfa sér að halda hinu gagnstæða fram og láta jafnvel í það skína aö glæpum og slysum myndi fækka með tilkomu ■sterks öls. Halldór Ásgríms- son lauk máli sínu með því að leggja ti lað málinu yrði ekki vísað ti nefndar til frek ari athugunar, heldur fellt þegar við fyrstu umræðu. vVX>X..-VV.V-'v’V-W- V.V.V- Skemmtiferðir s.f. vandaður 18 manna lang- ferðabíli til reiðu i lengri og skemmri ferðir Upp'ýs ingar tietur Geir Björgvins son, Tómasarhaga 41 i síma 14? 43 frá kl. 9—1 og eftir ki 6. J i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.