Tíminn - 08.04.1961, Side 2

Tíminn - 08.04.1961, Side 2
2 T í MI N N, langardagina 8. aprft*:í961j Of ströng verðlagningar- ákvæði og skipulagsleysi ASalfundur Félags íslenzkra bifreiSaeigenda var haldinn fyrir nokKru, Fundurinn var fjölsóttur og ríkti þar mikill áhugi á verkefnum félagsins og framtíð, í skýrslu stjórnarinnar kom fram að mörg mál hafa verið í athugun hjá félaginu s.l. ár og fer hér i eftir nokkur útdráttur úr skýrslu stjórnarinnar. Vegamál Athuganir og útreikningar, sem félagið lét gera, hafa leitt í liós að hinir rérstöku skattar, sem fcifreiðaeigendur greiða árlega til líkissjóðs af bílum og rekstrar- vórum þeirra, nema um 250—300 millj. kr. árlega. Árið 1960 var fjárveiting til brúa og vega að- eins 110 millj. Ríkissjóður leggur því ekki fram til vegamála nema % af þeim tekjum, sem hann aef- ur af landfarartækjum og rekstr- aivörum peirra. Hið lélega áscand vega á fjölförnum leiðum er einn frumstæðasti þáttur okkar þjóð- íélags, sem kostar þjóðina stórfé í ótímabær cg óþörf skilti og eyði leggingu ókutækja, jafnframt því sem það hindrar á margan hátt eðlilega hagnýtingu ýmissa tækni- legra og vísmdalegra framfara. En á slíkum framförum byggjast allar kjarabætur þegnanna. Þjóðar- r.auðsyn býður að breytt sé um stefnu í vegamálum og það er hlutverk FÍB að stuðla að því, að sú breyting verði gerð sem fyrst. Bifreiðaþjónusfa Viðgerða og varahlutaþjónusta er veigamikið hagsmunamál bif- reiðaeigenda. f álitsgerð, sem scjórn félagsins ritaði allsherjar- nefnd alþingis um löggildingu bif- reiðaverkstæða segir m.a.: „Viðgerðaþjónustan er mikið ug vaxandi vandamál fyrir flesta bif- reiðaeigendur landsins. FÍB hefur því áhuga á öllum þeim aðferð- vm, sem hklegar eru til að bæta núverandi ástand Helztu vand- kvæði bílaviðgerða teljum við þessi: Léleg tækni, vankunnátta skipulagsleysi, lélegt húsnæði. En þessi vandkvæði eiga sér þrjár grundvallirástæður: Óeðlitega ströng verðlagningarákvæði, skipu lagsleysi í innflutningi varahluta og skort á tæknilegri iðnfræðslu. — Lög þessi eru sennilega óþörf þar eð breytingar á verðlagsá- kvæðum myndu ekki aðeins ná sama heldur betri árangri. Þau eru ótímábær vegna þess að Bif- reiðaeftirJií ríkisins hefur ekki þá aðstöðu, sem nauðsynleg er til þess að '-ryggja, að nægilega ströngum löggildingarákvæðum verði framfylgt. Má í því sam- bandi benda á, að slælega mun framfylgt ýmsum þeim reglum um iðnað og iðnaðarhúsnæði, sem náð geta til bifreiðaverkstæða. Lögin mundu skapa vissum verk stæðum eins konar einokunarað- stöðu, hindia að hægt væri að af- nema verðlagsákvæði, sem eru undirrót meinsemdarinnar. Svo virðist sem lög þessi myndu verða til verulegra hagsbóta fyrir 10— 20 bifreiðaverkstæði. Þau myndu ekki leysa t-B verulegu leyti né á varanlega n hátt vandræði 12—14 þúsund bifreiðaeigenda og því cennilega ópörf, áreiðanlega ótíma bær _og gildi þeirra takmarkað. Því álítum við tæplega verjandi íyrir hið háa alþingi að samþykkja lögin eins og sakir standa. Við nælurn því gegn því að frv. verði samb.“ — eru grundvallarástæ'ður bílaviígeríar- málsins, segir FIB. Tryggingamál Þar er lögð megináherzla á eftir farandi atriði: Sameiginlegar bifreiðatrygging ar FÍB, þannig að iðgjöld reiknist eftir þeirra eigin tjónum. Unnið hefur verið að þessu í samvinnu við öll bifreiðatryggingafélög. Ið- gjöld af bifreiðatryggjngum í heild geta ekki lækkað, nema tjón minnki. Að þessum verkefnum vill FÍB vinna með því að láta gera nákvæma athugun á tíðni, eðli og orsökum slysa og auka umferðafræðslu, sem að verulegu leyti byggist á upplýsingum um þessi atriði. Vinna að breyttu fyr irkomulagi á bifreiðatryggingum á þann hátt, að draga úr oftrygg- ingu og stuðla að því, að ábyrgðin lendi meira á þeim, sem tjónun- um valda, heldur en nú er. Vinna að því að reglum um veitingu og sviftingu ökuleyfa verði breytt og tekin verði upp sá háttur, sem víða tíðkast erlendis, að ökumenn, sem títt brjóta ökureglur sökum kæruleysis eða vankunnáttu í akstri, séu sviftir ökuleyfi. Slík ökuleyfissvifting er ekki refsing, heldur nauðsynleg öryggisráðstöf un og er ekki tímabundin. Hins vegar fær sá, sem ökuleyfi er sviftur á þennan hátt, þá og því aðeins réttindi sín aftur, að hann gangi undir strangt ökupróf og standist það. Fyrirkomulag sem þetta hefur gefið góða raun er- lendis og mundi vafalaust fjar- lægja margan óhæfan ökumann af íslenzkum vegum. Þá hyggst FÍB að vinna að þvf að unnt verði að tryggja ísl. bifreið hér heima til ferðalaga erlendis og sömuleið is að erlendar bifreiðatryggingar verði teknar í gildi hér á landi. Vegaþjónusta o. fl. Félagið sá um viðgerðaþjónustu fyrir bifreiðir á fjölförnustu leið- um um verzlunarmannahelgina og var hún innt af hendi ókeypis fyr ir félagsmenn. Vistfólki á Grund Nýr viSskipta- og lánasamningur við Bandaríkin Föstudaginn 7. apríl var gerður samningur á milli ríiksstjóma Bandaríkjanna og íslands um kaup á bandarískum landbúnaðarafurð- um gegn greiðslu í íslenzkum krón j um. Samninginn undirrituðu Tyler Thompson, sendiherra Bandaríkj- anna, og Guðmundur f. Guð-I mundsson, utanríkisráðherra. Hér er um að ræða sams konar samning og gerður hefur verið undanfar’in fjöguir ár við ríkis- stjórn Bandaríkjanna. f hinum nýja samningi er gert ráð, fyrir kaupum á hveiti, maís, byggi, hrísgrjónum, tóbaki, soyu- og bómullarfræsol.um, sítrónum og sítrónusafa fyrir alls 1,74 mill- jónir dollara eða 66 milljónir króna. Andvirði afurðanna skiptist í tvo hluta. Annar hlutinn, 75% af andvirðinu gengur til lánveitinga1 vegna framkvæmda hér á landi. Hinn hlutinn, sem er 25% af and- virðinu, getur Bandaríkjastjórn notað til eigin þarfa hér á landi. var boðið í skgmmtiferð. Haldinn var almennur umræðufundur um vegamál og sýnd kvikmynd um gerð nýtízku vega. Uundirbúnir voru samningar við ýmis fyrirtæki um bætta þjónustu og e.t.v. af- slátt fyrir félagsmenn . Auknar framkvæmdir vi8 Austurveg Þá samjþykkti fundurinn að beina þeim tilmælum til ríkis- stjór'narinnar, að nota 15 ára gamla heimild til 20 millj. kr. lán- töku vegna Austurvegar, og yrði fé þetta notað í Þrengslaveg á þessu ári að svo miklu leyti, sem kostur er á. í rökstuðTiingi fyrir tillögu þessari var upplýst, að sam kvæmt lauslegri kostnaðaráætlun og þeim fjárveitingum, sem nú eru veittar til Austurvegar, mundi taka tæp 90 ár að byggja vandað- an steyptan veg frá Reykjavík að Selfossi. Miðað við bifreiðaumferð og flutningsmagn hefur verið full þörf fyrir þennan veg í 5 ár eða meira. Að óbreyttum ástæðum er útlit fyrir að við verðum næstum heila öld á eftir tímanum í þessum efnum. Þá hefur félagið á prjónunum að auka á umferðarfræðsluna með kvikmyndaiýningum. Félagið er opið öllum bifreiða- eigendum cg öðrum áhugamönn- um um umferðamál með þeirri takmörkun, að einkabifreiðaeig- endur skuli ætíð skipa þrjú sæti í stjórn þess. Stjórn félugsins skipa nú: Arin- björn Kolfceinsson, formaðr'r, Bjcrn Sve nbjömsson, ritari, Valdi mar Magaússon, gjaldkeri, Hauk- ur Pétursso í og Magnús Höskulds- son, meðstjórnendur. Þrjár tillögur um Kongó á þingi S.Þ. Tshombe heldur áfram að ofsækja Balubamenn NTB—New York og Leop- cldville 7. apríl. — Rússar lögðu í dag fyrir allsherjar- þingið ályktunartilögu um Kongómáið. Gengur hún út á það, að þingið í Kongó skuli kallað saman hið fyrsta, og geri Sameinuðu þjóðirnar nauðsynlegar öryggisráðstaf- anir í sambandi við það. Enn er þar tekið fram, að S.þ. lýsi því yfir, að þær sætti sig ekki við neitt það, er skerði einingu og sjálfstæði Kongó. Með þessari tillögu hafa þrjár vermið lagðar fram við þessa umræðu allsherjar þingsins um Kongómálið. Fyrst kom fram tillaga Indverja og 16 Asíu- og Afríkuríkja, þar sem þess er krafizt, að allt belgískt lið og starfsmenn skuli á brott innan þriggja vikna, og skuli S.þ. flytja þetta fólk burt með valdi ella. — Næst kom fram tillaga 15 annarra Asíu- og Afríkuríkja um að sett verði á laggirnar sérstök mála- Bankastiórar skipaðir Lög þau, sem síðasta alþingi samþykkti um Seðlabanka íslands, tóku gildi í fyrradag. Viðskipta- málaráðherra hefur skipað Birgi Kjaran, alþingismann, _ formann bankaráðs Seðlabanka fslands og Jón Axel Pétursson, framkvæmda- stjóra, varaformann þess. Að fengnum tillögum bankaráðsins, sem kom saman til fyrsta fundar| síns í dag, hefur' viðskiptamála-j ráðsherra skipað þá Vilhjálm Þór.j Jón G. Maríasson og dr. Jóhannesj Nordal bankastjóra Seðlabanka ís-j lands. oVV.V.X.-C*-V>'V*X«'V.X.'-C»-V-C.-' j Húseigendur Gerí við og stillí olíukvfid ingartæui Viðgerðir á ails konar íieimilistækjum Ný smiði Látið fagmann ann ast verkið Sínr 24912 Málflutningsskrifstofa Málflutningsstörf tnnheinita, fasteignasala. skipasala. Jón Skaptason hrl Jón Grétar Sigurðsson lögfi Laugavegi 105 (2 hæð) Sími 11380 Vilja fá kynbóta- gripi Ýmsir áhugamenn um sauð- tiárrækt hafa löngun til þess 3ð fá kynbótagripi úr fjarlæg um héruðum, en á þvá hata verið og eru ýmsar hömíur vegna sýkrngarhættu. Sigurgrímur Jónsson í Holti rit aði af þessum ástæðum búnaðar- þingi bréf, þar sem hann minuir á, að 10 ár séu nú senn liðin frá því að fjárskipti fóru fram í Ár- nessýslu, en áhugi sé á því að fá iun á svæðið kynbótafé, t.d. úr Þingeyjarsýslu og Öræfum. Mæl- ist Sigurgrímur til þess, að bún- aðarþing beiti sér fyrir því, að slík heimild verði veitt. Búfjárræktarnefnd fékk málið til meðferðar og lagði til, að það yrði afgreitt með eftirfarandi dag skrártillögu, sem samþykkt var samhljóða: „Með því að flutningar sauð- fjár milli héraða og yfir varnar- línur eru algerlega háðar leyfi sauðfjársjúkdómanefndar, telur búnaarþing eðlilegast, að þeir, sem kunna að æskja slíkra flutn- inga, sæki um það beint til nefnd arinnar hverju sinni, og rökstyðji beiðni sína fyrir henni. Búnaðarþing sér því ekki á- stæðu til að hafa afskipti af mál- inu en tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“ Sigurður Snorrason mælti fyrir tillögunni en aðrir tóku ekki til máls. miðlunarnefnd og að Kongóþini verði kallað saman að nýju. Um ræður um þessar tillögur stóðu yfir í kvöld. Ofsóknin gegn Balúba- mönnum Jaren Sendwe, leiðtogi Balúba- manna í Norður-Katanga, skoraði í dag á Sameinuðu þjóðirnar að beita liðstyrk sínum í Katanga til þess áð stöðva hernaðaraðgerð ir Tshombes gegn þjóðflokki þess um, sem hann kvað beinast að því að útrýma honum, til þess að Tshombe og hans stuðningsmenn gætu einir setið að auðæfum hér aðsins. Skoraði hann á S.þ. að framfylgja samþykkt örygigsráðs- ins frá 21. febrúar í þessu skyni. Lýsti hann því á hryllilegan hátt á blaðamannafundi í Leopoldville í dag, hvernig velbúið herlið Tshombes strádræpi fólkið og skirrðist ekki við að myrða kon- ur og börn í hundraðatali, eins og komið hefði í Ijós í átökunum við þorpið Manono á dögunum, er her inn hefði ráðizt á þorpið með bryn vörðum bílum, sprengjuvörpum og flugvélum. Hefði hann miklu málaliði frá Suðar-Afríku á að skipa auk heimamanna og Belga, og einstakra ævintýramanna úr flestum áttum. Þess má geta, að Tshombe tilkynnti um daginn, að 7 manns hefðu fallið í átökum við Mauono. Bætt sambúð við Gizenga Stjórnin í Leopoldville hefur að nokkru aflétt viðskiptabanni því, er hún setti á Austurhérað, þar sem Gísenga, arftaki Lúm- úmba ,situr í Stanleyville. Munu nú siglingar upp Kougófljót fram hjá Leopoldville, þangað, verða leyfðar á ný. Ráðherrann, sem til kynnti þetta í dag, sagði stjórnina líta á það sem höfuðhlutverk sitt að stuðla að sem beztri sambúð einstakra landshluta. Gísenga get- ur nú farið að flytja út af baðm- ullarframleiðslu þeirri, sem safn- azt hefur fyrir meðan flutninga- bannið um Kongófljótið stóð. VerkfallitS Framhald af 3. síðu. cinnig reiður mannfjöldi á hafnarbakkanum. Kjarakröfur sjómanna Þær skoðanir verða nú æ sterk- an, að verkíall þetta beinist ekki síður að því að fá framgengt kj-Öfum um bætt launakjör og starfsskilyrði á skipunum en að rnótmæla mndunum íslendinga og útfærslu landheiginnar. Sjómönn- um hljóti að vera ljóst, að um laadanirnar og landhelgina fá þeir exki þoka'ö með þessum aðgerð- um, en mjög líklega takist þeim f.u að fá úcgerðarmenn til að fall- ast á fyrri kjarakröfur, sem ekki hefur verið sinnt. FRAMHERJAFUNDUR. FélagiS Framherji heldur fund í Edduhúsi sunnudaginn 9. apríl, og hefst hann klukkan tvö eftir hádegi. Órlygur Hálfdánarson talar um launamál verzlunarmanna og fleira. Að því loknu verða rædd önnur mál. Stjórnin.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.