Tíminn - 14.03.1961, Side 9

Tíminn - 14.03.1961, Side 9
TlHslHJf, þriSjudaglnn 14. marz 1961. I Helgi Bergs, verkfræðingur: Framleiðsluáætlun 1. Nokkrar tölur úr þjóðarbúskapnum Flestir eru sammála um það, að á efnahagslífi okkar séu nokkur sjúkdómseinkenni. Er það fyrst og fremst þrálát verðbólga sem hefur þjáð það í tvo áratugi og ekki sér fyrir endann á. En það hefur einnig sýnt ýms hraustleika- merki á undanförnum árum, sem ekki ber að vanmeta. Framleiðsluaukning hefur til skamms tíma verið ör, fiár- munamyndun mjög mikil og snarnaður { landinu meiri en víðast hvar annars staðar En jafnfraimt 'hafa stjórnmálin hér á landi einkennzt æ meir’a af togstreitu milli stétta og hags- munahópa um skiftingu afrakst- ursins af pjóðarbúskapnum. Víst er það ekkert undarlegt þó tekju- skiftingin af þjóðarbúskapnum sé viðfangsefni, sem tekur mjög hugi sjórnmálamanna, því þar er vissu lega um þýðingarmikið mál að ræða. Þjóðin skiftir sér einnig nokkuð í stjórnmálaflokka eftir stéttum og hagsmunum, og hverj- um þykir skylt að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda. Hitt er áhyggjuefni, ef tog- streitan nær svo langt, að menn missa sjónar á því, sem öllum landsmönnum er sameiginlegt hagsmunamál. Þannig mega menn ekki berjast af svo miklu kappi um skiftingu þeirra verðmæta, sem skapast við sameiginlegt starf þjóðfélagsþegnanna, að menn geti ekki komið sér saman um að auka þessi verðmæti í heild — auka það, sem til skifta er. Það er nú æ háværari krafa 'þjóðarinnar og þá sérstaklega yngri kynslóðar- innar, að ný átök verði gexð í þessu efni. Þess vegna er það almennt fagn aðarefni, að aðalfundur miðstjórn ar Framsóknarflokksins skuli nú hafa samþykkt, að beita sér fyrir því, að við íslendingar gerum nú myndarlega áætlun um aukningu fratmleiðslunnar og sé að því marki stefnt, að tvöfalda fram- leiðslu þjóðarinnar á næstu tíu áxum. f því tilefni þykir rétt að blrta hér ýmsar tölur úr þjóðhagsreikn ingum okkar og annarra þjóða á- samt skýringum á nokkrum hug- tökum, sem koma við sögu, ef það mætti verða til þess, að einhverj- um yrði það ljósara en ella, hvað um er að ræða. Fólksfjölgun. Okkur Íslendingum er meiri nauðsyn á síaukinni framleiðslu en flestum þjóðum öðrum, sökum þess hvað ört fólksfjöldinn vex í landinu. Af töflu no. I fæst saman- burður í þessu tilliti við ýmis önn- ur lönd, og sést að fólksfjölgunin er talsvert meiri hér en í öðrum löndum, sem þar eru talin. Tafla I. Árleg fólksfjölgun í ýmsum löndum. ! Aukning framleiðslu. Efnahagslegar framfarir í heim- inum hafa aldrei vérið örari en undanfarinn áratug. f alþjóðleg- um skýrslum eru þær venjulega metnar á þann veg, að miðað er við aukningu á heildarframleiðslu þjóðar á ákveðnu tímabili. En til þess að um bætt lífskjör verði að ræða, þarf framleiðslan að vaxa örar en fólksfjöldinn að öðrum aðstæðum óbreyttum. Á rúmlega 30 árum tvöfaldast íbúatalan á ís- landi. Ef við tvöföldum fram- leiðsluverðmætin á sama tíma, er í rauninni ekki um efnahagslega framför að ræða, heldur höfum við staðið í stað. Þess vegna er oft deilt í framleiðsluverðmætin með íbúatölunni og reiknuð út fr’amleiðslu aukningin á hvern í- búa, en þannig fæst auðvitað raun hæfari mælikvarði. Nauðsynlegt er að hafa það í huga, að framleiðsluaukning get- ur átt sér stað án þess að það hafi í för með sér bætt lífskjör, sem þó er auðvitað mar'kmiðið. Svo miklu er hægt að kosta til fram- leiðsluaukningarinnar, að hún hafi ekki í för með sér aukningu á hreinum tekjum, en það eru auð- vitað þær, sem móta lífskjörin. Eigi að síður er framleiðsluaukn- ingin gjarnan notuð sem mæli- kvarði á efnahagslegar framfarir, en ekki má þá gleyma því, að fyllsta hagsýni er eins nauðsynleg í búskap þjóðfélagsheildarinnar eins og í búskap hvers einstakings. íslendingar hafa að undanförnu ekki verið eftirbátar annarra þjóða í framleiðslaukningu. Tafla II sýnir árlega framleiðslu- Frakkland (1956—59) 18,2 Holland (1953—59) 22,9 ísland (1953—57) 30,2 Noregur (1955—57) 29,2 Svíþjóð (1955—57) ’ 19,7 Ýmsir hafa haldið á lofti þeirri fullyrðingu, að fjármunamyndunin hér á landi hafi fyrst og frémst átt sér stað fyrir erlent fé. Tafla IV sýnir að þetta er rangt. Öll aukning er'lendra skulda á tímabil- inu er aðeins lítill hluti af fjár munamynduninni. Hinu má þó ekki gleyma í þessu sambandi, að við höfum að mestu farið á mis við þá fjármunaarf- leifð, sem aðrar þjóðir hafa þegið frá fyrri kynslóðum, bæði bygg- ingar og hvers konar mannvirki, en það er auðvitað ein skýring þess, hversu mikillar fjárfestingar hefur verið þörf hér á landi um- ftam sjálf framleiðslutækin. Tafla V sýnir skiptingu fjárfest- ingarinnar í landinu og kemur þar a n. 1. fram hversu mikill hluti Helgi Bergs fyrirtæki A, sem framleiðir fyrir 1% miljón, er t.d. bundið fjár- magn að upphæð 3 millj. kr., og í fyrirtæki B, sem einnig framleiðir fyrir lYz millj. kr., eru aðeins bundnar 2 mllj. kr. Framleiðni fjármagnsins er þá meiri í B en í A, en eigi að síður gæti svo farið, ef bætt væri einni millj. kr. við fjármagn hvors fyr’irtækis, yrði framleiðsluaukningin meiri í A en í B. En þó að vinnuafl og fjármagn séu höfuðþættir framleiðslustarf- seminnar, þá er vissulega fleira, sem áhrif hefur á framleiðnina, og á ég þar fyrst og fremst við bætt skipulag og vinnubrögð, meiri tækni. aukningu hjá ýmsum þjóðum, ann Vera má, að hér á landi höfum ars vegar aukningu á heildarfram- við lagt of litla áherzlu á þessa leiðslu og hins vegar framleiðslu hlið málsins á undanförnum árum. aukningu á hvern íbúa. Ekki er það þó nerna að litlu leyti Tafla II. Arleg aukning þjóðarframleiðslu. alls pr. íbúa Bandaríkin ca. 3,5% 2,0% Belgía (1957—59) 1,3% 0,8% Danmörk (1955—57) 3,6% 2,4% Frakkland (1956—59) 3,1% 2,4% Holland (1957—60) 5,0% 3,6% ísland (1954—59) 6,3% 4,1% Japan ca. 8,0% 1 Noregur (1955—57) 3,5% 2,5% Rússland áætlað 6—10% 5—8% Svíþjóð (1955—57) 3,5% 3,0% Þýzkaland (1951—56) 8,5% 8,0% Til þess að ná því marki, að vegna þess að okkur hafi skort! framleiðslan tvöfaldist á tíu árum, þekkingu eða getu til að fylgjast Tafla IV. Framleiðsla, fjárfesting og éHent fé 1953—57. millj. kr. % af heildar- framleiðslu Heildarframleiðsla á markaðsverði 19.140 100 Heildaifj árf esting 5.773 30,2 Efnahagsaðstoð og erlend lán 598 3,2 Innlendur sparnaður 5.175 27,9 Innlendur sparnaður hefur þann ig staðið undir 90% af fjármuna- mynduninni á þessu tímabili. Því heyrist oft fleygt, að fjárfestingin hafi verið allt of mikil hér á landi, cg af því stafi allir okkar erfið- lekar í efnahagsmálum. Nú er það auðvitað óhugsandi, að myndun fjármuna, sem byggir 90% á inn- lendum sparnaði, geti verið eitt- hvert böl. Hitt er annað mál, að fjármuna- myndunin nær því aðeins tilgangi sínum, að í kjölfar hennar sigli f.amleiðsiuaukning. Eins og sjá má af töflu II hefur það líka verið svo hér, en tæplega í þeim mæli, sem búast hefði mátt við. Ef borið er saman við þær tölur frá öðrum löndum, sem birtar eru hér í töfl- unum, hefðí mátt gera ráð fyrir því, að framleiðsluaukningin yrði enn meiri. Skýringuna er m.a- að finna í þeirri staðreynd, að verð- bólgan hefur haft óholl áhrif á viðhorf manna til peninga og ann- arra verðmæta. Hagsýnin hefur oft orðið að þoka, þegar um það er að ræða, að menn þxmfi að breyta fé sínu í einhver þau verð- mæti, sem ekki falla eins ört í verði og krónan. En þetta hefur leitt til þess, að féð hefur í minni mæli en æskilegt hefði verið beinzt í arðbær framleiðslutæki. Bandaríkin 15 af þúsundi Relgía 4 — — Bretland 4 — — Danmörk 8 — — Frakkland 7 — — Holland 14 — — ísland 21 — — ftah'a 9 — — Noregur 10 — — Rúsland 15 — — Sviss 7 — — Svíþjóð 5 — ‘ V.-Þýzkaland 5 — — þarf hún að vaxa um 7,2% á ári, en með þeirri fólksfjölgun, sem er hér á landi, svarar það til rúmlega 5% aukningar á ári á íbúa. Af töflunni sést, að þeim þjóðum, sem beztum árangri hafa náð, hef ur tekizt þetta, og ekki vantar ýkjamikið á, að okkur hafi tekizt það sjálfum. Framlelðni. Famleiðni er nýlegt orð, sem ryður sér til rúms í íslenzku máli. Það er þýðing á erlenda orðinu pródúktífitet, og táknar hæfileika framleiðslukerfisins eða einstakra þátta þess að skapa sem mestan árangur þeirrar fyrirhafnar, sem lögð er í framleiðslustarfið. Þeim mun meiri framleiðsla, sem fengin er með sömu fyrirhöfn eða þeim mun minna, sem hafa þarf fyrir sömu framleiðslu, þeim mun meiri er framlieiðnin. Þegar talað er um framleiðni er oftast átt við framleiðni vinnu- aflsins. En á sama hátt má einnig tala um framleiðni fjármagns. í með tæknilegum framförum, held- ur á það öllu frekar rót sína að rekja til þeirrar öru verðbólgu, sem verið hefur hér á landi undan farin 20 ár og er enn. Verður að- eins vikið að því síðar. En sá árangur, sem margar aðr- ar þjóðir hafa náð í þeirri við- leitni að auka framleiðslu sína og bæta lífskjörin, hefur víða einmitt byggzt á miklum tæknilegum fram föram, bættum vinnubrögðum og skipulagi. Fjármunamyndun. Fjármunamyndunin (fj^rfesting in) á íslandi hefur mörg undan- farin ár verið mjög mikil. f töflu III sést fjármunamyndunin í ýms- um löndum í hundraðshlutum af heildarframleiðslu sama tímabils. Tafla III. Fjármunamyndun I % af þjóðarframleðislu. Belgía (1953—58) 15,9 Danmörk (1955—57) 17,2 Stór ártöl Þrátt fyrir allar hörmungar og neyð, sem yfir okkar litlu þjóð hafa tiunið, hvíla þó dekkstu skuggar fslandssögunnar yfir ártölunum 1260 og 1662 og eru þau sérstak- lega minnisstæð þessa dagana. Þeg- ar fór að birta til aftar verða ár- tr.-lin 1874 og 1908 einhver þau björtustu og ‘svo 1918 og 1944 sem afleiðing af 1908. En hvað er pað, scm gerir árið 1908 sérstaklega markvert í hugum manna, þó má- ske einkum þeirra sem lifðu það’ Það er af pví hve mikinn manndóm óg sjálfstæði meginþorri íslend- inga sýndi þá á móti erlendu valdi cg innanlands úrtölu- og afsláttar- mcnnum, stm gugnuðu fyiir herra- þjóðinni, pótt sumir af þeim væru á ýmsan hátt mætir menn. , Aldrei að víkja“ Jón Sigarðsson hefur lengi verið daður fyrir þessi kunnu orð sín þegar Danir ögruðu íslendingum. PJn nú heykjast ýmsir, sjái þeir byssu, sem andstæðingarnir hræða með til pess að láta íslendinga gugna og bcgm í auðmýkt og gef- ast upp v.5 að halda rétti sínum (Framhald á 13. síðu.i hennar er ekki í þágu framleiðsl- unnar beinlínis. Tafla V. Skipting fjárfestingarinnar árin 1954—57. milj- kr. % Landbúnaður 842,1 16,8 Sjávarútvegur 446,2I 8,9 Iðnaður og námugröftur 277,6' 5,5 Flutningar 445,0 8,9 Verzun og veitingar 131,8 2,6 íbúðarhús 1796,5 35,8 Raforka 328,1 6,5 Samgöngur 464,3 9,2 Opinber þjónusta 291,6 5,8 Samtals öll árin 5023,2 100 Nauðsynlegt er að gefa því gaum, að beina því fé, sem þjóðin hefur yfir að ráða, inn á sem hag- kvæmastar brautir, og það verður að gera þær ráðstafanir, að fólki þyki fýsilegt að leggja fé sitt í framleiðslutæki. Eins og bezt sést af töflu IV eiu það engir smámunir, sem þjóðin leggur fyrir á ári hverju. Heildar- frameiðsla þjóðarinnar var á s. 1. ári talin vera yfir 7 milljarða króna virði. Takist okkur að auka hana um rúmlega 7% á ári næstu tíu ár, verður samanlagt framleiðslu- verðmæti næstu tíu ára um það bil 100 milljarðar króna. Ef spar- að yrði af því 27% eins og á árun- um 1953—57, næmi það 27 milljörð um króna. Fyrir þá upphæð mætti hyggja nærri eitt hundrað verk- smiðjur á borð við áburðarverk- smiðjuna í Gufunesi eða sements- verksmiðjuna, eða það mætti virkja nær öll vatnsföll á landinu, sem hagkvæmt er talið að virkja, eða það mætti kaupa nærri 700 þúsund-tonna togara. Snót þakkar Á félagsfundi Verkakvenna félagsins Snótar í Vestmanna eyjum þann 1. þ.m. var gerð eftirfarandi samþykkt: „Fundur haldinn í Verka- kvennafélaginu Snót, miðviku daginn 1. marz 1961 sendir öllum þeim félögum þakkir, sem stutt hafa kjarabaráttu þess og Verkalýðsfélagsns og gert þeim kleift að ná þeim árangri sem fengist hefur. Félagið þakkar enn fremur Sjómannafélaginu Jötni og Vélstjórafélagi Vestmanna- eyja fyrir drengilegan stuðn ing“.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.